Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1988, Síða 14
SJONVARPSTÆKN I
SJÓNVARP
FRA MIÍÐARIN N AR
Japan, Evrópulönd og
Bandaríkin eru komin í
hörkusamkeppni um
smíði stærri, betri og
miklu dýrari
sjónvarpstækja en áður
hafa verið á markaðnum
Sjónvarpstækið nær yfír dijúgan hluta af stofu-
veggnum, gefur svo skýra mynd, að það er einna
líkast því að horfa út um fyrirtaks útsýnis-
glugga, þegar horft er á hana. Á skjánum er
verið að sýna knattspyrnuleik; það er hægt að
sjá einstök grasstrá í útjaðri vallarins, og
það heyrist eins vel í áhorfendunum eins
og væru menn raunverulega staddir á áhorf-
endapöllunum. Hárin í augabrúnum leik-
mannsins sjást greinilega, hver minnsti
dráttur í andlitinu, þegar myndatökuvélinni
er beint að honum. Þessi endurbætta sjón-
varpstækni er kölluð high-defínition á máli
fagmanna (HDTV), en flest okkar eiga eft-
ir að líta á þetta fyrirbrigði einungis sem
enn eina nýjungina til að auka notaleg-
heitin á heimilunum, þegar menn hreiðra
um sig á sófanum fyrir framan sjónvarps-
tækið.
Þetta er annars langmesta breytingin,
sem orðið hefur á sjónvarpstækni síðan lita-
sjónvarp kom til sögunnar. Það má búast
við því, að þessi nýja sjónvarpsgerð haldi
innreið sína hjá okkur fyrir alvöhi eftir fímm
til sex ár.
ByltingÍ Aðsigi
Það gengur líka ýmislegt á um þessar
mundir í sambandi við þróun þessarar nýju
sjónvarpstækni. Öflugustu iðnríki heims
eins og Bandaríkin, Japan og ríki Vestur-
Evrópu eru komin í háarifrildi út af HDTV-
tækninni, því ekkert þessara rílq'a vill missa
af'sínum skerfi í framleiðslu rafeindatækja
til almenningsnota. Þama er um markað
að tefla, sem nemur mörg þúsund milljörð-
um króna, þegar salan á tækjunum hefst
fyrir alvöru. Bandaríkjamenn beijast um á
hæl og hnakka gegn Japönum, því að fyrir
bandarískan rafeindaiðnað er það spuming-
in um hvort þeim tekst að veija forystu-
sæti. sitt á þessu sviði eða hvort Bandaríkin
verði framvegis einungis annars flokks
framleiðsluland rafeindatælqa. Þá er sú
hætta fyrir hendi, að HDTV gæti orðið til
þess að skapa tvo aðskilda hópa meðal sjón-
varpsáhorfenda: í öðrum yrðu hinir ríku, í
hinum þeir fátæku: „Þetta er ekki fram-
þróun," segir William Hassinger, aðstoðar-
framkvæmdastjóri bandarísku Ríkisíjar-
skiptanefndarinnar. „Þetta er bylting. Þetta
er sjónvarpstækni 21. aldarinnar."
HDTV-byltingin fór hljóðlega af stað
snemma á þessum áratug, þegar japanskir
framleiðendur gerðu uppskátt um stórkost-
legt nýtt myndbandskerfí með mynd, sem
líkist breiðtjaldsbíómynd fremur en héfð-
bundinni sjónvarpsmynd. Með því að styðj-
ast við rannsóknir á þessu sviði, sem hófust
á árinu 1970, hafa Japanir náð að vinna
einnig að þróun kvikmyndatökuvéla, segul-
bandstækja og hljómflutningstækja til notk-
unar við þessa nýju gerð og stærð sjón-
varpstækja.
VESTURLÖND lítt Hrifin
Japönsku uppfinningamennimir bjuggust
fastlega við því, að þessu afreki þeirra yrði
tekið með miklum fögnuði um víða veröld,
og að endurbætumar myndu jafnvel verða
til þess að umbreyta sjónvarpstækni um
allan heim. En þar misreiknuðu þeir sig illi-
lega. Segja má, að mistök Japananna hafí
verið þau að álíta það sjálfsagðan og eðlileg-
an hlut, að það sem þeir teldu heppilegt og
hagkvæmt fyrir Japan, væri um leið heilla-
vænlegast fyrir aðra heimshluta.
