Lesbók Morgunblaðsins - 13.09.1986, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 13.09.1986, Blaðsíða 10
'"Ég'för TramTKoranes og vánn við að bjarga þessu undan sjó og koma því á þurrt land. Þar mátti einnig sjá rauðvínstunnur, loðjakka og allskonar matvæli, allt vel út- búið og óskemmt. Líka rak þarna talsvert magn af spíritus á brúsum, sem iátinn var í söiu í kaupfélaginu í Borgamesi og átti að selja hann þar sem meðalaspritt. En menn komust fljótt að því hvers kyns spritt þetta var; nefnilega hreinn spíritus. Það spurðist út um sveitir og menn komu með baggahesta og keyptu þetta upp í snar- hasti. Það var svo notað sem hvert annað áfengi og hefur líklega þótt betur krassandi en Spánarvinin. Ég var fram eftir degi við röstina og veðrið varð smám saman þolanlegt. Eitt lík fann ég frammi í Kóranesi og var ekki nokk- ur fatatutla utan á því. Því var komið yfír röstina til hinna líkanna. En eftir að ég kom á staðinn sást ekkert eftir af skipinu; það hafði brotnað og var sokkið." LÍKARÖÐIN EFTIRMINNILEGU ST Eins og fram hefur komið gleymdi Ámi Óla myndavélinni í óðagotinu við að komast af stað. Finnbogi Rútur var aftur á móti með myndavél, sem hann fékk lánaða hjá Sigurði Guðmundssyni Ijósmyndara, því Al- þýðublaðið hefur víst ekki verið svo efnað í þá daga, að það ætti myndavél. Allar myndimar ofan úr Straumfirði, sem hér birtast og teknar vom daginn eftir strand- ið, em verk Finnboga Rúts; aðrir vom ekki með myndavél þar. Fyrir skömmu hitti ég Finnboga Rút að máli á heimili hans í Kóga- vogi og hann staðfesti frásögn Áma Öla um ferðina á staðinn. „Við gengum framá Höllubjargið, sem er syðst á eyjunni þar sem bærinn í Straum- fírði stendur. Þaðan var gott útsýni yfir skeijagarðinn og til Hnokka, en skipið var alveg horfið og við sáum ekki neitt brak þar við ströndina þá. Ég tók myndir af líkunum í brekkunni. Mér fannst það átakanleg sjón og og minnis- stæðast af öllu því, sem fyrir augu bar í þessari ferð. Líka tók ég nokkrar myndir af skipbrotsmanninum Gonidec ásamt heim- ilisfólki í Straumfirði. Alþýðublaðið var þá síðdegisblað og ég náði símasambandi suður eftir að hafa rætt við fólk á staðnum og tekið myndir, — og fréttin kom í blaðinu þann sama dag. Eftirspumin eftir myndum varð svo mik- il, að Frakkar buðust til að senda herskip til móts við Guilfoss, ef þeir gætu fengið þær. Að sjálfsögu fengu þeir myndir, en ekki á þennan hátt. Þær fóru utan með Dronning Alexandrine og þeir borguðu rausnarlega fyrir þær; líklega eru þetta dýmstu myndir, sem sendar hafa verið úr landi. New York Times pantaði einnigmynd- ir og ég sendi eitthvað vestur. Sem betur fer held ég að ég eigi ennþá filmumar. Gonidec jafnaði sig furðu fljótt eftir að hann kom suður til Reykjavíkur og var eins og grár köttur hjá mér á ritstjórn Alþýðu- blaðsins vegna þess að ég talaði frönsku. Hann kom líka í heimsókn heim til okkar. En til Islands kom hann ekki aftur. Af Pourquoi Pas? er víst lítið eftir. Fyrir þremur ámm komu hingað sérfræðingar í björgun skipa af hafsbotni; þeir köfuðu og fundu leifar af skipinu. En lítið reyndist eftir af því; aðeins kjölurinn og hann virtist vera skorðaður á milli kietta. Þeir töldu ekki ástæðu til að leggja í fyrirhöfn og kostnað við að ná honum upp.“ KÓNGANEFIÐ BAR HÁTT Þegar ræðismaðurinn og blaðamennimir komu á vettvang hafði segldúkur verið breiddur yfir líkin 22. Ræðismaðurinn gaf fyrirskipun um, að seglinu skyldi svift af líkunum og svo var gert. Um þá sjón segir Ámi Óla svo: „í miðjum hópnum lá dr. Charcot. Það stimdi á hvítan skalla hans og hið mikla kónganef bar hátt. Hann var í bláum ferða- fötum, með ljósbláan linan flibba og svart bindi. Á fótum hafði hann hnéhá gul leð- urstígvél með togleðurstöppum á sólunum. Öðram megin við hann lá lík skipsiæknis- ins, dr. Parat. Hann var alklæddur en með morgunskó á fótum. Hann var enn með gleraugu sín á ncfinu og hafði komizt með þau óbrotin gegnum brimgarðinn." Árni segir ennfremur frá því, að Gonidec hágrét við þessa sjón og merkilegt, að allir vor- kenndu honum, en enginn vorkenndi þeim, sem farizt höfðu. Um brottferðina segir hann: „Afráðið var að véibáturinn Ægir skyldi taka líkin næsta dag snemma og flytja þau til Akraness. Þar áttí danska varðskipið Hvidbjömen að taka við :þeim og flytja þau tíl jReykjavíkur. Mannfjöldi við Reykjavíkurhöfn þegar Hvidbjömen kom til Reykjavíkur með lík skipveija af Pour- quoi Pas? Heimilisfólkið í Straumfirði og Ingibjörg á Hofstöðum (lengst til hægri) á bryggjunni í Reykjavík. Þau komu suður tii að vera við athöfnina. Við bjuggumst til brottferðar. Þá kom í ljós hvað Gonidec var þakklátur heimilis- fólki í Straumfirði. Ekki gat hann skýrt frá hugsunum sínum með orðum, en hann faðm- aði innilega hvem heimilismann og kyssti á báðar kinnar í mikilli geðshræringu. Og nú vom það þakklætistár sem hmndu niður vanga hans. Flóð var komið. Beljandi straumur var í firðinum og verra að komast yfir hann en áður. Báturinn var drekkhlaðinn og valt ískyggilega á straumöldunum. Ræðarar máttu hafa sig alla við. Kaldur stormur næddi af hafi og hver hafalda kastaði nýju rekaldi á land. Hestar biðu á lendingarstað. Nú urðum við að fara allt aðra leið en áður. Til Borgar- ness komumst við þó heilu og höldnu og gistum þar.“ FÁNAR BLÖKTU Á HÁLFRISTÖNG Um það sem síðan gerðist, flutning líkanna til Reykjavíkur og athöfnina, sem þar fór síðar fram, em að sjálfsögðu til Aðgongumiða þurfti til að komast í Landakotskirkju, þegar minningarathöfnin fór fram, en fjöldi bæjarbúa stóð utan dyra og gekk síðan með líkfylgdinni. v

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.