Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Síða 9
L haft rangt fyrir ykkur. Sem list eru verk þessi ekki neitt neitt en sem menningarvið- burður eru þau eitthvað, eitthvað sem á örugglega eftir að eitra út frá sér. . . . Það sem er svo ógleðilegt við þessa sýningu er ekki það að verkin séu rotin. Listheimurinn í dag er fullur af rotnum listaverkum. að vísu hef ég ekki séð neitt jafti rotið og þessi verk, en það er auðvit- að aðeins um stigsmun að ræða. Það sem gerir þessa sýningu svo ógeðfellda er það hve gleðilega henni hefur verið fagnað. ... Auðvitað er alltaf til það fólk sem hatar listina með öllu sínu snobbi og til- gerð og hátíðleik og fínnst ágætt ef koma má höggi á hana. Hér með hefur þetta fólk fundið hefnd sína. . . . En líklega mátti maður búast við svona listaverkum sé mið tekið af þeirri niðurleið sem heims- listin hefur tekið frá því að popplistin birt- ist fyrst í byijun sjöunda áratugarins. Frá fánum Jaspers Johns um Marilynur War- hols að svíni Koons má að líkindum sjá beina línu.“ Þannig eru hin gagnrýnu og grandvöru viðbrögð en meðal áhorfenda má finna til vissrar gleði yfír sýningunni, almenningur brosir og skemmtir sér, myndlistarmenn fagna nýjum áhrifum og breyttum tíma en kaupahéðnar og hýenur velta vöngum áður en þeir opna troðna pyngju og greiða allt upp í 150.000 dali (7 milljónir íslenskra króna) fyrir hvert verk sem gert er í 3 eintökum. Helsta spumingin sem brennur á vömm fólks er þó sú hvort listamaðurinn meini þetta í fullri einlægni eða glotti innra með sér og því miður verður maður að hallast að hinu síðamefnda sé mið tekið af útliti mannsins sjálfs og göngulagi hans. Jeff Koons er það efst í hug að selja dýr- ar og dýrar og verða frægari og frægari. Og einmitt þess vegna hefur hann ekki tíma til að vinna þessi verk sín sjálfur, heldur framleiðir þau á ítölsku postulíns- og viðarverkstæði þar sem frægir kitsch- meistarar fá að spreyta sig undir stjóm hans í nafni listarinnar. En þrátt fyrir það má þessi sýning þó verða manni til ákveðinna áhrifa. Sem myndlistarmaður getur maður notað hana líkt og hressandi sturtu og e.t.v. verða þessi ögrandi sætu verk til þess að lista- menn um heim allan fái losað við sig ótt- ann við að vera sætir í sér. E.t.v. verða hér söguskil og einlægnin bijótist nú fram úr sínum gleymdu farvegum og við fáum að sjá flosmjúk og gælandi góðverk sem höfða beint til hjartans en bijótast ekki um í heilanum eingöngu. Eða fer það e.t.v. á öfugan veg og listin harðni enn í því harða völundarhöfði nútímans? Alltént og þrátt fyrir allt höfum við orðið vitni að sögulegri og tfmamótandi sýningu. Höfundur er listmálari. Þ Æ T T I R 0 R S Ö G 1 U S K M A K L 1 S T A R 1 N N A R AJ. □ŒM]l a ][n][d][[ Ummæli erlendra manna og ferðabækur Eftir JÓN TORFASON Um og eftir siðaskipti voru miklir landfunda- tímar og sömdu þá lær- dómsmenn stórar bæk- ur um landafræði og fjarlæg lönd. í landa- fræðiritum af slíku tagi og ferðabókum erlendra manna er stundum minnst á skákkunnáttu íslendinga og þeir þá taldir skara fram úr öðrum þjóðum um taflmennsku. Gallinn er sá að heimildimar em ekki alitaf sem áreið- anlegastar. Til dæmis segir sá armi skálkur Blefken í riti sínu Islandia, sem kom út 1607, að íslendingar liggi f rúminu á vet- uma dögum saman og tefli skák. Hann kom aldrei sjálfur til íslands og hefur víst samið flest upp úr sér og er lítið að marka sagnir hans. Peter Clausson hét prestur á Jaðri f Noregi og var uppi um aldamótin 1600. Hann vann sér m.a. til frægðar að þýða Heimskringlu á norsku. Hann getur þess til dæmis um skáksnilld íslendinga að hann hafí heyrt þeir séu stundum margar vikur með eina skák þótt þeir tefli á hveijum degi. Kann það að vera rökum stutt því hann mun hafa haft allgóða þekkingu á kringumstæðum á íslandi. Fransmaðurinn Isaac de la Peyrere átti leið um Danmörku um miðja 17. öld og virðist