Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.1989, Qupperneq 15
Upplýsingamiðstöð ferðamála á fslandi Leitið upp- lýsinga um eigið land — íslendingar eru alltof feimnir við að heimsœkja okkur, áður en þeir leggja af stað í ferðalag um landið. Upplýsingamiðstöðin er svo ný, að fólk áttar sig ekki á þeirri þjónustu sem hún veitir — íslenskum ferðamönnum ekki síður en útlendum. Alltaf eru að opnast Qölbreyttari ferðamöguleikar — til að njóta iandsins og skemmtilegrar útiveru — fyrir ferðamenn i öllum landsfjórðung- um. Það er synd, ef fólk kynnir sér ekki úrvalið í gistingu og tóm- stundaiðju áður en það leggur af stað. Við erum ekki ferðaskrif- stofa — öll okkar þjónusta og upplýsingar eru ókeypis. Við aðstoð- um við að skipuleggja ferðina um landið, ef óskað er — það kost- ar ekkert að líta inn hjá okkur i Ingól&stræti 5. Þau taka vel á móti þér — María Guðmundsdóttir, Martin Peters- en og Elísabet Jónasdóttir Það eru hinn nýráðni fram- kvæmdastjóri í Upplýsingamiðstöð ferðamála, Martin Petersen, og María Guðmundsdóttir, sem sitja fyrir svörum. Martin er að koma aftur til starfa í ferðamálum, byij- aði hjá Loftleiðum 1947 og starf- aði þar í 33 ár. „Áður ferðaðist ég mikið utanlands, núna hlakka ég til að fá tækifæri til að ferðast innanlands og ég er ákveðinn í að ferðast mikið um landið. Fyrir- rennari minn, Áslaug Alfreðsdótt- ir, er búin að vinna mikið starf og alltaf auðveldara að taka við, þeg- ar búið er að móta stefnuna. En mikið átak er eftir til að ferðamenn geti notið landsins eins og kostur er — að útivist verði aðgengilegri, bæði sumar og vetur, fyrir íbúana sjálfa — til að Islendingar geti ferð- ast meira um eigið land,“ segir Martin. Hvað býður landsbyggðin upp á núna? í hinum björtu og hlýlegu húsa- kynnum í Ingólfsstræti 5 eru upp- lýsingabæklingar meðfram öllum veggjum og vingjamlegt og kurt- eist starfsfólk leiðbeinir. „Hvað er í boði fyrir fólk, sem vill fara í stuttar helgarferðir á þessum árstíma?" Og við komumst að raun um, að það er heilmikið í boði. Ferðafélag fslands og Útivist bjóða upp á göngu- og skíðaferðir í næsta nágrenni við þéttbýliskjama Suðurlands — ótrúlega hressandi að reyna eitthvað á sig í göngu, eftir alla innisetuna. Bláa lónið er vel kynnt fyrir útlendingum, og margir fáir íslendingar aka þangað um helgi. Bændagistingin um allt land býður upp á bústaði og herbergi — ferðabændur eru ólatir við að fara með gesti sína í skoðunarferðir og gaman fyrir bömin að kynnast dýmnum. Á Flúðum er góð hvíldardvöl, útisundlaug, heitir pottar, gufubað — minjasafn og garðyrlqubændur til að heim- sækja. Á Klaustri er Edduhótelið opið eins og mörg önnur. Hótel Stykkishólmur býður skemmti- og ráðstefnupakka fyrir litla hópa. Gott helgarverð í boði til Akur- eyrar. Vetrardvöl við Mývatn, þó að ekki sé snjór — hvílir hugann í fögru umhverfí. Seljalandsdalur á ísafirði er einn af fáum skíða- stöðum á landinu, sem er opinn. Gaman að skreppa yfír helgi til Vestmannaeyja. Spennandi, nýtt gistiheimili er að Freysnesi í Öræf- um, rétt hjá þjóðgarðinum. Vetrardvöl úti i íslenskri náttúru Oft er átak að fara í ferðdag á þessum árstíma. En greinilega þarf aðeins rétt út fyrir bæinn til að komast í tengsl við náttúruna. Það er ótrúlega mikil hvíld í því fólgin að komast út úr bílaum- ferðinni — frá síma og sjónvarpi — vera einn og sér úti í sveit. Per- sónuleg samskipti verða meiri, líf fólks í dreifbýli blasir betur við en á björtum sumardegi. Ferðalög að vetrarlagi krefjast meiri undirbún- ings, en kannski er aldrei nauðsyn- legra að lyfta sér aðeins á kreik en þessa svörtustu skammdegis- mánuði. Og af hveiju ekki að nýta sér áætlunarbflana heldur en að leggja upp í eigin bíl — meiri hvíld, minni áhætta! Ferðablaðið