Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1981, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1981, Side 3
leikur tvö lög, en upptakan var gerö 1906, og norskir listamenn frumflytja sex stutt tónverk eftir hann. Útgáfa þessarar bókar var nánast tilefni þess, aö þessar línur er ritaöar, en hún minnti undirritaðan á þaö, aö einn íslend- ingur aö minnsta kosti hefur sungiö undir stjórn Griegs. Og þaö er enginn annar en Árni Thorsteinson, tónskáld. Hann segir frá því í bókinni „Hörpu minninganna“, sem kom út fyrir aldarfjórðungi og Ingólfur Kristjánsson færöi í letur: „Þá má og minnast afmæliskonserts í tilefni af fimmtugsafmæli norska tón- skáldsins Edvards Griegs áriö 1893. Haföi Grieg veriö boöiö til Kaupmannahafnar, en þar kunni hann alltaf vel viö sig og dvaldist oft á vetrum, þótt heimili hans væri annars í fæöingarbæ hans, Björgvin. í tilefni afmælisins var efnt til mikillar tónlistarhá- tíöar og þar flutt hiö kunna kórverk Griegs, „Landkjenning". Var kórinn þá skipaöur 200 manns, og auk þess lék 80 manna sinfóníuhljómsveit undir. Otto Malling, prófessor, hafði æft verkið meö kórnum og hljómsveitinni, en síðan ætlaöi Grieg sjálfur aö stjórna því á hátíðinni. En svo illa vildi til, aö þegar hann kom til Kaupmannahafn- ar, varö hann lasinn af kvefi og treysti sér ekki til aö stjórna aðalkonsertinum. Hins vegar stjórnaöi hann viö „generalprufuna”, og mér er alltaf minnisstæö söngstjórn þessa fræga tónskálds. Þegar á lokaæfinguna kom, var Grieg fenginn taktsprotinn, en hann fleygði hþnum frá sér, kreppti hnefana og sagöi: „Ég nota þessa!“ Og svo stjórnaöi hann flutningi verksins með hnefunum og hinum leiftrandi og furöulegu svipbrigðum andlitsins, sem voru svo ótrúlega ör og áhrifarík og eins og féllu aö hverjum tóni verksins. Gagntók hann þarna hvern mann, bæöi í kór og hljóm- sveit, svo að allir spiluöu og sungu eins og englar. Hef ég aldrei fyrr né síðar oröiö fyrir slíkum töfrum og áhrifum, og er þetta einn af þeim atburöum, sem ég gleymi aldrei. Ég sé alltaf fyrir mér úfna kollinn á Grieg og hinn leiftrandi svipbrigöi andlitsins, er hann stóö á söngstjórapallinum. Grieg var mjög sérkennilegur maöur. Danir kölluðu hann „norska trölliö". Þó var hann fremur lágvaxinn og grannur, en höfuðið var mjög stórt og á því þetta líka feikna brúsandi, gráa hárfax." Edvard Grieg fæddist 15. júní 1843 og lézt 8. sept. 1907. Þá um haustiö ætlaði hann aö fara enn einu sinni til Englands til aö stjórna þar hljómleikum. Hann taldi, aö hann myndi hressast viö það. En hann komst ekki lengra en til Bergen. í fæö- ingarbænum lauk síöustu ferö hans. Og hiö síðasta, sem hann geröi í þessu jarðlífi, var áhrifamikiö á sinn hátt. Hann haföi legiö í móki, en svo var allt í einu, eins og hann vaknaöi til nokkurrar meövitundar. Hann reis upp í rúminu, hneigöi sig hægt og hátíðlega, lagöist svo aftur á koddann og sofnaöi svefninum eilífa. Hann tók viö fögnuöi og þakklæti áheyrenda eins og af sviöi hljómleikasals og nú í eitt skipti fyrir öll. Sveinn Ásgeirsson Jenna Jónsdóttir. Andi samræmdu prófanna Hann kemur á hverjum morgni hniprar sig í sætiö og þegir. Ljóshærður lágvaxinn piltur meö Ijóma æsku