Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1987, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1987, Blaðsíða 7
Heimspekingur Hér KomEinn... Inni á Mokka áttu margir erindi sem vildu tjá sig um þær þjóðfélagshræringar sem gerjuðust meðal stúdenta við háskóla í Vest- ur-Evrópu. Þar sat stundum, þegar hann var hér heima frá háskólanámi í Vestur- Berlín, Jóhann Páll Ámason, heimspekingur vinstri róttæklinga og sötraði súkkulaði eða kaffi úr bolla og braut heilann um túlkunar- atriði í fræðikenningu sósíalismans. Prófess- orslegur, með gleraugu og eins og hálf utan við sig. Róttæklingar, eldri og af annarri kynslóð, komu einnig á Mokka. Runólfur Bjömsson á Þjóðviljanum leit oft inn. Sá ekkert athugunarvert við Stalín og var enn í hópi ákafra fylgismanna hans og hafði einnig miklar mætur á Hoxa í Albaníu. Bróðir Jóns Bjömssonar, rithöfundar, tók í nefíð og lét oft falla lúmskar athugasemdir um „svikarana" í forystu Sósíalistaflokksins. Stundum kom Jón Þorleifsson, verkamað- ur og rithöfundur, kallaður „kindarhaus", kominn eitthvað á sextugsaldurinn, nauða- sköllóttur, lágvaxinn, feitlaginn og glotti ísmeygilega. Sagði tröllasögur af ýmsum í röðum forystumanna sósíalismans, svikum þeirra og klækjum og átti hvorki samleið með últra stalinistum eða maóistum og í stöðugu stríði við verkalýðsforystuna og kerfið yfirleitt, þó allra manna skemmtileg- astur þegar vel lá á honum. Bókelskir fagurkerar birtust á Mokka á sjöunda áratugnum. Menn úr viðskiptalífinu komu til að skoða skáldin, einstaka keypti af þeim bók. Forleggjarar komu einnig og spáðu í andlitin, framhaldsskólanemar með rómantíkina í svipnum, piltar og stúlkur, innheimtumenn, bóksalar, bóhemar, lager- menn, verkamenn og innanbúðarmenn svo einhveijir séu nefndir. Þórður Guðjónsen, lagermaður í Hamborg við Klapparstíginn, sem þá var liðlega þrítugur var einn af fasta- gestunum og kannski sá litríkasti. Hann var ávallt þannig til fara að hann gæti þess vegna hafa verið að koma frá nefndarstörf- um á Alþingi, t.d. þingmaður utan af landi. í klæðskerasaumuðum sparifötum, yfirleitt svörtum eða dökkum, í hvítri skyrtu og með svart bindi og hvítan klút í barminum. Oft við skál og með þannig húmor að það var á við að fara á þijúbíó á góða grínmynd að hitta Þórð Guðjónsen í góðu skapi á Mokka. Hann sat oft við borðið næst fata- henginu og svo mikill diplómat að kom helst ekki fyrir að þyrfti að hafa af honum nokk- ur afskipti, þó drukkinn væri. Ávallt vatnsgreiddur, þveginn og strokinn og stundum kominn næstum í keng þegar hann hafði innbyrt óvenjumikið af alkóhóli og eins og skrollaði og ekki beint skýrmæltur. LjónNorðursins Og Steinar Leó Árnason, „Ljón norðursins“, var í hópi minnisstæðra gesta á Mokka á sjöunda áratugnum. Leó var ekki fastagestur, kom þó stöku sinnum. Hann sló ávallt um sig. Hafði mörg jám í eldinum og þurfti víða að koma og vakti hvarvetna athygli. Mönn- um datt einna helst í hug að þegar Leó kom væri á ferðinni roskinn spænskur greifi eða ítalskur. Allt háttalag minnti á umfangsmik- inn athafnamann enda var hann lengi með fiskverkun á Selfossi og rak árum saman ísbúð í Austurstræti. Meðalmaður á hæð, grannur og ávallt mjög hárprúður, með gráan skegghýjung, í nýlegum klæðskera- saumuðum fötum með vesti, í nýjum rykfrakka, með staf eða montprik og flutti ljóð sín á Mokka af munni fram, frumort og með miklum tilburðum sem minntu einna helst á nautabana í einvígi upp á líf og dauða. Ekki gat