Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1988, Blaðsíða 20
sólarhringinn meðan á ferðinni
stóð.
Farið var með hópinn Gullfoss-
Geysishringinn með ýmsum
uppákomum á leiðinni. Helsta
skemmtiatriðið var að láta alla
komast á hestbak sem var mjög
vinsælt. Þátttakendum var skipt
niður í bíla og klukkustund látin
líða á milli þess sem hver bíll kom
á áfangastað, til þess að hver og
einn nyti staðarins sem best.
Geysilegar öryggisráðstafanir
voru viðhafðar, enda var fólkið
dýrmætasta starfslið IBM og miklu
búið að kosta til menntunar þess
og sérhæfingar. Læknar, hjúk-
runarlið og lögregla voru í við-
bragðsstöðu. Eitt kvöldið var öllum
hópnum skipt niður á veitingahús
í Reykjavík. Stór hluti af veitinga-
húsum borgarinnar nutu góðs af
heimsókninni. Það er fastur liður
lagðar allan sólarhringinn og séu
óslitin veisluhöld og uppákomur.
Þeir sem skipuleggja hvatninga-
ferðir verða að snúa öllum hefð-
bundnum dagskrám við og byija
að hugsa upp á nýtt. Eflaust býr
ísland yfir margvíslegum mögu-
leikum á að skipuleggja óvenjuleg-
ar ævintýraferðir. í þessum
ferðaþjónustuþætti eins og mörg-
um öðrum gildir að vera nógu
hugmyndaríkur.
SAMEIGINLEGUR
NORÐ-
URLANDABÆKLINGUR
Norðurlöndin, að íslandi með-
töldu, gáfu út sameiginlegan
landkynningarbækling um hvatn-
ingaferðir á síðasta ári fyrir
Bandaríkjamarkað. Það er ómet-
Óvenjulegt í hæsta máta.
fyrir aukningu á þessum ferða-
þjónustuþætti, til að hægt sé að
skipuleggja ferðaþjónustu almennt
í landinu með hliðsjón af hverskon-
ar ferðamenn sækja okkur mest
heim. Trúlega er líka orðið brýnt
að gefa út sérstakt landkynningar-
rit til að stuðla að hvatningaferð-
um.
Stærstu verðlaunahópar sem
hafa komið til íslands eru hópar
sem koma með Concord-þotum til
Keflavíkur. Þeir dvelja héma einn
dag og fara í stuttar skoðunarferð-
ir. íslenskar ferðaskrifstofur hafa
séð um móttökur og fjölbreytta
dagskrá. Nokkrir slíkir hópar hafa
komið til landsins.
IBM-ráðstefnan í maí 1987 er
stærsta ráðstefnan sem hér hefur
verið haldin. Hún var að hluta
hvatningaferð. Þá komu hingað
um 1.400 manns í fjögurra daga
ferð, frá Norðurlöndum, Portúgal,
írlandi og ísrael. Ferðaskrifstofan
Útsýn sá um móttöku á hópnum
sem var tvískiptur. Að sögn starfs-
manna Útsýnar gekk allt ljómandi
vel, enda voru veðurguðimir mjög
hjálplegir. Geysileg vinna lá í und-
irbúningi og má segja að þeir sem
vom ábyrgir fyrir móttökunum
hafi varla unnt sér hvíldar allan
/ ævintýraferð um Noreg.
í hvatningaferðum að skapa „sér-
stakt kvöld fyrir sérstakt fólk“.
Síðasta kvöldið var mikil veisla
fyrir alla í veitinga- og skemmti-
höllinni „Broadway".
ÍSLAND SEM
ÁFANGASTAÐUR
Ferðablaðinu var tjáð að stórt
vandamál við móttöku hvatninga-
Finnskur fatnaður í hágæða-
flokki.
hópa á íslandi væri hvað fá hótel
ná hágæðaflokki. Hótelin virðast
mörg vera í 3-4 stjömu gapða-
flokki, en spuming hvort einhver
íslensk hótel ná 5 stjömum. ís-
lensk hótel hafa aldrei verið
gæðastimpluð eftir alþjóða mæli-
kvarða svo erfitt er að segja til
um þetta.
