Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1981, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1981, Side 11
Vanþróunin lýsir sér m.a. í því, að stórt bílageymsluhús hefur ekki enn verið byggt í miðbæ Reykjavíkur; þar ríkir neyðarástand í bílastæðismálum. Sumstaðar, t.d. nyrst í Grjótaþorpi er bflum kakkað saman og þeir sem lokast inni hafa stundum ekki önnur ráð en fá lögregluna eða kranabfl. í baksýn eru vöruskemmukumbaldar. Baklóðir við Lækjargötu. Hér gefur að líta, hvernig byggt er á dýrasta skika landsins. Ekki auðveldar það heldur, aö í spurningunum er oft byggt á forsend- um, sem ég tel mjög hæpnar. Þá eru margbrotin mál einfölduð mjög mikið og síðast en ekki sízt er stundum gengið út frá því í spurningunum, aö til sé eitt svar — eitt rétt svar. Það hefur verið sagt, að vissulega sé sannleikurinn til, en sá sé hængur á, að ekki sé enn búið aö finna hann. Þetta á víst eins viö um skipulagsmál miöbæj- arins og önnur mál. Spurning 1 Gengiö er út frá því í spurninginni „aö svo til ekkert hafi veriö byggt í miöbænum um áratuga skeið". Þetta er ekki rétt. í miöbænum hafa undanfarna áratugi risiö allmargar nýbyggingar og eldri hús veriö stækkuö verulega. Nægir aö nefna eftirfar- andi dæmi: Iðnaöarbankann viö Lækjar- götu, hús Silla og Valda og Almenna bóka- félagsins viö Austurstræti, Almennar trygg- ingar og Landsímastööina viö Austurvöll, Miöbæjarmarkaöinn og Morgunblaöshúsiö viö Aöalstræti og Tollstööina viö Tryggva- götu. Þá hafa á undanförnum árum og ára- tugum veriö stækkuð hús Útvegsbankans, Landsbankans og hús Eimskipafélagsins. Nú eru í byggingu eöa alveg nýbyggö hús í Pósthússtræti 13, Hafnarstræti 7 og Hafn- arstræti 20. Á sama tíma hafa hins vegar horfiö hús eins og t.d. Hótel ísland, Hótel Hekla, Smjörhúsiö, Veltan, Gúttó, Lista- mannaskálinn, Líkn, Uppsalir og Aöalstræti 12, sem höfðu töluvert aödráttarafl, hvert meö sínum hætti. Á þessum tíma hefur líka fjölbreytt starfsemi í gömlum húsum, sem enn standa, lagzt niöur, dæmi: Sjálfstæð- ishúsiö hefur hætt almennu skemmtana- haldi, Hótel Skjaldbreið og önnur hús á lóöum Alþingis svo og félagsheimili VR í Vonarstræti 4 eru aö miklu leyti oröin aö skrifstofum, Hótel Höll í Austurstræti er orðiö aö skrifstofum og svo mætti lengi telja. Þá má nefna þá örlagaríku breytingu, sem varö fyrir allmörgum árum, þegar miöstöö SVR var flutt af Lækjartorgi á Hlemm og miöstöö langferðabíla úr Hafn- arstræti suöur í Vatnsmýri. Meö hliðsjón af þessum staöreyndum er Ijóst, aö breytingar hafa átt sér staö í miðbænum á undanförnum áratugum. Þaö væri því róttara aö orða spurninguna á þann veg, hvort stefnt hafi verið í rótta átt. Dæmin sem nefnd eru hér aö framan sýna greinilega hverjir hafa byggt og hverjir vikiö burt. Einhæfnin eöa sórhæfingin viröist þarna hafa borið sigurorö af fjölbreytninni. Miö- stöö skemmtana, félagslífs og samgangna, sem áöur var á þessu svæöi, er komin á tvist og bast út um allt, verslanir á svæöinu hafa týnt tölunni. íbúöarbyggöin, bæöi í miðbænum sjálfum og aöliggjandi hverf- um, hefur veriö á stööugu undanhaldi og raunar þurrkazt út á vissum svæöum. Útfærsla byggöar á nesi, eins og hér er um aö ræöa, hlýtur aö vera vissum erfiö- leikum háö, og ekki hefur tilvist flugvallar- ins í Vatnsmýrinni bætt úr skák. I aöal- skipulaginu 1967 var gengiö út frá því, aö gamli