Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1987, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1987, Blaðsíða 12
Björn M. Olsen rektor Lærða skólans, þegar ófriðurinn varð þar. Hann ríður fríllum á reginþjór og ræðst í kappát og veiðar kvenna og hann, sem drekkur og drýgir hór, hann dyggð og „móral“ vill öðrum kenna. Og ef menn blóta þar eða brjóta þar eða brjóta, þá kemur nóta :/þeim hundi hjá/: Og sú er spá mín, hann spríngi um síð af spiki’ í skítugu hóru leyni og gröfín hans verði hlandfor víð en hvílist sálin í brennisteini. Við eilíft púður og allskyns klúður og allskyns klúður hann er til knúður :/að þjösnast þar/:“ Nótur voru einskonar sakaskrá sem gat haft áhrif á einkunnagjöf og var skólapiltum því meinilla við þær eins og gefur að skilja. Hinn ónafngreindi höfundur kvæðisins yrkir um „eilíft púður" í síðasta erindi kvæðisins og kann það að verka skringilega á þann sem ekki þekkir málsatvik; en rektor hefur líklega skilið þau orð eins og til var ætlast. Fullyrða má að lýsing sú á Birni M. Ólsen, sem fram kemur í kvæði þessu, er argasta öfugmæli, enda þesslegt. Hins vegar er kvæðið ágæt heimild um sálarástand margra nemenda hans bæði fyrr og síðar fyrir hans tilstuðlan, hvort tveggja verður gerð frekari skil með þessari samantekt. Er bréf þetta með kvæðinu var ritað og sent var hatrömm þrástaða milli nemenda, sem voru eingöngu piltar, og yfirvalda skól- ans. í bréfi til eins forráðamanna þeirra, herra lektors Þórhalls Bjamasonar, lýsir rekt- or tilefni þessa ástands á eftirfarandi hátt — rektor gerir lektor Þórhalli grein fyrir brott- vikningu tveggja pilta úr skólanum; bréfíð er dagsett 3. des. 1903: „Laugardaginn 28. f.m. voru í stærð- fræðistundinni 10—10 3A í 2. bekk lærða skólans allmörg blöð með árituðum einkunn- um skorin upp úr einkunnabók bekkjarins og blöðunum stungið í ofninn meðan kennar- inn hafði augun af einkunnabókinni, af því að hann var öðru að sinna. Inn í bekknum voru 17 piltar og hlýtur þetta brot að vera framið af einhverjum þeirra, einum eða fleiri í samtökum. Ut af þessu lögðu stiftyfirvöld fyrir mig að setja þeim 17 piltum, sem við brotið eru riðnir, tvo kosti, annaðhvort að hinn seki eða hinir seku gæfu sig eða væru gefnir fram, eða, ef brotið yrði eigi uppvíst, yrði öllum þeim piltum vísað burt, er við voru þegar brotið var framið. Þessari ráðstöfun stiftyfír- valdanna tjáði kennarafundur sig samþykk- an. Þetta tilkynnti ég piltunum við sætaskip- unina 30. f.m. og setti þeim frest til kl. 8 e.m. sama dag til að fullnægja hinum fyrra kosti. En fresturinn leið svo að enginn gaf sig fram, og eigi hefur heldur við ítarlega rannsókn orðið uppvíst um brotið. Tvö önnur brot líks eðlis höfðu áður verið framin í skólanum, er ekki hafði orðið uppvíst um, en þannig vaxin að piltar úr ýmsum bekkjum gætu verið sekir í þeim, en þetta síðasta brot var aðeins takmarkað við þá 17 pilta, sem í bekknum voru þegar það var framið. Um málefni þetta hafa stiftyfirvöld í bréfi til mín, dagsett í gær, úrskurðað á þessa leið: „Með því að öll þessi brot eru þannig vax- in að þau verðskulda alvarlega refsingu og mega með engu móti líðast hegningarlaust án þess að stofna allri reglu og aga í skólan- um í bersýnilegan háska, viljum vér, að því er brotið í 2. bekk snertir, sem eitt sér er þannig takmarkað, að þar er þó ekki nema um 17 pilta að ræða, og einn eða fleiri af þeim hljóta að vera valdir að brotinu — mæla svo fyrir, að með því að þeir með fram- komu sinni gera sig samseka í hinu framda broti skuli þeim öllum vísað burt úr skólan- um.