Lesbók Morgunblaðsins - 10.08.1985, Síða 2
Greta Garbo á tindi listaferilsins.
sér til hreyfings til að afla sér enn meiri
frægðar og enn meiri leiklistarframa. Hún
hélt fyrst til Berlínar ásamt kvikmynda-
leikstjóranum M. Stiller, en hann var af
þýzkum gyðingaættum og þótti mjög fær í
sínu fagi og ráðríkur vel að auki.
En viðstaðan í Berlín varð ekki nema
fáir mánuðir, því að Stiller lagði nú hart
að Gretu að fylgja sér til Bandaríkjanna,
þar sem honum hafði boðist starf við að
leikstýra kvikmynd, en hann hafði mjög
góð sambönd við ýmsa áhrifamenn í
kvikmyndaiðnaði þar vestra.
Það varð því úr, að Greta Gustaffson
sigldi vestur um haf til Bandaríkjanna í
von um að öðlast frægð og skjótan frama í
höfuðstöðvum kvikmyndagerðar þeirra
tíma, Hollywood.
Hún var þá aðeins tvítug að aldri og
kunni varla stakt orð í ensku, svo ekki
hefur hana vantað kjarkinn til stórræð-
anna, því einmitt um þetta leyti eru tal-
myndirnar að byrja að ryðja sér til rúms.
Fyrir milligöngu leikstjórans Stillers
tókst Gretu að komast á samning hjá
Metro-Goldwyn-Mayer-kvikmyndaiðju-
verinu í Hollywood, og aðeins nokkrum
vikum síðar hóf hún að leika aðalkvenhlut-
verkið í kvikmynd, sem hlaut heitið
„Kvenfreistarinn", en sýningar á þessari
fyrstu mynd hennar hófust vorið 1926.
Greta hafði þá tekið upp listamannsnafnið
Garbo og var kynnt sem slík í hlutverka-
skrá þessarar fyrstu amerísku kvikmynd-
ar sinnar.
En frægðin lét hins vegar á sér standa á
amerískri grund, og þetta kom Gretu
Garbo nokkuð á óvart eftir þá miklu vei-
gengni, sem henni hafði fallið í skaut í
Evrópu. Launin, sem Metro-Goldwyn-
Mayer-félagið greiddi hinni ungu og iítt
reyndu sænsku leikkonu voru ekki ýkja há
þessi fyrstu ár hennar í Hollywood, svo
ekki var eftir miklu að slægjast fyrir hana
í þeim efnum heldur þar vestra. Hún var
því í þann veginn að missa kjarkinn og
snúa aftur alfarin heim til Svíþjóðar, þeg-
ar gæfuhjól hennar fór loks að snúast
hraðar. Eftir fjögurra ára dvöl í Holly-
Greta Garbo
Hin ógleymanlega kvikmyndagyðja fyrri tíma
ænsk-bandaríska leikkonan Greta Garbo
fæddist í Stokkhólmi árið 1905. Borgaralegt
nafn hennar er Greta Gustaffson; var hún
komin af velstæðu fólki og hlaut gott upp-
eldi. Hún ákvað snemma að verða leikkona,
og aðeins 16 ára að aldri hóf hún leiklist-
arnám við Konunglegu Leiklistarakademí-
una í Stokkhólmi og lagði sig alla fram við
að ná sem beztum árangri í þeim stranga
skóla. Strax að loknu þriggja ára námi í
akademíunni tók hún að leika í kvikmynd-
um, en hún var þá tæplega nítján ára að
aldri. Kvikmyndun var ennþá ung listgrein
í þá daga og ýmis tæknileg atriði við töku
myndanna var harla ábótavant, miðað við
það, sem síðar varð.