hafa nokkuð áreiðanlegar heimildir um íslendinga. Hann segir þá mikla taflmenn og smíði þeir sér sjálfir töfl til að tefla á. Loks má neftia vitn- isburð Roberts Moleswarths en hann var þingmaður á enska þinginu og m.a. ráð- g afi Önnu drottningar og Georgs konungs I. Hann dvaldi um hríð í Danaveldi og rit- aði bók um ferðina sem kom út 1694. Hann hefur það að segja um ísland og Færeyjar að þar vaxi ekki kom en mikið sé um naut- gripi og að íbúamir séu miklir skákmenn. Telur Moleswarth það mikið undmnarefni að almenningur á slíkum útkjálkum skuli iðka jafn erfiðan leik og skákina. Nú skal vikið að Dananum Niels Horrebow sem dvaldi hér við rannsóknir árin 1749—51 og ritaði merka bók um landið, „Frásagnir um ísland" (ísl. þýð. Steindór Steindórsson frá Hlöðum 1966). Hann taldi íslendinga enga sérstaka skák- menn og segir: Þegar sagt hefur verið að þeir leggi sig mjög eftir skáktafli og séu miídir meistarar í þeirri íþrótt, sem forfeður þeirra vom fræg- ir fyrir, er sá sannleikur í því fólginn að skáktafl er meira iðkað á íslandi en Dan- mörku og að alltftt er að hitta snjalla skák- menn meðal alþýðumanna. Aftur á móti get ég ekki sagt að þeir séu nú á dögum mikl- ir meistarar í íþróttinni eða iðki hana af kappi. En sennilegt er að forfeður þeirra hafi verið þeim þar snjallari eða svo halda íslendingar sjálfír (Frásagnir um ísland, bls. 249—50) Ekki er auðvelt að meta þennan vitnis- burð því Horrebow er hér fyrst og fremst að svara þeirri ásökun að íslendingar liggi dögum saman yfir skáktafli, einkum hinar löngu vetramætur, en nenni ekki að vinna. Hér kemur líka fram angi af þeirri lífseigu söguskoðun að allt hafí verið betra til foma. Horrebow bendir einnig á þá athyglis- verðu staðreynd að íslendingar iðkuðu skák- tafl mikið í verstöðvum í landlegum. Þá gat viljað svo til dögum saman að ekkert var að gera og gripu menn þá í tafl. Heimafyr- ir var yfirleitt heldur lítill tími til slíkrar skemmtunar því flest kvöld var setið yfír tóvinnu. Á skákiðkun í verstöðvum verður drepið síðar. Eggert Ólafsson og Bjami Pálsson fóra um landið árið 1752—7 og kom ferðabók þeirra út árið 1772 [ísl. þýð. Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum 1974]. Eggert lýsir gestrisni bændanna í Breiðafjarðareyj- um fagurlega en þar geta menn setið veður- tepptir marga daga: Lætur hann þurrka vosklæði þeirra, fæð- ir þá og hýsir með fyllstu ánægju. Menn skemmta gestum með því að fá þeim fomar sögur til lestrar eða tefla við þá skák o.s.frv., en þetta er helsta dægradvöl manna hér í tómstundum þeirra. (Ferðabók Eggerts og Bjama, bls. 287) Ánnars minnist Eggert ekki mikið á skák- tafl, telur það þó einna helst iðkað á Suður- landi og Vesturlandi. í ferðabókinni er all- langur bálkur um skáktafl og segir þar m.a.: Skáktafl hafa íslendingar mikið iðkað frá fomu fari og enn hittast þar ágætir skák- menn. Einkum hefir mikið orð farið af mönnum vestanlands í því efni og það engu síður bændum en fyrirmönnum. lslendingar fylgja sömu meginskákreglum og gert er erlendis, með örfáum undantekningum, en þeir halda öllum hinum fomu dönsku og norsku nöfnum og talsháttum, er tafl þetta varða. [Því næst eru rakin nöfti á mönnum og mátum en sfðan segir:] Mesti vinningur er nífalt mát. Margfaldara mát er sjaldgæft enda þarf afbragðsskákmann og lélegan mótstöðumann til þess að svo margföldu máti verði fram komið. Erlendis er einfalt mát látið vera leikslok en á íslandi leitast hver við að hafa mátið svo margfalt sem honum er unnt. Þó verður sá er mátar að hafa komið tafli sfnu þannig fyrir við fyrsta mátið að hvert mátið reki annað því að hvorki má hann leika öðram leikjum milli máta né kóngurinn, sem verið er að máta, fá færi á að komast undan. En meðan á mátunum stendur getur hin minnsta yfirsjón valdið því að taflið tapist. Góðir taflmenn geta mátað hinn sexföldu eða sjöfóldu máti þótt hann