Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1986, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1986, Page 6
 Bessastaðir í tíð skólans. að ólíkar stafsetningarkenningar hafi einnig skilið hópana að. En Pjölnismenn taka aftur til við tímaritið ásamt fleirum. Á fundi í des. 1842 eru 13 félagsmenn mættir. Jónas er í Kaupmanna- höfn þennan vetur og beinir kröftum sínum að útgáfunni. Um þetta leyti fer dijúgur tími félagsmanna í deilur um lög félagsins sem er verið að setja saman. Frá og með 6. árg. eru útgefendur ekki nafngreindir heldur eru þeir „nokkrir íslend- ingar". Efnið er næstum eingöngu íslenskt, varðar mest landshagi og hagsmunamál og svo bindindisfélög, sem voru mikið hjartans- mál nokkurra í hópnum. Bæði Konráð og Brynjólfur eru mjög áfram um þessi félög, sem þeir kalla reyndar oft hófsemdarfélög. Þeim finnst Jónas ógnar daufur í þessu máli, en á endanum virðist hann fallast á að ganga í félagsskapinn. „Brynjólfur varð 77 sinnum glaðari en nokkum tíma áður, þegar hann las, að þú gengir í bindindis- félagið, og jeg varð 76 sinnum glaðari, en vant er, að minnsta kosti. Það er eins og okkur þyki ofur lítill „veiðr" í þjer,“ segir Konráð í bréfi til Jónasar. í 7. árganginum er snúið frá fyrri stafsetningu, nákvæmri framburðarstafsetningu, vegna málamiðl- unar í hópnum, eins og segir í þar að lút- andi pistli. Kvæði Jónasar, þessi síðari tíma burðarás Fjölnis, voru hvorki mörg ná áberandi í ritinu framan af, en þeim fjölgar þegar líður á og setja verulegan svip sinn á þessa síð- ustu útgáfuhrinu ritsins. 9. árg. kom út 1846, ári eftir að Jónas dó, og er fullur af efni eftir hann, bæði í bundnu og óbundnu máli, eins konar minningarrit eftir hann. Fleiri urðu árgangamir ekki. Vísast átti 9. árg. ekki að verða svanasöngur Fjölnis, tímaritið lognaðist bara út af. Baráttumað- urinn Tómas og svo Jónas dánir og horfnir. íslendingar í Kaupmannahöfn áttu vísast fullt í fangi með að halda úti fleiri tímaritum en Nýjum félagsritum Jóns og kumpána hans og sáu kannski ekki heldur ástæðu til að styðja bæði Fjölni og félagsritin. ÁHRIFFJÖLNIS Tilgangurinn með Fjölni var vissulega háleitur og göfugur. En hvemig tókst þá til við að smita lesendur af hugsjónum og efla ísland? Frómt frá sagt, þá virðist ritið ekki hafa haft mikil áhrif þegar það kom út, áskrifendur urðu aldrei margir og eld- móður útgefendanna dvínaði og ritið breytt- ist þegar fram í sótti, þó árgangamir yrðu aldrei margir. Það munaði um þegar Tómas og svo Jónas voru fallnir frá. En hvemig stóð á dræmum undirtektum? Hverjir gátu verið á móti því nytsama, fagra, sanna og því sem er gott og skynsam- legt? Hlutu ekki allir að vera sammála um að þjóðin hefði gott af smá uppfræðslu? Vafalaust, en með töluverðri óheppni og kannski klaufaskap, sem stundum einkennir unga og innblásna menn, tókst fjórmenning- unum að stíga ofan á tæmar á mörgum strax í fyrsta árg. íslendingum hefur alltaf líkað illa, að lesa gagnrýnar greinar um sjálfa sig. Og einmitt slík grein var sú um trúarlíf íslendinga eftir Danann Muller. Vafalaust vakti fyrir