Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Qupperneq 4
■hív rtiBTlr, ifit9v b?[r+Í fSj j?'l£ ] .6im!sbBisaÍ9)f-t.r3íH.cf8CEH 1 nn: fclíðl ijfny | -fibiiíe nnhst’EJ1 !>!eyíj i5^J ,IiJ r.bnev ijtis rnsii Upphaf fyrri heimstyrjaldarinnar Stríðsæsingamaðurinn Conrad von Hötzendorf Conrad von Hötzendorf marskálkur fæddist í grennd við Vín, í Penzing, 1852. Hann gekk á herskólann í Wiener-Neustadt og var undirfor- ingi í herförinni í Bosníu 1878. Kennari varð hann síðan í herskóla og samdi þá bók um hernað fótgönguliða, sem varð handbók í austurrísk-ungverska hemum. Oddviti her- foringjaráðsins varð hann 1906. Hann lézt árið 1914. Mynd: Gísli Sigurðsson. Miklu veldur sá er upphafinu veldur. Ef það er rétt, að síðari heimstyijöldin hafí verið afíeiðing þeirrar fyrri, hefur Conrad von Hötzendorf sannarlega vald- ið miklum ósköpum á þessari öld. Á síðastliðnu hausti voru liðin 75 ár frá upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar, sem löngum er rakin til morðsins á erkihertoganum í Sarajevo. Það varþó aðeins kornið sem fyllti mælinn; á undan var gengin röð atburða með þessari venjulegu stigmögnun þar til ekki verður aftur snúið og mestan þátt í þeirri óheillaþróun átti sá sém hér er rætt um. Eftir Sir LEWIS NAMIER Allt frá upphafi hélt hann fram ásóknar- stefnu, og á þeim örlagaríku árum, sem í hönd fóru, mun naumast nokkur maður í ábyrgðarstöðu í Evrópu hafa eins statt og stöðugt hvatt til stríðs. Hann bryddaði 1907 upp á stríði gegn Ítalíu. í janúar 1908 lýsti hann yfir, að „vandamál Serbíu og Monte- negro bæri að leysa með stríði á komandi ári og um leið mætti líka gera Ítalíu skil“. Hann lagði til 1909, að Serbía yrði innlimuð (í Austurríki-Ungveijaland); og það varð honum til skapraunar, eins og hann dró ekki dul á, að Bosníu-deilan gekk yfir án stríðs og landvinninga. Þegar Ítalía átti 1911 í herför sinni í Tripoli, heimtaði von Hötzend- orf, að sætt skyldi þess færis, meðan hún væri um stundarsakir berskjölduð, til að inn- lima Feneyjar og nágrenni. Við slíkt stríð yxi her Austurríkis-Ungveijalands hugur, en hann hefði „goldið stefnu sleitulausra mála- miðlana, hiks og eftirgjafar". I álitsgerð til keisarans, dagsettri 15. nóvember 1911, krafðist hann stríðs gegn ítölum vorið 1912. Gegn árásarstefnu von Hötzendorf lagðist Aerenthal greifi, eins og kraftar hans leyfðu, en hann var þá dauðsjúkur. Franz Jósep keisari snerist á sveif með Aerenthal og setti ofan í við von Hötzendorf „vegna sífelldra árása hans á Aehrenthal", en kvað friðar- stefnuna vera sína eigin; og keisarinn sagði von Hötzendorf, að „allir þyrftu að semja sig að henni", og hversu miklar líkur sem væru á stríði við Itali, mætti ekki til þess koma, „nema ítalir stofnuðu til þess“. Keisarinn klykkti út með þeirri mergjuðu athugasemd, að „fram til þessa hefði aldrei verið stríðsflokkur okkar á meðal“. Von Hötzend- orf tók þau orð til sín, og á iausnarbeiðni hans var tafarlaust fallist. Hann var 30. nóvember 1911 skipaður hereftirlitsmaður. Á eftir fóru Balkan-stríðin 1912 og 6. desember var von Hötzendorf á ný skipaður oddviti herráðsins, en hann naut þá eindreg- ins stuðnings ríkisarfans, Franz Ferdinands erkihertoga. Honum fannst hann hafa fengið uppreisn æru og