Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Blaðsíða 6
Ævintýri eftir NICOLO MACCHIAVELLI Belfagor var skuldbundinn til að giftast einhverri konu og búa með henni í hjónabandi í tíu ár. Svo mátti hann látast deyja eðlilegum dauðdaga á jörðinni, flytjast heim og skila skýrslu sinni eftir beztu samvizku. Þorvarður Magnússon þýddi. að var einu sinni mjög heilagur maður, sem var virtur og elskaður af öll- um fyrir dyggðugt lífemi. Einhveiju sinni, er hann var niðursokkinn í bænir sínar sá hann mikinn fjölda fordæmdra sálna þeirra manna, er dáið höfðu í syndum sínum. Hann sá einnig refsingu þá er þeir fengu í neðra. Öldungurinn tók eftir því, að þeir for- dæmdu kvörtuðu ekki yfir neinu eins og því, hve þeir höfðu verið heimskir að taka sér konur, sem steypt höfðu þeim í ógæfuna. Yfirdómarar kölska og allir kviðdómendur urðu yfír sig hissa, þegar þeir heyrðu þetta og þeir fóru að halda, að þeir þekktu ekki nógu vel hvað gerðist uppi á jörðinni. Þeir vildu ekki að órannsökuðu máli skella allri skuld á kvenfólkið og ákváðu að rannsaka þessar sakir betur. Tveir virðulegir yfirdómarar fóru og töluðu um málið við Satan sjálfan og þegar hann hafði heyrt málavexti setti hann saman nefnd hinna færustu erkidjöfla til að rannsaka þessi mál öll og leiða sannleikann í Ijós. Kölski ávarpaði nefndina og sagði: „Heiðr- uðu vinir og dómarar, þar sem það hefur komið í vorn hlut að stjóma þessu volduga ríki vom hér, þá leggjum vér mikla ábyrgð yður á herðar vegna þessa máls. Vér verðum að fara eftir réttum lögum hér í öllum grein- um. Þar sem allir nýliðar hér í ríki voru hafa nú um sinn skellt allri skuld á hið veik- ara kyn og kemur oss það undarlega fyrir sjónir, því vér höfum ekki orðið varir við það fyrr, að kvenfólkið hafi tekið karlmönnum svona langt fram. Þetta mál verður að at- huga niður í kjölinn og hér verður ekkert kæruleysi þolað. Svo óskum vér góðrar samvinnu við yður alla.“ Þegar þetta mál reyndist svona mikilvægt ákvað nefndin, sem var samansett af yfir- dómuram og kviðdómendum, að spara enga fyrirhöfn og vinna af samviskusemi og trú- mennsku. Margir dómaranna álitu best að senda góðan og heiðarlegan erkidjöful upp til jarð- arinnar til að afla upplýsinga frá fyrstu héndi. Aðrir dómarar álitu einfaldast að taka gott úrtak úr hópi nýkominna sálna og pína þær til sagna. Sumir þessara dómara höfðu fundið upp nýjar píningaraðferðir og töldu þeir sig mundu fá sérstakan bónus frá kölska ef þeirra aðferðir reyndust vel og þá sáu þeir jafnframt fram á stöðuhækkun. Meirihluti nefndarinnar hafði samt þá skoðun, að best væri að senda góðan og hlut- lausan fulltrúa upp til jarðarinnar til að rann- saka málið og þetta var ákveðið. Þegar til átti að taka þá vildi enginn af púkunum takast þessa ferð á hendur, þeir vildu heldur sitja í ró og makindum kyrrir í neðra. Þá var ákveðið að láta hlutkesti ráða. Hlutur Belfagors, sem var virðulegur erki- djöfsi, kom upp. Hann hafði áður fyrr verið erkiengill á himnum, en fallið. Hann hafði mikla og fjölbreytta reynslu. Vesalings Belfagor varð að takast þessa ferð á hendur þótt honum væri það sárnauð- ugt. Hann vissi, að ekki þýddi að deila við kölska og vilji hans var lög í ríkinu og eng- inn komst þar upp með neitt múður. Kóngurinn í neðra lét útbúa Belfagor vel með nesti og nýja skó og eitt hundrað þús- und gulldúkata, svo að hann gæti komið fram af fullri reisn á jörðinni og verið húsbónda sínufn til sóma. Honum var svo séð fyrir þægilegri ferð upp til jarðarinnar. Belfagor var skuldbundinn til að giftast einhverri konu og búa með henni í hjóna- bandi í tíu ár. Svo mátti hann látast deyja eðlilegum dauða á jörðinni, flytjast heim og skila skýrslu sinni eftir bestu samVisku. Á þessum tíu árum átti hann að reyna bæði súrt og sætt