sé allsnjall og kunni allar taflregl- ur. Oft velja menn sér fulitingismenn er þeir þreyta skák og fyrir kemur það að af leiknum spinnast illindi og ósætti. Eiga hin maigföldu mát mestan þátt í þvf. Einkum er hætt við því að þeir sem að eðlisfari era geðstirðir reiðist af þvf að vera hraktir í langan tíma með kónginn fram og aftur um taflborðið. Stundum er honum leyft að hafa biskup til aðstoðar því að sigurvegarinn telur það hættuminnsta manninn en sigurinn enn glæsilegri ef kóngurinn er ekki einn. Þetta hafa menn ef til vill séð í öðram lönd- um og því hafa menn þar einungis einfold mát og er þá minni hætta á að leiðindi hljót- ist af leiknum. Engu að síður sýnir það mikla taflleikni að geta að staðaldri gert mörg margföld mát því að það krefur mikill- ar umhugsunar og einbeitingar hugans. Fleiri skákreglur era til á íslandi, sem hér yrði of langt upp að telja, en þetta era hin- ar réttu, elstu og algengustu reglur. Þær reglur, sem einfaldari era, léttari og lausari í reipum, virðast vera fundnar upp í seinni tíð. (Ferðabók Eggerts og Bjama, bls. 270-72). Stöðumynd Á stöðumyndinni era dæmi um margföld mát. Þreföld mát vora kölluð lág mát en fjórföld mát eða fleiri há mát. Hvítur leik- un 1. Hh8 (hróksmát), 2, Hal (tvöfalt hróksmát), 3. Dhl (gíeiðarmát), 4. Bf3 (biskupsmát), 5. Rc7 (riddarapissa), 6. b7 (peðmát) og sjöunda mátið fengist með 7. b8D (útkomumát, þ.e. mát um leið og peði er leikið upp í borð). Þessi mörgu mát minna á flóknustu skák- dæmi og hafi þau tíðkast eitthvað að ráði sýna þau sérkennilega þróun sem orsakast hefur af dreifbýlinu í landinu. Það hefur verið langt á milli sterkra skákmanna og þeir því oftast þurft að etja kappi við sér miklu lakari menn. Það er vitanlega lítið gaman fyrir sterkan skákmann að máta manngangsmann en hann getur fengið tölu- vert út úr því að koma upp flóknum mátstöð- um af þessu tagi. Það er hins vegar líklegt að ánægja þess sem er í hlutverki músarinn- ar sé í minna lagi eins og Eggert bendir raunar á. Uno von Troil ferðaðist hér sumarið 1772 ! naftifrægum flokki vísindamanna undir foiystu sir Josephs Banks. Þegar heim kom ritaði hann bók um ferðina sem þýdd var á margar tungur, „Bréf frá íslandi" [ísl. þýð. Haraldur Sigurðsson, 1961]. Hann segir íslendinga víðfræga skákmenn. Fyrrum hafí tíðkast þar tvenns konar skák, ungfrúr- skák og riddaraskák en nú aðeins sú síðar- nefnda. Fleiri dæmi mætti nefna, bæði af innlend- um og erlendum toga, en hér skal látið stað- ar numið. Torvelt er að meta vitnisburði í ferðabók- um af þessu tagi. Þar verður hver að hugsa fyrir sig. Þessar umsagnir standa þó ekki einangraðar heldur styðja ýmislegar aðrar heimildir um skákkunnáttu íslendinga. Er freistandi að trúa því að skák hafi verið allmikið iðkuð hér um aldir. Hér skal loks einn maður enn leiddur til vitnis sem gjörst þekkti til leikja og íþrótta íslendinga á sinni tíð, Ólafur Davíðsson. Hann telur að á 19. öld geti íslendingar ekki talist miklir skák- menn og hann hefur ágæta skýringu á skák- orði íslendinga á fyrri öldum. Erlendis sé skák einkum iðkuð í klúbbum, af tiltölulega fáum æðri stéttar mönnum eða lærdóms- mönnum en alþýða manna viti naumast hvað skáktafl sé. Töluvert sé hins vegar um það að alþýðumenn á íslandi kunni að tefla þótt engir séu þeir meistarar. Hann segir: Þegar útlendingar koma nú heim til ís- lands og reka sig af hendingu á óbrotið bændafólk sem kann að tefla þá verða þeir öldungis hissa og halda að allir íslendingar séu meiri og minni skákmenn. Svona held ég að standi á skákorði því sem íslendingar hafa í útlöndum. (Ólafur Davíðsson, íslenskar skemmtanir II, bls. 278) Höfundurinn starfar á Þjóðskjalasafninu Landsmenn voru sagðir liggja yBr taOi, jafhvel gat það tekið þá margar vikur að teOa eitt taíl. Lýsing úr handriti af drykkju á miðöldum. í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.