Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.1978, Síða 15
ju»
hugskoti
•Woody
^Ulon
MAMHAh
V VVA. y.iA,t COCV vtiVV.líti. <x. .<-c
EGÆTLA AÐ
SPyRJA MÖMMU
HVORT EG MEQ'
SJ '•JU'-------
Frönsk bók
um Kína
Framhald af bls. 5.
skyrtu þarf um 2 metra. Skömmtunarmiöa
þarf fyrir allan varning.
í Peking eru „Potemkin" verzlanir til að
blekkja útlendinga. Þar er stillt út
girnilegum ávöxtum og grænmeti, sem er
aðeins gervivarningur.
Hver Ifjölskylda í Peking fær kíló af kjöti
á mánuði. í dreifbýlinu er skammturinn
miklu minni. „Við borðum kjúkling einu
sinni á ári, á afmæli sonar míns,“ sagði
kennari, sem bjó utan höfuðborgarinnar.
Skömmtunarmiðar fyrir korni eru not-
aðir sem gjaldmiöill í svarta markaðs
braskinu.
Hrísgrjótaútflutningurinn dregst stöðugt
saman, en innflutningur á kornvöru hefur
meir en fimmfaldast á einu ári. Hjúkrunar-
kona, seni við höfum þekkt lengi og
starfaði við sjúkrahús í Peking, fékk
tilkynningu um að hún yröi að taka við
starfi í Sian í Shensihéraði fyrirvaralaust.
Maður hennar hafði atvinnu í Peking og
neitaði hún því að taka við stööunni.
Sþítalastjórnin svipti hana húsnæöinu,
herbergi, þar sem hún bjó með manni, 2
börnum og móður sinni. Ættingi skaut
skjólshúsi yfir fjölskylduna. Skömmtunar-
miðarnir voru teknir af henni, þar sem hún
var ekki lengur á starfsmannaskrá
sjúkrahússins. Eina úrræðið var að snúa
sér til hverfisskrifstofunnar í von um
einhvers konar bráöabirgöavinnu. Þar
meö er hún komin í hóp fólks, sem erfitt
er að meta hve fjölmennur er, þar sem
engar opinberar skýrslur hafa nokk.ru
sinni verið birtar þar um.
Opinberir aöilar segja að Kínverjar búi
við mikiö atvinnuöryggi. Það er þó háð
því, aö menn sætti sig við að flytja hvert
sem er, hvenær sem er, og taka að sér
hvaða starf sem er fyrir hvaða borgun
sem er.
Aukning glæpa er viðurkennd af
Flokknum en dulin fyrir feröamönnum.
Vopnuð rán, svartamarkaðsbrask og
kynferðisglæpir koma oft til meðferðar hjá
dómstólum. Gaddavír sem er strengdur
fyrir kjallaraglugga og flöskubrot límd á
múrveggi sýna að fólk gerir ráðstafanir
gegn innbrotsþjófum. Þjófnaður er talinn
vera glæpur gegn ríkinu. Eldabuska var
dæmd í 10 ára þrælkunarvinnu fyrir aö
hnupla tveim agúrkum. Sakborningur
hefur engan verjanda. Nú hefur hinn
fámenni hópur lögfræöinga sem starfaði
á undan menningarbyltingunni verið
leystur frá störfum, enda þjónaöi hann
litlum tilgangi í landi, þar sem engin skráð
lög eru til nema stjórnarskráin, og það
litla í henni, sem fjallar um rétt einstakl-
ingsins er túlkaö frjálslega og breytilega
af Flokknum.
í 26. grein stjórnarskrárinnar stendur
að „grundvallar réttur og skylda hvers
þegns sé að lúta stjórn Kommúnista-
flokksins í þágu sósialiskrar stjórnar.“
Þó því sé haldið fram að mótmæla-
göngur séu leyfilegar var ráöist harkalega
á mannfjöldann, sem kom saman á torgi
Tien An Men 5. apríl 1976. Árásinni á
fólkið stjórnaöi borgarstjóri Pekingborgar
Wu Teh, en hann hefur síðan verið
kallaður af almenningi „Tien An Men
slátrarinn". Þarna féllu nokkrir tugir
manna, en þúsundir voru fangelsaöir á
næstu dögum. Sumir urðu að dúsa í
fangelsi 8 mánuði, en var sleppt þegar ár
var liöiö frá dauöa Chou En-lais. Ekki
komu þó allir aftur úr fangelsinu, því
margir voru barðir þar til dauöa. Menning-
arbyltingin var tími mikilla hörmunga í
Peking, en Tien An Men atburðurinn hefur
þó markað dýpri spor í hugi fólks. í Peking
tala menn ekki um þorparana 4, eins og
á Vesturlöndum, heldur þorparana 5 og er
Mao þá sá fimmti.
Það er alvarlegur glæpur í Kína eins og
í Sovétríkjunum, að sýna valdhöfum ekki
tilhlýöilega virðingu. í upphafi menningar-
byltingarinnar var menntaskólapiltur í
Peking dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir að
teikna skopmynd af Mao á töfluna.
Fyrrverandi menntamálaráðherra, Chou
Jung-hsin, stuðningsmaður Tengs var
myrtur í sjúkrahúsi 13. apríl 1975.
