Tíminn - 17.11.1966, Page 8

Tíminn - 17.11.1966, Page 8
8 TÍMJNN FIMMTUDAGUR 17. nóvember 1966 Gísli Magnússon, Eyhildarholti: Undan brekkunni „Hlutverk vort nú og á ókomrium tíma verður fyrst og fremst að varða um frelsi vort, vera „frjálsir menn í frjálsu landi“ -- Benedikt Sveisnson í alþingisiiátíðarrscðu 1930. Á liðnum öldum jókst eymd og vesaldómur íslenzkrar þjóðar að sama skapi og völd og áhrif er- lendra manna færðust í auka. Eft ir að vakningaröldin hófsí, kost uðu beztu menn þjóðarinnar sér öllutn til að leysa af henrd erlenda fjötra og firra hana erlendri íhlut un og áhrifum. Og þjóðin fylgdi þeiim fast, óskipt að kalla, einkum alþýða manna. Við hvern hlekk, sem brast, hvern fjötur, sem leyst ur var af íslenzkri hugsun, skilaði þjóðinni drjúgum í átt til aukinn ar hagsældar meiri manndóms og menningar. Því fór víðs fjarri, að vökumenn þjóðarinnar berðust fyrir nokkurri innilokunarstefnu eða einangrunar. Þeir vinzuðu það bezta úr erlendu mennirtgarlífi og athafna og vildu samhæía það is- lenzkri hugsun, innlendum stað- háttum. Þetta voru þjóðlegir menn og þjóðvísir. Hinn-1. desemiber 1913 rættist mikill draumiur. Ennbá stærri drauanur va,rð að veruleika 17. júní 1944. Síðan er liðinn aðeins röskur fimmtungur aldar. Svo ungt er hið íslenzka lýðveldi, þstta libla ríki, sem ekki er fjöl mennara en ein gata í erlendri stórborg. Hversu hefur því farn azt á þessum bemskudögum? „Hlutverk vort • . . verður fyrst og fremst að varða um frelsi vort, . . . “ Svo mœlti garpurinn Pénedikt Sveinsson að Lögbergi 1930. Barátta smáþjóðar fyrir frelsi og sjálfstæði tekur aldrei erida. Smáríkið verður sí og æ að „varða um frelsi“ sitt cg sjálf- stæði, ef ebki á að glatast. Það á meira undir þegnum sínum og stjóm en stærri ríki, — einkum þó stjórn, því að þar eru málin ráðin auk þess sem gera verður ráð fyrir að sérhver ríkisstjórn, sem styðst við lýðræði, hafi að öll um jafnaði meiri hluta kjósenda að baki sér. Hvað sem herverndarsamningn um líður, þá verður þó naumast annað með sanngirni sagt en að þær ríkisstjómir, sem hér fóru með völd fyrstu ár hins unga lýðveldis, væru sæmilega á verði um frelsi og sjálfstæði þjóðarinn ar — og treystu auk heidur sjálf stæðið, samanber útfæirslu fisk- veiðilögsögunnar og þá sigursælu baráttu, sem háð var við óbil- gjarna ofureflisþjóð- En með til- komu íhaldsstjórnar Alþýðuflokks ins og Sjálfstæðisflökksins í áxs- lok 1958 verða harmsöguleg þátta skil. Nú er ekki lengur barizt fyr ir að efla hið nýfengna sjálfstæði, treysta það innan frá og utan, nú er keppzt við að afsala sjálfstæði bæði beint og óbeint, fjöreggið sjálft haft að eins konar verzlun arvöru. „Hlutverkið" er ekki lengur „fyrst og fremst að varða um frelsi vort“ heldur öllu fremur hitt ,að þóknast erlendum ásæln ismönnum. Unnum sigri í landhelgisdeil- uríni var snúið í hraklegan ósigur með afsalj einhliða réttar til frek ari útfærslu fiskveiðilinunnar. Hinu heitið, að vinna sleitulaust að friðun landgnmnsins alls. Efndir engar, ekki einu sinni minnstu lil- burðir til að efna þetta heit, þótt orðið sé 5 ára gamalt. Við því var aldrei að búast- Þama er við erlenda að eiga, og þá brestur djörfung og þor. Aðsfaðan