Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1985, Page 11
Fengur
er einskonar galdraorð
á Grœnhöfðaeyjum —
og allir þekkja skipið
frá íslandi
„Gefðu manni fisk
og hann verður saddur þann daginn.
Kenndu honum að veiða
og hann verður saddur alla daga. “
Götumynd frá Mindelo.
Nokkrar svip-
myndir frá Sao
Vicente, einni
Grænhöfðaeyja.
Eyjarnar eru 600
km vestur af Afr-
íkuströnd, orðnar
til af eldvirkni í
námunda við
sprungur Atlants-
hafshryggsins eins
og ísland. íslend-
ingar hafa tekið að
sér að aðstoða eyj-
arskeggja við fisk-
veiðar og er það
umfangsmesta að-
stoð íslenzka ríkis-
ins við þróunar-
lönd.
MYNDIR OG TEXTI:
NANNA BVCHERT
Fiskmarkaður
íMindelo.
Nútíminn birtist i þessari mynd einna beizt í
þrí, að konan reykir sígarettu um leið og hún
mundar bin eldfornu amboð rið matseldina.
Þrottur er gjarnan breiddur á jörðina til
þerris og steinar lagðir ofaná.
Ennþá eru smábátar með fjögurra til
fimm manna áböfn uppistaðan í fiskifiot-
anum. Þeir sigla út að morgni og landa að
kröldi sama dags. í bakgrunni er gamla
portúgalska bafnarrirkið, sem nú rerður
breytt í minjasafn.
Þetta gamla kínverska
máltæki lýsir vel and-
anum í fiskveiðiaðstoð
Islendinga á Sao Vic-
ente. Allir íbúar í stærsta bæn-
um á eynni, Mindelo, kannast við
sérhannaða fjölveiðiskipið
„Feng“, þar sem áhöfnin er ís-
lensk. Það fann ég áþreifanlega
strax fyrsta daginn, þegar ég var
að þvælast um hafnarhverfið að
leita að „Feng“. Ég tala hvorki
portúgölsku né kreólatungu (á
Grænhöfðaeyjum tala yfirvöldin
fyrra málið, almenningur það
seinna). Ég reyndi að gera mig
skiljanlega með handapati og
látbragði, þangað til það rann
upp fyrir mér að „Fengur" var
galdraorð, sem allir skildu. Hver
einasti vegfarandi, sem ég hitti,
var stórhrifinn af þessu íslenska
framtaki, og mér var fljótt sagt,
að farkosturinn frægi væri úti á
sjó, á humarveiðum á sundinu
milli tveggja annarra Græn-
höfðaeyja, Ilha do Sal og Boa-
vista. Gott fólk fylgdi mér í
ríkisrekna sjávarútvegsfyrir-
tækið, Interbase. Fyrirtækið á
sína eigin báta og stórar frysti-
geymslur við höfnina, sem er sú
stærsta á eyjunum.
Útflutningur á fiski er mikil-
væg tekjulind fyrir þetta unga
lýðveldi, sem er eitt af fátæk-
ustu ríkjum heims. Meðaltekjur
á íbúa eru rúmlega fimm þúsund
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 27. APRlL 1985