Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Page 10
Marteinn Lúther á 500 ára afmælinu
Meö hjartað
á vörunum
— eftir séra Jan Habets í Stykkishólmi. Séra Gísli Kolbeins
í Stykkishólmi aðstoðaði við þýðingu á íslenzku
Lúttaer er lifandi afl í samtímanum. Time Magazine birti
þessa mynd af honum á forsíðu og með henni stóð: 500 ára
ungur.
Er nú kairos — rétti tíminn — til að skrifa grein um
Lúther? Það er spurningin. Að sjálfsögðu þar sem
500 ára fæðingar hans er minnst 10. nóv. þessa árs.
En við mig hefir verið sagt: Sérhver bók sem ég les
um hann sýnir mér nýjan Lúther. Það gæti því verið
gagnlegt að reyna að skilgreina hann vel, jafnvel
þótt hann sé háll eins og áll og sleppi léttilega úr
höndum mér.
En mig langar að reyna með stuðningi bókar eftir
Heiko A. Obermann. Obermann hefir verið kirkju-
söguprófessor frá 1966 og er forstöðumaður mið-
alda- og mótmælendastofnunar í Túbingen. Ef við
hefjum nú skilgreininguna með því að tala um lík-
amsvöxt Lúthers segir Obermann okkur að Cranach,
vinur hans, hafi gert ekki færri en 5 myndir af
Lúther.
Árið 1522 í Wartburg er Lúther beinaber og grannur
á vöxt. En þar sem hann var haldinn vel í mat á
meðan hann var í vist sem aðalsmannssonur gildn-
aði hann síðar. Allar myndir eru eftirtektarverðar
sakir glampandi augnasvipsins. Cajetanus, kardín-
áli, veitti líka athygli augnaráði hans og var snort-
inn af því. En heilsuhreysti Lúthers var í lakara lagi
a.m.k. eftir 1521.
Það er minnst á stíflu, höfuðverk, eyrnasuðu, kvíða,
nýrnasteina og gigtarflog. Sjálfum finnst Lúther
hann vera gamall orðinn á 48. ári. „Sóttir leggja
okkur lið til bæna og við verðum að biðja til að mæta
Satan," segir Lúther.
Heiftarleg og gróf
gagnrýni á páfadóminn
Hvernig var Lúther skapi farinn? Verið gæti best að
grípa til orðaleiks, „hátt upp í skýjunum og dauða-
hryggur". Vel er það fyrirbrigði þekkt að Lúther
hreifst af tónlist og söng en var líka hræðilega dap-
ur og niðurdreginn, ekki bara á yngri árum. Erik H.
Eriksson segir í bók sinni „Ungi Lúther": Hjá Lúth-
er varð vart taugaveiklunar og sérstaklega á efra
aldri þráhyggju gagnvart páfadóminum. Hann bæt-
ir við: „Að lokum lifði Lúther með Djöfulinn á heil-
anum.“ Sjálfur tekur Lúther svo til orða: „Ef mér
finnst ég þurfa að segja, „Helgist þitt nafn“, verð ég
að bæta við „bölvað, fordæmt, svívirt sé nafn pápist-
anna“.“ Hámark þessarar þráhyggju er ef til vill í
útgáfu bæklingsins, „Gegn páfastólnum í Róm, sem
Djöfullinn stofnsetti", árið 1545 með hneykslanleg-
um myndum sínum. Þar er t.d. skækja sýnd sem
gerir þarfir sínar og það sem frá henni kemur er
páfi og kardínálar. Svo taka drísildjöflar þá til sín.
Hvað á að segja um það? Átti páfastóllinn skilið
slíka saur-léttingar gagnrýni? Ef betrun og hreins-
un var markmið Lúthers en ekki einber smánun
væri hægt að skilja þess lags grófheit. Hvort sem til
var ætlast eða ekki hafði þetta áhrif á samviskuna í
Róm. Munkurinn Lúther var í óvissukvíða og gat
hvergi öðlast hjartaró: Það hefði verið hægt að láta
sér detta í hug að það hefði breyst eftir reynsluna í
turninum 1518 er „hlið Paradísar opnuðust" honum.
Lúther var skapmikili og það um of meira að segja
gagnvart nánum vini og samstarfsmanni, háskóla-
bróður Melanchton, sem ætlaði nokkrum sinnum að
yfirgefa háskólann vegna ofsareiði Lúthers. En það
Ekki þarf að efast um hver trónir á stalli á torginu (
Wittenberg, en þannig Iftur torgið út á vorum dögum.
var Melanchton sem flutti líkræðu yfir Lúther 22.
febr. 1546.
Bænamaður sem hugsaði upphátt
Lúther var með hjartað á vörunum. Það kom beint
sem hann hugsaði jafnvel það sem oftast er þagað
um. Hann sagði t.d. 14 árum eftir giftingu í einni
borðræðu sinni, að hann hefði eiginlega haft í huga
að giftast Ave von Schönfeld. Honum leist ekkert á
Kötu þá og fannst hún drembilát — „samt hefði Guð
úthlutað honum hamingjuríkasta hjúskap".