auk þess stórum verri eftir hið smánar lega knéfall fyrir Bretum. Herstjóm Bandarikjamanna beitti falsrökum til þess að fá að seilast inn í íslenzka menningar- helgi- Eða var það ríkisstjórnin íslenzka, sem bjó falsrökin til og beitti þeim til að koma fram vjija herstjórnarinnar? Eigi veit ég það. Hitt er öldungis víst, að e'ngin ríkisstjórn nokkurrar sjálfstæðrar menningarþjóðar í víðri veröld önnur en sú íslenzka mundi hafa forgöngu um að greiða götu áróðri og áhrifum heimsins mesta stór- veldis inn á heimili eigin þjóðar, fámennrar og helzti gleypigjarnr ar. Jafnvel svo dyggur þjónn sem ritstjóri Alþýðublaðsins viður- kenndi eftir á eigin afglöp og stjórnar sinnar og játaði í blaði sínu, að stækkun hinnar banda- rísku sjónvarpsstöðvar á Heykja nesi hefði leitt þjóðina í „and- styggilega sjálfheldu." f Hvalfirði er talið yfirburða gott herskipalægi. Þar heíur Bandaríkjaher tekið sér bölfestu. Ríkisstjórn okkar hefur annað sjónarmið en Einar Þveræingur. Hún leyfði umyrðalaust, að amer- íski flotinn settj upp ný cg stór kostleg hervirki í Hvalfirði. Hvað mun sá dagur heita, er Bandaríkja her hverfur þaðan? Og hvert verð ur næsta hertökuskrefið, ef ís- lenzk stjórnarvöld halda áfram að hneigja sig í duftið og verða í auð mýkt við hverri kröfu, sem hinu mikla herveldi kann að hugkvæm ast að bera fram? Erlendur auðhringur setur sig niður, stofnar til stóriðju og fær ríkulegt athafnasvæði í mesta þétt býli landsins — í skjóli margvís- legra fríðinda og hlunninda ann arra og meiri miklu en þeirra, sem íslenzkum mönnum hlotnast. All- an ágóða af starfseminni, sem ból föst er og rekin á íslenzkri grund, flytur auðhringurinn úr landi. Svo lágt er lotið til að fullnægja kroí uim hinna útlendu auðjarla, að ágreiningsmál, sem upp kunna að rísa milli þeirra annars vegar og íslenzkra, aðilja hins vegar, eru tekin undan lögsögu íslenzkra dóm stóla og fengin í hendur erlendum dómendum. Öllu freklegar er naumast hægt að óvirða íslenzka dómarastétt, íslenzkt sjálfstæði. En þeir kvað hafa þenna háttinn á í Afríkuríkjum ýmsum. Og ef lil vill hugsar rikisstjórn okkar sem svo, að fslendingum ætti ekki að vera vandara um en blökkumönn um suður þar. — Hitt er svo önnur saga, að allar meiri háttar framkvæmdir í vegamálum verða að sitja á hakan um og bíða um þriggja ára skeið, að því er Morgunblaðið hermir, til þess að hægt sé að fullnægja alúm insamningnum. En hverju skiptir það? Málreifur ráðherra lét orð falla um það í mikilli ræðu, að straum ur tímans hnigi æ meir í þá átt, að smáþjóðir afsöluðu sér ýmsum réttindum, sem sjálfstæðar þjóðir einar hafa, í hendur stórþjóða. Slíkt væri ekki annað en eðlilegur hlutur. Við upprifjun þeirra mála, er að framan getur, verður Ijóst, að ráðherra sá rær ekki einn á báti í ríkisstjórninni. Hér hefur verið sýnt með nokkr um dæmum, hversu hefur verið haldið út á við um varðveizlu ís- lenzks sjálfstæðis. En harátcan íyr ir frelsi og sjálfstæði er líka háð í landinu sjálfu. Einnig þar eru að verki öfl, seon aðra guði hafa — önnur sjónarmið en íslenzk. Stjórnarstefnan hefur leitt til þess, að mikill auður á íslenzkan mælikvarða hefur safnazt á hend ur tiltölulega fárra manna. Þeir eru hinir ,,sterku“ einstaklingar, sem Morgunblaðið talar um af hugstola hrifningu. Það eru þeir, sem gera út þetta furðulega fyrir tfeki, sem kallar sig „Sjálfstæðis flokk.