og hreysti í fasi. Skólataskan er stór og þung stílabækur margar og tómar. Viprur kringum varir aukast er hann veit aö rööin er komin að honum. Gætilega tekur hann tyggjóiö og geymir í lófa sér meöan hann reynir aö lesa um forna frægö og gengna kappa fjarlæga ólæsum ráðþrota dreng sem nútíminn gengur nærri í kröfum sínum nú taka allir sama próf — á leið til jafnréttis. Barnsaugu í ungum pilti biðjast vægöar og blaka viö hjarta kerfisþrælsins sem situr þögull viö kennaraboröiö hlýöir — meö steindu hugarfari skipunum „aö ofan“. Sér ungar axlir lyftast, kikna í vonlausri baráttu viö ofurefli. Andi samræmdu prófanna svífuryfir særir ungan pilt sem í vanmætti getu sinnar sligast og grætur í hjarta týnt réttlæti. Áleitin gerist samviska kennarans: — Ef þetta væri þitt barn — ? Landsfundur Sjálfstæöisflokks- ins fer fram nú um þessa helgi. Hans hefur verid beðid med nokk- urri óþreyju vegna hins einkenni- lega ástands, sem myndaöist í flokknum, þegar núverandi ríkis- stjórn fæddist. Síöan sá atburdur geröist hafa málgögn andstæö- inga flokksins, stuðningsblöö rík- isstjórnarinnar, þóst hafa ráö á hverjum fingri fyrir sjálfstæðis- menn. Þau ráö einkennast í senn af vanþekkingu á málefnum Sjálf- stæðisflokksins og nauösyn stjórnarmálgagnanna til aö viö- halda þeirri skoöun, sem fram kom strax við stjórnarmyndunina, að nú gæfist færi á að koma höggi á Sjálfstæöisflokkinn. Sumir stuöningsmenn ríkisstjórnarinnar — vonandi eru þeir aöeins í Al- þýöubandalagi og Framsóknar- flokki — líta enn þannig á, að meö stuöningi sínum viö ríkisstjórnina séu þeir að eyðileggja Sjálfstæð- isflokkinn. Nú er mönnum í Framsóknar- flokki og Alþýðubandalagi betur um það kunnugt en nokkrum öör- um hér á landi — ef Alþýðuflokk- urinn er undanskilinn — hvaða af- leiöingar það hefur fyrir flokka, ef óbrúanlegur klofningur verður innan þeirra. Að vísu voru fram- sóknarmenn hnakkakertir hér fyrr á árum, þegar þeir losuðu sig við Möðruvallahreyfinguna, sem laut forsjá Ólafs Ragnars Grímssonar. Andstæðingum sjálfstæðismanna er einnig Ijóst, hve ill áhrif það hefur á starf flokka, ef innan þeirra er stöðugt alið á klofningi eða hafðar uppi hótanir um hann. Við þær aðstæður verða flokkarn- ir mjög innhverfir og starf áhuga- sömustu flokksmanna einskorö- ast við hjaðningavíg innan dyra en hinir raunverulegu andstæð- ingar fá tiltölulega góöan frið. Bestu bandamenn andstæðinga Sjálfstæðisflokksins nú um þess- ar mundir eru þeir innan dyra í flokknum, sem alltaf eru til þess búnir að tala eins og þeir halda, að veki mesta athygli í andstæð- ingablöðunum. í sjálfu sér er skilj- anlegt, að ákafir stjórnarsinnar bíti frá sér og reyni að verja gjörð- ir ríkisstjórnarinnar í gegnum þykkt og þunnt. Það er um mál- efnaágreining að ræða, sem varð til við myndun ríkisstjórnarinnar og gerð þess sáttmála, er hún starfar eftir. Hinir eru verri, sem leitast við að bera kápuna á báö- um öxlum. Með þvi að vísa til þeirra geta andstæðingar Sjálf- stæðisflokksins fiskað í gruggugu vatni í viðleitni sinni viö að koma illu til leiöar. Valdabarátta innan stjórnmála- flokka fer fram alls staðar í ver- öldinni. Þrjú dæmi úr nágranna- löndunum má nefna: Átökin inn- an norska Verkamannaflokksins, breska Verkamannaflokksins og þýska Jafnaðarmannaflokksins. í öllum þessum flokkum er hart barist og einn þeirra, breski Verkamannaflokkurinn, hefur þeg- ar klofnað. í þessum flokkum er I tilefni landsfundar það vinstri armurinn, sem herjar á hina hógværari. Áhrif þessarar baráttu gætir bæði innan viðkom- andi landa og utan, því að vinstri- sinnarnir keppa meðal annars að því að breyta utanríkisstefnu þessara flokka, þeir vilja draga úr samstarfinu innan Atlantshafs- bandalagsins og koma í veg fyrir öflugar varnir þess. í flokkum á hægri vængnum takast menn líka á og má þar til dæmis nefna and- stöðu Edward Heaths, fyrrum for- sætisráðherra Breta, gegn efna- hagsstefnu Margaretar Thatchers og deilurnar meðal franskra hægri manna. Erfitt er þó að finna sambæri- legt dæmi við það, sem gerst hef- ur í Sjálfstæðisflokknum. Fyrir kosningarnar í desember 1979 lá alls ekki fyrir, að það væri mál- efnaágreiningur í flokknum. Allir Norðmenn vissu það í kosningun- um í haust, að menn voru ekki á einu máli um öryggismál landsins innan Verkamannaflokksins. ítrek- aðar tilraunir voru gerðar til aö sætta þennan ágreining og gengið fram á ystu nöf af hinum ábyrgð- armeiri í flokknum. Stjórn Verka- mannaflokksins féll og nú verður gengið til þess verks innan hans að samræma sjónarmiöin. Sú skýring er fundin upp eftir á, að innan Sjálfstæðisflokksins tak- ist á frjálslyndur og íhaldssamur armur og í núverandi ríkisstjórn sitji hinir frjálslyndari flokks- menn. Auðvitað er eðlilegt, að þeir, sem gengu þvert á vilja þing- flokks, flokksráðs og miðstjórnar reyni að fegra málstað sinn sem mest þeir mega. í sjálfu sér hefði það og verið furðulegt, ef þeir, sem gengu til samstarfs við fram- sóknarmenn og kommúnista, hefðu lýst því yfir, að þeir væru íhaldssamari en meirihlutinn, sem eftir sat. Það hefði þó verið sönnu nær, þegar stefna ríkisstjórnar- innar er höfð til hliðsjónar og til- raunir hennar til að hefta fram- gang mesta framfaramáls þjóðar- innar, stórvirkjana og uppbygg- ingar orkufreks iðnaðar í tengsl- um við þær. Málefnaágreiningur hefur ekki sett svip sinn á starf Sjálfstæðis- flokksins fyrr en eftir myndun nú- verandi ríkisstjórnar, þegar þing- menn flokksins eru ósammála um jafn mikilvægt málefni og það, hvort veita eigi ríkisstjórn braut- argengi eða ekki. Af þessum ágreiningi stafar vandi flokksins og eðlilegt er, að ýmsar hug- myndir komi fram um það, hvern- ig hann verði jafnaður. Sumir segja, að slíkur ágreiningur sé svo alvarlegur, að þeir, sem fyrir hon- um standi, verði að víkja úr flokknum. Auðvitað er það svo í raun, að flokkur er klofinn, sem ekki er sammála um afstöðu til ríkisstjórnar. Ekki þarf neinar reglur um brottvísun til að átta sig á því, hitt er svo matsatriöi, hvort ástandið verði betra ef slíkar regl- ur eru settar. Fráleitt er, að slíkar reglur séu afturvirkar, þær geta hins vegar haft gildi sem víti til varnaðar. Eins og málum er nú háttað eru engin formsatriði því til fyrirstöðu, aö Sjálfstæðisflokkur- inn geti runnið saman í eina heild, vilji er allt sem þarf. Björn Bjarnason 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.