Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Qupperneq 11
R L E N D A R Kappaksturinn skipti hann öllu máli B Æ K U R Guðbrandur Siglaugsson tók saman Italski bílasmiðurinn Enzo Ferrari sem lést níræður um miðjan ágúst síðastliðinn var var dáður mjög í heimalandi sínu. Og reyndar langt út fyrir það því kappakstursmenn og sérfræðingar í hönnun og öðru er viðkemur bílum bera honum allir vel sög- una. Ferrari var sjálfur kappakstursmaður á þriðja áratugnum, stjómaði síðan keppnis- liði og rak bílasmiðju sína frá árinu 1947. Framleiðsla hans er að vísu ekki nema viku- skammtur hjá Ford eða General Motors en markmið Ferrari var ekki fjöldaframleiðsla heldur framleiðsla á kappakstursbílum. Framleiðsla á sérstökum bílum fyrir fólk með sérstæðan smekk! Hann varð þjóðsagnapersóna í lifanda lífi hefur verið sagt um margan manninn og vissulega átti það við um Enzo Ferrari. Kringum hann var iðulega einhvers konar dularfullur ljómi, og hann kunni að notfæra sér það. Hann hélt fjölmiðlum forvitnum með hæfilegu pukri og var spar á að gefa út fréttatilkynningar og halda blaðamanna- fundi. Jafnvei eftir að Fiat verksmiðjumar komu til samstarfs réði sú stefna Ferraris áfram. Arangurinn talaði sínu máli. Óvissa Segja má að Ferrari hafi iðulega haldið samstarfsmönnum í svipaðri óvissu og fjöl- miðlum. Menn gátu ekki reiknað hann út og hann var snillingur í að stjóma starfs- mönnum sínum til þess að ná þeim markmið- um sem hann setti og vildi ná. Þetta átti við um hönnuði sem og bílasmiði og öku- menn. 0g hann gerði miklar kröfur til manna sinna. Bíllinn var að sjálfsögðu aðal- atriðið og væri honum ekið almennilega átti engin hætta að vera á ferðum, þeir skyldu vinna. Þannig hefur það gengið í 40 ár. Auðvit- að hafa skipst á skin og skúrir í velgengni Ferrari 408 verður varla algengur bill á íslandi. Enzo Ferrari sem kapp- aksturshetja árið 1920. Ferrari lét sig kappakst- ursmálin miklu skipta alla tíð. Ferrari á kappakstursbrautunum og á ýmsu hefur gengið í keppni en segja má að með reglulegu millibili hafi Ferrari alltaf náð toppnum. Oft “hætti“ því Ferrari þátttöku í kappakstri en eftir umhugsun, endurskipu- lagningu og endurbætur var hann óðar kom- inn í slaginn á ný. Hann varð prins, síðan konungur og keisari í kappakstrinum. Fram- leiðsla á Ferrari bílum fyrir hinn almenna markað var nauðsynleg til að geta fjármagn- að starfsemi hans við kappakstur og að vísu til þess líka að koma til móts við hina mörgu aðdáendur hans sem vildu fá hraðskreiðan götubíl og treystu honum öðrum fremur í því efni. Ford eða Fiat Um tíma á sjöunda áratugnum var því haldið fram að Ferrari hygðist ganga til samstarfs við Ford. Kappaksturinn varð sífellt dýrari í rekstri og samkeppni var gífurleg - það reið á að standa sig þar til að geta talist maður með mönnum. Ekki varð þó af samstarfi við Ford heldur milli Ferrari og Fiat og sáu báðir aðilar fljótt að þetta var hagkvæmt og ekki síður það að láta Ford róa einan á báti. Áhrif Fiat leiddu til þess að Ferrari einbeitti sér að framleiðslu fárra bíla með mismunandi aukabúnaði til að bjóða fram í hinum mis- munandi heimshlutum. Ferrari hafði einkum verið seldur í heimalandinu en menn biðu í Frakklandi, Þýskalandi og Englandi og síðar hafa verið framleiddar gerðir sem hæfðu Bandaríkjamarkaði, til dæmis Testarossa. E1 Lissitzky: Tvöfalt portret. Audi þraukar í Ameríku udi verksmiðjurnar þýsku hafa átt heldur erf- iða tíma í Bandaríkjunum síðustu misserin svo sem kunngt mun af fréttum. Galli kom fram í Audi 5000 (sama gerð og Audi 100 í Evr- ópu) með sjálfskiptingu þannig að þeir áttu það til að stökkva skyndilega af stað án þess að ökumenn fengju neitt við ráðið. Á dögunum lögðu forráðamenn verksmiðjanna fram þriggja ára áætlun um að ná aftur fótfestu þar í landi með endurbættri útgáfu af Audi. Gert er ráð fyrir að Audi selji kringum 50 þúsund bíla árið 1991 í Bandaríkjunum. Er það reyndar aðeins helmingur þess sem fyrirtækið ætlaði sér að selja þar áður en vandræðin byrjuðu. Eftir að þessi galli kom fram hafa risið mál og fyrirtækið orðið að greiða bætur í nokkrum tilvikum. Með þessu nýja