Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1985, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1985, Qupperneq 5
Kenningin um gróðurbúsaáhrif af röldum mengunar — og þar af leiðandi raxandi bita, ekki sízt á norðurslóðum, á kannski erfitt uppdráttar í bili eftir retur, sem rerið befur einmuna barður og kaldur — nema á íslandi. Margir rísindamenn trúa samt staðfastlega á þessa kenningu; þar á meðal Roger Rerelle, og bún er meðal þess er ber á góma í riðtalinu. Myndirnar sýna retrarbörku í Bandaríkjunum: bíla á kafi ísnjó og ísinn, sem lokar innsiglingunni til Cbicago. gera áætlanir um það, hvernig eigi að hag- nýta þær. — Hefur þú góða tillögu um orkulind, sem á að taka við, þegar við erum búnir með olíuna og jarðgasið? Revelle: Sólina. Þótt hún eigi sér einnig takmarkað æviskeið, þá ætti hún að duga í meira en fimm milljarða ára. — Telur þú, að það gæti orðið bylting, hvað varðar nýtingu sólarorkunnar? Revelle: Þótt ég gæti játað því, yrði það þó ekki bylting. Það orð felur í sér eitthvað óvænt. — Þú gætir haft trú á því. Revelle: Trú er slæmur hlutur, þegar um tæknileg vandamál er að ræða. Það sem hægt er að segja er, að það sé nóg af sólar- orku, en hún sé dreifð. Bezta aðferðin til að beizla hana er fólgin í trjávexti. Það er hægt að höggva niður tré og brenna það. En það er líka hægt að nota hina beizluðu orku trésins á annan hátt eins og til dæmis að búa til metan eða metanól. Eg held, að innan 10 eða 15 ára muni verða gerlegt að framleiða úr trjám þá orku, sem jafngildir um 30 tonnum af kolum á hektara árlega. Ég á við það, að tré, sem til eru, væru höggvin og ný gróðursett á þeim svæðum, þar sem tré vaxa núna. Þetta kann að virð- ast harkalegt, en ég held, að við verðum að gera það, af því að núverandi tré vaxa of hægt. Náttúruna varðar ekki um fram- leiðni. Henni er annt um lífið. Þess vegna sjá tré enga ástæðu til að framleiða mikið af viði, nema það sé nauðsynlegt í lífsbar- áttunni. Og hún er meðal annars fólgin í því að sigra í samkeppni við önnur tré. Þau vaxa hátt, svo að krónur þeirra verði ofar öðrum. Þau varpa skugga á önnur tré og hindra þau í að fá nægilegt sólarljós. Heimur trjánna er harður og grimmur. En þegar þau eru orðin nógu há til að skyggja á hin, sjá þau enga þörf á að stækka meira. Svo að þau hætta að vaxa og framleiða ekki mikinn við. — Svo að þú leggur til, að við gróður- setjum tré, sem vaxa hratt? Revelle: Að gróðursetja þau enn og aft- ur, landnámstré, sem taka við, þegar skóg- urinn hefur verið felldur. — En hvað um vistfræði skógarins? Revelle: Hvað áttu við með henni? — Ég á við dýrin, sem lifa í skóginum til dæmis. Ég hefði haldið, að þau ættu rétt á að lifa. Revelle: Að sjálfsögðu, en ekki eins mik- inn og við. Við höfum ákveðið það. Vand- inn er sá, að fólk hefur ákveðið, að það vilji hafa fleira og fleira fólk. Það getur ekki gert það og friðað allt annað. Það á eftir að verða mikil fólksfjölgun, og ég vil ekki, að fólk búi við eymd. Því miður þá gæti flestu fólki ekki verið meira sama um apa, fiðr- ildi og fugla. Það hefur bara áhuga á sín- um eigin fjölskyldum eða sjálfu sér. Þar sem málum er svo háttað, verðum við að geta séð því fyrir sómasamlegu lífi. „Náttúruna varðar ekki um framleiðni. Henni er annt um lífið. Þess vegna sjá tré enga ástæðu til að framleiða mik- ið af viði, nema það sé nauð- synlegt í lífsbaráttunni. Og hún er meðal annars fólgin í því að sigra í samkeppninni við önnur tré. Þau vaxa hátt, svo krónur þeirra verði ofar öðrum. “ — Telur þú, að land yrði að friða að vissu marki? Revelle: Já, vissulega. Nær 8 milljónir hektara lands eru ruddar á ári hverju vegna jarðræktar. Með því framhaldi verð- ur þess ekki langt að bíða, að hin van- þróuðu lönd verði að miklu leyti skóglaus. Það er vegna þess að fólk er að reyna í örvæntingu að fá nóg að borða. En það má leysa það vandamál með því að auka af- raksturinn, með því að bæta aðferðirnar við jarðyrkjuna, svo að meira fáist af hverri ekru. Ég hef sagt, að það væri hægt