Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Page 10
-m-r **• r 1 • ..V .• • •• x Kerfí a himm og jorð Kristinn R. Þórisson og atferlistæknifræði Hugmyndir manna um „Frelsið“ og FTS. Kristinn er tuttugu og fimm ára, sonur hjón- anna Þóris S. Guðbergssonar fræðslu- og menningarfulltrúa og Rúnu Gísladóttur mynd- listarmanns. Sambýliskona Kristins er Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari. Kristinn er mörgum kunnur fyrir söng, hljóðfæraleik og laga- smíðar með hjómsveitinni Sonus futurae og nú síðast með Hunangsflugunni. Kristinn R. Þórisson er nú að læra atferlistæknifræði í Florida en hann er fyrstur íslendinga til að leggja stund á það nám. Vélmenni? Kristinn vinnur á sumrin við hönnun á slíku tæki hjá Bandarísku geimferðastofnuninni NASA. Viðtal / PLE Morgunblaðið/Bjami Kristinn R. Þórisson. Kristinn lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1984. Hann lauk BA-prófi í sálarfræði frá Háskóla íslands 1987. Næsta ár aðstoðaði hann dr. Erlend Haraldsson við rannsóknir í dulsálarfræði. Eftir að hafa kannað samband lands- manna við aðra heima, hélt Kristinn í vestur- veg og stundar nú nám í atferlistæknifræði við Florida Institute of Technology en þaðan lýkur hann mastersgráðu næsta vor. Morg- unblaðinu hefur borist njósn af því að síðast- liðið sumar hafi Kristinn starfað við hönnun vélmennis fyrir Bandarísku geimferðastofn- unina NASA og næsta sumar mun hann væntanlega halda þeim starfa áfram. Atferlistæknifræði = ? — Atferlistæknifræði, hvað er það? „Eiginlega samruni sálarfræði og verk- fræði, nokkurs konar kerfisfræði þar sem mennimir og þeirra viðbrögð við vélum og tölvum eru óijúfanlegur hluti af kerf- inu. Atferlistæknifræðin tengist líka vinnuvistfræði (ens. ergonomics) sem fjall- ar um aðlögun véla að notandanum. Það má segja að markmiðið sé að búa til kerfi þar sem vélar, tölvur og aðgerðir taki mið af manninum frekar en að maðurinn þurfi að laga sig að kerfinu. Með þessu má m.a. auka afköst, lækka villutíðni, stytta námstíma og auka öryggi kerfa og verk- færa.“ — Viltu nefna dæmi um kerfi sem at- ferlistæknifræðingar fást við? „Það getur verið allt frá brauðristum til borgarskipulags. Við fáumst í raun við öll þau kerfi þar sem menn eru notendur. Sem dæmi um algeng kerfi má t.a.m. nefna flugstjórnarklefa eða stjórnstöð í í kjamorkuveri. Á báðum stöðum er yfrið nóg af stjómtækjum, tölvukerfum, mælum o.s.frv. en það sem skiptir máli er hvemig þeir, sem við þessi tæki vinna, skynja all- an þennan tæknibúnað og bregðast við honum. Það er merkilegt að oft eru at- ferlisfræðingamir kallaðir til í þeim til- gangi að lagfæra kerfi sem búið er að hanna. Þetta er þó að breytast; menn eru famir að átta sig á að það má spara stórfé með því að taka tillit til notandans frá upphafi." — En sumarvinnan, vélmennið hjá NASA, hvað er þar á ferðinni? „Ég vinn hjá undirverktaka NASA í einni af rannsóknarstofum stofnunarinnar, Goddard’s Robotics Laboratory. Þar starfa 40 manns við að hanna vélmenni sem er hluti af 10 ára áætlun um að koma geim- stöðinni „Frelsið“ (ens. Freedom) á braut umhverfis jörðu. Ætlunin er að vélmennið sjái um samsetningu á stöðinni og svo ýmis tilfallandi verkefni. Síðasta sumar var aðallega unnið við fyrstu drög að stjórnstöð fyrir vélmennið, það var m.a. mitt hlutverk að hanna tvær tilraunir til að meta þessa stjómstöð.“ — Semsagt einhver stjómar, vélmennið er ekki sjálfvirkt eða sjálfstætt og „hugs- andi“? „Nei, það er að verulegu leyti fjarstýrt. Vélmennið kemur ekki í staðinn fyrir manninn heldur er það útvíkkun á hæfi- leikum hans og verður ekki nema að hluta til sjálfvirkt. Þetta er einmitt eitt.af því sem gerir hönnunina svo flókna; mörg kerfi, sum sjálfvirk en önnur ekki. T.d. verða notuð gervigreindarforrit sem eiga að fyrirbyggja að stjórnendur ofbjóði ekki gripnum, beiti ekki of miklum styrk, snúi t.d. ekki uppá armana og þess háttar. Vélmennið verður einnig gætt tölvusjón sem gerir því kleift að átta sig á ákveðnum aðstæðum og verkefnum sem það á að geta leyst upp á eigin spýtur — eða öllu heldur með eigin örmum.