Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Page 5
ingarsögu og búa sig með því námi enn betur undir að verða sögumálari, af sigling- unni varð ekki. Hann hafði í græskuleysi lánað kunningja sínum obbann af því fé sem honum hafði áskotnast til námsdvalarinnar, og borgaði sá ekki eyri þegar til átti að taka, né síðar þótt hann hefði efnin til þess. Sigurður vann fyrir sér með teiknikennslu um veturinn, en hætti að mestu myndasmíð þaðan í frá, nema vann stundum fyrir sér með því að mála altaristöflur og andlits- myndir, „til að bjarga lífinu“, að eigin sögn. Fljótlega eftir heimkomuna komst hann að þeirri niðurstöðu að hann myndi ekki geta náð til þjóðarinnar með málverkum fyrr en smekkur manna í landinu hefði þroskast, og þar með taldi hann sig verða að vinna að framforum á því sviði áður en hann gæti helgað sig málaralistinni. Smekk- ur var að hans mati mjög áhrifaríkur þáttur mannlegs lífs: „Fátækt iandsins, sem eink- um sprettur af óræktinni og illri meðferð á skepnum, er í raun og veru komin af smekk- leysinu; deyfðin og uppburðarleysið er líka komið af smekkleysi. — En sér í lagi er heilsuleysið komið af óþrifnaði, en óþrifnað- urinn er eintómt smekkleysi," segir hann í bréfí til Steingríms Thorsteinssonar skálds. Steingrímur var Sigurði samtíða í Kaup- mannahöfn og flutti ekki heim fyrr en 1872. Sigurður ritaði ennfremur í bréfi til hans: „Málarar og þess konar menn voru hér margir til á miðöldum, að minnsta kosti að nafninu til, en þess konar er óhugsandi að þróist á meðan að skáldskapurinn er al- mennt í spilltu ástandi (hugsunarlaus rímbamingur) og tilfínningalaus. Því hugs- unin er sú sama hvort sem skáldið sýnir hana sem skáld eða málari eða söngmað- ur.“ Hann lagði áherslu á að íslendingar öðluðust reisn og manngildi í anda fom- menningar sinnar sem hann miklaði fyrir sér og öðmm og hafði varla efni til annars. Hann sá út snjallræði til að ná til kvenna í þessum tilgangi, tók að mæla af mikilli fylgisemi með því að konur tækju upp feg- urri búning en þær að jafnaði klæddust. Teiknaði Sigurður kvenbúning, prýðilega að allra mati, þar með eins konar sameining- artákn kvenþjóðarinnar. Þegar árið 1861 ritar hann Steingrími hróðugur til Hafnar að „næst því að sjá sjálft landið hafa flest- ir útlendir ekki viljað sjá annað en búning- inn ...“ Enda fátt um fína drætti þegar til annars var litið en landslags og kvenna. Jón Sigurðsson, þjóðfrelsishetja okkar, sem eins og Steingrímur var pennavinur Sigurðar um margra ára skeið, ritaði í bréfí til Sigurðar tæpum áratug síðar, árið 1870: „Það er gaman, að þér hafíð getað komið ofurlitlu fylgi í kvenfólkið. Þær geta gjört óttalega mikið, þar sem þær leggjast á, því enginn er heitari í andanum, eða réttara að segja: tilfínningunum, og enginn fylgnari sér eða jafnvel kiókari, þar sem því er að skipta." - Það er annars aðdáunarvert hvemig þessi 23 ára gamli maður fór að því að ná til kvenna, með bréfaskriftum, fatateikningum, gagnrýni á ríkjandi klæðaburð, hvatningu tískufrömuðar um samstillingu f þeim efn- um, með kvæði einu löngu, „Faldafesti", sem er lofgerð um íslensku konuna og