Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Qupperneq 13
\
18. FEBRÚAR 1989
Vid snjómyndina í Sun Valley.
iii*'ii iii ri'tfii.
Dæmigert veðurfer — glampandi sól uppi í §alli, skýjabakkar yfir láglendi.
Skíðað um Bandaríkin
■ ■;'
Ævintýraland
Á nýja skíða-
staðnum Tell-
uride er allt
byggt á göml-
um, hlýlegum
bjálkastfi.
Spjallað við
Bjarna Ólafsson
„Ævintýraland skíðamannsins'* er tvímælalaust í Bandaríkjun-
um: Svæðin liggja hærra en í Evrópu, með meiri púðursnjó —
„óskafæri skíðamannsins“ — staðviðri er meira, þegar kemur
fram á vorið og meiri sól; miklu meiri sviptingar í evrópsku veður-
feri — öllu er vel stjórnað og biðraðir hverfe á örskömmum tíma;
ekki eins og í Austurríki, þar sem viða er troðist o&n á skíðin
í biðraða-öngþveiti, segir Bjami Ólafsson, sem skíðaði á mörgum,
þekktum skiðasvæðum f Bandaríkjunum, með Qölskyldu og vina-
fólki í jólafríinu.
Spilavítin í Reno freista
með ódýrri gistingu
og fæði
-Við flugum til New York og
fengum þaðan mjög ódýrt flug til
Reno, um Las Vegas, með Amer-
ican West, nýju flugfélagi (báðar
leiðir á 149 Bandaríkjadali á
mann) flugleiðin kostar um 500
dali hjá þekktari flugfélögum. Við
ókum á milli skíðasvæðanna í
húsbfl, með jeppa í eftirdragi —
lögðum húsbflnum á góðum stað,
en notuðum jeppann að lyftunum.
Gistiverð er mjög hátt á banda-
rískum skíðastöðum, sambærilegt
Kort yfir legu skíðasvæð-
anna.
—
Mount Rose
Squaw Valley
(NEVADA/ 1
Park
2JL,
COLORAD&
Mammouth |
Aspen
Telluride
við gistiverð í stórborgum. En
spilavítin í Reno gera allt til að
freista ferðamannsins — þar eru
möguleikar á mjög ódýrri gistingu
(nótt í lúxusherbergi 25-30 dalir!)
og spilavítin bjóða upp á lúxus-
málsverð — innan við 10 dali.
Landinn hefði örugglega gaman
r
s
af að skynja þjónustuna í spilasöl-
unum — ókeypis veitingar bomar
fram eins lengi og setið er við
„spilamaskínumar“ — en það er
eins gott að brenna sig ekki á
þeim, þá era dollaraseðlamir fljót-
ir að fljúga!
Mount Rose-skíðasvæöið
við Tahoe-vatn
— Um hálftíma akstur frá
Reno, upp frá norðurhlið Lake
Tahoe, er skíðasvæðið Mount
Rose. Svæðið er ekki risastórt
eins og víðast í Bandaríkjunum,
en mjög þægilegt — stórt af-
markað svæði fyrir byrjendur, en
brekkur af öllum gerðum. Ég er
alltaf jafnhrifinn af að skíða
þama. Síðastliðinn vetur vora tvö
skíðasvæði tengd saman með lyft-
um, Slide Mountain norðaustan
til og Mount Rose norðvestan til
í fjallinu. Náttúrafegurð er mikil,
baeði sumar og vetur — hlýlegur
trjágróður og fagurt útsýni úr