af aukinni ákefð tók hann aftur upp stríðstal sitt. í janúar 1913 krafð- ist hann opinberlega, að allsheijar herútboð gegn Serbíu yrði tilkynnt 1. mars og fylgt eftir með stríði. Fékk hann ekki sitt mál fram frekar en áður, því að Þýskaland lét ekki toga sig út í stríð, og Franz Ferdinand erki- hertogi var því jafnvel andvígur. Til sárra vonbrigða fyrir von Hötzendorf var enn eitt tækifærið gengið úr greipum. JÚLÍ-ÁGÚST1914 Þegar Conrad von Hötzendorf marskálki bárust fréttir af morðunum í Sarajevo, þótti honum a.m.k. ekki þörf á að rannsaka, hvort Serbía ætti nokkra sök á þeim, né að gera upp hug sinn um, til hvaða ráða skyldi grip- ið. Utanríkisráðherra Austurríkis-Ungveija- lands, Berchtold greifa, sagði hann 29. júní, að þörf væri á aðgerðum án tafar og þær hlytu að vera herútboð gegn Serbíu. Því svar- aði Berchtold, að hann vildi bíða niðurstöðu af rannsókn málsins; og 'þeirrar skoðunar voru þeir líka keisarínn, ungverski forsætis- ráðherrann, Tisza, og hinn austurríski, Sturgkh greifi, eíns og Berchtold sagði von Hötzendorf 1. júlí. „Tisza var mótfallinn stríði gegn Serbíu, því að hann óttaðist, að Rússland réðist á okkur, en Þýskaland sneri við okkur baki,“ eins og hann sagði. „Aftur á móti bjóst Sturgkh við, að rannsókn máls- ins gæfí gott tilefni til aðgerða. Ég hélt því hins vegar fram, að hættunni af Serbíu yrði aðeins frá bægt með kröftugum aðgerðum. Morðin, framin að undirlagi hennar, væru stríðstilefni.“ „Málsgögn frá aðdraganda morðanna bæru ekki vitni um undirróður með fulltingi serbnesku ríkisstjórnarinnar," sagði 13. júlí í símskeyti frá von Wiesner, sem austurrísk- ungverska utanríkisráðuneytið hafði sent til Sarajevo til að rannsaka málið. „Engar sönn- ur eru né ábending um, að serbneska ríkis- stjómin hafí verið með í ráðum eða undirbún- ingi morðanna eða hafi lagt til vopn.“ En' von Hötzendorf kvað slíkar niðurstöður ekki vera annað en „skýrslu til bráðabirgða á því stigi, sem á væri“ rannsókn máls, sem hann hefði óðar gert upp við sig án tillits til málsat- vika. í þrálátum og þreytandi upptuggum hans á „glæp Serbíu" og „hrottalegum ögrun- um“ hennar við keisaradæmi Hapsborgara kvað aðeins við tón gamallar þráhyggju hans. í upphafi þessa bindis gerir hann grein fyrir ástæðunum, sem undir bjuggu. „Á tókust tvö öndverð stefnumið: Varð- veisla Austurríkis sem samsteypu þjóðernis síns af Austurríki-Ungveijalandi." Vegna aðgerða Serba skarst í odda og „af þeirri ástæðu, en ekki til að jafna um fyrir morðin, varð Austurríki-Ungveqaland að fara í stríð við Serbíu.“ En meira að segja þeim, sem bíða vildu niðurstöðu af rannsókn málsins (í von um, að heim kæmi við óskir þeirra), var efst í huga, hvort Austurríki gæti reitt sig á fullan stuðning Þýskalands, ef bað steypti sér út í stríð, — í Balkan-stríðunum hafði Þýskaland neitað að styðja stríðsflokkinn í Austurríki. Hoyos greifi, sem var chef de cabinet hjá Berchtold, var þess vegna sendur til Berlín- ar; og fyrrverandi embættismaður í utanríkis- ráðuneyti Austurríkis-Ungveijalands hefur leyst frá skjóðunni um óheillavænlegt erindi hans og erindislyktir; í fljótræði, eins og Franskir hermenn á leið í blóðbaðið á Vesturvígstöðvunum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.