fjórmenningunum að gefa löndum sínum smá hugmynd um hvem- ig þeir kæmu öðrum fyrir sjónir svo þeir mættu draga af því nokkum lærdóm. — Glöggt er gests augað —. En lesendum virðist ekki hafa fundist þetta hið minnsta forvitnilegt, heldur móðgast í stórum hóp- um, ekki svo mjög út í Muller, heldur út í Fjölnismenn fyrir að vera að koma þessu á framfæri. Og það jafnvel þó greinin hefði þegar birst í Danmörku. Grein frá Tómasi, nokkurs konar ferða- saga frá Höfn og heim, kom líka illa við menn, því þar ber hann stundum saman hvemig hlutimir eru og hvemig þeir ættu að vera. Líka gagnrýnistónn þó uppbyggi- legur væri, sem lesendur virðast hafa kunn- að lítt að meta. Og svo var það stafsetningin. Viðkvæmni fyrir henni er engin ný bóla hér. Á þessum tíma var engin lögboðin stafsetning og öll þau mál í deiglunni. Þar fór málfræðingur- inn Konráð fyrir félögum sínum og rak hart. Hugmynd hans var að best færi á að skrifa íslensku sem allra líkasta framburðin- um, burt með ypsilon o.s.frv. Hugmyndir hans voru ekki útfærðar að fullu í 1. árg., en strax í 2. voru þær býsna áberandi, þó Konráði hafí sjálfum kannski ekki fundist nóg að gert. En þama rötuðu útgefendur í nokkurt öngstræti, því það fylgdu þeim fáir í þessu máli. Þessi stafsetning stangaðist t.d. á þá klassísku stafsetningu, sem Svein- bjöm Egilsson o.fl. héldu á lofti, og sem er að mestu eins og sú sem nú tíðkast. Það fór ekki hjá því að fjórmenningamir fyndu fyrir lítilli hrifningu landa sinna. Bæði var að illa gekk að selja ritið, og safna áskrifendum, þeir fengu kvörtunarbref, og eins var Tómas úti á íslandi og gat lagt eyrað við almannaróm. Hann var líka óspar á að veita honum áfram til félaga sinna eins og má lesa í bréfum hans. En það voru kannski ekki aðeins einstök mál eða greinar sem fóru fyrir bijóstið á mönnum hér, heldur yfirleitt eldmóður og ákafi ungu mannanna. Andrúmsloftið hér var býsna þungt og staðnað og kannski kom þessi nýjungagimi og breytingaþrá illa við landann. Hinum eldri mönnum var ekki mikið um Fjölni, því allir vom afturhalds- menn og keyrðir í gamla fjötra, og homauga var litið til alls; menn héldu að allt, hvert kvæði, ætti að þýða einhveija pólitíska byltingu, svo sem „Heilóarvísan". Þessi kíausa Gröndals lýsir vel þeirri tortryggni sem ríkti hér. Og Þorgrímur, gullsmiðurinn á Bessastöðum, bannaði Grími syni sínum að yrkja í Fjölni, segir Gröndal. Hjartansmál Fjölnismanna, alþingismálið og stafsetningin, áttu ekki mikinn fram- gang. En hvað er þá eftir? Eldlegur áhugi þeirra á velferð landsins og fomaldardýrkun til að efla þjóðarmetnað landanna var ekkert séreinkenni fjórmenninganna. Það er erfítt að mæla áhrif þeirra í jafn óáþreifanlegum málum, en kannski smituðu vel ort kvæði Jónasar og skarpur stfll Tómasar jafnaldra þeirra, þó eldri menn styggðust og þó ekki liggi mikið eftir þá félaga. Gröndal talar um hvemig hann og fleiri lærðu kvæði Jón- asar ósjálfrátt. Þau virðast bara hafa smogið inn í menn. Það er ekki fjarri lagi að álykta að í kvæðum Jónasar hafí andi fjórmenning- anna og kynslóðar þeirra kjamast og borist út í