Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1988, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1988, Blaðsíða 12
dreka. „Én ég geri það alltaf leiftur- snöggt," bætir hann við. KÖRFUBOLTIOG Stjörnuskoðun Kristjón er haldinn ódrepandi íþrótta- áhuga. Leikur fótbolta með a-liðinu í Bol- ungarvík. Hann les grísku íþróttasíðumar upp til agna og fylgist með leikjum í gríska sjónvarpinu, þá sjaldan tækifæri gefast. Við sjáum varla sjónvarp í tvo mánuði og ein- hvemtíma spyr ég tíðinda. Hvað sé að ger- ast í heiminum? — Ekkert — Engin ný stríð? — Nei, stríðin em öll búin! — Það var og... En Kristjón leikur körfubolta á hverjum degi. Yorgo frá Rhodos verður besti vinur hans og Akapidos, bróðir hans. Kristjón lærir hrafl bæði í ensku og grísku og er duglegur að bjarga sér. Hann á það til að fara einn út að borða ef ég er að svæfa, og pantar sér 16 souvlaki. Fer líka einn í göngutúr til að skoða stjömumar. Og sjó- inn, bætir hann við. Hvað gerði Kristjón í Grikklandi, segir Kristjón. Horfði á sjóinn, segir Kristjón. Hann er djúpur, segi ég. Og blár, segir Kristjón. Já. Blár, segi ég. Og djúpur, segir Kristjón. Sjórinn? segi ég. Blár, segir Kristjón og virðist hafa Beck- ett á valdi sínu. „Stundum verð ég að vera einn og hugsa," segir hann, fer út að ganga og kemur heim og segir mér sögur af vetrar- brautinni, stjömuhröpunum og gervihnött- um. Hann teflir við Dick og Yorgo, og mátar oft andstæðinga sína, þó eldri séu. Þykir djarfur skákmaður og gerir gjama áhlaup með drottningunni. Lífið rannsakar ÞÁ Eða ... Stundum fínnst mér nóg um veiðigleði afkomenda minna. Skordýralífíð er fjöl- skrúðugt og þegar þeir hafa komist yfír mestu hræðsluna við randaflugur sem fyrst var hlaupið emjandi undan, er hafíst handa við að veiða kvikindin. Það eru eðlur, maur- ar, krabbar, fiskar, margfætlur, flugur, engisprettur, bjöllur, snákar, kuðungadýr, krossfískar, igulker og kakkalakkar. Allt er skoðað gaumgæfílega og svo eru væng- imir slitnir af og síðan fætumir. Stundum gerist það óvart. Togað er í hala á eðlu, sem dettur af einsog klipptur, og eðlan skýst í felur. Kuðungum er att í kuðungakapphlaup og krabbar látnir í krabbahlaup. Randaflug- ur eru drepnar með köldu blóði. Ég reyni að vekja athygli á mannúðlegri aðferðum, helst eigi dýrin að fá að vera í friði. En veit af eigin reynslu og köngulóarveiðum í Vest- urbænum, að ég tala fyrir daufum eyrum. Þeir era að rannsaka lífíð og lífið rannsakar þá. Einu sinni stelast þeir út með eitur í úðabrúsa, sem ætlað er fyrir kakkalakka innanhúss. Þeir úða á maurana og köngu- læmar og eitrið virkar. Ég held nettan fyrir- lestur um ósonlagið og eiturhemað stórveld- anna, en hvort tveggja er bara í fféttun- um.. JASSÚ, Jassú, jassú — Þama er doktorinn, segir Garpur og heilsar kumpánlega. — Og þama er presturinn, hann er með skrítinn hatt, segir Jökull. Þama er bakar- inn, segir Kristjón, en vill ekki selja honum myndavélina sina. Sú saga gengur um bak- arann að hann hafí tapað sumarhýranni í flárhættuspilum við krakka, síðasta vetur. Jassú, jassú, segja þeir af sannfæringu, þegar 'þeir heilsa. Einhverra hluta vegna hélt ég að þeir yrðu altalandi á hómerska tungu á fám dögum. Kristjón er að vísu fljótur að bjarga sér og ótrúlega forvitinn um samræður mínar á útlensku. Heimtar að ég túlki jafnóðum, sannfærður um að allt sé merkilegt. En hann er hissa þegar ég segist ekki hafa skilið. „Já en mamma, þú sagðir samt ne (sem þýðir já). „Já, enda virtist það alveg virka," segi ég. Garpur og Jökull halda meira saman, era feimnir við allt þetta fólk sem kjassar þá og klípur í kinnar. Hrópar bravóbravó, ef þeir unga útúr sér einu einasta orði á grísku og ensku með hreim. Jassú, fínnst þeim óskaplega fyndið. Þetta orð, sem Grikkir nota bæði fyrir halló og bless, og þýðir: Heilsist þér vel. Randaflugumar segja jassú, jassú, segir Jökull. Mauramir segja jassú, jassú, segir Garp- ur. ígulkerin og eðlumar segja jassú, jassú. Það segja bara allir jassú, jassú. Jassú, jassú. Höfundur er rithöfundur og blaðamaður í Reykjavík. MOSKVA — borg hins þögla manngrúa að er sérkennilegt að koma frá dvergríki hins hömlulausa úrvals til heimsveldis hins fátæk- lega framboðs. Lítum á bílaeign sem dæmi. Hér heima þykir okkur sjálfsagt að sjá fjölda bflgerða í kringum okkur þótt við ökum aðeins smáspöl milli húsa. Á