vísar öllum nánari upplýsingum til Upplýsingamið- stöðvar ferðamála — með verð og samgöngur, en ítrekar — skipu- leggið ferðina — það er ekki of snemmt að fara að hugsa til páska- ferðar og panta gistingu. Starfs- fólkið á Upplýsingamiðstöðinni biður fólk í ferðaþjónustu úti á landi að koma upplýsingum til þeirra sem fyrst — allt tengist þetta saman. Að síðustu: Vandið vel allan útbúnað í útivistarferðir að vetrarlagi: Hlýr slqólfatnaður, regnföt, stígvél eða vatnsheldir kuldaskór, bakpoki undir nestið — útivistin eykur matarlystina ótrú- lega mikið! O.Sv.B. Hinn hagsýni ferðamaður Með reiðhjól í farangnnum Ef þú ert áhugamaður um hjólreiðar ertu örugglega far- inn að hugsa um lengri hjólreiðaferðir í sumar — í hlýrra loftslagi. Vorið er komið í aprfl á meginlandinu og um að gera að skipuleggja ferðina i tœka tíð. Vegna hins víðfeðma jám- brautakerfis á meginlandinu er mjög auðvelt að sameina hjólreiða- ferðir út sveitir við heimsóknir til stærri borga (ferðir um Austan- tjaldslöndin eru erfíðari, einkum um Austur-Þýskaland). í öðrum Evrópulöndum er hjólreiðamönn- um velkomið að taka hjólin með f lestina, nema með sérstökum hrað- lestum, sumstaðar án aukagjalds. Reiðhjólaleiga er á flestum braut- arstöðvum, ef þú vilt ferðast sjálf- stætt, en einnig er boðið upp á ótal skipulagðar hjólreiðaferðir um alla Evrópu. Margir hjólreiðamenn vilja held- ur ferðast á eigin hjóli — þekkja kosti og galla eigin reiðskjóta! Mörgum vex það kannski í augum að vera með reiðhjól í farangrinum, en flest flugfélög taka ekkert aukagjald fyrir reiðhjól, ef annar farangur fer ekki framúr leyfðri þyngd. Á Keflavíkurflugvelli er hægt að fá sérstaka hjólapoka og Nýir ferðabæklingar Gisting með eldun- araðstöðu í Vestur- þýskalandi ’89/90 Nýr litprentaður upplýs- ingabæklingur er kominn út hjá þýska ferðamálaráð- inu, sem greinir frá 90 gis- titilboðum í Qallakofum, or- lo&húsum, fbúðum og ferðamannaþorpum um allt Þýskaland. Gisting með eld- unaraðstöðu er alltaf að verða vinsælli og Þjóðveijar eru fljótir að mæta kröfum ferðamannsins. Allar gistingar eru vandlega skoðaðar í samráði við ferða- málaráð á hveiju svæði til að þær standist gæðakröfur. Gis- tiverð er í mörgum tilfellum óbreytt frá síðasta ári, bæði fyrir næsta sumar og veturinn 89/90. Febrúar og marstilboð eru núna í gangi — tveggja vikna dvöl kostar eins og ein vika. Setf-Catering in G«many ’89/’90 n »• mo** « Gr.rfon Flestir gisti- stað- imir í bækl- ingn- um eru í þægi- legri fjar- lægð frá næsta flug- velli. Það er innan við tveggja tíma akstur frá flugvöllum í Hamborg, Frankfurt, Lúxem- borg og Salzburg til flestra áfangastaðanna. Bæklinginn er hægt að fá hjá Tysk Turist Central, Vest- erbrogade 6 D, 1670 Kaup- mannahöfn starfsfólkið aðstoðar við að komá hjólinu í pokann og líma utan um, en oft farið með hjólið beint út á kerru. Það er ekki algengt að ís- lendingar ferðist með hjól, en út- lendir ferðamenn eru oft með hjól í farangrinum. Hér á eftir fylgir stutt yfirlit um flutning á reið- hjólum með aðaljámbrautarlínum á meginlandi Evrópu. AUSTURRÍKI: Reiðhjól mega fylgja farþegum ókeypis, frá kl. 9 á morgnana til kl. 3 síðdegis — eftir kl. 6.30 síðdegis, frá og með mánudegi til föstudags — eftir kl. 9 á morgnana á laugardögum og allan sunnudaginn. Dagsleiga á reiðhjóli kostar um 150 krónur fyrir farþega, helmingi meira fyrir þá sem ekki ferðast með lestinni. BRETLAND: Á mesta annatíma og með einstaka lestum, einkum hraðlestum með takmarkað far- angursrými, eru reiðhjól ekki leyfð. En utan háannatíma, á flestum leiðum, eru reiðhjól tekin með — yfirleitt án aukagjalds. Gjaldið fer ekki yfir 250 krónur. Öruggast er að leita upplýsinga í miðasölu hvaða lestir taka reiðhjól og hvar á að koma þeim