Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1981, Qupperneq 8
Við erum ugglaust fyrir löngu hætt að taka eftir því, hvernig þetta lítur út: Steindórsplan, Hallærisplan, Hafnarstræti, Aðalstræti. Eru ekki allir sammála um, við nánari athugun, að þetta sé
einmuna glæsilegur miðbær?
Formáli
Skipulagsmál eru einn þýöingarmesti þáttur stjórnvörzlunnar.
Varla er hægt að mæla því í mót, aö í uppbyggingu Reykjavíkur á
síöustu áratugum, hefur miðbærinn oröið olnbogabarn, — og stund-
um jafnvel um það rætt í alvöru, að smá-miðbæir hingað og þangað
mundu leysa hann af hólmi. í sambandi við Grjótaþorpiö gengur
hvorki né rekur; að minnsta kosti er ekkert nýtt þar að sjá. Um alla
miðbæjarkvosina standa einnar og tveggja hæða kumbaldar innan-
um sæmileg hús sum þeirra aðeins notuð sem vöruskemmur. Þess-
konar nýting á dýrustu lóðum í Reykjavík er óskiljanleg, en frá sjón-
armiði borgarbúans almennt, vegfarandans eða gestsins eru þessi
hússkrifli til skammar og stórfelldra lýta fyrir borgina. Þótt Reykjavík
sé stór og víða falleg, er augljós vanþróunarbragur á miðbænum,
alger útkjálkasvipur, sem varla getur talizt hrífandi á nokkurn hátt.
Vegna þess arna vill Lesbók biðja þig sem núverandi eöa fyrrverandi
áhrifamann á þessu sviði að skýra málið með því að svara nokkrum
spurningum.
8
Eftirmáli viö formála
Öllum hættir til að veröa samdauna
umhverfí sínu og hætta menn þá aö
taka eftir því, sem aökomumenn sjá á
augabragði. Viö hljótum aö viöurkenna
það, sem vel hefur veriö gert; annaö
eru engir mannasiðir. í því sambandi
ber hæst breytinguna á Austurstræti
og Lækjartorgi, sem var til tvímæla-
lausra bóta. Nokkur hús mætti telja
upp, sem komið hafa í stað annarra
eldri síöasta áratuginn, veitingastöðum
hefur fjölgað og við getum teflt úti við
Lækjargötu — eða er ekki svo?
Lítum á málið frá annarri hlið. Maöur
sem kæmi til Reykjavíkur eftir þriggja
áratuga fjarveru, mundi reka upp stór
augu og ekki kannast viö nema lítinn
hluta byggðar á því flæmi, sem höfuð-
borgin teygist nú yfir. En hann myndi
einnig sjá eina undantekningu: miöbæ-
inn, þar sem allt situr við það sama
þótt örfá hús hafi verið endurnýjuö.
Sem sagt: Sú feikilega þróun, sem
Reykjavík í heild hefur gengiö í gegn-
um á þessum áratugum, virðist ekki
hafa náð til miðbæjarins.
Lítum á málið frá enn annarri hlið.
Hvernig líta miðbæir út í sambærilega
stórum borgum í nágrannalöndunum?
Nú ber þar í milli, að þær eru oftast
ekki neinar höfuðborgir, sem hlýtur að
teljast tromp á hendi. Um þetta þarf
ekki að fjölyrða. Fjöldi íslendinga hefur
komiö út fyrir pollinn og séö með eigin
augum að útkjálka- og vanþróunar-
bragurinn á miðbæ Reykjavíkur er ekki
til í þetta stórum bæjum á Norðurlönd-
um, í Þýzkalandi, Austurríki, Sviss eða
Bretlandr. Þvert á móti er oft nokkur
stórborgarbragur á miöhlutanum, þótt
stærðin sé annars ekki mikil og nægir
til dæmis að benda á Lúxemborg, lítinn
höfuðstað í litlu landi. Látum það