ástaijátn- ing. Arið 1863 hafði honum tekist f vemlegum mæli að stuðla að útbreiðslu nýs kvenbún- ings. Markmið hans var að gæða íslendinga þjóðareinkennum í ljósi löngu liðinnar fortíð- ar, glæða sögurannsóknir f þjóðlegum, íslenskum anda. Nú varð honum í mun að varðveittar yrðu þær minjar sem enn vora eftir í landinu um sögu liðinna alda. Á ferð- um sínum um landið hafði hann séð margs konar fornminjar á glámbekk. Við bættist að um miðja sfðustu öld vora útlendingar teknir að ásælast fomar minjar á íslandi og þá ekki bara bækur. Sigurður tók af þessum ástæðum að beina kröftum sfnum að því að íslendingar kæmu sér, eins og hver önnur menningarþjóð, upp safni yfír minjar frá sögulegri tíð. Hann var öll sín manndómsár viss um að alþýða landsins yrði virkjuð til styrktar góðu málefni og hann vænti einskis úr ann- arri átt, taldi á hinn bóginn að sú yrði þraut- in þyngri að ná til fólksins, koma fátæku, lítt menntuðu og fákunnandi, kúguðu, hjá- trúarfullu, sinnulitlu fólki til að breyta sjálfs- mynd sinni í þeim mæli sem þyrfti til að saga þjóðarinnar yrði henni að lyftistöng. En Siguröur var úrræðagóður maður þó að ásetningur hans lægi ekki alltaf ljós fyrir. Þegar hann var við nám hafði hann séð hvers alþýðan var megnug ef slegið var á rétta strengi, og sjálfur oröið þess aðnjót- andi, honum hafði verið lagt til fé til náms- ins af fólki sem lítið átti og varla var að vænta af að bæri hið minnsta skyn á mynd- list, hann gat því ályktað af reynslu sinni um ástríðu alþýðu manna eftir ævintýram og ævintýramennsku, fólks sem að öllum jafnaði lifír við fásinni. f framhaldi af því lýsti hann fyrir vinum sínum, þegar að málefnum þjóðminjasafns kom, að meiri háttar atburð — fremur en skynsamleg rök — þyrfti til að vekja hinn óspillta kjama þjóðarinnar til dáða. Þvílíkt tækifæri bauðst þegar fréttist til bæjarins af merkum fomminjafundi í landi býlisins Baldursheims i Þingeyjarsýslu. Fundist hafði þar dys úr heiðni og í henni ýmsir gripir. Þegar Sigurði barst fréttin sendi hann héraðsmanni, Jóni Sigurðssyni frá Gautlöndum, beiðni um teikningar af gripunum. Það gekk greitt og að þeim fengnum lýsti hann gripunum í Þjóðólfí, 10. apríl 1862. Hálfum mánuði síðar birtist önnur grein eftir hann í sama blaði og bar hann þá ffarn röksemdir sínar fyrir þjóð- minjasafni. Hann ritaði mönnum jafnframt bréf um efnið og bað þá koma málefninu á framfæri við fleiri. Hálfu ári síðar skrifaði prestur einn fyrir norðan, séra Helgi Sig- urðsson á Jörfa, grein sem hann sendi Jóni Ámasyni sagnaritara og bað ráðstafa, tók þar upp margt sem Sigurður hafði sett á oddinn. Þar með lofaði séra Helgi að af- henda þjóðminjasafni, ef eitthvert væri, foma gripi úr sinni vörslu. Ritstjóri Þjóð- ólfs, Jón Guðmundsson, fékk greinina og birti, og Jón Ámason greindi stiftsyfírvöld- um frá tilboði séra Helga. Bauðst til að taka að sér umsjón með þjóðminjasafni ef stofnað yröi. Stiftsyfírvöld.tveir menn, Þórð- ur Jónasson og Helgi Thordarsen, tóku til- boðum þessum, lögðu til húsnæði fyrir safn- gripi, hluta loftsins í dómkirkjunni við Aust- urvöll, og styrk, 24 rd., 40 sk., sem svaraði til