miöbærinn gæti ekki vegna skorts í landrými og erfiðra aökomuleiöa gegnt nauðsynlegu miðbæjarhlutverki fyrir Reykjavík, hvaö þá höfuöborgarsvæðið. Af því er sprottin hugmyndin um nýjan miöbæ við Kringlumýrarbraut, sem skyldi sam- hliöa gamla miöbænum spanna yfir mið- bæjarhlutverkiö í heild. Enn hefur nýr miöbær í Kringlumýri ekki byggzt upp. Sókn miðbæjarstarfsemi aust- ur á bóginn, sem hófst fyrir mörgum ára- tugum, hefur hins vegar haldiö áfram inn eftir Suöurlandsbraut og í hverfin þar suö- ur af, án þess aö nokkurt miðbæjarsnið sé þar á. Þarna hefur einstaklingum og fyrir- tækjum gefizt kostur á byggingarlóöum meö hagstæðum kjörum miðaö við þaö sem um hefur veriö aö ræöa í gamla miö- bænum. Þar hefur hver aðili getaö byggt tiltölulega óháö öörum, en ætla verður aö hiö gífurlega heildarátak, sem ráögert hef- ur verið í nýja miðbænum ásamt náinni og víötækri samvinnu óskyldra byggingaraöila hafi dregiö úr möguleikum þess aö nýr miöbær rísi á þeim tíma og meö þeim hætti, sem til stóö. Þá er raunverulega komiö aö kjarna mátsins: Vegna skorts á landrými í Kvos- inni og hins háa lóöaverös (lóöamats, fast- eignamats meö tilheyrandi sköttum) hefur áhugi fyrirtækja á því aö vera í Kvosinni farið dvínandi. Þar kemur einnig til mikill skortur á bílastæöum. Ef ekki á aö halda áfram sem horfir, þá veröa stjórnvöld aö taka af skariö um þaö, út frá heildarsjónarmiðum, hvaöa starfsemi eigi aö leggja áherslu á aö þar fari fram. Þaö er ekki nóg aö byggja og byggja hátt í Kvosinni. Menn verða líka aö vita hvaö á aö byggja og handa hverjum, annað er ferö án fyrirheits. Þetta þýöir í raun, aö þeir sem málum ráöa veröa aö stemma stigu viö því aö tiltekin starfsemi, sem ekki telst æskileg á þessu svæöi, haldi áfram aö þenjast út þar, þótt slíkar aögeröir kunni aö vera erf- iðar og óvinsælar. Jafnframt veröa þeir aö vinna aö því meö öllum tiltækum ráöum að sú starfsemi, sem líkleg er til aö styrkja miöbæinn og efla, geti dafnaö þar. Miö- bærinn á, skv. minni skoðun, aö vera miðdepill mannlífsins hér um slóðir. Aö lokum, til aö foröast misskilning, er rétt aö benda á, aö mjög lítið er af ónotuð- um lóðum í miöbænum og flestar þeirra eru í eigu opinberra aöila, sem ekki hafa . sótt um byggingarleyfi svo mér sé kunnugt um. Hilmar Ólafsson arkitckt Spurning 1 Ein ástæöan fyrir þessu er sú, aö fast- eignagjöld í miðborg Reykjavíkur eru ekki í samræmi viö þá nýtingarmöguleika, sem skipulag hefur boöiö uppá. Hinu er svo ekki aö leyna aö skortur á Skipulags- ákvörðunum hefur veriö fyrir hendi, en meö endurskoðun á aöalskipulagi Reykjavíkur 1975—1995 var markvisst stefnt aö breyt- ingum þar á. Spurning 1 Ólafur B. Thors, borgarfulltrúi Ég býst viö aö ýmsar ástæöur séu þess valdandi aö uppbygging miöbæjarins hefur veriö hæg og þessar ástæöur geta m.a. verið fjárhagslegar og líka vegna skipu- lagsákvæöa. Hiö síöastnefnda gildir ugg- laust um Grjótaþorpiö, þar sem borgaryf- irvöld hafa allt fram á þennan dag veriö í vafa um hvernig framtíöarbyggð skuli hátt- aö. Annars staðar í miöbænum hefur skortur á skipulagsákvæöum ekki hindraö uppbyggingu og þar sem saman hefur fariö fjárhagsleg geta og vilji en án þess aö lagt hafi veriö í framkvæmdir hlýtur skýringin að vera sú, aö menn hafa ekki talið hag- kvæmt aö fjárfesta í byggingum sem reist- ar væru á grundvelli gildandi