Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Síða 7
Gengiðá Heklu 1917 Ar 1917, föstudaginn 6. júlí kl. 9.30 lögðum við þrír, Sveinn M. Sveinsson framkvæmda- stjóri, Guðjón Samúelsson byggingarmeistari og Alexander Jóhannesson dr. phil., allir til heimilis í Reykjavík, af stað í 10 daga ferða- Á Heklutindi 9.júlí, 1917. Talið frá vinstri: Guðjón Samúelsson síðar húsameist- ari ríkisins, Sveinn M. Sveinsson í Völundi og Alexander Jóhannesson síðar há- skólarektor. Hér segir frá för þeirra Sveins í Völundi, Guðjóns Samúelssonar arkitekts og Alexanders háskólarektors á hestum austur að Heklu og gengu þeir á Heklutind, en riðu síðan vestur yflr Þjórsá, heimsóttu Ásgrím málara og komust alla leið vestur að Hagavatni við Langjökul. Eftir SVEIN M. SVEINSSON lag. Ferðinni var aðallega heitið til Heklu og inn í Þjórsárdal. Að Baldurshaga komum við kl. 10.45 og drukkum þar kaffi. Til Kolviðarhóls komum við kl. um eitt um nóttina. Veðrið hafði verið mjög gott þangað. Var þar föluð gist- ing og hún auðfengin, því húsbóndinn (Sig- urður) hafði símað frá Reykjavík, að okkar væri von þangað. Matur var á borð borinn og hann snæddur með góðri lyst. Þama á bænum var líka staddur Páll Stefánsson bóndi á Ásólfsstöðum ásamt konu og kaupa- konu og sátum við til borðs með þeim. Þá var okkur vísað til sængur, en þar sem rúm- in voru aðeins tvö, sem okkur voru ætluð, var óhjákvæmilegt að tveir svæfu í öðru þeirra og urðum við eigi þegar ásáttir um, hver skyldi sofa einn í rúmi. Sveinn og Guðjón vildu varpa um það hlutkesti, en það vildi Alexander ekki og varð hann svo djarf- ur að hátta í því rúminu, sem þeim er svæfi einum var ætlað, án leyfis eða samþykkis Sveins og Guðjóns. Var honum heitið því, að þessu skyldi eigi verða gleymt. Laugardaginn 7. júlí vaknaði Sveinn kl. 6. f.m., klæddi sig í snatri og var kl. 6.15 kominn af stað áleiðis upp á Hengil. Kl.8.30. var hann kominn upp á efsta tind og mun hann sjaldan eða aldrei hafa litið eins fagra sjón og það, er bar honum fyrir augu þaðan ofan. Veðrið var guðdómlegt. Þaðan sást Reykjavík (og byggingar Völ- undar greinilega í sjónauka) Snæfellsjökull, Esjan, Botnssúlur, Ok (Hlöðufell), Langjök- ull, Skjaldbreiður, Þingvallavatn, Sogið, Ölf- usá, Þjórsá, HestsQall, Ingólfsfjall, Hekla og allt þar á milli. Að sunnanverðu var nær allt í þoku. Heim að Kolviðarhól kom Sveinn aftur kl. 10.15 f.m. Kl. 11.30 f.m. var lagt af stað frá Kolvið- arhól. Veður var fremur gott, en þá lítil sól. Áð var á Kambabrún, tekin ljósmynd og borðað ananas. Þá var haldið áfram að Kotströnd, þaðan talað t síma til Reykjavík- ur, kirkjan skoðuð, drukkin mjólk og kaffi. Var svo enn haldið áfram og eigi numið staðar fyrr en t Litlu-Sandvík og þar snædd- ur ljúffengur miðdegisverður hjá Margréti Sigurðardóttur, ijómabústýru, kunningja- konu Alexanders. Hann gisti þar um nótt- ina, en Sveinn og Guðjón fóru niður á Eyrar- bakka og gistu t gistihúsinu þar. Sunnudag- inn 8. júlí 1^1. um 10.15 fóru Sveinn og Guðjón frá gistihúsinu. Komu við hjá Guð- mundi á Háeyri og borðuðu þar perur og ananas og ræddu við húsmóðurina og dætur hennar. Héldu svo áfram og komu að Litlu- Sandvík kl. 12.00, drukkum við þrír þar kaffí og kvöddum að því búnu