Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1983, Síða 8
Anna Sverrisdóttir (Haraidssonar listmálara) ásamt dætrum sínum Maju og Mettu. Þær halda á strengjabrúðum,
sem eru búnar til þar á bæ ásamt mörgu ööru.
Frank Franklin, eiginmaður Onnu, hefur verið að vinna sér nafn sem
sérstæður listamaður. Hann er hér ásamt tveimur verka sinna og eins og sjá
má eru áhrifin frá Mexíkó.
og þess bezta í sjálfum sér
Á milli járnbrautateinanna
og 1-10 þjóðvegarins sem
tengir Tucsonborg við
Phoenix, höfuðborg Arizona,
er eitt elsta hverfið í Tucson-
Barrio Anita. Það byggðist
upp þegar Arizona var enn
hluti af Mexíkó og elstu hús-
in voru reist í lok 18. aldar.
Meirihluti íbúanna hefur
alla tíð verið af mexíkönsku
bergi brotinn, sumir þeirra
hafa búið þar í fimm ættliði,
en aðrir komu frá Mexíkó í
gær og eru horfnir á morgun,
í leit að vinnu hvar sem hún
býðst.
Aðal tungumálið er
pænska, eða öllu heldur mex-
íkanska, og hverfísblærinn
minnir meira á mexíkanskan
smábæ en bandarísku mið-
stéttarhverfin, sem eru að-
eins í tíu mínútna fjarlægð.
Húsin bera þess glöggt
merki, að meiri hluti íbúanna
er láglaunafólk og að lestar-
umferð hristi þau nokkrum
sinnum á dag. Ekki eru þau
girt háum steinveggjum, eins
og tíðkast með hús betri
borgara, heldur hænsnaneti
eða dugmiklum stálgrindum
þegar best lætur. Ibúarnir
hafa líka fátt að fela; þeir
eyða að jafnaði meiri tíma
utan dyra en innan. Göturnar
eru fullar af krökkum að
leik, og hvar sem skugga er
að fínna má sjá fullorðið fólk
við vinnu eða skeggræðandi
um lífsins gagn og nauðsynj-
ar, því hér þekkjast flestir og
margir eru líka skyldir eða
innbyrðis tengdir.
í þessu lifandi og litríka
hverfí þar sem meirihluti íbú-
anna er dökkur á brún og
brá, býr há, Ijóshærð og blá-
eygð, íslensk kona, Anna
Sverrisdóttir að nafni, ásamt
eiginmanni sínum Frank
Franklin listamanni og dætr-
um þeirra tveim, Mettu, 12
ára, og Maju, sjö ára.
„Elsti hluti hússins okkar er
um 80 ára gamali; ég veit ekki
til hvers það var ætlað upphaf-
lega, en á tímabili var hér rekin
kjötverslun," segir Anna um leið
og hún býður spurulum landa í
bæinn. Húsið er byggt úr adobe,
Meðal þess sem Frank Franklin fæst við eru útskornar hurðir og einnig þær
bera mexíkanskt svipmót.
Anna Sverrisdóttir
og Frank Franklin,
listamenn í Tucson
f Arizona, sótt heim
Texti: Inga Dóra
Björnsdóttir.
Ljósm. Björn Birnir.
sólbökuðum leirsteinum, sem
samsvara torfi og grjóti á ís-
landi, og er eins og lest; hvert
herbergi gengur inn úr öðru. Þó
innbúið beri ekki merki um ver-
aldlegan auð vitnar það um
mikla hugmyndaauðgi og alúð.
Veggirnir eru skreyttir' mál-
verkum, útskornum myndum og
grímum eftir Frank, og
strengjabrúðum eftir Önnu. Úti-
dyrahurðin er öll útskorin og á
aðra hurð er máluð myndasaga.
Gamlir úr sér gengnir hlutir
hafa öðlast nýtt líf; hver krókur
og kimi fengið aðhlynningu, —
gólfþrepin eru jafnvel skreytt.
Sömu umhyggju gætir utan-
dyra. Einn húsveggurinn er