“ Meðal þeirra pilta, sem vísað er burtu, eru piltamir Asmundur Guðmundsson og Tryggvi Þórhallsson, sem þér eruð Qárhaldsmaður fyrir. Þetta tilkynnist yður hér með eftir fyrir- mælum stiftyfirvalda. Reykjavíkur lærða skóla 3. des. 1903.“ Þórhallur Bjarnason svarar bréfi þessu um hæl og með árangri: „Sem faðir og §árhaldsmaður pilta í öðrum bekk lærða skólans lejrfí ég mér að ávarpa yður, herra rektor, af því að það veldur mér þungrar áhyggju með framtíð piltanna, að útlit er nú fyrir að þeir um óákveðinn, lang- an tíma verði að missa af kennslu skólans. Ég skil það að skólinn eða stjórn hans neyðist til að taka hast á alvarlegum brotum, allra helst þegar þau eru ítrekuð, og þetta getur fyrir komið að margir saklausir verði að gjalda fárra sekra, en þó eru það aldrei nema neyðarúrræði, og mjög tilfínnanlegt væri það þótt ekki yrði meira af en það að efnilegir piltar missi einn vetur sér gagns- lausan frá námstímanum. Af því að ég er persónulega sannfærður um það að þeir piltar, sem éjg á fyrir að sjá, Tryggvi sonur minn og Asmundur Guð- mundsson frá Reykholti, séu saklausir bæði af verknaði brotsins og tildrögum, sem ég og ætla um mikinn meiri hluta piltanna í bekknum, þá eru það innileg tilmæli mín til yðar, herra rektor, að þér sæjuð yður fært að stuðla að því að piltamir fengju innan langs tíma aftur aðgang að kennslunni svo að þeir gætu tekið bekkjarprófið á næsta vori; ég mun, að því er mína pilta snertir, halda þeim rækilega til lesturs heima, svo að þeir væntanlega yrðu færir til þessa ef burtverutíminn yrði ekki of langur. Reykjavík 1. desember 1903, Þórhallur Bjamason." Líklega hefur Þórhalli þessum, riddara af Dannebrogsorðu, verið ljóst glapræði yfir- valda við þessu agavandamáli mnan skólans; svo samstilltir sem skólasveinar í lærða skól- anum að jafnaði voru gátu þeir afarkostir, sem nú hefur verið lýst, ekki leitt til annars en efla samstöðu þeirra enn frekar og þar með hrekja þá til enn frekari uppivöðslu- semi. Og staðreyndirnar tala sínu máli. Kvæði það sem birt er hér að framan var ekki hið eina sem rektori barst í nafnlausum bréfum þennan vetur, einkum í janúar, en fæst þeirra eru prenthæf. Af dagbókarbroti Björns M. Ólsens sjálfs, um árekstra við nemendur þennan vetur, má sjá að 2. bekkingar, þeir sem reknir voru, undu illa aðgerðaleysinu — en ekki voru all- ir reknir þrátt fyrir hin skriflegu fyrirmæli stiftyfírvalda sem sjá má af eftirfarandi pistli: „9. des. miðvikud. um morguninn kl. ca. 8.40 fannst púður með eldspýtnahausum inni í 3. bekk. Hlaut að hafa verið látið þar dag- inn áður 2—4, meðan bekkurinn stóð opinn. Dyravörður tók þetta upp mest allt, en í nokkru kviknaði og hleypti upp fýlu. Klukkan 4—7 undirbúningstími Bjarna Sæmundssonar: Rak ég út úr bekk Bjöm Gíslason og Siguijón Jónsson. Kl. 8—10 undirbúningstími Þorleifs Bjamasonar: Kom upp eftir kl. 8 a/4. Hafði þá Þ.B. einu sinni rekið út Bjöm Gíslason og Guðmund Guðlaugsson. En þeir komu upp aftur nokkru síðar og rak ég þá út fyrir skólann, varð ég að hrinda þeim út úr skúrdyrunum. Samt fóru þeir ekki burtu. Ég var á ganginum niðri. Heyrði ég þá knýja suðurgluggann. Fór út, hitti þá þar báða og sagði þeim að fara burtu. En þeir gegndu ekki. Að nokkrum tíma liðnum komu þeir aftur upp á efri gang. Ég sagði þeim að fara burtu, en þeir gegndu ekki fyrr en ég sagð- ist mundu láta sækja bæjarfógeta. Þá fóru þeir, með semingi. 11. des. föstud.. .. Kl. 5 sprengd púður- kerling fyrir utan skólann. 12. des. laugard. kl. 9.10 e.m. var sprengd púðurkerling inni í skólanum, nálægt klukk- unni. Var púðrið í eldspýtudós og snæri vafið um. Nokkru áður kom Siguijón Jónsson inn í skólann og bað um leyfí til að fara inn í bekk. Dagana 14.