Það vom Evrópubúar sem bám fram
hávæmstu mótmælin gegn markaðssetn-
ingu japanska HDTV-sjónvarpskerfísins.
Árið 1985 tilkynnti EBE, að bandalagsríki
Evrópu ætluðu sér sjál að ákveða sína staðla
fyrir HDTV-kerfið. Evrópubúar framleiða
ennþá meginpartinn af þeim sjónvarpstækj-
um sem þeir nota, en Bandaríkjamenn flytja
aftur á móti flest sín sjónvarpstæki inn frá
Japan og Evrópu. Evrópskir framleiðendur
era því vel á verði gegn því að samþykkja
japanskan HDTV-staðal og opna þannig
innrásinni frá Asíu allar dyr og gættir í
Evrópu. „Við myndum verða þurrkaðir út,“
segir Peter Groenenboom, framkvæmda-
stjóri alþjóðlega risafyrirtækisins Philips,
sem sérhæfír sig í framleiðslu ails konar
rafeinda- og raftækja. Það fór því svo, að
Evrópumenn kusu sjónvarpskerfi, sem sam-
ræmist ekki japanskri framleiðslutækni. Sú
ákvörðun hleypti strax illu blóði í japanska
framleiðendur og olli auk þess töfum ails
staðar. Sjónvarpstæki til móttöku á efni frá
HDTV-senditækni koma ekki á markaðinn
fyrr en árið 1992 eða ’93.
Japanir Hafa Betur í
Bandaríkjunum
Þegar þessi nýja sjónvarpstækni fer að
ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum, verða
þeir sjónvarpsáhorfendur sem fylgjast vilja
með framvindu mála tilneyddir að læra á
nýjan leik hvemig sjónvarpskerfí þeirra
virka. Það má orða það á einfaldan hátt
þannig, að það séu þijár leiðir til að senda
út sjónvarpsefni til sjónvarpstækja á heimil-
um; hefðbundnar sjónvaipsútsendingar, sem
oft ganga undir nafninu „terrestrial" meðal
fagmanna; þá kemur kapal-sjónvarp, en t.d.
í Bandarflq'unum berst um 51% sjónvarps-
notenda útsendingar eftir þeirri leið. Og
Ioks em það svo gervihnattasendingar,
mótteknar með diskum, sem tróna uppi á
húsþökum eða í bakgörðum við heimili
manna. Nú er spumingin sú, hveija af þess-
um þremur leiðum verður notast við til þess
að senda þau miklu flóknari boðmerki, sem
framkalla HDTV-myndir.
Að þvi er Bandaríkin varðar, er svarið
við þessari spumingu enn óljóst. Amerískar
sjónvarpsstöðvar em andsnúnar nýja, jap-
anska staðlinum fyrir HDTV-útsendingar
og þá einkum vegna þess, að sá staðall
mundi verða þess valdandi, að um það bil
160 milljónir sjónvarpstækja, sem í notkun
em þar vestra um þessar mundir, yrðu sam-
stundis úrelt. Gömlu tækin myndu þó virka
að hluta, ef bætt yrði við þau rándýmm
nýjum tíðnibreyti. Vegna innbyggðra tak-
markana í gömlu sjónvarpstækjunum,
myndu áhorfendur þó ekki njóta sömu
myndgæða í HDTV-útsendingum, þar sem
myndin yrði ekki eins skörp og í flunkunýj-
um, sérstökum HDTV-sjónvarpstækjum.
Eins og sakir standa em ekki fyrir hendi í
Bandaríkjunum neinar samræmdar áætlanir
til mótvægis við HDTV-staðal Japana.
