Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1988, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1988, Blaðsíða 13
ók að mannfjöldanum á venjulegri ferð og þeytti tveimur öflugum vatnsstrókum yfir til hægri. Spariklætt fólkið þyrlaðist frá undan þessum ósköpum, hvítklæddar brúð- imar hlupu undan í ofboði og áttu fótum ijör að launa en óhreinn vatnsflaumurinn elti þær yfir á gangstéttina andspænis. Hugur minn kólnaði mjög við þessa sjón; tillitsleysið gekk gersamlega fram af mér. Ég hraðaði mér á brott. „FÓLK KÆRIR SlG EKKIUM Að Tala á ALMANNAFÆRI" Margt vekur athygli komumanns í Moskvu: byggingarstíll, umferð og yfirbragð - og síðast en ekki síst fólkið sjálft. Þetta er milljónaborg og mannaferð mikil. Við vorum að koma úr skoðunarferð í Geimferðaminjasafninu, þar sem yftið margt var að sjá, og gengum út af sýningar- svæðinu í sólskininu; það var heldur svöl norðanátt sem minnti mig á veðrið heima. Ég fór að spjalla við túlkinn okkar, hana Tanyu, um það sem fyrir augun bar. „Eitt er það sem mér finnst svo eftirtekt- arvert hér í Moskvu," sagði ég. „Hvað er það?" spurði hún forvitin, „Það er þessi þögli manngrúi," sagði ég. „Fólk arkar áfram svipþungt og steinþegj- andi og segir ekki orð. Ég heyri ekki eitt einasta orð á götum úti. Meira að segja krakkamir þegja líka." Sómastúlkan hún Tanya brá fyrir sig þessum vífilengjum sem ég var farinn að kannast við, þegar eitthvað bar á góma sem óþarft var að ræða: „Fólk kærir sig ekkert um að tala á al- mannafæri," ansaði hún. „Og stundum heyr- ir maður krakka hlæja þegar þeir eru að leika sér.“ „Ég undrast þetta nú samt,“ sagði ég með sannfæringu og lét mig hvergi. „Tekur þú ekkert eftir þessu?" „Nei,“ sagði hún og forðaðist að líta á mig. „Nú hefur þú komið til London," sagði ég. „Á ég að trúa því að þú hafír ekki séð neinn mun á framkomu fólks?“ Nú fékk Tanya ekki orða bundist: „Yes, it strikes me,“ ansaði hún. Við ræddum þetta ekki frekar. Reyndar var annað atriði sem okkur fé- lögunum fannst ekki síður eftirtektarvert, þótt ekki værum við að angra leiðsögufólk okkar með því að leiða það í tal. Það var hinn þungbúni alvörusvipur fólks sem hvar- vetna blasti við. Ósjálfrátt fórum við að svipast um eftir brosi á andliti einhvers stað- ar í grennd við okkur, en úr því varð löng leit sem sjaldan bar árangur. Mér varð hugs- að til lýsinga erlendra ferðamanna sem lögðu leið sína til íslands fyrr á öldum. Þeir höfðu sumir orð á því að íslendingar sæjust aldrei brosa. Forfeður okkar höfðu vist fátt til að kætast af á þeirri tíð. Sú er líklega raunin enn í dag þama austur frá. ÍSKOLANR.43 Skóli númer 43 er venjulegur grunnskóli. Ótvírætt „góður skóli" þar sem hann var hafður til sýnis. Leið okkar lá um íbúðahverfi, með hæfi- legum krókum og vafningum. Þetta var laust eftir miðjan apríl og enginn vorsvipur kominn á umhverfið. Óhreinir snjóskaflar kúrðu enn norðan undir stóru fjölbýlis- húsunum sem setja svo mikinn svip á Moskvu. Föl morgunsól, fólk á ferli, kyrrð yfir byggðinni. Eftir nokkum akstur var numið staðar hjá byggingu með auðþekkjan- legum skólasvip. Við stigum út úr bflunum og gengúm inn. Skólastjóri tók á móti okkur, roskinn maður, ákveðinn í fasi. Hann vísaði okkur veg upp á skrifstofu sína, íslendingunum fimm, fararstjóranum Yuri og túlkinum Tanyu. Komufólk fékk sér sæti og spjallið hófst. Óneitanlega er heldur