eins 'og venjulegur maður og ráða fram úr öllum erfiðleikum með eigin skynsemi. Einnig mátti hann beita öllum brögðum eins og venjulegur borgari. Hann mátti búast við heilsuleysi, fátækt, öfund og rógi eins og hver önnur sannkristin sál. Belfagor tók nú við gullpeningunum og fór upp til jarðarinnar ásamt þjónustuliði sínu. Hann tók sér nafnið Rodrigo de Castilla og kom svo fram í Flórensborg. Hann tók á leigu stórt hús í Oginssanti, sem var þá fínt hverfi í Flórens. Hann sagð- ist vera spánskur kaupmaður og að sér hefði gengið illa að græða á Spáni. Svo sagðist hann hafa farið til Sýrlands og þar hefði sér gengið vel og nú sagðist hann koma frá borginni Aleppo. „Og nú er ég kominn til Ítalíu til að leita mér að góðri konu og Flórensborg varð fyrir valinu, vegna þess að ég hef heyrt mikið af borginni látið vegna góðra laga og stjórnar og frábærs siðferðis borgarinnar í öllum greinum. Rodrigo var mjög laglegur maður, á að giska rúmlega þrítugur. Hann bjó þannig að allir sáu að hann hafði rúm fjárráð og marg- ir héldu, að hann ætti auð fjár. Hann var fyrirmannlegur og fijáls í fram- göngu, vel máli farinn og fijálslyndur í skoð- unum, eins og þá var í tísku. Hann dró strax að sér athygli margra manna og göfugra að ættum, en einkum þeirra, er áttu margar dætur og heldur lítið í handraðanum. Rodrigo komst fljótt í kynni við mjög fagra stúlku, er Ónesta hét, dóttir Amerigo Don- ati, sem einnig átti þijá sonu alla uppkomna. Svo átti Amerigo Donati líka þijár yngri dætur, sem vora að komast á giftingaraldur. Þetta var vel metin fjölskylda, en með frekar lágar tekjur. Rodrigo og Ónesta felldu hugi saman og Rodrigo ákvað að halda mjög dýrðlega gift- ingarveislu og gleðja með því tengdafólk sitt. Eftir þetta fór Rodrigo að taka þátt í sam- kvæmislífi borgarinnar og öllum þeim fagn- aði, sem auður gat veitt. Þessi lífsmáti var dýr og kostaði hann mikla peninga. Hann hafði ekki lengi notið samvistanna við hina elskulegu konu sína Ónestu, að hún varð honum svo ljúf, að hann gat ekki neitað henni um neitt. Hann þoldi ekki að sjá hana óánægða með nokkurn hlut. Meðal annarra góðra gjafa, svo sem feg- urðar og ættgöfgi hafði frúin flutt inn á heimilið ósegjanlegt stórlæti, svo sjálfur Lús- ífer komst hvergi í samjöfnuð við hana. Húsbóndi hennar, sem þekkti vel til í efri og neðri byggðum, var ekki í neinum vafa um að frúin bar höfuð og herðar yfir Lúsífer í allri stórmennsku og rembilæti. Nú fór að verða allra veðra von og versn- aði stórum er frúin fékk pata af því, að pen- ingar Rodrigos voru ekki-óþijótandi. Þegar Ónesta komst að þessu ákvað hún að ráða yfir manni sínum og stjórna með járnaga. Þegar frúin fann, að maður hennar mundi standast þessa raun fór hún að skaprauna honum á allar lundir, með mæðgunum og mögli. Hún reyndi að skapa honum óvissu og gera hann reikulan í ráði. Ónesta fékk föður sinn og bróður og alla ætt sína á sitt band, en Rodrigo bar ok hjónabandsins af fullri sæmd og þoldi atlt eins og heilagur dýrlingur og haggaðist ekki í ást sinni til konu sinnar. Það er óþarfí og enda ekki hægt að telja allt það erfiða, sem Rodrigo lagði á sig til að seðja smekk og löngun frúarinnar í fögur klæði og annan fagnað. Ónesta fylgdi alltaf nýjustu tísku í öllum hlutum og allir vita, að- ekki dugar neitt smátt þeim.tískukonum, sem fremstar voru í flökki tískukvenna Fiórensborgar þá frekar en nú í dag; Til að komast sæmilega af við konu sína var Rodrigo þetta ekki nóg, heldur neyddist hann til að taka tengdaföður sinn upp á arma sína og hjálpa honum til að gifta yngri dæt- ur sínar og búa þær út með heimanmund, er ættgöfgi þeirra sómdi. Svo bað Ónesta mann sinn að koma fótun- um undir einn bræðra sinna með því að styrkja hann til vörukaupa. Bróðirinn vildi búa skip sitt vel og