Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1987, Blaðsíða 11
Andstæður: Annarsveg-ar loftmynd af Sergelstorgi í Stokkhólmi á björtum degi,
þegar loftið er eins hreint og framast má verða. Hinsvegar mynd frá verk-
smiðjubæ, þar sem mengunarvörnum er áfátt. Þrúgandi óloft með eiturefnum
liggur niðri við jörðu.
Mér lék hugur á að ná tali af þessum
baráttuglaða manni, sem ég hafði heyrt og
séð í fjölmiðlum af og til, í rúman áratug,
og kynna hann og sjónarmið hans fyrir les-
endum Morgunblaðsins. Hann tók vel í það
að veita mér viðtal, enda er það einn þáttur-
inn í starfsemi hans að ná til fjölmiðla með
boðskap sinn og kynna starfsemina og nauð-
syn hennar.
LÍKT OG SKÆRUHERNAÐUR
Miljöcentrum er ekki áberandi stofnun.
Hún er til húsa í ósköp rólegu og venjulegu
einbýlishúsi í einu af hinum nýlegri úthverf-
um Uppsala. Maður þarf að leita vel að
skiltinu þar sem nafn hennar stendur. Öll
starfsemin rúmast í þessu húsi. Frú Gillberg
tekur vingjarnlega á móti mér og býður
mér inn og vísar mér niður i kjallara þar
sem bókasafnið er og rannsóknarstofa. Frú-
in, sem er mannfræðingur, starfar með
manni sínum á stofnuninni. Bjöm Gillberg
kemur að vörmu spori, í inniskóm og þægi-
legri peysu og ég hef það sterkt á tilfinning-
unni, þegar frúin kemur með kaffið, að ég
sé heima hjá þeim hjónum, en samt búa þau
í öðru húsi þar skammt frá. Bjöm er eins
og heimilisfaðir í sínu húsi, börn hans koma
og fara, en ég heyri að fólk er að vinna í
herbergjunum uppi, ganga frá tímaritinu,
svara í símma o.þ.h. Hér ríkir friður og
vinnugleði og erfitt að gera sér í hugarlund
að heimilisfaðirinn sé í sífelldri, baráttu og
málaferlum og hafa verið það meira og
minna í tvo áratugi.
Þrátt fyrir huggulegheitin og heimilis-
braginn er hér um hemaðarbækistöð að
ræða, enda kemur herforinginn sjálfur inn
á líkinguna í viðtalinu, þegár hann segir:
„Þetta er eins og skæmhemaður. Okkur
hentar best að starfa í litlum einingum, sem
em auðfæranlegar. Mannmargir herir
standa oft máttvana þar sem nokkrir þraut-
þjálfaðir menn geta ráðið úrslitum.“ Ein-
beitnin og einurðin leynir sér ekki í fari
Bjöms Gillberg og ég sé það strax að þrátt
fyrir agaðan stíl háskólamannsins gæti hann
vel leikið í einhverri af hinum hörkuspenn-
andi stríðsmyndum, sem ég sá í gamla daga.
Hann er fljótur að mata fréttamann á því
sem mestu skiptir og koma leikmanni í skiln-
ing um alvöru málsins. Ég spyr fyrst um
málefnin sem hann kallar „legal strategi":
Þeir Sem Eitra Matinn
GangaLausir
„Við hér á Miljöcentrum emm í raun og
vem að gera það sem saksóknarar víðs
vegar í landinu ættu að gera. Það kemur
oft fyrir að við sýnum það svart á hvítu að
fyrirtæki og stofnanir gera sig sek um víta-
vert kæmleysi og brot á gildandi lögum og
reglugerðum, en saksóknaramir stinga
ábendingum okkar undir stól og þykjast
hafa eitthvað annað þarfara að gera. Þessi
afbrot, eða kæmleysi eins og sumir kalla
það, era ekkert annað en fjársvik, stórkost-
leg fjárglæfrastarfsemi. En saksóknaramir
em uppteknir við að elta smástráka fyrir
smáþjófnaði og skúrka, sem sprengja upp
peningaskápa, og þeim er haldið í fangelsi
í mörg ár. Þeir sem bijóta umferðarlögin
era eltir með þyrlum út um hvippinn og
hvappinn, en þeir sem eitra umhverfí okkar
allra, vötnin, skógana og matinn, þeir ganga
lausir.
