Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1987, Side 9
1
brennisteinshveri. Héðan komu hins vegar
frásagnir af hveragosum og að minnsta
kosti eftir miðja 17. öld bar þar hæst á
Geysi í Haukadal.
Af þeim sökum varð orðið Geysir al-
mennt þekkt í merkingunni goshver og hefur
orðið innlyksa í mörgum tungumálum í
þeirri merkingu en ekki heiti á vissum gos-
hverum eins og er í íslensku."
Suðuhiti á 1—2 km dýpi
í kaflanum um uppruna hveravatns segir
m.a.: „Hin efstu lög jarðar eru yfirleitt ekki
vatnsþétt. Yfirborðið sígur niður í þau og
streymir um þau. í aðalatriðum verður þessi
jarðvatnsstraumur þannig að vatnið sígur
niður á hálendi og nær misdjúpt eftir atvik-
um þar til það finnur rás upp til yfirborðs
á láglendi. Því dýpra sem rásin hefur náð,
því heitari jarðlög hefur vatnið síast í gegn-
um og því heitara verður það.
Hér á landi vex hitinn almennt um 1
gráðu á hveijum 10—20 m og vatnsrásin
þarf þá að ná niður á 1—2 km dýpi til þess
að ná suðuhita.
Þar sem þetta hægt streymandi djúpa
grunnvatn hittir á sprungur, sem ná upp
til yfirborðs, streymir það beinustu leið upp
undir þiýstingi og þarf ekki að kólna veru-
lega á Ieiðinni . . .“.
I síðasta kafla bæklingsins sem er allur
hinn fróðlegasti fjallar dr. Trausti um hrúð-
urmyndanir við hveri. Þar segir m.a. að
hverahrúðurslög séu hin fegursta náttúru-
smíð en þau séu veik og þoli alls ekki að á
þeim sé traðkað. Ennfremur: „Það er
óskemmtileg staðreynd að hverahrúðurs-
breiður fá hér á landi nær hvergi frið til
að myndast. Helst er það á Hveravöllum
en einnig þar skemmast þær sífellt af
átroðningi. A Geysissvæðinu eru ágæt skil-
yrði frá náttúrunnar hendi til þess að fagrar
hrúðurbreiður eða hrúðurbrekkur myndist,
en átroðningurinn spillir sérhverri nýmynd-
un. En hann vinnur einnig jafnt og þétt á
Geysishólnum og er það enn alvarlegra
mál. Hóllinn hefur þegar breyst mikið frá
1935, er nú alþakinn niðurkvömuðum kísil
og um allt blasa við opin sár, þar sem kísil-
lögin skaga út og minna helst á bein úr holdi.
Það er auðvelt að benda á það sem hér
fer miður og einnig auðvelt að segja það,
að Geysissvæðið þurfi að friða miklu ræki-
legar en gert er. En framkvæmd algerrar
friðunar er bæði erfíð og kostnaðarsöm, ef
fyllsta árangri ætti að ná.
Algerri friðun, þ.e-. réttri umgengni á jarð-
hitasvæði eins og Geysissvæðinu, verður
seint komið á í okkar fámenna landi með
reglum og fyrirmælum einum. Þar reynir
ekki síður á skilning gestanna á nauðsyn
fyllstu friðunar."
Þessi viðvörunarorð voru skrifuð 1964
og þau eiga sennilega fullan rétt á sér enn,
þótt ýmislegt hafi færst í betra horf.
Breskur viskíframleiðandi
eignaðist Geysi
í bæklingi, sem Geysisnefnd gaf út á
ensku 1985 fyrir erlenda ferðamenn og
dreift var á vegum Ferðamálaráðs, gerir
Helgi Torfason jarðfræðingur hjá Orku-
stofnun góða grein fyrir Geysissvæðinu,
sögu þess og eðli goshvera. Þar segir m.a.
að rannsóknir hafí leitt í ljós að þetta hvera-
svæði hafí verið virkt í 8—10.000 ár eða
allt síðan ísöld lauk. Svæðisins er fyrst get-
ið í íslenskum annálum árið 1294 en það
ár urðu breytingar á því vegna jarðskjálfta.
Aftur er þess getið í annálum að mikil gos
hafi orðið á svæðinu árið 1630 eftir 40 ára
hvíld. Eftir það varð Geysir og svæðið allt
heimsfrægt og er þess getið í öllu ferðabók-
um frá íslandi á 17. og 18. öld.
Hótel Geysir. Erlendur Magnús-
son útskurðarmeistari í Hvera-
gerðiá hugmyndina ogheiðurinn
af þessu sérstæða veitingahúsi
og útskurðinum sem prýðir það
að utan oginnan. Enn erhúsinu
ólokið, t.d. á eftir að setja stóra
glugga efir mæni hússins, sem
munu gerbreyta ásýnd þess að
innan. Kristinn Sveinbjörnsson,
arkitekt, útfærði hugmyndir Er-
lendar.
Hverinn Sísjóðandi, sem nú er virkjaður fyrir hótelið.
Þarna tíðkaðist að þvo þvotta og þótti gott að klappa
þvottinn á hveraklöppunum.
h
ŒSBÓK MORGUNBLAÐSINS 13. JÚNÍ 1987 9