Margréti með mestu virktum. NÚ var haldið áfram að Þjórsárbrú. (Á leiðinni á milli brúnna skeði ekkert mark- vert nema það, að hestur Guðjóns datt á nasimar fyrir framan Hraungerði og fór Guðjón á handahlaupum fram af). Var þar snæddur miðdegisverður og hlustað á sam- söng „17.júní“, sem þangað var komið í 3 bílum til að skemmta sveitafólkinu. Þá var kl. rúmlega 6. e.m. Kl. um 7. e.m. var .haldið áfram upp Holt og komið að Fellsmúla kl.12.50 um nóttina. Var þar vakið upp og falað gisting- ar. Eftir að hafa snætt var gengið til hvílu kl. um 2 um nóttina. Mánudaginn 9. júlí kl. 12 á hádegi var lagt af stað áleiðis upp á Heklu. Kl. 1. var komið að Galtalæk. Þaðan aftur farið kl.1.15. Komum upp að hestavörðu kl. 3.45. Skiptum þar um skó og bundum hestana og lögðum að því búnu kl.3.55 af stað upp á Heklutind. Margt skeði hlægilegt á þeirri göngu, en þó einna hlægi- legast þá er „doktorinn" brá sér^úr ytri brókunum (svo hann yrði ljettari á •göngunni). Sveinn var kominn upp á Heklut- ind kl. 5.40. Hinir komu kl. 6.50 og höfðu þá fylgdarmaðurinn og Guðjón beðið eftir Alexander dálítið á leiðinni, enda fengið sér góðan rúgbrauðsbita um leið. Á efsta tindin- um tók Sveinn upp úr vasa sínum Morgun- blaðið frá sunnudeginum 8. júlí, sem einn úr söngfélaginu „17. júní“ hafði fengið okk- ur við Þjórsárbrú, og las það frá l.stu til 8. síðu. Áð austan sást Langisjór og neðst í Vatnajökul. Að sunnan Torfajökull og Ok, en að vestanverðu var allt í þoku, nema það sem næst var, er allt sást greinilega. Niður að hestavörðu fórum við á 50 mínútum og komum að Fellsmúla kl. 12 um nóttina. Þriðjudaginn 10. júll lögðum við af stað frá Fellsmúla kl. að ganga 2 um daginn. Fórum yfir Þjórsá á feiju við Þjórsárholt og komum að Ásólfsstöðum kl. 6.30 um kvöldið og fengum þar gistingu hjá Páli Stefánssyni hinum fyrrgetna. Ásgrímur Jónsson málari býr þama í tjaldi nálægt Skriðufelli. Heimsóttum við hann um kvöldið og skoðuðum þar, er hann var búinn að mála. Fór hann svo með okkur um Skriðufell heim að Ásólfsstöðum og ræddi við okkur þar litia stund. Miðvikudaginn 11. júlí fórum við inn í Þjórsárdal og fylgdi okkur Páll Stefánsson. Við skoðuðum þar Háafoss, Gjána, Hjálp og Hjálparfoss og þótti okkur Gjáin einna tilkomumest og Háifoss skínandi fallegur. Þann sama dag um kl. 8. e.m. eftir að hafa snætt miðdegisverð lögðum við af stað frá Ásólfsstöðum. Komum af Eystra-Geldinga- holti kl. um 12 um kvöldið. Hittum þar dótturina fyrsta manna, en húsbóndinn og frændkona Guðjóns klæddu sig t snatri til þess að geta heilsað komumönnum. Var nú þama spilað á orgel af mikilli list og drukk- ið gott kaffi með miklum látum. Að þvi búnu var kvatt á bænum og haldið áfram að Hrepphólum. Þegar þangað var komið var kl. um 12'/2 að nóttu og tók nú bygging- armeistarinn, sem þama var vel kunnur að sér að vekja upp, sem líka heppnaðist að hálfum tíma liðnum. Góður kvöldverður var nú þama snæddur og að því búnu gengið til hvílu, eftir að búið var að skoða kirkjuna. Fimmtudaginn 12. júlí kl. um 11. f.m. var aftur lagt af stað frá Hrepphólum (Dmkkum ágætt kaffi f Skipholti á leið- inni. Það bar á borð húsmóðirin sjálf.) og komið að Geysi kl. 6.30 e.m. sama dag. Gullfossi var sleppt, þar við