Það er miklu erfíðara að fá afbrotamenn
dæmda fyrir brot gegn umhverfísvemdar-
lögunum. Það er þó vel hægt að byggja á
þessum lögum. Vandinn er bara sá, að þeim
er ekki fylgt eftir. Fyrir dómi þarf að sanna
að brotið hafi verið framið af yfirlögðu ráði,
hafí valdið skaða eða sannanlegri hættu, til
þess að fá menn dæmda. Þetta þarf ekki
þegar um brot á umferðarlögunum er að
ræða. Ef þú ekur ölvaður eða of hratt þá
er það skýlaust brot og þú ert dæmdur.
Við emm að beijast fyrir því að fá þessu
breytt og í vissum tilfellum hefur okkur
tekist að skapa skilning á þessu. En það
verður að koma á lögum, sem gera sjálft
brotið að glæp og að refsingin verði fang-
elsi. Það mundi hafa mikil áhrif, því forstjór-
ar og framkvæmdastjórar tilheyra þeirri
stétt samfélagsins, þar sem fangelsun er
mikill álitshnekkir. Það nægir ekki, eins og
Bjöm Gillberg og kona hans. Ljósm. Pétur Pétursson.
Náttúravemdarráðið vill, að sektirnar verði
hækkaðar þannig að fyrirtæki greiði allt
að íjómm sinnum þá upphæð, sem það
mundi græða á að hundsa lög og reglur,
t.d. um hreinsibúnað.
ÁTTIAÐ SPRENGJA
ÍLoftUpp
„Þú ógnar oft sterkum valdaaðilum og
hagsmunum í samfélaginu. Færðu hótan-
ir um að þaggað verði niður í þér fyrir
fullt og allt?“
„Nei, það get ég ekki sagt. Hótunin að
sprengja okkur hér í loft upp þegar Fer-
menta-málið stóð sem hæst, var undantekn-
ing. En ég veit að það er unnið gegn okkur
undir niðri á mikilvægum stöðum og reynt
að setja okkur stólinn fyrir dymar. Við njót-
um nú orðið það mikillar virðingar og
samúðar vegna starfsemi okkar, að menn
sjá að það er ekki mjög gáfulegt eða raun-
hæft að þagga niður í okkur með fantaskap.
Ég fínn það nú meira og meira að athafna-
menn, sem taka starf sitt og hlutverk
alvarlega, em okkur þakklátir og líta já-
kvæðum augum á þann þrýsting sem við
veitum, t.d. þegar um er að ræða að fjár-
festa í gæðaeftirliti, öryggisbúnaði og
hreinsitækjum. Ef þessi þrýstingur væri
ekki fyrir hendi og almenningsálitið sof-
andi, þá væri freistingin meiri að koma sér
hjá þessum ráðstöfunum, sem kosta fé —
og þá standa ævintýramenn og afbrotamenn
betur að vígi í samkeppninni."
PólitískMistök
Aldarinnar
„ Það er ýmislegt sem bendir til þess
að Jafnaðarmannaflokkurinn og stjórn-
málamenn almennt séu nú að taka
umhverfisvemdarmál á dagskrá og að
þau verði æ mikilvægari þáttur í stjórn-
málum í framtíðinni. Hver er afstaða þín
til stjórnmála og umhverfisverndar?"
