Lesbók Morgunblaðsins - 02.12.1989, Side 12
B M 1 L A R
Honda
Accord
ínýrri
útfærslu
Honda Accord 2.0i, árgerð 1990.
Það virðist þvælast einna mest íyrir nútíma bílhönnuðum að fá þokkalegt útlit
á afturendann. Hér hefur það tekizt bærilega, en vindkljúfurinn eða vængurinn,
sem fæst aukalega, setur óneitanlega mikinn svip á bílinn.
Með árgerð 1990 kemur
fjórða kynslóð af Ac-
cord fram á sjónar-
sviðið. Sú fyrsta er frá
1976 og með hverri
breytingu hefur Ac-
cord jafnframt stækk-
að og orðið betri bíll.
Vinsældir hans hafa verið alveg einstakar
í Bandaríkjunum, þar sem 360.000 bílar af
þessari tegund voru í umferð á síðasta ári,
og óhætt er að segja að Accord hafi átt
einlæga aðdáendur hér á landi einnig
Það hefur áður verið minnst á hér og
verður því ekki rakið í smáatriðum, að í
vali bandaríska bílablaðsins Car and Driver
á „10 beztu“ í hveijum flokki, hefur komið
fyrir að Honda ætti bíl í þremur flokkum.
Það hefur verið talið Hondu til tekna, að
þar hefur hönnuðum tekizt að halda í sérs-
takt svipmót, sem hefur skorið sig úr hinni
nokkuð svo einlitu hjörð japanskra bíla.
Vitað var að Honda kæmi með nýja gerð
af Accord frá og með árgerð 1990 og sá
bíll var fyrst kynntur á alþjóðlegu bílasýn-
ingunni í Frankfurt í haust. I ljósi þess
hvað tekizt hefur í hönnun á Hondu Civic
og sportbílnum CRX, áttu menn jafnvel von
á byltingarkenndri breytingu á Accord. En
þegar dúkurinn var dreginn af gripnum, var
ekki laust við að vonbrigða gætti hjá heims-
pressuliðinu, því Honda hafði valið þann
kost að þróa það útlit sem fyrir var í stað
þess að umbylta því. Þann sama kost hafa
menn einnig valið hjá Mercedes Benz og
BMW á undanförnum árum og hefur það
ekki þótt ámælisvert þar. í þýzku bílapress-
unni hefur mátt sjá, að þar þykir sumt í
útliti Hondunnar „of japanskt", sem merkir
einfaldlega að hér er ekki um að ræða stæl-
ingu á þýzkum bílum. Annars var mjög já-
kvæð grein í þýzka bílablaðinu MOT um
Accord, sem þar var sagður bæði stærri og
betri en áður. „Bætt hefur verið úr öllu sem
okkur þótti helzt aðfinnsluvert áður“, segir
í blaðinu. Þótt aðal markaðurinn sé í Banda-
ríkjunum, leggur Honda enn meiri áherzlu
á viðtökur í Þýzkalandi, því hvergi er sam-
keppnin harðari. Það er þessvegna góður
mælikvarði á gæði ef bíll stendur sig í sam-
keppninni á þeim markaði og Accord á að
eiga góða möguleika í ljósi þess hve stór
hann er og ríkulega búinn, en á hinn bóginn
miklu ódýrari en allir þýzku millistærðar-
bílarnir. Það er kannski ekki tilviljun að
stærðin á Accord er nánast nákvæmlega
sú sama og á 5-línunni hjá BMW, en ein-
hverra hluta vegna sýnist Accord stærri
bæði að utan og innan.
Umfjöllun um þennan nýja Accord í
bandaríska bílablaðinu Car and Driver er
mestan part hástemmt lof og það er í sam-
ræmi við fyrri viðtökur þar í landi. „Við
hveija breytingu hefur Honda Accord fært
sig upp í gæðaflokki og þrátt fyrir endur-
bætur í bílum eins og Toyota Camry, Niss-
an Maxima og Mazda 626, er Accord núm-
er eitt meðal japanskra bíla í þessum flokki",
segir Car and Driver.
En hvað er það í rauninni sem breytt
hefur verið. Það er nánast allt. Þetta er nýr
bíll frá grunni og allur stærri en áður.
Lengdin er 4.68m og hefur verið aukin um
15 sm, breiddin 169,5 sm, hæðin 139 sm
og lengd milli öxla er 2,72 m. Mælaboðið
er nýttj Vélin er ný, sætin eru ný og gagn-
stætt ríkjandi stefnu síðustu ára hefur ögn
verið horfið frá fleigforminu í ytra útliti,
því skottlokið er ívið lægra en áður. Hér var
í fyrsta sinn gerð uppreisn gegn því að láta
niðurstöður úr vindgöngum ráða útlitinu.
Vindstuðullinn, sem áður var 0,32, hækkaði
í 0,33, en þetta var nauðsynlegt til þess að
ná fram glæsilegu formi. Ein breyting, sem
fljótt á litið ber lítið á, er að öll millibil, t.d.
við vélarlok, skott og hurðir, hafa verið
Stýri og mælaborð í Accord - hönnun
og frágangur í háum gæðaflokki.
