Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Page 4
U R GLATK I STUNN I Reykjavík á dögum Sigurðar málara. Árið 1868 voru 240 hús í bænum. Maðurinn sem orti Aldahroll Sigurður Guðmundsson, af samtíðarmönnum sínum stundum kallaður málari, stundum gení, var ekki mikill fyrir mann að sjá, hann var tæplega meðalmaður á hæð, grannvaxinn með dökkt hár og samlitt skegg sem hann lét vaxa SIGURÐUR GUÐMUNDSSON málari var ekki aðeins brautryðjandi á myndlistarsviði, heldur óþreytandi hugsjónamaður um íslenska menningu og framfarir almennt. Um hann sagði Matthías Jochumsson m.a.: „Hann var strang-móralskur ídealisti og svarinn íjandmaður allrar hræsni, kúgunar og villu.“ Eftir ÞORSTEIN ANTONSSON niður á bringu sér sín seinni ár. Á yngri árum bar hann yfirskegg og hökutopp. Hann var ljós á litaraft, bar gleraugu því hann var mjög nærsýnn, ennið var hátt og hann var fagureygur, nefíð stutt og breitt; hann þótti fremur fríður maður og þó ekki svo fríður sem rómantískt útlit á frægri sjálfsmynd hans gefur til kynna. Hann var snyrtimenni með afbrigðum, en svo fátækur öll sín fullorðinsár að hann átti varla föt til skiptanna. Hann var svo neyslugrannur að til þess var tekið. Arið 1868 voru 240 hús í Reykjavík, stjómarráðshús og menntaskólahús, flest önnur lítil. íbúamir voru rúmlega hálft ann- að þúsund. Sigurður vakti athygli og umtal bæjarbúa þar sem hann fór ferða sinna um leirstokknar götuslóðir milli bæjarhúsanna í Reykjavík á ámnum frá 1858, er hann kom heim frá námi í Kaupmannahöfn, til þess er yfir lauk 1874, vanhöld hans orðin slík að þau drógu hann til dauða 41 árs gamlan í sjúkrastofu Klúbbsins þar sem nú mætast Aðalstræti og Túngata. Hann gekk álútur en harðleitur, honum var tíðfarið milli herbergiskytru sinnar og Austurstræt- is 6 þar sem bjó á þessum árum Jón Guð- mundsson ritstjóri við mikla rausn og hélt opið hús fyrir fátæka listamenn og unnend- ur íslenskrar menningar og gilti hvort tveggja um Sigurð. Matthías Jochumsson ritaði um skapgerð Sigurðar: „Hann var þver og stirður, vandfýsinn og einrænn í lund. Hann var strang-móralskur ídealisti og svarinn fjandmaður allrar hræsni, kúgun- ar og villu. Trúmaður yar hanr. enginn í venjulegri merkingu þess orðs. Og Guðrún Borgfjörð, dóttir eina lögregluþjónsins í bænum á þessum tíma, Þorsteins Borgfírð- ings, ritar um manninn Sigurð Guðmunds- son málara í Endurminningum sínum þar sem einnig verður fundin framangreind lýs- ing á hinum ytra manni hans: „Sigurður var fáskiptinn um annarra hagi, en gat verið meinyrtur, ef talað var um menn eða málefni, sem ekki féll í hans geð. Hann var merkilegur maður og skarpvitur, en ein- kennilegur var hann ..." Maðurinn, sem framangreindar lýsingar eiga við, var Skagfirðingur að uppruna. Hann fæddist árið 1833 á Hellulandi í Hegranesi en ólst upp frá 11 ára aldri að Hofstöðum í sömu byggð. Poreldrar hans voru fátækt bændafólk, Guðmundur ólafs- son, bóndi á Hellulandi og Hofsstöðum, og kona hans Steinunn Pétursdóttir frá Ási, Hegranesi. Snemma kom í ljós að Sigurður var óvenjulegum hæfileikum búinn, hann gerði myndir af meiri hagleik en dæmi voru til þar í héraði. Og hefði víst þurft að leita víða, bæði þá og síðar, eftir öðru dæmi um svo þroskað myndskyn hjá óþjálfuðum manni sem sjá má af myndum hans frá unglingsárunum, þeim sem varðveist hafa. Ekki svo að skilja að hinar síðar til komnu séu lakari, síður en svo, en þær urðu fáar, af ástæðum sem greint verður frá með eftir- farandi máli. Sigurður naut verðleika sinna og þess náms sem best varð á kosið í Danaveldi um miðja síðustu öld. Það fór sögum af fæmi þessa undrabams og varð til þess að dansk- ur kaupmaður í heimabyggð hans gerði hann að lærlingi bróður síns í Kaupmanna- höfn fyrir tilmæli foreldra hans og annarra