„Jafnaðarmenn gerðu mistök aldarinnar
þegar þeir snemst gegn umhverfisvemdar-
hreyfíngunni á sjötta áratugnum. Þeir
misstu af gullnu tækifæri til pólitískrar
endurnýjunar. Þeir höfðu þá tiltölulega ný-
lokið við að byggja upp velferðarríkið og
þeir vom þreyttir og sljóir og vildu nú njóta
ávaxtanna í friði. Og þegar fólk eins og ég
og aðrir fómm að benda á gallana, þá vom
viðbrögðin að reyna að þagga niður í okk-
ur. Það var Miðflokkurinn sem uppskar það
sem við sáðum á þeim ámm. Ég nefni kosn-
ingamar árið 1976, sem snemst mest um
kjamorkuverin. Mér og félögum mínum í
flokknum var kennt um ósigurinn. Við vor-
um örfá, sem byijuðum að tala gegn
kjamorkuveranum í byijun áttunda áratug-
arins. Mig minnir að fýrsta greinin hafi birst
í Dagens Nyheter í apríl 1970. Miðflokkur-
inn tók málið upp og það fleytti honum í
forystu í ríkisstjóminni sem mjmduð var af
Borgaraflokknum 1976. En Miðflokkurinn
sveik það sem hann lofaði, og þess vegna
er hann nú aðeins smáflokkur bænda, en
fékk 25% fylgi kjósenda þegar best lét og
umhverfisvemdarfólkið studdi hann. Þessi
svik urðu til þess að Umhverfisvemdarflokk-
urinn varð til. Nú em jafnaðarmenn aðreyna
að klóra í bakkann. Ráðherrann sem fer
með umhverfísvemdarmál hefur sett fram
nokkuð róttæka stefnuskrá og hún er góð
svo langt sem hún nær, en það er kald-
hæðni örlaganna að þeir gera nú slagorð
úr því sem við sögðum fyrir 15 ámm og
vomm rekin fyrir.“
Fer Aldrei Aftur í Pólitík
„Þú hefur einnig starfað í Kristilega
demókrataflokknum og yfirgefið hann
einnig?"
„Já, við vomm nokkur sem árið 1981
fannst að það þyrfti nýtt stjómmálaafl í
Svíþjóð. Við treystum ekki lengur gömlu
flokkunum, þar sem allt miðast við valdabar-
áttu, persónupólitík og atkvæðasmölun.
Völdin hafa spillt þessum flokkum. Kristi-
legi flokkurinn hafði enn ekki fengið 4% í
kosningum og hafði þar af leiðandi ekki
fengið mann inn á þing. Það er staðreynd
að gmndvallarhugmyndir kristindómsins
falla vel að vistfræði og náttúmvemd. Við
reyndum að gera flokkinn að raunhæfu
stjómmálafli, en það gekk ekki. Þegar á
átti að herða þróaðist þetta út í valdastreitu
einstakra manna. Það kom í ljós að valda-
klíkan úr hvítasunnukirkjunni, sem var
kjaminn í flokknum frá upphafi, þoldi ekki
að við kæmumst til áhrifa í flokknum og
hefðum mótandi áhrif á stefnumyndun og
hugmyndafræði flokksins. Ég fékk t.d. fjór-
um sinnum fleiri atkvæði en nokkur annar,
þegar kosið var í stjóm flokksins 1984, og
þetta varð þeim ofviða. Annars leit allt vel
út miðað við skoðanakannanir, sem sýndu
að flokkurinn hafði 4% fylgi 1984. Kosn-
ingabandalagið við Miðflokkinn sýndi það
svart á hvítu að ráðamenn flokksins vildu
ekkert annað en koma formanni flokksins
inn á þing og höfðu engin raunvemleg
framtíðarstefnumál að beijast fyrir. Nú er
Kristilegi flokkurinn aftur kominn niður í
1% fylgi og kemur til með að hverfa af sjón-
arsviðinu eftir næstu kosningar."
„Hvers vegna starfar þú ekki með
Umhverfisvemdarflokknum? Er er þó um
að ræða nýtt afl í sænskum stjómmálum,
er ekki svo?“
„Jú að vísu, en það afl þarf að þroskast
að visku og vexti áður en um samstarf
getur verið að ræða. Vandamálið með þann
flokk er skipulagið. Þetta er ósamleitt sam-
ansafn af fólki sem er eða hefur verið
kommúnistar og róttæklingar af ýmsum
blæbrigðum. Þeir reyna að byggja flokkinn
upp á hinum svokölluðu lýðræðislegu sam-
komum, sem em lýðræði in absurdum. Það
getur tekið mánuði fyrir þetta fólk, eftirá,
að rífast um það hvað það var eiginlega,
sem þeir vom að samþykkja á þessum fund-
um sínum. Það er of mikið af dellu og
kjaftagangi í þessu til þess að ég geti átt
samleið með þeim flokki.
Ég skipti mér ekki framar af flokka-
pólitík," sagði Bjöm Gillberg að lokum og
hló við. „Þeir geta haldið áfram með sitt.
Við hér á Miljöcentmm höfum fundið starfs-
aðferð, sem skilar árangri og vettvang sem
hentar okkur."
Pétur Pétursson er fréttaritari Morgunblaðsins
í Sviþjóð.
LESBÓK MORGUNBLAÐSIIM5 5. SEPTEMBER 1987. . .1 1