“ í Mannsmynd? . — Hvað heitir vélmennið? „FTS, Flight Telerobotic Servicer. Jú, það er satt, það er ekki mjög þjált í munni. Satt best að segja erum við enn ekki famir að persónugera það ennþá enda er sfníðin ekki komin langt. Það er alveg til að vélmenni séu persónugerð. T.d. var vélmenni hjá okkur kennt að klippa borða með skærum en svo tók einhver sig til og kenndi vélmenninu að höggva með skær- unum. Og þar með var nafnið fengið, Norman, eftir alþekktri sögupersónu í hryllingsmyndinni „Psycho.““ — Hvers vegna á að nota vélmenni en ekki einfaldlega geimfara? „Fjölbreytnin, með því að skipta verk- efnum milli geimfara annars vegar og vélmenna hins vegar fæst meiri áreiðan- leiki fyrir einföld verkefni og nægur sveigj- anleiki fyrir flóknari störf. Þar að auki vilja bandarísk stjórnvöld auka sjáifvirkni og fjölga vélmennum í iðnaðinum, finnst framfarimar of hægar og hafa miklar áhyggjur af forskoti Japana. Bandaríkja- menn segja að hver dollari sem sé settur í geimferðir skili sér þrefaldur til baka gegnum ýmsa hagnýtingu á geimtækni í iðnaði.“ — Þetta skýrir áhuga stjórnvalda en af hvaða rótum er þinn áhugi sprottinn, vél- menni em sálarlaus? „Ég hef alltaf haft áhuga á vélmennum og einnig geimferðum. Það lá því beint við að sameina þetta tvennt. Vélmenni hafa alltaf heillað mig, í mínum huga er það viss áskomn að búa til tæki sem hag- ar sér eins og maður. Það er skoðun margra að ef það tækist væri sálargátan leyst; maðurinn væri ekki annað en full- komin vél.“ — Heldurðu að það takist? „Það er verkefni sem er þess virði að fást við. Ennþá er ómögulegt að spá fyrir um árangurinn." — Ætlar þú í framtíðinni að fást við kerfisfræði vélmenna í geimnum, í „sjö- unda himni“? „Það gæti hugsast að ég haldi áfram að starfa við rannsóknir tengdar geim- ferðum. Geimferðastofnun Evrópu var t.d. að opna stóra rannsóknarstofu á þessu sviði. En ég hef einnig áhuga á tölvukerf- um, möguleikarnir hér heima eru talsverð- ir.“ — Möguleikar, íslendingar em taldir falla illa að kerfi, frekar ókerfisbundnir? „Ég held ekki að íslendingar séu endi- lega ókerfisbundnir; í sumum tilvikum hugsa þeir um of þröng og sérhæfð kerfi. Lítum t.d. á menntakerfið, í Háskólanum er mjög skýr deildaskipting, á fögum er gerður mjög skarpur greinarmunur. ís- lendingar þurfa að átta sig á nauðsyn þess að tengja fög saman, eins og gert er víða í háskólum erlendis. Þá verðum við betur í stakk búin til að takast á við verkefni sem gætu rétt þjóðarhaginn, bæði með átaki í innlendum kerfum og í hugsanlegum útflutningsvarningi.“ GARÐAR BALDVINSSON Milli lína undir kyrrstæðum frakka rennur slabb og stöku steinn hálfur skór skýst fram svo annar og veggur líður hjá, á þægilegum hraða, fyrir aftan heyrast smáir smellir eins og hlaupið sé hratt bíll hús tré gata þjóta hjá nei það er ekki vinkona mín held ég, áfram líður veggur og slabb blasa við Ijósdeplar í myrkri skærrauðar línur skerast í gleiðu horni nei ég þekki ekki stúlkuna með smellina, er ég beygi fyrir stýft hornið veit ég að hún eltir veggurinn læðist ekki beint meðfram frakkanum hún gengur á eftir mér með smellina í skónum og slabbið, Ijósrandir bráð laglegt andlit hálfir skór færast til hliðar, hún greikkar sporið feti framar mér nei hún kyrr með veggnum áfram mjóir kálfar einn sóli svo annar stunda glas kroppur á ferð mætir öðru fólki hverfur handan þess nálgast þau þrjú andlit yfirhafnir sem nálgast milli línanna án göngulags grilli í hana hverfa svarta fyrir horn og kirkjugarðurinn fullur af legsteinum vaxandi virðingarvottum sem líða hægt en örugglega hjá Höfundur er rithöfundur og þýðandi og hefur gefið út Ijóðabókina „Vegferö í myrkri". Leiðrétting í höfundar- og þýðendakynningu með smá- sögunni Karin eftir Alexander Kielland, sem birtist í jólablaði Lesbókar, urðu þau mis- tök, að einn þýðandinn, María V. Kristjáns- dóttir, var ranglega sögð Karlsdóttir. Leið- réttist þetta hér með. 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.