markaðsátaki fyrir Audi 100/200 bilana er ráðgert að selja 31 þúsund bíla á þessu ári og að síðan fari salan jafnt og þétt vaxandi. Sérstök áhersla verður lögð á ábyrgð framleiðandans í þessari söluher- ferð. Munu verksmiðjumar greiða allan við- gerðakostnað í þijú ár eða á fyrstu 50 þús- und mílunum. Til að tryggja enn frekar öryggi Audi-kaupenda verður komið upp öflugu vegaþjónustukerfi en á þessi tvö síðast nefndu atriði hafa bandarískir og evrópskir framleiðendur einnig lagt mikla áherslu að undanfömu. Um það bil 200 mál sem em í gangi á hendur Audi vegna þessa meinta galla varpa nokkrum skugga á þetta söluátak og um leið ríkir mikil samkeppni við hina japönsku framleiðendur Nissan og Toyota sem em að kynna lúxusbílana Lexus og Infiniti fyr- ir Bandaríkjamönnum. Ljóst er því að Audi manna bíður erfitt verkefni og takist þeim Audi 200 turbo. Sókn Audi á Banda- ríkjamarkaði verður aukin með nýrri 8 strokka lúxusgerð, sem nú hefur verið hleypt af stokkunum. ekki að yfirstíga þessi vandamál gæti farið fyrir þeim eins og öðmm evrópskum bíla- framleiðendum sem ekki tókst að hasla sér völl í hinni stóm Ameríku. E1 Lissitzky 1890-1941 Retrospektive Þessi bók er gefin út í tilefni af yfirlitssýn- ingu á verkum rússneska arkitektsins, mál- arans, leturgerðarmannsins og kennimeist- arans E1 Lissitzky. Sýningin hefur verið sett upp í Busch-Reisinger-safninu í Cam- bridge, Mass., Bandaríkjunum, Sprengel- safninu í Hannover og verður opnuð í maí í Ríkisgalleríinu Moritzburg Halle í Austur- Þýskalandi. Alþjóðleg samvinna kemur mörgu til leiðar og mörgum til góða. E1 Lissitzky var gyðingur. Faðir hans þýddi Shakespeare og Heine og ætlaði með fjölskyldu sína til Ameríku. Rabbíi hans réð honum frá því og fylgdi hann ráðum hans. í æsku sýndi El, sem reyndar hét Lasar þá, áhuga á listum og sótti um inngöngu í akademíuna í Pétursborg en var vísað frá, sennilega vegna uppmna síns. Lissitzky ákvað því að freista gæfunnar í Þýskalandi og innritaði sig í Tækniháskólann í Darm- stadt 1909. Þar nam hann arkitektúr. Á námsámnum notaði hann tækifærið og ferð- aðist víða, hann skoðaði byggingar og söfn og var forvitinn um allt sem varðaði listir almennt. Hann teiknaði og málaði en sýndi ekki neina skapandi yfirburði, tískan var sterk þá eins'og nú. Þegar styijöldin braust út, neyddist hann, eins og aðrir Rússar, til að yfirgefa Þýskaland og hélt áfram námi sínu í Moskvu. Að takmarkinu náðu, prófi í arkitektúr, hóf hann að starfa að faginu en ekki sem hönnuður heldur vinnukraftur hjá öðmm. Skapandi var hann engu að síður en á öðmm vettvangi. Endurreisn gyðinga- listarinnar var í deiglunni og þar var um auðugan garð að gresja. Með Chagall og Malewitsch tók hann þátt í mörgu ævintýr- inu, fagnaði byltingunni og byijaði að vinna í hinu margfræga Proun-i. Proun er í gróf- um dráttum birting geometrískra forma í vídd. Sum Proun-anna em hrein málverk, önnur blönduð tækni í rúmi, samsetningar sem erfítt er að kýrrsetja sökum þess að þær virka frá öllum hliðum, á hvolfí og á ská. Byltingin hafði áhrif á allt, listir ekki síður en hvunndaginn, og lagði Lissitzky sitt af mörkum í fögnuðinn og vonina. Hann hélt síðan til Þýskalands árið 1920, þar sem hann tók til við að bylta bókagerðarlistinni og leturgerð. Hann hélt sig og við Proun- ið, hannaði húsgögn og hélt erindi um frelsi listarinnar í hinum ungu Sovétríkjum. Hann lagði fyrir sig ljósmyndun og fór að vinna á ný í byggingarlistinni. Hann sneri aftir til Moskvu 1925. Teiknaði byggingar, kenndi og skrifaði í blöð, hallaði sér eftir nokkurt hlé aftur að leturgerðinni og skipu- lagði sýningardeildir Sovétríkjanna á iðn-, bóka- og öðmm messum í Evrópu. Síðustu æviárin fóm að mestu í áróðursstarf. Hann vann fjölmörg veggspjöld og bókakápur eft- ir tísku sósíalrealismans en gætti þess þó að notfæra sér rammann til að sýna hvað í gömlum byltingarkúnstner bjó. E1 Lissitzky lést rúmlega fimmtugur. Frægð hans hefur haldist til þessa dags og nafn hans muh án efa lifa um ókomna framtíð. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. FEBRÚAR 1989 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.