Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1988, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1988, Blaðsíða 8
Isbjörninn er svo einn án þess að vera einmana. Kraftmikill. Fallegur. Og svo lifir hann án þess að hafa fast land undir fótum. ísbjöminn kom í ljós þegar ég hafði verið sex ár við nám erlendis, svo kannski tengist hann líka þjóðemi og leit að upp- Rætt við Helgu Egilsdóttur myndlistarkonu í tilefni sýningar hennar í Gallerí Borg, sem hófst fyrir tveimur dögum. Þetta er önnur einkasýning hennar og nú sýnir hún olíumálverk. Fyrir utan framhaldsnám í Danmörku, stundaði Helga nám í San Francisco og segir bæði frá því og ýmsu öðru. Eftir ELÍSABETU JÖKULSDÓTTUR runa. Ég var líka að pæla í sjálfstæði og frelsi; að vera þess umkominn að finna hlýj- una úr eigin faðmi, en þurfa ekki að taka hana frá öðrum. Það var þá sem ísbjöminn fór að gera vart við sig.“ — Vinnustofan er í gömlu húsi í mið- bænum, á efstu hæð og útsýni yfir gamla tíma, sem lifna þegar minnst varir. Inni á vinnustofunni em lyktir af olíu og striga og stór málverk Helgu Egilsclóttur máluð í dökkum og sterkum litum. í verkunum er kynngimagnaður kraftur sem tekur mann til sín og óræð form, sem haída vöku fyrir vitundinni, löngu eftir að maður hefur hætt að horfa á þau. Á einni myndinni eru útlín- ur risavaxins ísbjamar dregnar yfir dular- full form og liti. Og á annarri mynd er hlýr ísbjöm sem nær því festir hramma sína á miklum spíral. „Þama er ég að fást við að það er hægt að nota kynorkuna á annan hátt en bara í rúminu." Ég man eftir öðm málverki eftir Helgu, þar sem var líka ísbjöm, þannig að það lá beinast við að spyija hana hvort hún væri hrifin af ísbjöm- um. Helga er nýkomin heim frá námi, en hún var sex ár í listaháskóla í San Prancis- co, þar sem hún lauk mastersgráðu í málara- list í vor. — Nú em listamenn — og myndlistar- menn sérstaklega — ekkert sérlega áfláðir í að tala mikið um verk sín. En þú kemur frá amerískum listaskóla, þar sem steftian er sú að skilgreina verk ofaní kjölinn, hvort sem um er að ræða, myndlist, ljósmyndun eða annað. „Já, ég reifst heilmikið útaf þessu. Ef ég gæti talað um verk mín myndi ég gera það. Og hef oft óskað þess að ég gæti skrif- að. En í skólanum var pælt til hlítar í gmnni og ástæðum þangað til var búið að tæta allt í sundur. Ég vissi alltaf sjálf hvað ég vildi segja, þó ég væri ekki reiðubúin til að skil- greina verk mín sleitulaust. Það var líka mikið pælt útfrá þjóðemi. En mig langar til að gefa fólki sína eigin persónulegu upp- lifun á myndum mínum og upplifun felst ekki öll í orðum. Verk mín em tjáning á upplifun og þó ég viti hvað mig langar til að segja, veit ég ekki alltaf hvemig ég á að fara að því. En ég veit hvað myndimar þýða, þetta er ekkert sem er ómeðvitað, enda er mér mik- il alvara. Ég skissa ekkert og mála beint á léreftið. Ég forma ekki í huganum áður, en sé oft myndir fyrir mér en þær breytast mjög ört. En ég á auðveldara með að tjá mig en áður, bæði í orðum og eins í málverk- inu, það er kannski vegna þess að ég hef lært að tala um listina. Eða kannski vegna þess að ég mála...“ LEIT Að Jafnvægi — Nú sýnist mér af verkum, sem þú sýndir í Hlaðvarpanum fyrir tveimur árum, að abstraktið sé að taka við og fígúrur að víkja af léreftinu? „Abstraktið þjónar mér betur núna. Ég er að segja frá öðrum tilfinningum og hugs- unum. Þetta hlýtur að vera ákveðin þróun. Og núna verður fígúran mér fjarlægari og fjarlægari Pígúmr segja meiri sögu. Ab- straktið gerir meiri kröfur. Ég hef verið að þreifa mig áfram með form, finna mín eig- in og þróa þau og breyta þeim. Hvert form segir mér eitthvað og ég held að formin kreQist þess að maður hugsi öðmvísi. Ef til vill er ég að leita meira inná við, vegna þess að ég hef náð nánara sambandi við sjálfa mig. Ef til vill em þessar myndir til- raun til að finna jafnvægi á milli hugar- heimsins og þess heims sem er kallaður raunvemlegur. Þjóðveijinn Anselm Kiefer nær að vísu þessu hárfína jafnvægi. Ég nota líka eingöngu jarðliti núna, sem sumir kalla dökka liti. Áður notaði ég expres- síóníska liti. En ef ég set liti í verk mín núna, verða þau yfirborðskennd og ég segi þá ekki satt. En ég blanda jarðlitina og nota gult, grænt og appelsínugult, sem reyndar telst jarðlitur. En fólk gagnrýnir mig oft fyrir að nota dökka liti og fínnst ég dragi upp of myrka sýn. Ef til vill er það tengt því að við lifum á tímum mikillar yfirborðsmennsku, þar sem við virðumst hvorki þora né vilja horfast í augu við tilfinn- ingar, sem tengjast dúpum sársauka eða þunglyndi. Samskipti okkar em svo yfir- borðskennd, enda em þau stórvandamál. Við emm búin að læra ótal reglur í leik, sem stenst ekki. Framkoman segir oft svo lítið, kurteisin kemur innanfrá. Allt hangir á yfirborðsmennskunni og léttum hressleika og djúpar tilfinningar ná ekki uppá yfírborð- ið. Gleðin hlýtur líka að vera djúp tilfinn- ing. Ef hún er sönn. kynorkaer DularfulltAfl — Þú vilt ekki fjalla um myndir þínar en ég hjó eftir tveimur stikkorðum áðan i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.