Flestar voru þessar kvikmyndir fremur
stuttar, og hlutverkin, sem Gretu Gust-
afsson voru fengin, voru í fyrstu smá og
veigalítil. En svo fékk hún skyndilega til-
boð um að leika aðalkvenhlutverkið í
langri og mjög vandaðri kvikmynd, sem
byggð var á hinni frægu Gösta Berlings
saga eftir skáldkonuna Selmu Lagerlöf, en
bókin kom út í Svíþjóð árið 1891 og var
brátt þýdd á fjöldamörg tungumál um all-
an heim. Greta varð svo að segja á svip-
stundu orðin þekkt kvikmyndaleikkona
eftir að Gösta Berlings saga var tekin til
sýninga, og innan árs frá því að þessi kvik-
mynd hóf sína sigurgöngu um kvikmynda-
hús Evrópu fór Greta Gustafsson að hugsa
wood, lék Greta Garbo titilhlutverkið í
kvikmyndinni „Anna Christie", en taka
þeirrar kvikmyndar fór fram mikinn hluta
ársins 1929, og var myndin frumsýnd
snemma árs 1930. Þá fyrst tóku bandarísk-
ir kvikmyndahúsagestir að veita hinni
kornungu, norrænu fegurðardís verulega
athygli, og fékk hún frábæra dóma fyrir
frainmistöðu sína í þessu hlutverki hjá öll-
um helztu kvikmyndagagnrýnendum í
Bandaríkjunum.
Greta Garbo var orðin stór stjarna í
kvikmyndaheiminum, og laun hennar tí-
földuðust á einu ári. Síðan fylgdi hver
stórsigurinn á fætur öðrum með leik Gretu
Garbo í aðalhlutverkum kvikmyndanna
„Kristín Svíadrottning“ (1933), „Anna
Karenina" (1935) og „Ninotchka" (1939).
Fyrir leik sinn í þessum kvikmyndum
öðlaðist Greta Garbo heimsfrægð, bæði
sakir mikilla leikhæfileika og eftirminni-
legrar túlkunar á þessum frægu kvenhlut-
verkum í kvikmyndasögunni og heims-
bókmenntum. Einstæð fegurð hennar, tig-
inmannleg framkoma, sem var henni
ávallt eðlileg og sérstæður yndisþokki, allt
þetta gerði hana að hreinasta átrúnaðar-
goði milljóna kvikmyndaunnenda um allan
heim.
Síðasta kvikmyndin, sem Greta Garbo
lék í, var „Tvö andlit einnar konu“, en sú
mynd var gerð árið 1941. Eftir þessa
kvikmynd dró Greta Garbo sig algjörlega í
hlé og settist að í New York. Hún hætti
þar með kvikmyndaleik með öllu, og kom
þessi ákvörðun hennar öllum, sem til
þekktu, mjög svo á óvart, því hún stóð þá á
hátindi frægðar sinnar. Metro-Goldwyn-
Mayer-kvikmyndaiðjuverið missti þar með
langstærsta spóninn úr aski sínum, og
sendi hvern háttsettan fulltrúa sinn á fæt-
ur öðrum á fund Gretu Garbo til þess að
reyna að telja henni hughvarf með tilboð-
um um gífurlegar launageiðslur fyrir
áframhaldandi leik á vegum kvikmynda-
iðjuversins, þar sem leikkonan skyldi fá að
ráða leikstjóra, meðleikendum, gerð hand-
rits og kvikmyndun. En öll gylliboðin
reyndust árangurslaus: Ákvörðun Gretu
Garbo varð ekki þokað; hún var hætt að
leika í kvikmyndum fyrir fullt og allt.
Fleiri amerísk kvikmyndafélög gengu
lengi vel á eftir henni með grasið í skón-
um, en allt kom fyrir ekki, hún sat við sinn
keip.
En frægð hennar hélt velli. Árið 1950
kusu lesendur hins þekkta og áhrifamikla
bandaríska kvikmyndatímarits „Variety"
Gretu Garbo mikilhæfustu og vinsælustu
leikkonu aldarinnar. Kvikmyndir þær, sem
hún lék í fyrir hartnær hálfri öld, eru enn
þann dag í dag ofarlega á vinsældalista
kvikmyndaunnenda og enn sýndar við
góða aðsókn víða um heim. Kvikmyndir
Gretu Garbos gefa því enn á okkar dögum
af sér drjúgar tekjur, bæði til hennar
sjálfrar, framleiðenda, dreifingaraðila og
eigenda kvikmyndahúsa.
