Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1988, Side 15
íbúðablokk Hundertwassers í Vínarborg: Túristarnir flykkjast þangað svo íbúunum þykir nóg um. Sumar íbúðirnar eru
á einni hæð, sumar á tveimur og hver íbúð er með sérstökum lit að utan.
Undirgangur undir íbúðablokkina. Hér
er gosbrunnur, mósaíkskreytingar og
burðarsúlur, sem þykja óvenjulegar.
•i
Lloyds nálgast það betur en hús, sem lítur
út eins og kassi. Hér er það að vísu ekki
vél til að búa í, heldur vél til að starfa í; vél
til að láta risavaxið tryggingafélag blómstra
í. Vonandi hefur það tekizt. Það kemur að
minnsta kosti á óvart, að slík framúrstefna
skuli eiga uppá pallborðið á stað, sem yfir-
leitt er fremur orðaður við mjög rótgróna
íhaldssemi.
ÍBÚÐABLOKK HUNDERT-
WASSERS
Maður er nefndur Friedenreich Hundert-
wasser og telst meðal þekktustu myndlistar-
manna í Austurríki. Að auki hefur hann
mjög viðrað skoðanir sínar á nútíma arki-
tektúr, sem hann telur fram úr hófi ómann-
eskjulegan. Hann vill ekki að reglustikan
ráði ferðinni; hann hefur gerzt talsmaður
torfþaka og vill hafa trjágróður á svölum
og hvar sem honum verður við komið. Á
sýningum sínum hefur Hundertwasser
stundum sýnt tillögur að nútíma bygging-
um. Þar ræðst hann m.a. að litahræðslu
arkitekta og sýnir líkön eða teikningar af
mjög litskrúðugum húsum.
Þar kom, að borgaryfirvöld í Vínarborg
ákváðu að gefa Hundertwasser tækifæri.
Hann teiknaði allstóra íbúðablok, sem valinn
var góður staður í borginni og eins og að
líkum lætur sker hún sig mjög úr öllu, sem
þar er í kring. Austurríki er eitthvert ihaldss-
amasta land sem fundið verður, hvað bygg-
ingar áhrærir. Það er því eins og við mátti
búast, að fólk hefur aðeins fengizt til að
flytja í 16 íbúðir af þeim 50, sem í blokk-
inni eru. Vonandi stendur það til bóta og
yfirvöld í Vínarborg þurfa varla að hafa
slæma samvizku, því blokkin er orðin eitt
af því, sem ferðamenn vilja endilega sjá.
Það hefur að vísu þann annmarka í för með
sér, að blokkin er líkt og í sífelldu umsáturs-
ástandi og vísast, að fólk vilji síður búa í
henni vegna þessa.
Eins og myndir bera með sér, hefur hver
íbúð sinn sérstaka lit að utan; jafnframt
hefur Hundertwasser afmarkað hverja íbúð
með keramikramma í dökkum lit og sá
rammi hafður viljandi skakkur og óregluleg-
ur. Svo er og um gluggastærðir. í samræmi
við þekktar skoðanir málarans, hefur hann
gert ráð fýrir ýmisskonar tijágróðri á svöl-
um og þaki.
Hundertwasser hefur kallað nútíma borg-
aríbúðir kjúklingabúr. Hann segir einnig,
að nútíma arkitektúr sé „glæpsamlega dauð-
hreinsaður" og að „beinar línur séu ómenn-
skar“ Ekki gekk átakalaust að koma bygg-
ingunni upp. Hundertwasser var fenginn
arkitekt til að útfæra teikningar og hug-
myndir málarans, svo hægt væri að byggja
eftir þeim. Hann vildi þó sem minnst sam-
starf hafa við arkitektinn, en þeim mun
meira við sjálfa smiðina. Að innan eru íbúð-
irnar þó hornréttar og venjulegar nema að
því leyti, að baðherbergin eru eitthvað
óregluleg. Hafa þeir sem gagnrýna bygging-
una bent á þetta og segja, að kjúklingabúr-
in séu öll á sínum stað og eins og venju-
lega; þau séu bara í dularklæðum að utan.
GÍSLI SIGURÐSSON
Yfirbragð tæknialdará aðalstöðvum Lloyds svo húsiðsker sigmjög úríhinu rótgróna fjármálahverfi Lundúna, The City.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. JÚLÍ 1988 15