að auka framleiðnina um helming. En það kostar mikið fé. — Þú komst af stað miklum deilum 1974, þegar mú mæltir með stofnun Al- þjóðlegs matarforða. Sumir sögðu, að það að seðja hina hungruðu myndi ekki draga úr fjölda þeirra, því að hinir hungruðu myndu aðeins geta af sér meira hungrað fólk, sem enn fjölgaði hungruðu fólki. Revelle: Það eru hrein Malthusarfræði. Þetta gerist ekki þannig. Þegar fólk er bjartsýnt á framtíðina, lækkar tala fæð- inga. Þegar fólki vegnar betur, fækkar fæðingum. En það þarf fleira en fæðu. Það þarf að sjá leið til að bæta kjör sín í lífinu. Þar að auki er allt, sem þarf að gera, að spara 5 til 10 prósent af matvælafram- leiðslu heimsins á ári hverju til að bæta úr hungrinu í heiminum. — Þú hefur lengi fjallað um skiptingu á auðlindum hafsins, og þú varst fulltrúi á hafréttarráðstefnunni. Hvað er að gerast í þeim efnum? Revelle: Að þessu máli hef ég verið að vinna síðan á sjötta áratugnum — og allt- af verið að tapa. Þetta er mjög alvarlegt vandamál nú á dögum. Hafréttarsáttmál- inn veitir hverju strandríki óskoraða efna- hagslögsögu, sem nær tvö hundruð mílur út frá ströndum þess. Innan þessa beltis hefur strandríkið óskoraða lögsögu yfir öllum náttúruauðlindum og vísindalegum rannsóknum. Svo að til þess að ríki eins og Bandaríkin eða Frakklandi geti aðhafzt eitthvað á þessum hafsvæðum, þurfa þau að fá samþykki strandríkisins. Og strand- ríkin hafa verið mjög naum á að veita slík samþykki. Hinn nýi hafréttarsáttmáli er betri en það, sem fyrir var, sem var nánast algert stjórnleysi. Og þó hafa Bandaríkin neitað að undirrita hafréttarsáttmálann, því að stjórn Reagans líkar ekki ákvæðin um vinnslu málma á djúpsævi, sem fela í sér stofnun ráðs á vegum Sameinuðu þjóð- anna til að veita leyfi til vinnslu málma á hafsbotni á djúpsævi og annast einhverja vinnslu sjálft. Fulltrúar Reagan-stjórnar- innar telja þessa áætlun sósíalíska og geta ekki fallizt á, að bandarísk firmu deili tækniþekkingu sinni og búnaði með van- þróuðum ríkjum. Þetta er mjög undarleg afstaða. Flotinn þurfti nauðsynlega á sum- um ákvæðum sáttmálans að halda, svo sem þeim, er varða frjálsar siglingar um þröng sund eins og þau, sem kennd eru við Gíbraltar og Malakka. En við höfum kannski gefið það upp á bátinn með því að undirrita ekki. Hvað vísindarannsóknir snertir, erum við í afleitri aðstöðu. Bandarískir haffræð- ingar, sem voru með á hafréttarráðstefn- unni frá upphafi, lögðu til, að réttindum og skyldum yrði deilt með strandríkjunum, sem fengju allar upplýsingar, sem aflað væri innan lögsögu þeirra, og að á skipun- um yrði unnið fyrir opnum tjöldum. Elliott Richardson, stórkostlegur maður, sem hefði átt að verða forseti, var fyrir sendi- nefnd okkar á ráðstefnunni síðustu árin, áður en stjórn Reagans tók við. Hann vann ötullega að því, að þessar tillögur næðu fram að ganga. Undir hinni óskoruðu 200 mílna efna- hagslögsögu eru milli 30 og 40 prósent af hafinu undir yfirráðum einstakra ríkja, og þetta er áhugaverðasti hluti hafsins. Þar eru helztu straumarnir, þar er mest lífið í sjónum og þar eru athyglisverðustu rann- sóknarefnin, hvað jarðfræði varðar. Nú er eina leiðin til að fá leyfi til rannsókna innan landhelgi annarra þjóða að gera um það tvíhliða samning. Og þróunarlöndun- um er stjórnað af mönnum, sem skilja ekki vísindi eða er skítsama um þau, en vilja bara hafa yfirráð og eftirlit. — Geta vísindamenn frá hinum ýmsu þjóðum unnið saman, án þess að þjóðern- ishyggja komi til skjalanna? Revelle: Vissulega, í haffræði. Nema hvað við eigum ekki mikið samstarf við Sovétmenn, ekki vcgna tortryggni eða óvildar, heldur vegna þess að mælingar )eirra eru ekki nógu góðar. Þeir eru ekki nógu nákvæmir. Þeir eru á eftir. — Heldurðu, að það eigi við um þróun- ina á sviði hernaðar líka? Revelle: Það þarf ekki að vera. í lokuðu samfélagi eins og Sovétríkjunum er allt hólfað niður í loftþéttar og vatnsþéttar geymslur. Þróunin á sviði hernaðar getur verið mjög góð, þótt hún sé miður góð á öðrum sviðum. En