Um æviferil Gretu Garbo og leiklistar-
frama hennar hafa á undanförnum ára-
tugum verið skrifaðar ótal bækur; blöð og
tímarit um allan heim eru stöðugt að birta
um hana lengri eða styttri greinar — efni,
sem bæði er satt og logið, en alltaf mikið
lesið af fjölda manns.
Garbo er fyrir löngu orðin helgisögn í
augum samtíðarmanna hennar.
Nýlega kom út samtímis í Bandaríkjun-
um og Bretlandi enn ein bókin um æviferil
þessarar dáðu kvikmyndaleikkonu. Höf-
undur bókarinnar er bandaríski blaðamað-
urinn Alexander Walker, og nefnir hann
bók sína einfaldlega „Greta Garbo —
svipmyndir". Það sem einkum vekur for-
vitni manna er sú staðreynd, að bókarhöf-
undur er sá fyrsti, sem fengið hefur að-
gang að ýmsum skjölum hjá Metro-
Goldwyn-Mayer í Hollywood, þar sem
skráðar eru alls konar upplýsingar um
leikferil Gretu Garbo í bandarískum
kvikmyndum. En satt bezt að segja kemur
þar fátt annað nýtt eða markvert fram um
leikferil þessarar mikilhæfu listakonu,
nema þau launakjör, sem henni voru boðin
fyrstu tvö árin, sem hún dvaldi í Holly-
wood.
Tölurnar, sem fengnar eru úr skjala-
safni kvikmyndaiðjuversins eru að mörgu
leyti athyglisverðar: Á fyrsta ári veru
sinnar í Bandaríkjunum nær ráðningar-
tímabil Gretu hjá Metro-Goldwyn-Mayer
frá 10. september 1925 til og með 9. sept-
ember 1926, og af þeim tíma starfaði leik-
konan í alls 12 vikur og fjóra daga við
kvikmyndaleik hjá félaginu og hafði 400
dollara í laun á viku; samtals 4.922,33 doll-
arar. Hún hefur engin viðfangsefni á veg-
um félagsins í 12 vikur, en fær greitt fyrir
þann tíma, samkvæmt samningi 4.933,33
dollara. Eftir standa þá, samkvæmt samn-
ingsgerðinni, 15 vikur og einn dagur, en
fyrir þann tíma greiðir félagið henni 400
dollara á viku, þannig að heild nema laun
leikkonunnar 6.066,66 dollurum fyrir leik-
tímabilið. Hafi félagið ekki fengið henni
verkefni við kvikmyndaleik á þeim vikum,
sem eftir lifðu ráðningaársins, bar því þó
skylda til að greiða leikkonunni 4.932,44
dollara að auki, þannig að heildartekjur
hennar yrðu 10.999,00 dollarar.
Að því er launin snerti, var upphafið að
leikferli Gretu Garbo í Hollywood ekkert
sérlega glæsilegt, því fjöldi starfsmanna
kvikmyndaiðjuversins hafði tvöfalt hærri
laun í þá daga. En Greta var staðráðin í
því, að láta ekki þar við sitja; hún hafði
nægilegt bein í nefinu til þess að vinna
ekki í langan tíma fyrir smáræði eitt i
kaup. Þegar á fjórða ári Hollywood-dvalar
sinnar námu árslaun hennar yfir 100.000
dollurum, og fóru eftir það síhækkandi
með ári hverju. Frægðarferill Gretu
Garbo á hvíta tjaldinu átti að lokum eftir
að kosta Metro-Goldwyn-Mayer félagið
óhemjufé í kaupgreiðslur til hinnar mjög
svo arðvænlegu leikkonu, segir í bók Alex-
anders Walkers.
Langsamlega athyglisverðast við þessa
nýjustu bók um Gretu Garbo eru þó vafa-
laust allar hinar mörgu ljósmyndir af
leikkonunni, sem aldrei hafa verið birtar
áður; þessar myndir eru meira hrífandi og
segja skoðandanum mun meira um konuna
Gretu Garbo en nokkrar lýsingar í orðum
megna að fá sagt.