“ Og víst eru þeir „sterkir" á sinn hátt. En þeir eru hvorki né verða sterkur liðskostur í eilífri sjálfstæðisbaráttu lítillar þjóðar, sem jafnan á í vök að verjast. Skefjalaus auðhyggja er alþjóðleg. Hún á enga ættjörð, ekkert þjóð emi, enga tungu. Hún rær í þeirri Keflavlkinni, þar sem frekast er fengs von hverju sinni. Annað er henni einslds virði. Stefna og athafnir valdhafanna hafa sín áhrif á og móta með nokfcrum hætti viðhorf og afstöðu þeirra manna æði margra, sem fylgja þeim að inálum. Svo er það um þjóðemismál og sjálfstæðis sem önnur. Einn hryggilegastur vottur um afleiðingar af ístöðu- leysi og undanlátssemi núverandi ríkisstjórnar í sjálfstæðismálum Gísli Magnússon. þjóðarinnar er hin smánarlega bænarsfcrá til herstjórnarinnar á Keflavífcurflugvelli. Um það plagg er raunar bezt að hafa sem fæst orð, svó langt sem það er fyrir neðan það, sem telja mætti Jág mark íslenzfcs velsæmis— og ætti sem fyrst að gleymast. Settar hafa verið á laggir mikl ar stofnanir rífcisstjórnmni til leiðbeiningar í efnahagsmálum — og veitir sjálfsagt ekki af. Á hinu var þó naumast minni þörf, að nefnd valinna manna, tilkvaddra af hlutlausri stofnun, t. a. ms Hæstarétti, hefði frá öndverðu haft strangt eftirlit með athöfn um stjórnarinnar í. sjálfstæðismál- unum. Ejkki alls óhugsiandi, að þá hefðu færri glöp verið irainin. Stefna ríkisstjórnarinnar er mót uð af skoðun hennar og mati á íslenzku framtaki annars vegar og erlendum auðmagnsáhrifum hijis vegar. Þessi skoðun kom glögst fram í ræðu, sem forsætisráðhe’ a flutti á Varðarfundi í haust f!: 1 herrann taldi, samkvæmt frásögn Morgunblaðsins, að þær „tvennar stórbreytingar í lífskjörum þjóðar innar“, sem orðið hafi á þessari öld, eigi hún að þakka tveim heimsstyrjöldum með tilheyrandi hersetuvinnu. Vissulega vona þoð allir menn, að eigi dragi til nýrra ar stónstyTjaldar, jafnvel þótt verða mætti til þess að valda iinni þriðju „stórbreytingu í !;fs kjörnm þjóðarinnar" Fyrir því er talið nauðsynlegt að opna erlendu auðvaldi sem greiðasta leið inn f landið til að firra þjóðina atvinnu leysi og efnahagshruni. tslending ar eru sem sé ekki menn ti! að standa á eigin fótum. Þeir eru ekki færir um að vera tslendingar. Á vorj komanda verður um þa3 barizt, hvort oltið skuli áfram und an brekkunni, hvort enn skuli rek in sú undansláttar- og aísalspólitik sem nú hefúr verið stunduð um hríð, eða stungið við fótum, snúið við, sótt á brekfcuna og tekin aftur upp sú stefna sem Benedikt Sveins son markaði í ræðu sinni á Al- þingishátíðinni 1930. —: „Hlutverk nú og á ókomnuni tima verður fyrst og fremst að varða nm frelsi vort, vera „frjáls- ir menn í frjálsu landi.““ ; l ' •< ■" ■ r * * ■:■:•+&&.•*:•*:•• .«>.*«Sí;*»'>j» *•• »™«- . ***• **:■: .S>■■»■:**■*&■+**<»**%*'*&•>*’• *** *■'/.+* s* . •'. '•■***■. s•#■’•• **** íVi'fí.wy s.** ;:•»!*» * • •t» --»» v -sv 'v V »•- • • • ■;>■>» *W/ . • ;.•: >*»» »-<sk- +-*\> WNi i »»>*»-■*!» : ......... .....». ......... . ♦*■*<*>»*:<* »>»**** r»: ■ • ■• ■ MO ***, **** <• • . **.