Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1979, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1979, Page 8
Pablo Neruda OÐUR UM UR I MYRKRI Sveinbjörn Sigurjónsson þýddi Urið mitt leiftraði aö næturlagi eins og eldfluga í hendi þinni. Ég heyröi tif þess, líkt og þurrt skrjáf bærist frá ósýnilegri hendi þinni. Þá snart hönd þín aftur dökkt brjóst mitt til þess aö endurnæra svefn minn og hjartaslátt. Og úrið hélt áfrám að brytja tímann meö smágerðu söginni sinni. Eins og þegar viöarbútar falla í skógi, örsmáir dropar, tros afgreinum og hreiörum, án þess að þögnin breytist, án þess aö svöl dimman taki enda, þannig hélt úriö í ósýnilegri hendi áfram aö brytja tímann, og mínútur féllu eins og laufblöð, trefjar af rifnum tíma, litlar svartar fjaörir. Þegar viö fundum angan róta í skóginum tók vatn aö drjúpa í einhverju fylgsni, stórir dropar eins og votar þrúgur. Lítil kvörn malaði nóttina. Skugginn féll hvíslandi frá hendi þinni og fyllti jöröina. Urið mitt malaði og malaði að næturlagi í hendi þinni duft, jörö og fjarlægð. Eg skaut armi mínum bak viö ósýnilegan háls þinn, fann hlýjan þunga hans, og í hönd mér féll tíminn, nóttin, smávegis þrusk frá tré og skógi, frá sundraðri nótt, frá skuggaslitrum, frá vatni, sem fellur, fellur: Og þá streymdi svefninn frá úrinu og frá tveim sofandi höndum þínum, streymdi eins og dökkleitt vatn skóganna frá úrinu til líkama þíns, frá þér til landanna, dökkleitt vatn, tími, sem fellur og streymir innra með okkur. Og þannig var það þessa nótt, skuggi og geimur, jörö og tími, eitthvaö, sem streymir og fellur og líöur hjá. Og þannig líöa allar nætur yfir jörðina, skilja ekkert eftir nema örlítinn dökkan ilm, laufblað fellur, einn dropi á jöröina slekkur hljóm þess. Skógar sofa, vötn sofa, engi, akrar og augu sofa. Ég heyri til þín, ást mín, þú andar, og við sofum. Jóhann Hjálmarsson ÞÝÐINGUM FYLGT ÚR HLAÐI Ég man vel eftir íslenskutímum hjá Sveinbirni Sigurjónssyni. Þeir voru opin- berun aö því leyti aö hann geröi sér far um aö fá nemendur sína til aö skilja bókmenntir og njóta þeirra. Hann haföi yndi af aö segja okkur frá gömlum skólabræörum sínum úr skáldabekk Menntaskólans í Reykjavík, einkum þeim Tómasi Guömundssyni og Halldóri Lax- ness. Hann las fyrir okkur úr verkum þeirra og spjallaði um skáldin meö þeim hætti aö vakti áhuga okkar. Honum datt ekki í hug aö lesa þaö sem var á hvers manns vörum, þaö sem var viöurkennt, vinsælt, heldur sýndi okkur nýjar hliöar á skáldunum. Aldrei minntist Sveinbjörn á stjórnmál foröaöist aö blanda saman pólitík og bókmenntum. Engu aö síður mun hann hafa haft ákveöna afstööu til stjórnmála, veriö jafnaðarmaður eins og þýöing hans á Alþjóðasöng verkalýösins, Inter- nationalinn, er til vitnis um: Fram, þjáöir menn í þúsund löndum,/ sem þekkiö skortsins glímutök! Sveinbjörn mun reyndar hafa veriö óánægöur meö þýö- inguna eins og hún birtist vegna þess aö sú gerö var aðeins uppkast. Sveinbjörn Sigurjónsson hvatti nemendur sína til aö lesa bókmenntir og gladdist yfir bágbornum tilraunum þeirra til skáldskapar. Hann kunni aö meta nútímaljóölist jafnt sem hina eldri. Viö héldum nokkrar bókmenntakynningar í skólanum meö stuöningi Sveinbjörns, hann stóö viö hlið okkar í þeirri starfsemi og skemmti sór áreiöanlega einna best Framhald á bls. 12 © LANDIÐ ER FAGURT OG FRÍTT Höfní Hornafirði og fjöllin að baki Ljósmynd: Mats Wibe Lund Fegurð í Hornafirði er svo víðfræg, aö ekki þarf aö fjölyrða um Það hér, en sú fegurö nýtur sín vel frá Höfn, þaðan sem viö blasir mikilfengleg fjallaröð frá Eystra Horni ogallar götur vestur í Öræfa- jökul. Á myndinni, sem Mats Wibe Lund tók úr flugvél, sést vel yfir bæinn og norður til Hoffells og dalsins, þar sem Hornafjaröarfljót rennur út í fjörðinn. Höfn er mikið uppgangspláss og meðaltekjur manna eru par meðal Þess hæsta, sem gerist á íslandi. íbúar voru 13401. des. sl. og var aukningin miklu meiri en á landinu í heild, eða 5%. Flestir vinna við fiskvinnu og útgerö og töluvert algengt aö hús- mæður vinni utan heimilis, t.d. við síldarsöltun. Næg atvinna er í Höfn fyrir alia unglinga í skólum og raunar er talsveröur aðkomuvinnukraftur á staðnum allt árið. En lífið er ekki bara fiskur og útgerð á Höfn. Þar er mikill upp- gangur í hestamennsku og einn fallegasti golfvöllur landsins á töng- unum vestanvert í bænum. Gott félagslíf er og tíðar samkomur í Sindrabæ. Leikfélag er starfandi og Karlakórinn Jökull. Söngstjóri hans er Sigjón Bjarnason í Brekkubæ í Nesjum. Uppaf Höfn er Nesjahrepp- ur. Veðursæld er talin vera á Þessum slóðum og snjólétt aö jafnaði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.