Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1985, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1985, Page 8
uppá pallborðið hjá Frönsurum og þeir eru ósnortnir af þeirri list enn. Þess vegna er dálítið ólánlegt, þegar symbólisti kýs að búa í París, enda þekkir Miriam engan þar í borg, sem aðhyllist þessa stefnu; hún tel- ur sig einfara meðal Fransara og er ekki hluti af neinni heild eða félögum. Af þessu leiðir, að ekki er auðvelt fyrir Miriam að lifa af listinni í Paris. En hún lætur slag standa og tekst það einhvern- veginn; meöal annars með því að kenna teikningu í einkatímum. í kennslu sinni byggir hún á aðferð, sem miðar að því að virkja hægri helming heilans, en kennslu- aðferðir hefðbundinna listaskóla virkja vinstra helminginn, eftir því sem talið er. Afleiðingin er sú, að hægra heilahvelið verður óþroskað og þetta hefur farið vax- andi í vestrænni menningu. Fólk treystir á tækni og stærðfræði á Vesturlöndum og hefur glatað hæfileikanum til að skynja umhverfi sitt á líkan hátt og áður var hægt og sumt fólk í fjarlægum löndum getur enn. En listamaður í París, sem telur sig ein- fara, — er hann ekki ákaflega einmana? Miriam telur sig ekki einmana, en segir að sú hætta sé vissulega meira fyrir hendi í borg eins og París heldur en Reykjavík til dæmis. En það mun listamönnum sameig- inlegt, að þeim leiðist aldrei, því þeir eiga athvarf og verkefni, sem aldrei þrýtur. einfar‘i -•"Paris. — Miriam segir, að frekar skorti sig tíma til að gera allt það sem hana langar til. Og hún verður áfram í París, nema hún verði á einhvern hátt neydd til að fara þaðan. En samt er fátt eins fagurt og ísland í góðu veðri, segir hún. Myndir sínar vinnur Miriam oft á papp- ír og þær eru ekki stórar heldur. Það kem- ur bæði til af því, að í vinnustofu hennar er hvorki hátt til lofts né vítt til veggja, og svo hitt, að þægilegra er að flytja smærri myndir með sér milli landa. Myndirnar eru stundum einkennilega uppbyggðar í þá veru, að hvít, ósnortin eyða verður í miðju þeirra. Algengara er hjá flestum lista- mönnum að myndflöturinn sé með ein- hverskonar kjarna í miðjunni en þeim mun ininna, sem gerist í myndinni á út- mörkunum. Miriam hefur á þessu ein- kennilega skýringu. Hún segir að þetta stafi frá draumi sínum eða ósk um viðvar- andi óléttu. Það er að vísu ósk, sem ekki fær rætzt. En Miriam hefur einu sinni upplifað þetta ástand í nokkra mánuði, nefnilega þegar hún gekk með dóttur sína fyrir liðlega aldarfjórðungi. Það var stór- kostlegt ástand, segir hún; það verkaði svo vel á sálarlífið og listina, að hún getur ekki gleymt þvi. Olétta, sem engan enda tæki, væri ákjósanlegasta ástand sem hægt væri að hugsa sér, segir Miriam Bat Yosef. GÍSLI SIGURÐSSON **er i , 'ertc n /i/«— gJ°rning. ?J?rni,, 'gUr i >nn stó;/. &'órníi T y**ir nz/ct,. MIRIAM BAT YOSEF

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.