breiðum götum Moskvuborgar sjáum við aðeins Lödur og Volgur og einn og einn Moskovits á stangli. Og margir bílamir era orðnir býsna ellimóð- ir. Það er enginn leikur að eignast bíl í Rússlandi; slíkt kostar ærið fé og mikla þolinmæði - það þarf nefnilega að bíða nokkur ár eftir nýjum bíl. Síðasta dag ferð- arinnar sáum við^ félagamir nýjan Lada Samara á ferð. Ég spurði leiðsögumann okkar hvað slíkur farkostur kostaði nú um stundir. Hann ráðfærði sig við bílstjórann og kvað svo up úr með það að bíll af þessu tagi kostaði 9.000 rúblur - um 660.000 krónur. Mér fannst til um þetta verð og sagði leiðsögumanni að þessir bílar væra auglýstir á 318.000 krónur heima á ís- landi. Rússamir urðu afar toginleitir við þessi tíðindi, en ég gladdi þá með því að við hefðum dálitla hliðstæðu á heimaslóðum: Við þyrftum nefnilega að ferðast til útlanda til þess að borða kindakjöt á viðunandi verði. Vegir milliríkjaviðskipta era órann- sakanlegir. Karlmannsverk Að AkaBíl Fleira vakti athygli okkar í umferðinni. Hvarvetna sátu karlmenn undir stýri. í gerv- allri ferðinni sáum við eina einustu konu aka bifreið. Loks gat ég ekki orða bundist Nokkrir skólamenn úr Reykjavík, höfundurinn þar á meðal, fóru í lok síðasta vetrar til Rússlands í boði sovézka menntamálaráðuneytis- ins og með góðum stuðningi Reykjavíkurborgar. Hér er brugðið upp fáeinum svipmyndum af því sem fyrir augu bar. Eftir BJÖRN JÓNSSON og spurði leiðsögumann okkar hveiju þetta sætti. Hann fylgdi hinum þjóðlega hætti þegar spurt var um eitthvað sem menn vildu ógjaman ræða: Þóttist fyrst misskilja spum- inguna, svaraði síðan út í hött og greip loks það sem honum datt skást í hug: „Hvemig stendur á því að konur sjást ekki aka bíl hér í Rússlandi?" „Það er ekki gott að segja. Kannski kæra þær sig ekkert um það.“ „Það getur ekki verið," ansaði ég ákveð- inn. „Þeim þykir sjálfsagt að læra á bíl á Vesturlöndum." „Konur hafa áhuga á svo mörgu öðra,“ svaraði ágætur leiðsögumaður okkar og virtist gjaman vilja snúa talinu að einhveiju öðra. „Mér er þetta með öllu óskiljanlegt; það hlýtur að vera einhver skýring á þessu," sagði ég einbeittur og beið spenntur að heyra niðurstöðuna. Yuri Albetkov hallaði sér að bílstjóranum og ráðfærði sig við hann. Bflstjórinn, ungur maður og ókvalráður, glotti íbygginn og lét ekki standa á svari: „Það er karlmannsverk að aka bfl!“ Þar með var málið útrætt og hægt að taka aðra hluti til umræðu. Ekkert Skrjáf í POPPKORNI Tónlistarhús æskunnar er eftirminni- legur staður. Byggingin er glæsileg, ætluð til tónleika- og söngleikjahalds fyrir böm og ungt fólk - og reyndar fyrir fullorðna líka. Þegar inn er komið ganga gestir eftir löngum og breiðum gangi, en brýr era yfír ganginn með nokkra millibili og þar ganga leikarar fram fyrir sýningar og varpa kveðju á fólk þegar það gengur inn. Þessi bygging er ætluð rússneskum æskulýð og er augsýnilega frábær þáttur í tónlistarappeldi þeirra sem hafa eðli til slíks. Þama er 1.200 sæta aðalsalur, auk 300 sæta salar, breiðir gangar, opin svæði, smá- salir og afkimar þar sem smáfólk getur hvflt sig frá sýningum og sjónarspili og virt fyrir sér veggi sem skreyttir era persónum og atburðum úr rússneskum ævintýram samkvæmt gamalli þjóðlegri hefð. Það er hrein unun að njóta tónlistar í þessu um- hverfí. Hljómleikagestir streyma að, böm og fullorðnir. Það er nógu gaman að virða fyr- ir sér mannlífið á þessum stað. Nokkrir krakkar á tólf ára aldrinum era í nýlegum gallabuxum og vita vel af glæsileika sínum. Þeir stinga saman nefjum og horfa gagnrýn- um augum á jafnaldra sína sem stijálast að. Nei, sjáið þið nú bara! Koma ekki þama tvær stelpur á versta gelgjualdri, klæddar byltingarrauðum pilsum sem skrolla langt uppi á læram. Þær era sko gamaldags! Stelpumar tvær setjast á bekk álengdar og virðast ekki hafa hugmynd um átta gagn- rýnin augu sem stara á þær fram undan myndskreyttri súlu. Gallabuxnakrakkar líta hver á annan og hrista höfuðið háðskir á svip. Það verður að hafa eitthvert gaman af þessum stúlkukindum. Einn eftir einn gera þeir sér ferð fram á gólfið, virða stelp- umar náið fyrir sér, hnussa og hraða sér síðan til félaganna bak við súluna. Loks Minjar keis&ra veldisins eru stöðugt skoðunarefni ferðalanga. Keisarafallbyssan er dæmi um málmsmíði & báu stigi. 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.