hann stoppað lengi, svona í tíu til fimmtán mínútur, hvolfdi i sig úr kaffibolla og var svo rokinn út þegar hann hafði skýrt frá nýjustu áformum sínum varð- andi atvinnulífið í landinu. Steinar Sigur- jónsson, rithöfundur, var einn af þessum litríku gestum á Mokka. Hann hafði þá þegar um miðjan sjöunda áratuginn sent frá sér nokkrar skáldsögur sem athygli vöktu fyrir frumleik og góðan stíl. Hann var tvímælalaust í hópi þeirra rithöfunda sem mestar vonir voru bundnar við. Höfundur á fertugsaldri sem lengi hafði stundað svo til eingöngu ritstörf. Einkennilega rótlaus, á stöðugum þeytingi fram og til baka um miðborg Reykjavíkur og ekki ósjaldan að Bakkus var með í för og þá var lifað hátt. Það gustaði oft af Steinari Siguijónssyni þegar hann kom inn á Mokka. Stundum var svo sem ekki verið að virða almennar um- gengnisreglur. Vor í lofti, allur gróður að lifna við af vetrardvöl og stemmning meðal skáldanna og Steinar Siguijónsson, hinn fullkomni bóhem, sem lifði fyrir líðandi stund, fijáls og óháður lífi borgaranna, bjó t.d. eitt sinn að sumri í kvistinum í gamla Iðnaðarmannafélagshúsinu við Vonarstræti Guðmundur Baldvinsson og Guðný Guðjónsdóttir kona hans hafa verið hinir ljúfu gestgjafar á Mokkakaffi frá byrjun. blómabúð í næsta húsi við Mokka og af- henti stúlkunni. Það voru nokkur ár liðin síðan Laugaveg- ur 11 lokaði. Það var vinsælt kaffihús og þar höfðu skáld og listamenn sett svip á staðinn og segir margt af því í endurminn- ingarbókum Hannesar Sigfússonar og Jóns Óskars. Með tilkomu Mokka fengu þeir aft- ur samastað. Á Hressingarskálann, Borgina, Gildaskál- ann í Aðalstræti og ef til vill Cafe-Höll í Austurstræti komu listamenn að vísu stöku sinnum svona til að fylgjast með bæjarlífinu en skáld og listamenn fundu ekki stað við sitt hæfi fyrr en Guðmundur Baldvinsson, nýkominn frá söngnámi á Italíu, veitti þeim húsaskjól á Mokka og ilmandi expressókaffi- lyktin fyllti sali. Þar kom líka innblásturinn sem síðar varð kveikjan að mörgu góðu verki. Mannlífið líka svo fjölbreytt að á betra varð ekki kosið. Óendanleg uppspretta fyrir skáld og listamenn. Dagblöðin lágu frammi með nýjustu tíðindum af gangi mála í Suð- austur-Asíu, í Víet Nam, þar sem styijöld geysaði. ’68 kynslóðin meira eða minna rót- tæk og gagnrýnin á þátttöku Bandaríkja- manna í stríðinu. Kæmi hún saman til að ræða málin yfir kaffibolla var það einkum á Mokka og Tröð, kaffihúsi sem var til húsa þar sem Almenna Bókafélagið er nú með skrifstofur sínar á annarri hæð í Aust- urstræti 18. með sukkliði. Þá var verið að taka húsið í gegn, mála og lagfæra. Þetta var sumarið 1966 og Steinar Siguijónsson í banni á Mokka. Fékk ekki að koma inn fyrir nema stöku sinnum. Bannið gilti þó samfleytt nokkrar vikur. Eitt sinn þegar Steinar hafði móðgað Guðmund Baldvinsson og var við skál á Mokka og einhver hávaði í kringum borðið eins og vill nú vera stundum og Stein- ar virti Guðmund ekki viðlits. Eyjólfur Einarsson, listmálari, einn af fastagestunum á Mokka á sjöunda áratugnum var einnig í banni um tíma af svipuðum ástæðum og Steinar Siguijónsson og þóttu mikil tíðindi þar sem Eyjólfur var og er einstakt prúð- menni og drengur góður. GunnarS. Og Allsherjargoðinn Gott ef Gunnar S. Magnússon, listmál- ari, var ekki einnig í banni á þessum „bannárum" á Mokka um eða eftir miðjan áratuginn. Hann var framarlega í flokki bóhema, einn af leiðtogum þeirra, með litrík- an lífsferil að baki. Hávaxið glæsimenni þegar hann