meitlaðri mynd. Það eru í raun kvæðin, sem ljá nafni Fjölnis þennan ljóma, sem loðir við hann og félagana fjóra enn í dag. Sniiligáfa Jónasar hefur smurst yfír á félaga hans og heldur nafni þeirra á lofti. Aðdáun seinni tíma manna á Fjölni er ekki í neinu samræmi við álit og móttöku samtímamanna. En fomaldardýrkun og ættjarðarást sem ósar af vel ortum kvæðum Jónasar og hugsjónir fjórmenninganna, féllu vel í kramið hjá íslenskum sjálfstæðisköpp- um þegar leið á 19. öld og alveg fram til 1944, svo þeim var ekki leyft að gleymast. Og vegna þessa seinni tíma gildis þeirra eru nöfn þeirra og Fjölnis enn munuð, núorðið kannski fyrst og fremst f hátíðarræðum á þjóðartyllidögum — og á 150 ára ártíð rits- ins... Sigrún Davíðsdóttir er cand. mag. í íslenskum bókmenntum. -ítÍ3tn1u.P^ tntiRiv ðlfl ghiiáý'.ttj flfu^úit -iriyf ' íírtíhlstí^rtW -m' njn'^ojv'tt, iinibíé.4 ítív Ernst lestir myndlistarmenn hafa sér ekkert lokamark j 1 annað en það að hafa verið virkir í samtíð sinni og að þeirra verði er hvert nýtt verk að keppa að auk Einn fremsti myndhöggv- ari Sovétríkjanna neydd- isttil aðflýjaföðurland sitt vegna þess að alger útskúfun vofði yfir hon- um. Þetta er maður stór- átaka í list sinni og hefur vinnustofur bæði í Sví- þjóð og Bandaríkjunum. Eftir Braga Ásgeirsson minnst sem slíkra. Fyrir þá ný opinberun og nýtt mark þess að bera í sér frjóanga hins næsta. En til eru þeir, sem fá snemma á ferli sínum einhveija sérstaka hugmynd, sem verður þeim takmark, sem halda á nafni þeirra á lofti, líkt og hverfiás. Tak- markið sest á heilann, fylgir þeim í svefni og vöku, er þeim aflgjafí í þeim mæli, að afköst þeirra og sannfæringarkraftur verður af því yfirnáttúrulega. Þessir menn spretta alls staðar upp — geta verið andlega skyldir án þess að vita haus né sporð hver á öðrum og virðast þannig eins konar náttúrulögmál, sem á sér engin landamæri. Það er þeim flestum sameiginlegt, að þeir eru miklir handverksmenn og gera það óaðfínnanlega, sem þeir taka sér fyrir hend- ur, og list þeirra felur jafnaðarlega í sér einhvem háleitan boðskap. Þeir virðast ganga fyrir hugsjónalegum eldmóði, eru vel að sér í sögu og trúarbrögðum, en ósjaldan á afmörkuðu sviði. Kjarni listar þeirra er guðdómurinn í allri sinni upphafningu líkt og hjá hreintrúarmönnum, og þessu fylgir iðulega að loka að sér ákveðnum dyrum að umheiminum, lifa og hrærast í eigin, af- mörkuðum hugarheimi og bjargfastri trú á hugsjónina. Af þessum meiði telst vafalítið rússneski myndhöggvarinn Ernst Neizvestny, sem hér verður lítillega kynntur samkvæmt bók, sem mér hefur borist í hendur og gefín var út í Osló árið 1984 og Erik Egeland hefur fært í letur. Heimildirnar tek ég þaðan, en flétta inn í þær eigin athuganir og vett- vangsrannsóknir. Ernst Neizvestny var lengi vel einn hinna óþægilegu, uppreisnargjörnu, rússnesku listamanna, er ekki sætta sig við miðstýr- ingu flokksins á skapandi listum og var því undir eftirliti, þar til hann fluttist vestur. Neizvestnyað störfum / vinnustofu sinni iSotto íNew York.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.