allir höfðum séð hann áður. Við Geysi borðuðum við góðan miðdegis- verð, skoðuðum að því búnu sjálfan hverinn Geysi, sem og aðra hveri þar á staðnum og gengum svo til hvílu kl. um 12 um kvöld- ið. Föstudaginn 13. júlí kl. 11 f.m. lögðum við af stað með fylgdarmanni Joni frá Laug áleiðis upp að Hagavatni við Langjökul, komum þangað eftir nær 3 kl. stunda ferð yfir hraun, mela og sanda. Skoðuðum vatn- ið rækilega, Langjökul og annað þar ná- lægt, sem allt var mjög hrikalegt. Þaðan sást einnig Hlöðufell, Ok/Hagafell, Fagra- dalsfjall og framar Bláfell, Jarlhettur og Einifell, Kálfstindar, Högnhöfði, Bjamarfell og Hrafnabjörg í flarska. Komum heim að Geysi aftur um kl. 7. e.m. og höfðum þá þörf á góðri máltíð, sem líka var framreidd, því veðrið hafði verið fremur vont á leiðinni heim, töluverð rign- ing, en yfir sandbleytur að fara, enda lenti sá brúni og Sveinn f einni, sem á eftir urðu nær alveg samlitir, enda man Sveinn eigi eftir að hafa fengið betra sandbað í annan tíma. Um kvöldið sýndi óþerrishola 10-15 feta gos, sem að fjölda voru óteljandi. Laugardaginn 14. júlí kl. 12.30 f.m. var lagt af stað frá Geysi, borðað skyr og drukk- ið kaffi að Laugarvatni og komið til Þing- valla kl. 7.45 um e.m. sama dag, og þá þegar talað í síma til Reykjavíkur. Gisting var föluð í Valhöll og hún fáanleg. Þar var tekið af hestunum og snæddur góður mið- degisverður, þó heldur lítið væri af mat þar á staðnum. Var síðan litast um úti fyrir og að þvi búnu spilaður köttur með miklu fjöri til kl. um 2 um nóttina, en þá gengið til sængur. Sunnudaginn 15. júlí var riðið inn á Hofmannaflöt og hún skoðuð rækilega af doktomum sérstaklega, sem eigi hafði séð hana áður. Svo litla rigningu fengum við á leiðinni, sem þó eigi var neitt að ráði. Ann- að var eigi gert þann dag, nema aftur spilað- ur köttur. Mánudaginn 16. júlí kl. 10. f.m. lögðum við svo af stað aftur frá Þingvöllum og ætluðum að riá Reykjavík tímanlega um e.m. Drukkum kaffi að Geithálsi og komum til Reykjavíkur um kl. 4. e.m. í besta veðri, eins og það líka hafði verið á allri ferðinni, nema þar sem getið er um annað í framan- skráðu ferðaágripi, sem er ætlað til að glöggva okkur á, hvar við höfum farið um á þessu 10 daga ferðalagi, sem við í alla staði höfðum mikla ánægju af. Hressandi var það eigi minna. Orðrétt vélritað upp úr dagbókar- kompu Sveins M. Sveinssonar Leifur Sveinsson Alexander Jóhannesson, feddur 15. júll 1888, dáinn 7. júni 1965. Guðjón Samúelsson, feddur 16. aprfl 1887, dáinn 26. aprfl 1960. Sveinn M. Sveinsson, feddur 17. október 1891, dáinn 23. nóvember 1961. Skýringar: Alexandur var prófessor við Háskóla tslands og rektor hans 1932-6 1939-42 og 1948-64. Guðjón lauk prófi i arkitektúr frá Listaháskól- anum i Kaupmannahöfh 1919 og varð þá húsa- meistari rikisins, en þvi embætti gegndi hann til æviloka. Sveinn tók við forstjórastarfi i Tv. Völundi hf. 1913 og gegndi þvi til dauðadags 1961. Hrepphólar 1 Hrunamannahreppi. Þangað komu þeir félagar á miðnætti á leið út í Biskupstungur og Guðjón Samúelsson tók að sér að vekja upp fólkið, því hann var þar kunnugur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. FEBRÚAR 1989 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.