þess að hægt var að setja upp skáp á kirkjuloftinu. Má þá kalla að fslenskt þjóð- minjasafn hafi verið stofnað, 24. febrúar 1863. Að svo komnu læddi Jón Sigurði inn um bakdymar með því að bjóða yfírvöldum að hann yrði aðstoðarmaður sinn, auðvitað ólaunaður sem hann sjálfur. Sigurður varð svo að kalla strax aðalmaður í málefnum safnsins — Jón hafði nóg annað á sinni könnu. Á kirkjuloftinu var að auki bókasafn bæjarins þar sem Jón starfaði. Tók það upp mestan hluta húsrýmisins og á næstu árum var mestur hluti fomgripasafnsins varð- veittur í skápum og kössum. Er tók að bera á Sigurði við reksturinn lá við borð að stifts- yfírvöld sviptu safnið húsrýminu. Af því varö þó ekki, Siguröur vann á kirkjuloftinu, inn af bókasafninu, öll sfn æviár upp frá þessu, sýndi safnið, sem óx hratt, tvisvar í viku, sá um bréfaskriftir og skýrslugerö. Á vetuma þar þíddi hann stundum firosið blek- ið f höndum sér og við anda sinn. Hann var rétt um þrítugt þegar safnið var stofriað. Fyrir áhuga hans óx það ár frá ári og þeg- ar hann lést, árið 1874, átti það um 1200 gripi hvaðanæva af landinu. En fullur sigur f þessu máli var ekki unninn fyrr en fengin var viðurkenning hinna dönsku yfírvalda. í þeim tilgangi skrif- aði Sigurður uppkast að bréfi um málefni safnsins eftir að hann var tekinn við starfí sínu, fékk Jón Ámason til að hreinrita bréf- ið og senda íslenskum áhrifamanni í Höfn. Þar segir m.a. „Hér höfum vér ekki önnur ráð en biðja yður í kyrrþei að fara í kringum það við viðkomandi stjómarherra, hvort hann mundi verða ófús á, að veita þessari stofnun hér á landi 200 rd. styrk árlega (fyrst í 5 ár), minna gagnar lítið, því að það liggur lífíð á, að geta keypt og safnað sem mestu það allra bráðasta því annars er málið gjörsamlega tapað." Og í bréfínu gefa þeir félagar sjálfum sér þau meðmæli að þeir séu líklega hinir einu í landinu sem enn hafi nokkuð alvarlega hugsað um þetta mál. Tilmælunum var komið á framfæri, en í mörg ár sinnti danska stjómin þeim ekki. Eins og liggur í hlutarins eðli lfkaði stjóm- inni dönsku þessi stofnun því verr sem hún fékk á sig þjóðlegri mynd. Árið eftir að þeir félagar báðu um þenn- an styrk fengu þeir til liðs við sig forsfjóra Hins konunglega fomgripasafns í Kaup- mannahöfn og ásamt honum lögðu þeir fyr- ir stjómina bænaskrá á ný um fyrirgreiðslu, en var ekki sinnt fremur en fyrr. Árið 1865 bannaði stjómin beinlfnis að safninu yrði lagt til fé. Sigurður sneri sér þá til Al- þingis með málefni sitt og þingið bað í einu hljóði um styrk til safnsins og var sú umleit- un ekki tekin til greina en þó svarað og með þessu orðalagi. Sami gangur mála árið 1867. Árið 1869 hafði safninu áskotnast um 800 gripir og fylgdi þingið umleitun Siguröar það sinnið eftir með þvílíkum þunga að árið eftir veitti stjómin 500 rd. til safnsins. Ekkert frekar kom svo úr þeirri átt fyrr en árið 1875, ári eftir að stjómar- skrárafhendingin fór fram, þá hófust reglu- bundnar opinberar greiðslur til safnsins. Sigurður varð snemma óvinsæll meðal yfírvalda landsins, þeirra sem eitthvert veð- ur höfðu haft af honum. Og orö hans námu margir því hann var hittinn og hvassyrtur. Hann var maður hreinlyndur og opinskár í tali og lá sjaldan á áliti sínu. Síst ef yfír- völd bar á góma Honum hefur verið eignað- ur, vafalaust með réttu, eftirfarandi spum- ingalisti sem liggur meðal pappíra Ólafs Davíðssonar. 