Dagskrá í hvatningaferðum
miðast yfírleitt aðeins við stuttar
dagsferðir frá Reykjavík. Ef ein-
hver hópur biður sérstaklega um
áfangastað úti á landsbyggðinni
verðúr að gera honum grein fyrir
gistingu á staðnum. Skipulagning
á dagskrá fer að sjálfsögðu eftir
fjölda þátttakenda. Það er auðveld-
ara að vera með meiri fjölbreytni.
í fámennum hóp en f yfir 200
manna hóp. Hvatningaferðir eru
yfírleitt stuttar. Fjórir dagar eru
algengasta lengd, en ferðimar
geta farið upp í vikudagskrá.
Aðalinntak hvatningaferða er
að fólk upplifi eitthvað í hveiju
landi sem er ómögulegt að sjá og
reyna annarstaðar. Ferðimar
heimta nýja áfangastaði, nýja teg-
und af veislum, nýja óvenjulega
reynslu og alltaf aukast kröfiimar.
Segja má að ferðimar séu skipu-
Mesta aðdráttarafl Dana.
anlegt fyrir okkur íslendinga að
fá að vera með í sameiginlegri
kynningu. Frændur okkar hafa
eytt umtalsverðum fjármunum í
landkynningu og við höfum ekki
sambærilegt fjárhagslegt bol-
magn. Fróðlegt er að fletta í
gegnum ritið og athuga hvað er
einstakt og óvenjulegt á Norður-
löndum fyrir bandaríska ferða-
mepn.
I almennri kynningu er sagt um
íslendinga að þeir baði sig, drekki
og bursti tennur upp úr hveravatni
— að ferðamenn þurfi að bera sól-
gleraugu á kvöldin í miðnætursól-
inni. Og meira um miðnætursólina.
Þegar hún hellir sér yfir Norður-
landabúa — fara Finnar í sjóðandi
gufu- og ísköld vatnsböð til skipt-
is, alla nóttina — en íslendingar
o$r Svíar leika sér við að slá golf-
kulur á meðan “dagsljósið" varir,
það er að segja allan sólarhringinn.
Á Norðurlöndum er hægt að
beisla hreindýr í sleðaferð yfír
heimskautabauginn — að sigla í
langskipum, girtum víkingaskjöld-
um, að fomum sið, eftir norsku
flörðunum — að hlusta á bergmál
kampavínsglasanna enduróma í
fjallatindum — að velja spriklandi
lax á útimarkaði í Bergen og láta
matreiða hann að eigin ósk á
staðnum. Matur er ljúffengur á
Norðurlöndum, villt fyallabráð,
reykt hreindýrakjöt og spriklandi
lax og silungur, en ferðamaðurinn
er varaður við íslensku lostæti sem
líkist vel þroskuðum osti, en er í
raun hrátt hákarlarengi og út-
heimtir sterkan maga sem er
tilbúinn að hætta sér í góðum leik.
Talað er um litlu tröllin sem
fela sig í sænsku og norsku skóg-
unum, hvað þau séu hrekkjótt og
búi yfír duldum krafti. En ferða-
maðurinn er beðinn að gæta sín á
ósýnilegu álfunum sem svífa yfir
tunglkenndu landslagi á íslensku
eldfjallaeyjunni. Skattfijáls versl-
un er auglýst á öllum Norðurlönd-
um að íslandi undanskildu. íslensk
stjómvöld ættu að fara að taka til
athugunar hvað hún hefur mikið
auglýsingagildi fyrir ferðamanna-
land.
Lax dreginn á land fyrir fram-
an sænsku konungshöllina.
Hvatninga-
bæklingarFrá
Norðurlöndum
Ferðamálaráð allra Norðurland-
anna að íslandi undanskildu hafa
gefið út sérstaka hvatninga-
ferðabæklinga. Norðmenn auglýsa
Noreg sem nýjan áfangastað fyrir
hvatningaferðir. Þeir eru líka að
byija að sérhæfa sig í hvatninga-
ferðum. Finnar hafa sótt sig mikið
í ferðamálum og hafa eytt umtals-
verðum fjármunum til að kynna
sig. Finnar nota auglýsingaslag-
orðið — Finnland efst á hnettinum
— í sínu riti. Danir virðast leggja
mikið upp úr glaðværð þjóðarinn-
ar.