}<&•* •fsisíytu*}** >«» «* : •í£t *»ýy *• i»**>>í. vý-ýv. »v. »A í yúsu- '-'++4 :?S;S~Í **** ** phOt* *"V?X**.fs* ****+*>»• t. *» ** &•****'■>&'•■; y**u '.** •&*, ***» *t* **> 'sis-sVKiiM'***.*&, S" i :: yr ' *»*>>•» ♦*.-**»-»• . ♦*,**i*y» ■ ■: ■.■■. vrfTjr vt&'+ÍÍ'- —sf.siís »» . •*'***'»*>». «.>*■; •*+**"■ «*• ->*.te< :+■:* •. *4y*tf *U'siMryt**i «-***>»» ■ t..-.-.-..-. .y ;:•> »:»» : i't****s i -^,*^***, ».. ♦. ,*•„**•'„*.*; ■ ■ ■ -i*"iv*iK*:. .,■»> »S> ifY yMS**.*. •*■■: i* , .<*4**', i $#***«*MM?*«*****'í .., * *X*st**i*jt. . . Wý-ígí-Æ'V:; * x.iU^******,*i**Ay*t • iiúuyíft*. , 4 -• »v »» a. '<*••*«■ -» s***.su-**' **■ »*.«o* *v •. V- 'ýl'f+i. *>»<*^**> . ... , --V-. ÍTARLEG BÚFJÁRFRÆÐÍ NÝSTÁRLFG AÐ GERD AK—Rvík. — Bókaforlag Odds! Björnssonar á Akureyri hefur sent! frá sér stóra og óvenjulega bók — Búfjárfræði eftir Gunnar Bjarnason, búfræðikennara á; Hvanneyri. Bókin er stórt og vand aS lausblaðahefti með tölusettum skilrúmsblöðum, sem standa út-úr lesblaðastálinu, svo að auðvelt er að fletta upp á því, sem leitað er að. Síðan má bæta við blöðum, eftir því, sem út eru gefin, eða skipta um blöð, ef ástæða þykir til, vegna þess, að fræðin breytast. Þannig getur bókin verið að breyt ast og bætast næsta áratuginn. Þetta form er í senn mjög hand hægt og líklegt til þess að auð- velda mönnum að fylgjast með breytingum í hraðri þróun, en slíkt er nú ærin nauðsyn. Þetta er því augljós hagræðing, en það orð er boðorð dagsins. í formála segir að engin aðgengi leg búfjárfræði hafi verið til hér á landi um skeið, en Gunnar Bjarnason hafi samið handritið og byggt á kennarareynslu sinni í greininni. Bókaforlagið kveðst gefa verkið út til þess að heiðra Hvanneyrarskóla í tilefni af 75 ára afmæli hans árið 1964. Forráða- menn útgáfunnar segja, að áhægju legt hafi verið að glíma við þessa nýjung í bókaútgáfu, og það sé von þeirra, að svo hafi tekizt með útlit o gtilhögun bókarinnar, „að hún megi um langa framtíð þjóna þeim tilgangi að vera fróðleiks- náma íslenzkri bændastétt og land búnaði okkar ti! gagns og blessun- ar“. Kosti þessarar bókargerðar telur forlagið einkum þessa. Auðvelt að b;*ta nýju efni í bókina eða skipta um blöð, og einnig getur hver eig andi bókarinnar sem er, bætt hana eigin blöðum, t.d. vélrituðum eða skrifuðum, með upplýsingum er hann telur sér gagn að og aflar sér annars staðar. Þannig getur lesandinn sjálfur tekið þátt í samn ingu bókarinnar og miðað hana að nokkru við eigin þarfir og sérsvið í búfræði, og einnig er unnt að setja í hana ýmsar skýrslur og gögn er varða bú bóndans sjálfs og þannig geymir hún um leið nið urstöður af persónulegri reynslu hans. Höfundur bendir á þá staðreynd í formála sinum, að búfjárfræði hljóti fyrst og fremst að verða rit verk um rannsóknaniðurstöður. sem sifellt breytast og aukast. Hann segir og. að tveir kaflar verkinu séu alveg eftir aðra höfunda, lífeðlisfræðin eftir Þor stein Þorsteinsson, lífeðlisfræðing frá Húsafelli, og kafli um æðar- varp eftir Gísla Vagnsson, bónda á Mýrum í Dýrafirði. Víða kveðst hann og hafa tekið upp orðrétta kafla úr bókum og greinum. Framhald a Dls. 12. %

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.