þrengd til þess að minnka hvin og í annan
stað hafa rúður stækkað hvorki meira né
minna en um 17%.
Það er ljóst þegar sezt er uppí þennan
nýja Accord, að hér er komin alvöru drossía,.
svo notuð sé gömul og næstum því útdauð
dönskusletta. Það er rúmt um mann á alla
kanta; þaklúgan með reyklituðu gleri eykur
á þessa tilfinningu og þegar búið er að lyfta
sætinu - sú lyfting er rafknúin - er útsýni
eins og bezt verður á kosið. Ég er hinsveg-
ar ekki sáttur við sætin, sem eru of hörð
fyrir minn smekk og skortir hliðarstuðning.
Sætin eru ágætlega stór og mér var bent
á, að þau væru gerð fyrir „mennina með
breiðu bökin". Sá sem þetta ritar er víst
allfjarri því að vera í þeim hópi. Samt vil
ég ekki segja, að sætin séu slæm og sumum
hugnast vel að hafa þau hörð.
Sú gerð sem hér var reynsluekið er auð-
kennd með 2.0i. Auk hennar er völ um eina
kraftmeiri og dýrari gerð og þá þriðju, sem
er með ögn minna vélarafli og er ódýrari.
Accord 2.0i er búinn nýrri fjögurra strokka
vél úr áli, 16 ventla með beinni innspýtingu
og fjögurra þrepa sjálfskiptingu með kraft-
eða sparnaðarforriti eftir því hvort maður
er í skapi til að spara eða láta gamminn
geysa. Þverstæð vélin hallast lítillega aftur
í stað þess að áður hallaðist hún áfram og
færir það þyngdarpunktinn til og bætir jafn-
vægið. Fjögurra strokka vélar titra gjarnan
í hægagangi, en hér er á ferðinni nýr búnað-
ur til að eyða slíkum titringi, enda verður
hans alls ekki vart, þegar bíllinn gengur í
hægagangi. í reynsluakstrinum sparaði ég
sparnaðarforritið og það er alveg hægt að
slá því föstu, að sá sem á annað borð hefur
einhveija tilfinningu fyrir góðum bíl, hlýtur
að kunna að meta Accord. Viðbragðið frá
kyrrstöðu og uppí 50 km hraða, sem skipt-
Jr langsamlega mestu máli, er afar líflegt
og gott, en tölur um viðbragð frá 0-100 km
á klst. eru ekki tiltækar, né heldur um hám-
arkshraða. Ekki verður því neitað, að hann
hvetur fremur til hraðaksturs og et' kannski
skemmtilegastur á bilinu 80-100. Það urar
dálítið í ventlunum eins og oftast í 16
ventla vélum og heyrðist kannski meira en
eðlilegt má telja vegna þess að bíllinn hafði
ekki vet'ið ryðvarinn. Með 135 hestafla vél
og sjálfskiptingu er hann miklu sprækari
en við mætti búast. Það er óhætt að segja,
að hann ber sjálfskiptinguna vel. Hinar
gerðirnar eru með 2.21 vél og beinni innspýt-
ingu, sem gefur 150 hestöfl. Sú gerð kemur
ekki á markað í Evrópu fyrr en i vor og
þar er ókunnugt um vet'ð. Loks er um að
ræða 2.0 1 vél með tvennum blöndungum,
en 16 ventlum einnig og gefur hún 112
hestöfl.
Að sjálfsögðu eru allar gerðir af Accord
fáanlegar með handskiptingu og eins og á
öllum gerðum af Hondu er drif á framhjól-
um.
Spyija má, hversvegna verið sé að stækka
bíl, sem var kannski nógu stór. Svarið felst
trúlega í því, að áherzlan er á þægindi og
það er vel kunn staðreynd, að stærri bílar
hafa öðruvísi hreyfingar en smáir. Fjöðrun-
in hefur verið endurbætt í samræmi við þá
stefnu; það er lengra í henni en áður var.
Helztu keppinautarnir í þessum verð-
flokki eru ugglaust bílar eins og Subarti
Legacy, sem hefur aldrif framyfir, og
Mitsubishi Galant GTi, Mazda 626, Toyota
Camry, Saab 900, BMW 316/18, og Audi
80/90; þeir síðasttöldu að vísu talsvert
minni. Allt eru þetta álitlegir kostir og
meira smekksatriði, hver verður fyrir val-
inu. Þar hefur hver til síns ágætis nokkuð
en Accord er orðin meiri drossía en þeir sem
hér hafa verið nefndir og þessi nýja gerð
er líkari þeim farartækjum, sem stundum
eru kölluð stjórabílar.
GS.
HONDA 2.0i - nokkrar staðreyndir
í tölum
Breidd: 169,5 sm.
Hæð: 139 sm.
Hæð undir lægsta punkt: 16 sm.
Þyngd: 1245 kg.
Vél: Tveggja lítra,_ 135 hestafla.
Umboð: Honda á íslandi.
Verð: 2.0 EX, handskiptur: 1290 þús.
2.0 EXi, handskiptur: 1480 þús.
2,0, sjálfskiptur: 1390 þús.
2.0i, sjálfskiptur: 1560 þús.
Fyrir ryðvörn og skráningu bætyast við 25
þús.
2