En að öllum hinum ólöstuðum
virðist sænska landkynningarritið
vera með sérstöðu hvað skemmti-
lega hönnun varðar. Bandarísk
auglýsingastofa hannar bækling-
inn, sem er skrifaður sem fjörlegt
og lifandi fréttabréf frá Stokk-
hólmi. Hjón sem eru á ferðalagi
um Stokkhólm draga lax á land
fyrir framan konungshöllina,
heimsækja að sjálfsögðu eitt glæsi-
legasta veitingahús Stokkhólms,
Óperukjallarann, snæða í miðalda-
stíl í gamla bæjarhlutanum, og
sigla í skeijagarðinum þar sem eru
sagðar yfir 25.000 litlar eyjar.
Frændur okkar Svíar fá ábyggi-
lega margar hvatningaferðir út á
Stokkhólmskynningaritið.
AdeinsáÍslandi
— geta sigurvegarar í hvatn-
ingaferðum drukkið “Svarta
dauða“ og greint frá þeirri óvenju-
legu reynslu — heyrt tungumálið
sem víkingar frá Englandi, ír-
landi, Frakklandi og allt til rúss-
nesku sléttanna töluðu — heimsótt
Heklu, sem miðaldafólk óttaðist
að væri anddyri helvítis — ávarpað
alla með fomafni, jafnvel sjálfan
forsetann — er sagt í sameiginlega
Norðurlandabæklingnum.
Ferðaskrifstofumar Útsýn og
Saga hafa gefið út sérstaka kynn-
ingarbæklinga um hvatningaferð-
ir. Aðrar ferðaskrifstofur em
yfirleitt með sérkafla um hvatn-
ingaferðir í ritum sínum. Ferða-
blaðið fletti í gegnum bæklingana
til að sjá á hvað þeir leggja áherslu
að sé æfíntýralegast á Islandi.
Saga gefur sýnishom af hugs-
anlegri átta daga dagskrá og gerir
. víðreist í hvatningaferð um landið.
Hún dregur upp ævintýralega ferð,
Gullfoss og Geysishringinn, til
nútíma „Pompei-bæjarins" á
Heimaey, að Mývatni, til Akur-
eyrar, fyrir Snæfellsjökul og inn í
Þórsmörk.
Útsýnarbæklingurinn er viða-
meiri og gefur meiri alhliða mynd
af þeim ótæmandi möguleikum
sem Island býr yfír. Áhersla er
lögð á heita vatnið í sundlaugunum
og Bláa lóninu, íslensku hestana,
jöklaferðir þar sem vínið er kælt
við rétt hitastig, að feta í fótspor
útlaga á öræfum og fleira.
Tvennskonar dagskrá er í boði,
bæði fyrir stærri og smærri hópa.
Flogið er með smærri hópa í dags-
ferð til Homafjarðar og farið í
ævintýraleiðangur á Vatnajökul.
Vetur í Portugal
Hvernig væri að stinga af úrmyrkrinu,
kuldanum ogslabbinu um tíma?
10vikur
Lissabon
Algarve
Madeira
Ferðaskrifstofan EVRÓPUFERÐIR býðurykkur
uppá 1 0 vikna ferðir til Portúgal í vetur. Hægt er
að velja um gistingu á Madeira, Algarve eða
Lissabonströndinni. verð frá kr. 63.000.
Einnigstandaykkurtilboða styttri ferðir(3-30dag-
ar) með gistingu í íbúðum eða 3 til 5 stjörnu hótelum
víðsvegar um Portúgal. Þið getið heimsótt heims-
borgirnar Lissabon og London í einni ferð, spókað
ykkur á strönd ALGARVE eða leikið golf á ein-
hverjum bestu golfvöllum Evrópu.
Þeir sem vilja hvílast og slappa af í fögru umhverfi
býðst úrval af gististöðum á hinni margrómuðu eyju
Madeira.
Ef þig vantarferðafélaga, þá er hann
e.t.v. á skrá hjá okkur.
Allt flug fer ígegnum LONDON og þvígefst
farþegum kostur á aö stoppa þar, hvort sem er
á útleið eða heimleið.
Nánari upplýsingar fúslega
veittará skrifstofu okkar.
evrópuferðir
KLAPPARSTlG 25-27
101 REYKJAVÍK,
SÍMI628181.