fyrir í lestinni, þar sem hvergi eru merkingar, sem sýna hvaða lestir taka reiðhjól. BELGÍA: Reiðhjól eru tekin á flestum leiðum, án aukagjalds. Reiðhjólaleiga er allt árið á öllum 60 jámbrautarstöðvum landsins. DANMÖRK: í reiðhjólalandinu Danmörku fer gjaldið eftir lengd ferðar, en hámarksgjald er 275 krónur. Hægt er að fá leigð reið- hjól á öllum helstu brautarstöðv- um, ferðaskrifstofum og hjólreiða- verslunum. Leigan er um 150-250 krónur á dag, 550-1250 krónur á viku — fer eftir gæðum reiðskjót- ans. FRAKKLAND: Allar leiðir, nema lestir innan Parísar (I.C.) og hraðlestir, taka reiðhjól án auka- gjalds. Farþegar verða að fara með hjólin í sérstakan brautarvagn — koma þeim fyrir og ná í þau sjálf- ir. Einnig er hægt að skilja þau eftir hjá manni, sem sér um far- angur — borga honum 250-300 krónur og fá afhendingarmiða. Nokkrar brautarstöðvar eru með hjólaleigu. Hálfsdagsgjald 225-300 krónur; dagsgjald 300-375 krónur. Farið er fram á tryggingarfé um 2.500 krónur. ITALIA: Allar leiðir, nema brautarlínur innan stórborga (I.C.), leyfa reiðhjólaflutning — gjald er háð þyngd og vegalengd. Flutningsgjald á milli Flórens og Rómar er t.d. 250-350 krónur. Farþegar með hjól eiga að snúa sér til farangursskrifstofu á braut- arstöð og bóka hjólin inn. HOLLAND: Allar lestir leyfa flutning á reiðhjólum. Gjaldið, sem er háð vegalengd, annatíma og vikudegi, er frá 190-400 krónur. Næstum allar brautarstöðvar eru með hjólaleigu; farþegar fá afslátt. PORTÚGAL: Reiðhjól mega fara sem farangur inn í lestir fyrir smáaukagjald. UNGVERJALAND: Taka má hjól sem farangur fyrir smáauka- gjald. SPÁNN: Reiðhjólum má korna fyrir í sérstöku farangursrými aukagjalds. Hjólaleiga er á nokl um brautarstöðvum, en aðallega hjólaklúbbum, sem eru oftast með sínar skrifstofur nálægt brautar- stöðvum í stærri borgum. TÉKKÓSLÓVAKÍA: Reiðhjól má flytja með öllum lestum fyrir smágjald. Engin höft eru á hjól- reiðaferðalöngum svo lengi sem ferðamaður er með áritað vega- bréf. SVISS: Hjól mega fylgja far- þegum í öllum lestum, einnig lest- um innan stórborga — svo lengi sem ferðast er innan svissnesku landamæranna. Gjaldið er alltaf um 165 krónur, sama hvert farið er. Hjólið verður að bókast á far- angursskrifstofu á brautarstöð. AUSTUR-ÞÝSKALAND: Út- lendingum er ekki leyft að fara með hjól inn í landið eða leigja >1 þar. ILLAND: Hjól má flytja sem farangur fyrir smáaukagjald. Stundum mega þau standa til hlið- ar í göngum án gjalds. VESTUR-ÞÝSKALAND: Nokkrar lestir (ferðataska á tíma- hjól þa POL Meiri fjarlægðir með flugvél og lest — látið siðan gamminn geysa á þægilegum reiðskjóta, sem gefiir geysigóða mögu- leika á tengslum við land og þjóð töflu sýnir að viðkomandi lest er með farangursrými) taka hjól án aukagjalds. Farþegar verða að kaupa sér hjólakort í miðasölu — ótakmarkaður flutningur á hjóli kostar 180 krónur — flutningur innan við 30 mílur 125 krónur. Þýsku jámbrautamar em með samvinnu í hjólaleigu: Farþegar borga um 138 krónur í dagsgjald, þeir sem ekki ferðast með lestun- um borga 275 krónur. Skila má hjólunum inn á þeim 284 brautar- stöðvum, sem vinna saman — frá apríl til októberloka og á nokkrum brautarstöðvum allt árið um kring. TiyggingarQár er ekki krafíst, ef ferðamaður sýnir gilt vegabréf. Upplýsingabæklingar um hjóla- leigu liggja frammi á þýskum brautarstöðvum. Veitið athygli hve lengi dagsins leigutíminn gildir, til að þurfa ekki að borga aukagjald. Nánari upplýsingar er að fá hjá: Open Roads, 1601 Summit Drive, Haymarket, Va. 22069 (703-754- 4152; 800-333-2453) og Euro- Bike-Tours, Post Office Box 40, De-Kalb. 111. 60115 (815-758- 8851) LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. FEBRÚAR 1989 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.