skipulags- ákvæöa. Hvort slíkt mat er raunhæft í ein- stökum tilvikum skal ég ekki um dæma. Endurskoöun aðalskipulagsins sem sam- þykkt var í borgarstjórn 1977 skapaði enn frekari möguleika til uppbyggingar í miö- bænum en því miður hafa núverandi ráöa- menn í borgarstjórn Reykjavíkur ekki talið ástæöu til þess aö sækja um staöfestingu á þeirri endurskoðun. Sigurjón Pétursson forseti borgarstjórnar Formáli Ég mun reyna aö leitast við eftir fremsta megni að svara þeim fyrir- spurnum um skipulag miöbæjar Reykjavíkur, sem þú hefur sent mér. Tvennt vil ég þó taka fram í upphafi, áður en ég vík beint að spurningunum: 1. Skipulagsbreytingar og raunar allar umhverfisbreytingar í grónum miðbæ eru ætíð og ævinlega við- kvæmar fyrir fjölda fólks. Deilur, mótmæli og skiptar skoðanir eru um nær allt, sem gert er, eða látið ógert, á jafn viðkvæmu svæði og miðbæ Reykjavíkur. Aöeins til upprifjunar vil ég nefna dæmi frá síðustu árum: göngugata í Austurstræti, staðsetning byggingar Seðlabankans, breikkun Lækjar- götu með tilheyrandi skerðingu á Stjórnarráðsblettinum, bygging Hafnarstrætis 20, staðsetning á turninum á Lækjartorgi, útimarkaö- ur á sama stað, endurreisn Bern- höftstorfuhúsanna og nú síðast gerð útitafls. Þessi upptalning er fjarri því að vera tæmandi, en sýnir þó tvennt; að ýmislegt hefur verið aö breytast og að flest veldur deilum, en sannar jafnframt, að þetta svæði er ákaflega vandasamt í skipulagn- ingu. 2. Margar af spurningunum, þó eink- um formálar að þeim, benda til þess, að fyrirspyrjandi hafi fyrirfram gefið sér svör og gangi út frá for- sendum, sem ég tel sumar hæpnar og einstaka jafnvel rangar. Svörin miða ég við, að spurning og formáli verði einnig birt. Spurning 1 Aöalástæöur fyrir því, aö tiltölulega lítiö hefur veriö byggt í gamla miðbænum á undanförnum áratugum, eru þær, aö á nær öllum lóöum standa hús í fullum rekstri, sem yröu aö víkja, ætti að byggja upp á ný. Samkvæmt skipulagi borgarinnar eru settar reglur um hámarksnýtingu lóöa á einstökum byggingarreitum. Þær reglur eru ekki nýjar, heldur hafa þær veriö viö lýöi í áratugi. Nær allir einstaklingar, sem eiga hús og lóöir í miöbænum, vilja hins vegar að miklu meira byggingarmagn veröi leyft einmitt á þeirra lóðum. Höfuöástæöan er því sú, aö mínu mati, aö þeir einstaklingar, sem eiga hús og lóöir í miðbænum, hafa ekki taliö sér hagkvæmt á liðnum áratugum aö rífa niöur gömlu hús- in, ef þeir veröa aö byggja upp i samræmi viö staöfest skipuiag. Skipulag miöbæjarins hefur veriö mikiö til umræöu nú síðustu ár og nýlega var samþykkt deiliskipulag af svokölluðum Pósthússtrætisreit. Skipulag Grjótaþorps er í vinnslu og komið á ákvöröunarstig eins - og vikið veröur aö síöar, og aörir þættir í skipulagi miöbæjarins eru í vinnslu. Á meö- an svo er gætir vissulega ákveðinnar tregöu til að taka samhengislausar ákvarö- anir í skipulagsmálum, sem gætu hæglega oröiö jafn stórkostlegt skipulagsslys eins og t.d. bygging þess húss, sem kennt er viö þetta blað, er aö mínu mati og fjölda ann- arra. Kyrrstaða hefur þó ekki ríkt i byggingum í miðbænum og í þvi sambandi vil ég nefna Hafnarstræti 7, sem er í byggingu, Hafnar- stræti 20, sem er nýbyggt, viðbyggingu viö hús Eimskipafélags íslands, sem er nýlega lokiö, og byggingu, sem er nýhafin aö Pósthússtræti 13.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.