Lesbók Morgunblaðsins - 13.09.1986, Page 16
Úr sagna-
banka Leifs
Sveinssonar
Fór hurðavillt
Félaga mínum varð það á, er hann ætlaði í útiskýli karla,
að hann opnaði hurðina inn til kvennaskýlisins. Reyndi ég að
kalla til hans aðvörunarorð, æpti mig hásan og áttaði hann sig
að lokum.
Félagi minn telur að nú muni sagan um hann ekki vera langt
undan en ég varpaði aðeins fram spurningu:
— Ætlarðu ekki að taka af honum sjálfstýringuna?
Legsteinninn
Sögumaður var á kafi í félagsmálum á 7. og 8. áratugnum.
M.a. var hann í stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur, en það varð
fjórtánda stjórnin, sem hann tók sæti í. Gerðist hann þá þreytt-
ur mjög á félagsstörfunum og pantaði legstein hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkur og réð sjálfur áletrun: „Farinn á næsta fund.“