sigla til Levantborgar í verslunarerindum. Miðbróðurinn þurfti Rodr- igo að efla til silkikaupa, svo hann gæti stund- að klæðaverslun í stóram stíl í mörgum borg- um. Þriðji bróðirinn vildi gerast gullkaup- maður í Flórensborg. Þannig eyddist mestur auður Rodrigos de Castilla, peningarnir hurfu í eina botnlausa hít. Nú liðu tímar og það var komið undir Jónsmessu og kjötkveðjuhátíðin fór í hönd. Borgin var öll skreytt eins og venjulega. Allir höfðingjar og ríkismenn ætluðu að halda dýrðlegar veislur um hátíðina og enginn vildi vera eftirbátur annars. Frú Ónesta vildi ekki láta neinn skyggja á sig og hún ákvað að maður hennar Don Rodrigo skyldi halda dýr- ustu veisluna. Hann varð eins og venjulega að láta að vilja konu sinnar. Hann vildi gera allt til að hafa frið í húsinu. Hann ól alltaf þær vonir með sér, að hann gæti gert konu sína ánægða. En þetta átti ekki svo að fara. Hroki frúarinnar óx við hveija ósk, sem hún fékk uppfyllta og svo kom, að þjónustulið af báðum kynjum, sem Rodrigo hafði haft með sér úr neðri byggðum, gekk úr vistinni og flúði heim. Þjónaliðið þoldi ekki járnaga frú Ónestu. Rodrigo hafði nú ekki eftir neinn þjón, sem hann gat treyst eða trúað fyrir nokkra máli. Það mátti segja, að honum félli allur ketill í eld, þegar einkaþjónn hans, margreyndur og traustur púki, yfirgaf hann og hljóp sem byssubrenndur burt, beinustu leið til neðri byggða. Allt lausafé Rodrigo var nú uppurið, en hann hafði enn lánstraust. Hann vonaði, að bræður konu sinnar mundu innan tíðar borga eitthvað af skuldunum. Don Rodrigo ákvað að halda rausn sinni og taka lán til stutts tíma hjá víxlara og hætta öllu til, eins og margir stórspekúlantar urðu oft að gera í verslunarbraskinu í Flórensborg. Sjaldan er ein báran stök. Nú komu frétt- ir frá austri og vestri. Einn bræðra Ónestu sóaði öllum þeim peningum, er Rodrigo hafði lánað honum, í teningaspil, sukk og aðra óráðsíu. En sá bróðir frúarinnar, sem gerðist kaupmaður og fór í siglingar, kom siglandi með dýran farm, en allt var óvátryggt. Hann braut skip sitt og sökk það með manni og mús upp við landsteina. Þegar þetta fréttist til lánardrottna Rodr- igo gerðu þeir félag með sér og ákváðu að ganga að honum og hinnheimta allar skuldir hans í einu. Þeir settu njósnara sína honum til höfuðs og áttu þeir að vaka yfír því, að hann gæti ekki strokið úr borginni eða stokk- ið frá óuppgerðu þrotabúi. Rodrigo sá að hveiju stefndi og eins, að skuldheimtumennirnir höfðu öll lög með sér. Hann ákvað að bijóta allar brýr að baki sér og leggja allt undir eitt teningskast og reyna flótta. Sem betur fór bjó hann nærri borgar- múmum rétt við Pratohliðið. Rodrigo tók nú besta hestinn sinn, steig á bak einn morgun fyrir sólarupprás og reið út úr borginni. Flótti hans varð brátt kunnur um alla borg- ina. Lánardrottnar hans létu safna hestum og fengu fjölmennan varðflokk með sér. Þeir stigu á hesta sína og þeystu út úr bbrg- inni ákveðnir að ná Rodrigo með illu eða góðu. Mikill skari borgara elti leitarmennina með miklum gný og hávaða. Rodrigo hafði aðeins einnar mílu forskot, er hann heyrði háreystina í leitarmönnunum og hann sá, að óðum dró saman og flokkurinn mundi brátt koma á hæla honum. Hann yfirgaf þjóðveg- inn og tók stefnu yfír engjar og akra. Hann ætlaði að reyna að fela sig á hentugum stað. Rodrigo fann brátt sér til skelfíngar, að hann var kominn í algjörar ógöngur, því alls staðar milli engja og akra voru ófærar keld- ur og skurðir ásamt görðum og girðingum. Hann steig því af hesti sínum og skildi hann eftir og tók til fótanna og braust áfram gegn- um víngarða og ófæra rósarunna, þar til hann komst til Peretola. Hann flúði inn í hús Matteo del Bricca, landseta Giovanni del Bene.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.