—17. des. voru þeir Guðmund- ur Guðlaugsson, Siguijón Jónsson og Bjöm Gíslason hvað eftir annað að koma upp í skólann og reyna að vekja þar óspektir. 17. des., í kennslustund 1—2, stóðu þeir fyrir utan gluggana í 2. bekk þar sem ég hafði tíma, og 3. bekk þar sem Bjarni Sæmunds- son hafði tíma og trufluðu kennsluna með ýmsum ólátum. Bjöm Gíslason hallaði sér með bakið beint upp að glugga í 2. bekk, Guðmundur Guðlaugsson hafði söng og óhljóð. Einhver þeirra kastaði í þessari stund - hálfétnu vínarbrauði inn um opinn gluggann í 2. b. og eldspýtnahausum inn um opinn glugga í 3. bekk. 18. des. í 10 mínútna hléinu kl. 10 komu þeir Björn Gíslason og Guðmundur Guðlaugs- son upp að skólanum. Heyrði ég Guðmund Guðlaugsson með háværum orðum reyna að æsa piltana til að fara burt frá skólanum í hóp í banni mínu, sem þó ekki tókst." Sömu piltar hafa haft sig einkum í frammi úr hópi hinna brottreknu. I skólaskýrslu fyr- ir veturinn 1903—04 segir: „Út af alvarlegum reglubrotum og óspektum, sem komu fyrir sérstaklega í 2. bekk fyrri hluta skólaársins, einkum í desembermánuði, voru 6 piltar rekn- ir úr skóla fyrir fullt og fast og 9 sagðir úr skóla. Auk þess voru af öðrum ástæðum 2 piltar sagðir úr skóla í janúarmánuði.“ Af dagbókarbroti því sem hér að framan var til fært — 17. des. — má sjá að kennt var í öðrum bekk þennan vetur þrátt fyrir yfírlýs- ingu stiftyfirvalda og rektors um að reka bæri alla nemendur í bekknum. Af nefndri skýrslu verður séð að nemendur í 2. bekk voru sex, — þ. á m. skjólstæðingar Þórhallar Bjarnasonar, Tryggvi sonur hans og Ás- mundur Guðmundsson. Af skýrslunni verður einnig séð að enginn þessara nemenda hefur þegið námsstyrk á vegum skólans sem ann- ars gildir um meirihluta hvers bekkjar, má því geta nærri um hvaða ályktanir hinir brottreknu nemendur hafa dregið af kjörum sínum og þeirra sexmenninga. Máttlítill var hann þessi mótþrpi hinna brottreknu pilta, púðurkerlingar og glamur fyrir utan glugga þar sem sátu inni skjólstæð- ingar embættis- og efnamanna og nutu- annarskonar réttlætis en hinir sem úti stóðu. Eitt bréfanna til rektors, sem nefnd hafa verið, er undirritað einfaldlega „Stud. art“, fylgir því úrklippa úr blaði, ísfírðingi, sem Skúli Thoroddsen ritstýrði um þessar mund- ir, og eru þessi orð undirstrikuð m.a. í úrklippunni: „Rektor skólans, sem er aldavin- ur landshöfðingja og Hafsteins, reynir ... að nota ýmsa skólapilta til að hafa áhrif út um landið.“ Og er þessum orðum beint til rektors í bréfínu: „Rekið af yður ámæli þetta sem ísfírska kempan hefir sett í blað sitt (nr. 1. 1903), og sem er bæði skólanum og yður til skammar. — Annars megið þér hund- ur heita." Í mars, eftir kennsluhlé um miðsvetrarley- tið, hófust eijur á ný; með púðursprenging- um. „Föstud. 4. mars sprengd púðurkerling rétt fyrir morgunbænir inni á bænasal." Daginn eftir fannst ein misheppnuð nálægt stiganum, í miðju húsi. 10. var ein lítil sprengd úti í skúr. í sömu dagbók og áður var í vitnað segir: „10. mars kom Jónas Guðlaugsson upp í skóla í undirbúningstíma Þorleifs Bjamason- ar, gerði óspektir með söng inni í lestrarstofu og vildi ekki gegna þegar Þorleifur skipaði honum að fara, svo að Þorleifur varð að leggja hönd á hann. Kom ég þá að og heyrði, að hann í reiði talaði um að það væri óhæfa að leggja hönd á sig og tók pilta til vitnis og hótaði lögsókn. Þegar ég skipaði honum að fara, fór hann. — Áður sama kvöld hafði Jónas Guðlaugsson gert truflun í umsjón- artíma Bjarna Sæmundssonar." 