Lúther er nú almennt viðurkenndur guðhræddur
bænamaður hvað sem játningalandamærum líður,
segir Obermann. Honum hlotnaðist öryggi og efling
í bæninni. Orð hans fyrir ríkisþinginu í Worms
vitna um að hann fylgdi samvisku sinni eins og þau
voru töluð andspænis keisarahirð og dauða. „Sam-
vizka mín er bundin af orði Guðs. Þar af leiðandi get
ég ekki og vil ekki afturkalla þau, því að breytni
gegn samvisku minni er hvorki heilsusamleg né ör-
ugg. Ég get ekki annað. Hér stend ég. Guð hjálpi
mér. Amen.“ Lúther fór ekki í manngreinarálit. Þar
sem honum fannst brotið í bág við boðorð Guðs
þrumaði raust hans eins og spámanna Gamla testa-
mentisins, hvort sem var yfir eigin stúdentum eða
starfsbræðrum, eins og Karlstadt, eða bændum eða
hans eigin verndarmanni, Friðriki, hinum vitra
kjörfursta, t.d. varðandi tilbeiðslu helgra dóma.
Var Lúther góðum gáfum gæddur? Hann varð mag.
art. 1505. Þá var hann 22 ára. Doktor í guðfræði varð
hann svo 27 ára og hóf fyrirlestrahald við háskólann
í Wittenberg 1512. Árið 1517 varð hann frægur í
Þýskalandi og alræmdur í Róm vegna greinanna 95
gegn aflátssölunni sem hann festi upp með áskorun
um kappræður. Næsta ár átti hann að flytja fram-
söguræður á Ágústínasamkomu í Heidelberg. Þótt
Jóhannes von Eck, guðfræðiprófessor í Ingolstadt,
gæti þvingað Lúther í Leipzig til að viðurkenna ým-
islegt, skaðaði það lítið orðstír Lúthers sem lærðs
manns.
Fylgismenn hans brugðust ekki. Annars er það
10
spurningin hvort aðdáunarverðara er, snarræði
hans í kappræðu eða afköst hans. Prierias, guðfræð-
ingur frá Róm, notaði aðeins þrjá daga til að sýna
fram á villutrúareinkenni á greinunum 95, en Lúth-
er nægðu að eigin sögn tveir dagar til andsvara.
Nýja testamentiö þýtt á 11 vikum
Um afköst Lúthers vitnar t.d. þýðing hans á Nýja
testamentinu, sem hann lauk á ellefu vikum, sömu-
leiðis 3 höfuðrit hans: „Til kristna aðalsins meðal
Þjóðverja", „Um Babylonar herleiðingu kirkjunnar",
og „Um frelsi kristins manns“, sem hann samdi öll
frá því í ágúst 1520 og fram í október sama ár.
Fræðin meiri og minni sem hann samdi í apr.—maí
1529. Ritsafn hans í hundrað bindum í Weimar-
útgáfunni. Ætli allt hafi verið fyrsta flokks? Lúther
var andvígur útgáfu allra rita hans. Helst hefði
hann viljað sjá ritum sínum tortímt þar sem þau
hindruðu lestur á Heilagri ritningu. Éinna helst léti
hann ekki neikvæða umsögn sína um þau ná til
Fræðanna meiri og ritsins um „Frjálsræði viljans".
Var Lúther viljasterkur? Er Jóhann von Staupitz,
yfirboðari hans, greindi Lúther frá því, að hann ætti
að vinna að doktorsverkefni, leggja stund á prédik-
anir og hafa með höndum prófessorsembætti í bibl-
íufræðum við háskólann, stamaði Lúther að svo
mikið starf gegni af honum dauðum. En Staupitz
hélt það vera marklausa viðbáru. Hvernig öðlaðist
Lúther kjark sinn? Var hann honum meðfæddur?
Miklu fremur verður að segja af trúarvissu og guðs-
trausti. Réttarprófið hjá keisaranum í Worms gæti
verið vottur um það. Ætlaði Lúther þangað? Hann
skrifar Spalatin, hirðkapellán hjá Friðriki vitra:
„Ég mun svara keisaranum boði hans að koma, að ég
muni ekki koma, ef ég á aðeins að afturkalla. Það get
ég gert hér. Ef hann byði mér að koma til að deyja,
þá mun ég fara. Ég býst við að einungis pápistarnir
muni ata hendur sínar með blóði mínu.“
í ferðinni barst honum til eyrna að bækur hans yrði
að innkalla. Hann ansaði: „Ég mun halda til Worms
undir gunnfána Krists til móts við hlið Helvítis.“
Við fyrsta réttarprófið æskti Lúther umhugsunar-
frests. Varð hann hræddur eða einurðarlaus? Dag-
inn eftir var svar hans skýrt og skorinort. Að taka
aftur er ekki hægt. Það væri andstætt sannfæringu
hans. Honum er ljóst að það gildir útlegðardóm og
bálkösturinn fylgir þar með. Kjarkur hans eða
styrkur vilji hans sýnir sig líka í því, að afköst hans
í ritstörfum eða vinnu minnkar ekki þótt veikinda-
þjökun leggist á vilja hans eða þunglyndi herji á
hann.
Það er sjálfsagt með ólíkindum, en í Lúthers tilviki
er ef til vill hægt að skýra það svo, að honum virtist
það sem varð honum andstætt sem bein ögrun Djöf-
ulsins. Þá gilti að verja sig. Meira að segja sjúkdóma
leit hann þannig á. Á þann hátt varð allt á yfirnátt-
úrulegu sviði. Ætli hann hafi alltaf haft í huga
ritningarstaðinn í 1. Pétursbréfi, 5. kafla, versunum
8 og 9: „Verið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn,
gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim sem
hann geti gleypt. Standið gegn honum, stöðugir í
trúnni, og vitið að bræður yðar um allan heim verða
fyrir sömu þjáningunum"?