klæddist í sín bestu föt og þeg- ar hann gekk niður Skólavörðustíginn, t.d. nýkominn af veitingahúsinu Hábæ, var engu líkara en þar færi athafnamaður á heims- mælikvarða. Gunnar hélt stóra og mikla málverkasýningu í sýningarsal í nýbyggðu húsi við hlið gamla Menntaskólans árið 1968 og seldi mikið og naut lengi góðs af. Var með heila hirð í kringum sig sem oft koma á Mokka á leið upp í Hábæ eða á Borgina og Naustið. Sveinbjöm Beinteins- son, allsheijargoði ásatrúarmanna, leit ávallt við á Mokka þegar hann var í borg- inni og ekki að sinna bústörfum á Draghálsi í Borgarfirði. Hann stakk einkennilega í stúf við aðra gesti á Mokka. Eiginlega eins og hann væri að koma úr slætti á engjunum og að hvíla lúin bein. Fom í útliti, ýmist með alskegg eða rakaður. Reykti pípu og hafði gaman af að leyfa mönnum að heyra vísur og stundum var Þorsteinn skáld frá Hamri þarna með Sveinbimi við borð og Sveinbjörn varpaði fram fyrri parti af vísu og Þorsteinn botnaði og fór létt með. í hópi þeirra, sem komu að staðaldri á Mokka á sjöunda áratugnum, voru Jón Sigurðsson, þáverandi skrifstofustjóri Máls og menning- ar og núverandi skólastjóri í Bifröst, Sigfús Daðason, skáld og fyrrum framkvæmda- stjóri Máls og menningar og ritstjóri tímarits forlagsins, og Anna Einarsdóttir, afgreiðslu- stúlka í bókabúð Máls og menningar. Með þeim við borð sat stundum Sigurður Óla- son, hæstaréttarlögmaður, faðir Jóns, og Hanna Kristín Stefánsdóttir, kennari, kona Lofts Guttormssonar, sagnfræðings. Geir- laugur Magnússon, skáld og kennari, var einnig eitthvað viðriðinn það kompaní og drakk allra manna mest af kaffi og reykti eins og skorsteinn. Skáldið Frá Pálmholti Og Málararnir Jón frá Pálmholti sat oft inni á Mokka og fór hreint ekki með hávaða eða látum. Sat þá oftast í hópi skálda og spurði tíðinda úr bæjarlífinu. Var yfirleitt ekki í hópi þeirra, sem helltu tári út í kaffíbolla svo lítið bar á, en neitaði ekki væri honum boð- ið. Ekki er hægt að ljúka þessari grein að ekki sé minnst á nokkra menn sem enn í dag eru sagðir vera fastagestir á Mokka og hafa verið allt frá sjöunda áratugnum. Það eru listmálaramir Hringur Jóhannes- son, Hafsteinn Austmann, Karl Kvaran, Jón Gunnar Ámason og Jóhannes Jóhannesson. Þá kom Tryggvi Olafsson frá Kaupmanna- höfn oft við á Mokka þegar hann var hér heima með sýningar og setti svip á bæinn. Siguijón Magnússon, oft nefndur „Hálofta- fræðingurinn", kom einnig oft og var strax á unglingsárum farinn að venja komur sínar á Mokka og reykti þá þegar sígarettur með kaffisopanum af meiri ákafa en gerist og gengur og var slíkt og er ekki talið heil- brigt af hálfu læknavísindanna. Hvað um það? Siguijón er enn í fullu fjöri og situr sem fastast á Mokka. Þorvarður Magnússon, sem hér áður fyrr var verslunarstjóri í bókabúð KRON í Bankastræti, lét sig sjaldan vanta á Mokka á sjöunda áratugnum og ekki kom maður svo inn á Mokka að Árni Einarsson, fyrrver- andi bílasali, bróðir Eyjólfs Einarssonar, væri þar ekki við borð eða gengi um salinn og ókunnugir kynnu að hafa haldið að hann væri þar starfsmaður og það sama má einn- ig segja um Jörgen Inga Hansen, fram- kvæmdastjóra, sem er eins og hafí átt frátekið borð öll þessi ár. Sat oftast við borðið næst stigaganginum, heimspekilegur á svipinn og féll vel inn í umhverfið. Ólafur Ormsson er rithöfundur og býr i Reykjavík. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. MARZ 1987 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.