1. Hvað er ráðgjafí íslands? Heimaríkur búhundur. 2. Hvað er landshöfðingi? Strokkur sem skekinn er sem aldrei fæst smjör úr. 3. Alþingi? Hrafnar sem kroppa augun hver úr öðram. 4. Amtsráðin? Vefarinn með tólf kónga vitið. 5. Sýslunefndimar? Smali sem alltaf lætur missa máls. 6. Hreppsnefndimar? Haklaus páll og var- laus reka. 7. Heilbrigðisnefndimar? Dauðadrakkinn maður, sem sér náunga sinn drukkna nærri landi. 8. Prestamir? Þreyttur smalahundur, sem aldrei fær nóg í askinn sinn. 9. Kvennaskólinn? Fleytifullur flautaask- ur. 10. Halldór Kr. Friðriksson? Veiðibjalla í varpi. 11. Bændumir? Moldarorpinn stoðarsteinn í húsi. 12. Þjóðin í heild sinni? Horaður jálkur, illa með farinn. 13. ísland? Mey, er grætur misstan meydóm sinn. 14. Yfírrétturinn? Vinkill á hjöram. 15. Amtmennimir? Átta- og vitalaus varða á heiði. 16. Óþjóðhollir sýslumenn? Bitvargar í lambahóp. 17. Dansklyndir íslendingar? Andskotinn í sauðarleggnum. Með §órða lið vísar Siguröur til vinsæls leikrits meðal bæjarbúa um vefara sem held- ur sig þjóðmálaskörang og stjómarvitring þótt flarri sé sanni. íslenska embættismenn, þ.á m. amtsráðin, esk. yfírsýslumenn, kall- aði Siguröur í bréfi „föðurlandssvikara með einkaleyfí". Auk þess sem Sigurður skrifaði reglulega um málefni þjóðminjasafnsins í Þjóðólf samdi hann sérstakar skýrslur um málefni þess sem Hið íslenska bókmenntafélag í Höfn lét prenta. Hann átti mikil og náin samskipti við íslendinga í Höfn öll sín ævi- ár eftir heimkomuna 1858. Hann hafði eign- ast góða kunningja meðan hann dvaldi í Höfn, kynni sem entust honum meðan hann lifði, meðal þeirra vora Jón Sigurösson sem fylgídist náið með fomleifarannsóknum Sig- uröar, einkum á Þingvallasvæðinu, sem Sig- urður kannaði fyrstur manna I því skyni. Við Steingrím Thorsteinsson skiptist Sigurð- ur á hugmyndum í bréfum um allt milli himins og jarðar og mat Steingrímur hann meira en flesta menn aðra. I Reykjavík mynduðust sterk félagatengsl milli Sigurðar og Helga E. Helgesen, skólastjóra bama- skólans, skarpgáfaðs hæglætismanns. Og milli hans og Jóns Ámasonar þjóðsagnarit- ara, en gistivináttu Jóns naut Sigurður tíðum. Margt samtímafólk Sigurðar kallaði hann grúskara og brá honum jafnvel um leti og ómennsku er það sá hve litlu hann afkast- aði sem málari. Hann ritaði Steingrími: „Varla tekst mönnum að framkvæma svo lítið, að menn ekki strax (líklega af öfúnd) reyni að gera það hlægilegt, vitlaust eða ónýtt." Staðreynd er að jafoframt störfom við þjóðminjasafnið dró Sigurður saman, á þeim 16 áram sem hann lifði eftir heimkom- una, mikið efoi til íslenskrar menningar- sögu, um atvinnuhætti, klæða- og vopna- burð fommanna, myndlist, híbýlagerö, um hvers konar fomminjar. Hann ritaði um þessi efoi í minnisbækur sínar og teiknaði LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. FEBRÚAR 1989 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.