Hdtv- Og Hefðbundið Sjón-
VARP HLIÐ VIÐ HLIÐ
I Bandaríkjunum hafa nokkrir aðilar,
þeirra á meðal hin risastóra RCA-sjónvarps-
stöð og General Eleetric-samsteypan, stung-
ið upp á því að komið verði upp eins konar
tví-rása HDTV, sem mundi flytja sjón-
varpsáhorfendum sömu mikilfenglegu
HDTV-myndgæðin en samt gætu menn
áfram notast við sín hefðbundnu sjónvarps-
tæki til að ná þessum óhemju skörpu mynd-
um framtíðarinnar. Sérhver sjónvarpsstöð
myndi þá senda út dagskrá sína á venjuleg-
um hátíðnibylgjum eins og hingað til (rásir
2 til 13) ætluð núverandi sjónvarpstækjum.
Önnur rás sömu stöðvar, ef til vill á ofurhá-
tíðnibylgjum (rás 14 og þar fyrir ofan)
mundi auk þessa bera aukaboð; hin nýju
HDTV-sjónvarpstæki myndu þá sameina í
einu tæki báðar tegundir sjónvarpsrása og
útkoman yrði ein afar glæsileg og skýr
mynd.
„HDTV-kerfið heldur innreið sína í
Bandaríkin, hvort sem það verður með eða
án atbeina sjónvarpsstöðvanna," segir David
Fuchs, varaformaður stjómar CBS-sjón-
varpsstöðvarinnar. Ef eftirlitsnefnd alríkis-
flarskipta í Bandaríkjunum (FCC) fer ekki
að haska sér í að koma upp banndarískum
HDTV-staðli, þá kunna Japanir senn að
byija að selja HDTV-sjónvarpstæki og
HD-myndbandstæki að auki í Bandarflq'un-
um. Þess konar sjónvarpstæki gætu farið
að koma fyrir alvöra á markaðinn þegar
árið 1991 og myndu þá væntanlega kosta
þetta frá 3.500 dollumm þar vestra (en það
svarar til um 147.000 ísl. kr.).
Segja má að senditækni sjónvarps
sé að miklu leyti óbreytt þjá okkur
allt frá árinu 1953; það eina sem
bæst hefiir við á tæknisviði sjón-
varps á síðustu áratugum er stereo-hfjómburður. Línurnar
hafa hins vegar ekki orðið þéttari og púnktunum hefur
ekki fiölgað í sjónvarpsmyndinni á skjánum.
ínýja japanska sendikerfinu verður
línufjöldinn meira en tvöfaldur.
Skjárinn á móttökutækjunum
heimafyrir verður líka um það bil
helmingi breiðari og hærri en tíðkast hefiir hingað til.
Þá er og líklegt, að kapalsjónvarpsstöðvar
á Vesturlöndum, sem ekki eiga við að stríða
jafn margvíslega tæknilega annmarka og
hefðbundnu sjónvarpsstöðvamar, fari brátt
að bjóða sínum áhorfendum upp á HDTV-
sjónvarpssendingar á rásum, sem sjónvarps-
notendur yrðu þá að greiða sérstakt afnota-
gjald fyrir. Nýju HDTV-sjónvarpstækin
munu auk þess taka á móti hinum gömlu,
hefðbundnu sjónvarpsútsendingum, þótt
þær myndir munu virðast harla daufar og
óskýrar, miðað við myndgæðin í nýja
HÐTV-sjónvarpsmiðlinum.
Upphafið í Seoul í Sumar
Japanir hafa unnið ósleitilega að öllum
undirbúningi HDTV-kerfisins nýja, en þar
í landi hefur þessi sjónvarpstækni hlotið
heitið Hi-Vision. Upphafíð að allri dýrðinni
verður núna í sumar, þegar japanskir sjón-
varpsáhorfendur fá tækifæri til að fyigjast
með framvindu Ólympíuleikanna í Seoul í
HDTV-tækjum, sem framleiðendur hafa lát-
ið setja upp í ýmsum_ stórverzlunum í
stærstu borgum Japans. Árið 1990 mun svo
sérstakur nýr gervihnöttur Japana byija að
bjóða þarlendum upp á reglubundna Hi-
Vision-þjónustu og þurfa japanskir sjón-
varpsnotendur ekki nema pínulítil loftnet á