stirt að tala saman með aðstoð túlks, en slfld hefur þó tiltekna kosti: Viðmælendum gefst gott tóm til að punkta hjá sér eitt og annað áhugavert og þar að auki er tækifæri til að gefa gaum að umhverfinu og þeim sem nærstaddir em. Þetta varð langt spjall: Fyrst spurðu komu- menn, en síðan þótti skólastjóra tímabært að fræðast nánar um gesti sína og aðstæð- ur þeirra. Skólastjóri hafði starfað við skóla númer 43 í 42 ár, verið kennari fyrstu 10 árin en haft skólastjóm á hendi eftir það. Hann kvað ýmsar breytingar vera í vændum í skólamálum og gerði sér vonir um að sjá þær koma til framkvæmda meðan hann væri enn að störfum. Enginn bilbugur á honum. Okkur var tjáð að 1.200 skólar væm í Moskvu á þessu skólastigi. Skóli númer 43 er 900 nemenda grannskóli frá 7 ára bekk og upp eftir, í 26 bekkjardeildum. Meðalstór borgin er alltaf að stækka og þenjast út. Einn daginn fékk ég bréf frá yfírvöldum og þar var mér skýrt frá því að borgin þyrfti á landinu að halda. Það átti að reisa eitthvert stórhýsi á þessum slóðum." „Húsið hefur bara verið tekið af þér?“ sagði ég. „Já, það má orða það svo,“ sagði hann. „En þú hefur fengið bætur fyrir eignina?" „Já, að sjálfsögðu. Húsið stóð á 3.000 fermetra lóð og það var mjög fallegur ávaxtagarður umhverfis það með epla- og pemtijám og beijarannum. Ávaxtatrén vora metin til verðs og ég fékk bætur fyrir þau.“ „Fékkstu þá engar bætur fyrir húsið sjálft?" setjast þeir allir á bekkinn hjá stelpunum. Klukkan er langt gengin í 7 á laugardags- kvöldi. Við félagamir eram sestir frammi í sal ásamt tryggu fylgdarliði okkar, leiðsögu- manni og túlki. Tónleikar í vændum, helgað- ir Mussorgsky, einu hinna fimm þjóðlegu tónskálda Rússlands. Aðalsalurinn er að fyllast, mæður streyma að ásamt bömum sínum, frá fjögurra ára aldri og upp eftir, vel klæddar konur og vel til hafðar, bömin snyrtileg og prúð; þessi menningarsvipur ætti heima hvar sem best lætur í veröldinni. Fjölmenn hljómsveit hefur komið sér fyr- ir á sviðinu. Salurinn er fullskipaður. Alger þögn ríkir, allir bíða eftirvæntingarfullir, smáfólkið situr hljóðlátt og spennt. Kona gengur fram og ávarpar viðstadda. Nú fer þetta að byija, hugsa ég. En viti menn; ekkert bólar á hljómsveitar- stjóranum. Hljómlistarmennimir sitja grafkyrrir og bæra ekki á sér. Nú gengur þéttvaxinn skeggjaður maður fram á sviðið og tekur að ræða við nærstadda. Efalaust örstutt kynning, hugsa ég. Ræðumaður okkar talar í hálfa klukku- stund. Hann talar blaðalaust, af þrótti og sannfæringu. Eldri og yngri hlýða á með vakandi athygli, að því er séð verður. Loks gerir hann hlé á máli sínu og hljómsveitar- stjórinn skálmar inn á sviðið. Hljómsveitin lifnar við, stórkostleg hljómlist svífur um salinn. Eftir tuttugu mínútur gerir hljómsveitin hlé á leik sínum. Aftur gengur þéttvaxinn skeggjaður kynnir okkar inn á sviðið og flytur langa tölu. Svo hefst hljómsveitin aftur handa. Þannig gengur þetta allt kvöldið, tæpa tvo og hálfan tíma; tal og tónlist skiptast á, með einu þokkalegu hléi á miðju kvöldi. Ég verð að játa það að ég naut tónlistarinn- ar langtum betur með þessum hvfldum. Hún var stórfengleg, en hefði hún verið spiluð lotulöng með lítilli hvfld, hefði þetta orðið síbylja í eyranum þegar til lengdar lét. Afskaplega var þetta annars ólfld því sem ég á að venjast hér heima á íslandi. Þama var engin sælgætissala í hléinu, ekkert gos- drykkjaþamb, ekkert skijáf í poppkomi eða konfektpokum, enginn hávaði eða þys. Ein- hvem veginn trúi ég því tæpast að böm okkar héma heima hefðu þolað tveggja og hálfs tíma lotu af þessu tagi án þess að ókyrrast þegar á leið. Efalaust hefur þetta verið valinn hópur, uppvaxandi fólk með ríka tónlistarhneigð, en þetta var líka vel upp alið fólk - ekki beygt af hörðum aga heldur ræktað á réttan hátt. Það var hlýr og sterkur menningarblær á þessu kvöldi. 