11. mars ritar Þorleifur H. Bjamason kennari (og löngu síðar rektor þessa sama skóla) ýtarlegt yfírlit jrfír atburði dagsins; um skýrslu er að ræða sem þá vitaskuld er samin fyrir rektor skólans; kvittar undir með orðunum: „Þessi skýrsla er með öllu orð fyr- ir orð og atvik fyrir atvik sannleikanum samkvæm." „Hér um bil kl. 8.20 e.m. kom Jón Thor- oddsen og bað að lofa sér inn í bekk. Ég lejrfði honum það, en sagði honum að flýta sér. Varð ég var við að ókyrrð hófst í 4. bekkjar lesstofu skömmu eftir að hann var kominn þangað, geng því inn í lesstofuna og sagði honum að flýta sér að ljúka sér af og taka ofan, því að það væri vandi siðaðra manna. Hann spurði, hvort ég meinti með „að ljúka sér af“; að hann ætti að skíta á gólfið, og lét ég sem ég heyrði ekki orð hans, en gekk að honum og horfði fast á hann og drattaðist hann þá til að taka ofan. Síðan gekk ég aftur inn á lesstofu kennaranna, en heyrði að vörmu spori söng, geng að gang- stofudyrum 4. bekkjar og heyri þá að Jón syngur „En þeir fólar sem frelsi vort svíkja og fara í lið með níðingafans“ og Stefán Scheving tekur undir seinna vísuorðið. Ég geng inn og hasta á j)á, en þeir þagna; vík mér síðan að Jóni og Árna Gíslasyni og skipa þeim að fara út strax; en bekkjarpiltamir taka þetta, auðvitað af hrekkjum, sem skipun til sín og þjóta út, en Jón og Árni verða eft- ir, er ég þar að ítreka við þá að fara, þegar ég heyri sköll inni í 5. bekk, þar hefur þeim slegið saman 3. og 5. bekkingum. Fer ég inn að hasta á þá, eru þeir þá þar í einni þvögu, geng ég að þvögunni, tek um hönd á Baldri og Ingvari og segi þessum að skilja, gera þeir það en nokkuð dræmt og með hrinding- um. Lætur þá Steindór fallast í gólfið og liggur þar sem dauður væri; skipti ég mér ekki af því, því að ég sá að það var upp- gerð. Þá eru Jón Thoroddsen og Árni þangað komnir og segi ég þeim að fara út og 3. bekkingum, en þeir fyrrnefndu hlýða mjög dræmt, en fara þó út. Stóð ég á ganginum fyrir framan kennara- stofudyrnar, er vatnsglasabotni eða vatns- glasi (hafi glasið ekki brotnað í fyrstu ryskingunum ásamt flöskunni — allt gólfið í 5. bekkjarstofu flaut í vatni, er ég kom þar inn), fleygt af miklu afli fram hjá höfði mér og lendir í tröppunum, sem liggja upp á efsta loft, eða múrnum þar í kring. Ekki sá ég hver gerði það, en líklegastur til að hafa gert það þótti mér Ingvar Sigurðsson, en ekki talaði ég neitt um glaskastið við hann eða hina piltana, en ég heyrði Jón segja að glasið hefði næstum verið búið að drepa sig. Eg gekk enn að Jóni og sagði honum að fara burt og sömuleiðis Árna; Árni svaraði einhveijum skætingi, sem ég hefi gleymt, en Jón fór að ögra mér og sagði, „Þér kas- tið mér nú ekki út, eins og drengnum honum Jónasi Guðlaugssyni." Ég sagðist ekki ætla að fara að reyna afl við hann, en sagðist senda eftir lögreglu eða föður hans til að reka hann út. Fór hann þá að kvarta yfir því, að 4. bekkingar hefðu tekið húfu hans og sagðist mundi fara, ef hann fengi hana. Ég sagði honum, að ég skipti mér ekkert af húfumissi hans, hann ætti sjálfur að passa hana. Síðan bað ég pilt að sækja portnera og sendi svo portnera án þess að Jón vissi til föður hans og bað hann finna mig. En á meðan var Jón í ganginum að harma húfumissi sinn. Ég skeytti því ekkert og hætti nú að reka hann burtu, af því að ég beið föður hans, en gekk inn til Árna, sem var inni í 1. bekkj- ar lesstofu og kvaðst nú í síðasta skipti segja honum að fara út. Ef hann hlýddi ekki, mundi ég nótera hann fyrir óhlýðni. Stefán

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.