eigi að síður hafa verið unnin ágæt verk í fræðilegri haffræði í Rússlandi. — Víð hvaða vandamál fást menn í fræðilegri haffræði? Revelle: Nú, aðallega eðlisfræðilega haf- fræði, hreyfingar hafsins, eiginleika þess og hvernig þeir breytast. Þetta eru stærðfræðileg verkefni á háu stigi. Ungir haffræðingar á þessu sviði nota stærð- fræði, sem varla var fundin upp, þegar ég var í menntaskóla. — Hefurðu áhyggjur af mengun sjávar? Revelle: Ekki miklar. Þetta er alvarlegt vandamál við sjávarstrendur, en ekki varðandi hafið í heild. — En ég man ekki betur, en að Jacques Cousteau hafi sagt, að hann hefði séð... Revelle: Jacques Cousteau er ekki vísindamaður. Hann er góður verkfræð- ingur og ágætis maður, en hann hefur mjög lítinn áhuga á vísindalegum sann- indum. Cousteau segir, að hafið sé að deyja vegna mengunar. Það er þvaður. Cousteau er mjög áhyggjufullur út af því, að þegar hann er að kafa, þá sér hann bjórdósir á hafsbotni, og þær fara mjög í taugarnar á honum. Hann vill, að hafið sé hreint. Hann er góður vinur minn, og ég vil ekki gera lítið úr honum. Hann er merkur maður. En hann er bara ekki haffræðingur. — Svo þó að hann sjái bjórdósir ein- hvers staðar á miðju Kyrrahafi, þá bendir það ekki til, að hafið sé í hættu ? Revelle: Auðvitað ekki. Hafið er geysi- stórt og það er sjálfsagður staður til að taka við alls konar úrgangi frá mannkyni. Hinar miklu skolpleiðslur út í sjó skaða hafið í rauninni að engu leyti, ef vel er um þær búið og þær ná út í opið haf. Mengun er alvarlegt mál í innhafi eins og Miðjarð- arhafinu. Strendur þess eru yfirleitt þakt- ar tjöru, gömlum verjum og alls konar hlu- tum, sem eyðast seint. Löndin við Mið- jarðarhaf hafa bundizt samtökum um að reyna að hreinsa þarna til. — Mér skilst, að lífið í hafinu sé á hraðri leið með að hverfa. Revelle: Það er alls ekki rétt. Margar fisktegundir eru ofveiddar, sérstaklega í norðurhöfum. Það hefur frekar verið um ofveiði að ræða en mengun. — Telurðu ekki, að það sé þörf á stjórn á þessum hlutum? Revelle: Jú, svo sannarlega. Við þurfum fleiri friðuð svæði og fleiri þjóðgarða. Við þurfum að friða land í almennings eigu, en láta ekki nautgripabændur ráðskast með það. Fólk, sem hefur eigin hagsmuna að gæta, er oft mjög skammsýnt. Hvalir voru veiddir svo að lá við útrýmingu á nokkrum árum, því að það var gróðavænlegra að gera það en að viðhalda stofninum. Það er sama sagan og um nautgripabændurna. Þá varðar ekkert um framtíðina. Þeir vilja fá eins mikið í aðra hönd og hægt er. Skylda samfélagsins er að hugsa fyrir framtíðinni og gera ráðstafanir til að tryggja, að um einhverja framtíð verði að ræða. Vanda- málin eru mjög alvarleg, mjög svo. Okkar sameiginlega áhugamál að varðveita hluta af jörðunni fyrir þá íbúa hennar, sem ekki eru af mannkyni, nær kannski ekki fram að ganga vegna stjórnmálalegs vanþroska, samfélagslegrar óstjórnar, fáfræði, ágirndar og mannlegs veikleika. — Þegar fólk er hrifið burt frá fornum lífsvenjum, svo að það fái notið betri lífskjara, koma oft upp aðlögunarvanda- mál af alvarlegu tagi. Tökum til dæmis eskimóana. Þeir sitja með hendur í skauti og gera ekki neitt. Þeir voru vanir að að- hafast eitthvað, áður en við fórum til þeirra með velgjörðir okkar. Revelle: Þetta er rétt varðandi eskimó- ana. En það að gera eitthvað þarf ekki endilega að vera af hinu góða. Horfðu á kött. Hvað gerir köttur? Hann sefur 18 tíma á sólarhring. Sama er með hundana. Eina dýrið, sem heldur að vinna sé góð, er maðurinn. Það er einstakur mannlegur eiginieiki, sem allir eru þó ekki gæddir, það er langt frá því. — Heldur þú, að ágirnd sé í vexti í heimi nútímans? Revelle: Bernard De Voto sagði einu sinni, að eftir því sem hann vissi bezt, hefði fólk alltaf haft áhuga á hugsanlegu hámarki af samförum á öllum tímum, á öllum stöðum og í öllum samfélögum. Það mætti kannski segja eitthvað svipað um ágirndina. — Sv.Ásg. — þýtt og stytt úr „OMNI“ LESBÖK MORGUNBLAOSINS 23. MARZ 1985

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.