Opinberlega var sagt að hann hefði framið
sjálfsmorð. Ho Lung marskálkur, hetja úr
göngunni miklu og fyrrverandi íþrótta-
málaráðherra lézt í fangelsi 9. júní 1965.
Honum var varpað í fangelsi í menningar-
byltingunni og tærðist hann þar upp á
nokkrum árum. Yuan Hsueh-fen var dáð
söngkona viö Shao-hsing óperuna. í
menningarbyltingunni var hún fangelsuð
án þess bornar væru á hana nokkrar sakir
og haldið þar í 4 ár á laun. Síðan var hún
send upp í sveit til „endurmenntunar" og
látin vinna erfiðisvinnu. Eftir fall þorpar-
anna fjögurra fékk hún aftur starf sitt við
óperuna, en hár hennar hafði gránað og
röddin var brostin.
Árlega reyna 50.000 manns að flyja
land, flestir frá Kanton, ýmist á bát eða
syndandi. Flóttamenn sem gripmnir eru fá
þó aðeins nokkurra vikna fangelsi vegna
plássleysis í fangelsunum.
Flokkurinn stjórnar öllum verkalýðsfé-
lögum og allir eru í einhverju stéttarfélagi.
Stjórnir verkalýðsfélaganna hafa mikil
völd og þaö veltur á miklu fyrir meðlimina
að „vera vel séðir“, þ.e.a.s. skera sig ekki
úr hópnum á nokkurn hátt, vekja ekki á
sér athygli. Stjórnir verkalýðsfélaganna
skammta mönnum húsnæöi (16 m2 f. 4.
manna fjölskyldu), skömmtunarseðla,
kvikmyndahúsmiða, leyfi til að heimsækja
ættingja eða vini utan héraðs, leyfi til
skilnaöar, giftingar, barneigna. Hjónum er
leyft að eignast 2 börn. Fæðist það þriðja
verður það hálf utan garös í þjóöfélaginu,
því það gleymist að fá því skömmtunar-
seðla o.fl. Flokkurinn stjórnar bæði vinnu
fólksins og einkalífi þess. Bannað er aö
gagnrýna Flokkinn og allir verða að sækja
vikulega pólitískan fund, jafnvel börn í
skólum, því það læra börnin, sem fyrir
þeim er haft. Það má því segja að frá
vöggu til grafar hafi Flokkurinn vökult
auga með þegnunum.
Þeir sem ekki hafa verið á samkomum
stéttarfélaganna geta naumast gert sér í
hugarlund hve forheimskandi þær eru.
Sjálfsgagnrýni er veigamikill þáttur í hinu
pólitíska uppeldi. Eftir menningarbylting-
una var vísa á hvers manns vörum í
Peking. Efni hennar er svona: „Það er
ekkert lát á fyrirskipunum, biðröðum og
sjálfsgagnrýni og heldur ekki tárum.“
Vinur okkar einn sagði: „Við syngjum
sömu söngvana og hrópum sömu slagorð-
in frá því viö erum í leikskóla og þangaö
til við Ijúkum háskóla, þetta er niðurlægj-
andi." Kínverskur flóttamaður sem við
hittum í Hong Kong sagði: „Það er lagt
svo mikið kapp á að móta hugsanir okkar,
aö við hættum alveg að hugsa. Menn
mega ekki einu sinni þegja, því með þögn
sýnir þú mótþróa. Ef menn gætu aðeins
verið hlutlausir. Það er þó réttur mannsins
aö mega þegja."
Úr L'Express
Hildigunnur Hjálmarsdóttir tók saman
og Þýddi.
Bænheyrsla
Framhald af bls. 6
finna rétta orðiö. Eftir lesturinn lyfti ég
sál og hjarta til skapara míns, eftir sem
mér var mögulegt. Ég fann aö bænar-
efnið var erfitt. Þó vissi ég að ég yrði
bænheyrö aö einhverju marki.
Þegar ég hafði lokið þessari stund
minni stóö ég upp. Ftigningarúöinn var
hættur, jú það var aðeins farið að rofa
til. Samstundis og ég reis á fætur reis
seppi gamli upp. Vel og dyggilega
fylgdist hann meö mér og veitti mér
vernd. Tryggðin Ijómaði úr augum hans
og hlýjaði um hjartarætur. Þegar leið á
daginn fór verulega að birta í lofti.
Næstu þrjá daga var eins góður
þurrkur og hægt var að hugsa sér. Sá
þurrkur var víst á takmörkuðu svæði, en
hann bjargaði miklu, þar sem hans naut
við. Ég man það, að einn þessara daga
var sunnudagur. Auövitað var þá unnið
af kappi. Ég hugsaði nú sem svo ó, bara
ef fólkiö hvíldi sig nú og tryði því aö
góða veðrið héldist áfram.
Eg fór til borgarinnar á fjórða degi,
eftir að þurrkurinn kom. Það fór víst svo
að rigna aftur. Mér kom það ekki á
óvart. Þetta varð frægt rigninga- og
óþurrkasumar á Suðurlandi. Ég hafði þó
lifað eina af þessum stundum í lífinu,
sem gleymast ekki meðan lifaö er. Ég
hafði staðið frammi fyrir augliti Guðs og
beðíö um hagstæða tíð. í raun og veru
haföi ég verið bænheyrð.