sveitunga, bróðirinn var að vísu iðnaðarmað- ur í húsgagnaviðgerðum og málari á híbýli manna, ekki myndir, en skýrari en sem þessari stefiiu nam gat listamannsbraut Sigurðar ekki orðið íyrir hugskotssjónum fólks í heimabyggð hans þar sem varla varð á forgöngumenn vísað, aðeins einn íslend- ingur hafði til þessa numið málaralist, Þor- steinn Guðmundsson, og var nú hættur að fást við slíkt og hafði gerst söðlasmiður. í upphafí sveinstíðar sinnar í Höfn sparslaði Sigurður rúmgafla í fimm daga, vitandi um fimm ára námstíð við svipuð verk, að svo búnu ítrekaði hann bón um að sér yrði kom- ið í kynni við íslendinga í Höfn, meistarinn sagðist enga þekkja. Líklega heftir hvorugur skilið tilganginn með samvistunum. Sigurð- ur ritaði föður sínum um þetta leyti bréf af bamslegri einlægni, þá 16 ára gamall, segir að sér hafi verið vísað úr vistinni að liðnum þessum fimm dögum, meistarinn haft fyrir sér bólu á handarbaki sér þegar hann var að verki, bent á bóluna og sagst enga þörf hafa fyrir kláðagemlinga — og þar með komið sér í vist til kunningja síns. Sá var í kynnum við íslenska þvottakonu og hafði komið honum af sér til hennar. Þar vistaðist Sigurður um nokkurra vikna skeið og komst svo í bland við aðra íslend- inga. I heimahögum hafði Sigurður rist með þjöl í blágrýti afbragðsgóða lágmynd af sveitunga sínum, sagnaritaranum Gísla Konráðssyni, föður Konráðs Gíslasonar Fjölnismanns, hafði Sigurður haft mynd þessa og aðrar út með sér, sá Konráð mynd- ina og af því tilefni og að Konráð var kunn- ur ættfólki Sigurðar útvegaði hann honum lærimeistara. Sýndi prófessor nokkrum og myndasmið, Jerichau að nafni, myndir Sig- urðar. Prófessomum leist svo vel á að hann tók að sér að kenna Sigurði fyrir ekki neitt. Flutti hann þá frá þvottakonunni heim til Jerichaus þessa. Litlu síðar sá prófessor við listaháskólann myndir Sigurðar hjá Jer- ichau, og Sigurð við iðju sína, bauð prófess- orinn Sigurði að nema við listaháskólann í Höfn og auk þess kennslu heima hjá sér, hvort tveggja ókeypis. Um þetta leyti missti Sigurður föður sinn, fékk arf eftir hann, 300 kr. að sinni, og átti að fá í allt 600 kr. Hann fór úr 1. upp í 3. bekk í listahá- skólanum og þótti mörgum mikið til um. Ýmsir skólabræður hans öfunduðu hann fyrir það og álitið sem kennarar hans höfðu á honum. Meðan_ hann var við nám var fé safnað heima á íslandi og urðu margir til að styrkja hann, einkum alþýðufólk, og þó lítið væri framlag hvers og eins lögðu marg- ir eitthvað af mörkum. Þegar staðfest hafði verið hverjum hæfíleikum Sigurður var bú- inn gengust Jón Sigurðsson og fleiri íslend- ingar í Höfn fyrir samskotum, lögðu honum til 400 kr. Ennfremur fékk hann dálítinn styrk frá stjóminni. Sigurður dvaldi lengi í Höfn, 9 ár, en var um nokkurra mánaða skeið heima á íslandi árið 1856. Að námi loknu tók hann að mála, m.a. mjmdir af ýmsum íslendingum í Höfn. Hann ætlaði sér þegar í upphafi námsferils síns að mála myndir eftir íslensk- um fomsögum sem sjá má af framannefndu bréfí til föður hans frá fyrstu mánuðum hans í Höfn, las mikið af slíkum ritum fyrst eftir að hann hóf nám. Vorið 1858 kom hann alkominn heim, fór af skipinu í Stykk- ishólmi og ferðaðist þá um sumarið um Vesturland. Hann kom á prestsetrið í Flatey og málaði þá fræga mynd af prestmaddö- munni Þuríði, konu séra Eiríks Kúld, systur Benedikts Gröndals skálds, móður hins of- dekraða Brynjúlfs Kúld sem þýddi fyrir Leikfélag Reykjavíkur síðustu hérvistarár sín og dó ungur úr sulti og annarri vesöld, einn í moldarkofa á Seltjamamesi. Þuríður hafði styrkt Sigurð til námsins eins og fleiri og ekki verið honum vandabundnari en ýmsir aðrir sem það gerðu. Um haustið ætlaði Sigurður að sigla til að nema menn-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.