12 FERMETRAR Á MANN „Ég er borinn og bamfæddur í Moskvu,“ sagði viðmælandi minn, ýtti tebollanum frá sér og hallaði sér fram á borðið. „Ég bjó reyndar í sama húsinu fram undir þrítugt og kunni afskapiega vel við mig þar. Þar að auki erfði ég hálft húsið." „Býrð þú þama enn?“ spurði ég. „Það er nú saga að segja frá því,“ ans- aði hann. „Þetta var í einu úthverfínu, en Brúðhjón flykkjast að gröf óþekkta hermannsms. Svalur aprílmorgunn. Lenin horflr yfír ríki sitt - fólk á leið til vimiu. Ljósmyndir tók greinarhöf. „Ég fékk rétt til 12 fermetra ókeypis húsnæðis fyrir hvem fj ölskyldumeðlim í nýju fyölbýlishúsi, en aðeins ávaxtatrén voru metin til fjár. Það var hins vegar mikið eft- ir af gamla húsinu mínu enn og það hefði mátt búa lengi í því ef það hefði ekki verið rifið." Hann lauk úr tebollanum og horfði út um gluggann. Við göngum meðfram Kremlarmúmum, svolítil væta er í lofti og stutt í vorkomu. Mikil mannaferð er allt í kring; margir nota frídaginn til að fara í Kreml og skoða foma frægðarstaði, hópar bama með rauðar húfur era á göngu með flokksstjóram og æfa göngu fyrir 1. maí og svo er líka ungt fólk á ferð sem hefur um annað að hugsa. Það er margt um manninn kringum gröf óþekkta hermannsins: ungar stúlkur í skó- síðum hvítum brúðarkjólum og spariklæddir piltar. Brúðhjón stilla sér upp ásamt ættingj- um og svo era teknar myndir. Hvað er hér á seyði? Ég er sjónarvottur að skemmtilegri hefð^ sem reyndar á ekki langa sögu að baki. I árslok 1966 var þess minnst með viðhöfn að aldarfjórðungur var liðinn frá ósigri Þjóð- veija utan við Moskvu. Var þá opnuð gröf rússneskra hermanna og jarðneskar leifar óþekkts einstaklings fluttar til hinstu hvfldar á þessum stað. Legstaðnum var veittur veg- legur umbúnaður og þar logar eldur sem aldrei slokknar. Þegar árin liðu mótaðist siður sem tengist þessum stað. Þegar brúðhjón hafa undirritað hjúskap- arsáttmála sinn í Moskvu þykir tilhlýðilegt að gera sér ferð til grafar óþekkta her- mannsins og leggja blóm á hana. Þennan dag streymdu brúðhjónin að í tugatali, pilt- amir í sparifötum og stúlkumar kvenlegar og indælar í skósíðum hvítum kjólum. Ungu hjónin gengu að gröfínni, stúlkan lagði nokkur blóm á graníthelluna en ungi maður- inn horfði á; ættingjar stóðu álengdar og fylgdust með. Nokkrar myndir vora teknar og síðan hélt fólk leiðar sinnar. Ég gekk áfram. Fólk bar að í stríðum straumi niður eftir götu frá hægri, brúðhjón og fylgdarlið, og virtust allir með sama er- indi í huga. Eg staldraði við og horfði hug- fanginn á þessa sjón. Skyndilega kom hreyf- ing á mannfjöldann uppi í brekkunni og hann þyrlaðist yfir að húsunum á' hægri hönd. Bfll kom í ljós álengdar, það var einn af þessum vatnsbflum sem aka um götur Moskvuborgar og sprauta götumar. Bfllinn LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 29. OKTÓBER 1988 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.