Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1987, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1987, Blaðsíða 9
Nýja Hagkaupshúsið í Kringlu hefur fengið góðar viðtökur; þar hefur verið mannmargt síðan húsið var opnað og virðist fólk kunna vel að meta þá ný- breytni að hafa margar verzlanir og þjónustufyrirtæki undir sama þaki. Miðbær Garðabæjar er að flestu Ieyti fallega teiknaður og að innan ber Garða- kaup af öllum stórverzlunum á höfuðborgarsvæðinu. En í stað þess að mynda skjól, t.d. með yfirbyggðu torgi, er hús Búnaðarbankans og pósts og síma (til hægri) látið standa sér og myndast við það stínd, þar sem alltaf er rok ef hreyfir vind. - sjá að nokkur maður hafi lært neitt nýtt; að minnsta kosti reka menn sig þá á veggi íhaldsseminnar, sem sér til þess að haldið er áfram að byggja götur, sem eru eins og manngerð gljúfur handa rokinu, rign- ingunni eða slyddunni til að hamast í. Mannvist á þessum götum einkennist af því að fólk setur undir sig hausinn og berst á móti veðri. Þetta á að sjálfsögðu fyrst og fremst við um miðborg Reykjavík- ur, svo og miðhluta allra bæja á íslandi, gamla sem nýja. í þessu sambandi nægir að benda á nýjan miðbæ Garðabæjar, sem er út af fýrir sig fallega teiknaður og mundi henta vel í hlýju loftslagi, til dæmis á Italíu. í þessum kjama í Garðabæ er eitt hús látið standa sér og er ekkert við það að athuga frá sjónarmiði útlits. En kringum þetta hús verður dæmigerð stormgjá og þarf helzt að vera blíðskaparveður og logn til þess að notalegt sé að vera á þessu svæði, sem lítur annars prýðilega út. Þetta sýnir, að við ætlum seint að læra hvar við búum og hvað hægt er að gera með nútíma byggingartækni til að vega á móti því sem miður fer í veðráttunni. FRUMRAUN á Seltjarnar- NESI Á Seltjamamesi hefur ríkt ólíkt betri skilningur á þessu og er til fyrirmyndar, hvernig glerþak hefur verið byggt yfir Eiðistorgið, þar sem verzlunarhúsið Nýi- bær er og samtals um 15 verzlanir að viðbættum ýmsum þjónustufyrirtækjum. Enn er eftir að halda vígsluhátíð og verð- ur þessari heild þá gefíð nafn og líklega verður efnt til samkeppni um það. Hluti þaksins er úr venjulegu gleri og veitir ríku- legri birtu inn, en yfír stórum hluta þess er hinsvegar reyklitað plexigler og var það gert til að veijast sólarhitanum að sumar- lagi. Ef hitnar uppfyrir ákveðið mark, opnast yfir 30 gluggar sjálfkrafa og varð ekkert vandamál í sumar að halda þægileg- um hita þarna inni. Þar er vistlegur samastaður á öllum árstíðum og gerir verzlunarleiðangur í miðbæ þeirra Seltim- inga ólíkt ánægjulegri en ella. Arkitektam- ir Ormar Guðmundsson og Ömólfur Hall eiga heiðurinn af þessari framraun í að byggja yfír torg eða götu, en fleiri hafa að sjálfsögðu komið við sögu; þeirra á meðal Snorri Sveinn myndlistarmaður, sem er höfundur að skúlptúr með fossi. Forráðamenn Seltjarnamesbæjar hafa reyndar hugsað sér, að þama inni gæti orðið athvarf fyrir leikhópa, kórar geta sungið þar og svo er ætlunin að halda þar vörasýningar, t.d. bílasýningar. Allt er þetta framtak hið merkasta og eiga þeir heiður skilið Seltimingar, en einhverra hluta vegna hefur þessi framraun varla vakið þá eftirtekt, sem vert væri. Sjá næstu síðu. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. OKTÓBER 1987 -9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.