Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Side 12
nmiiurnim Avalur og mjúkur á alla enda og kanta. urra strokka sem eru 95 eða 128 hestafla. Toyota verksmiðjurnar hafa staðið framar- lega í framleiðslu fjölventlavéla og er þessi vél talin sérlega vel heppnuð með tilliti til viðbragðs og nýtingar eldsneytis. Vélin er með tveimur yfirliggjandi kambásum, fjór- um ventlum við hvern strokk og rismyndað brunahólf en það á að tryggja hraðari sprengingu. Fjöðrun er McPherson með jafnvægisstöng að framan og tveggja arma með jafnvægisstöng að aftan. Diskahemlar eru að framan og skálar að aftan. Sama mýktin einkennir Carina II að inn- an. Innréttingin er hönnuð með fólk í huga, segja þeir í bæklingum og það er að sjálf- sögðu góðs viti. Hveijir aðrir ættu annars að nota svona bíl? En það hefur sem sagt tekist ágætlega. Framsætin eru einkar góð og situr ökumaður vel og nánast óhaggan- legur undir stýri. Stillingar eru góðar á framsætinu og hljóta þau að duga vel til langferða án þess að það hafi sérstaklega verið reynt. Aftursætin fá ekki eins góða einkunn þó að þau henti vel tveimur far- þegum. Seint verður jafnvel búið um þijá menn eins og tvo í aftursæti í þessum venju- legu fólksbílum af millistærð. Mjúkur á Alla Kanta Þegar farið er að aka Carina II má segja að sama mýktin og í útlitinu komi í ljós varðandi fjöðrun og yfirleitt alla aksturseig- inleika bílsins. Þykkar og vel klæddar hurð- ir, góður frágangur á gólfmottum og mjúk fjöðrunin leggjast á eitt með að gera bílinn í senn þýðan og hljóðlátan. Jafnvel þegar ökumaður krefur hann um snöggt viðbragð eða við annað álag er eins og alltaf sé jafn rólegt í orkubúinu. Vélin svarar því umyrða- laust sem hún er beðin um. Af lstýrið er hæfilega létt og gírskiptingin lipur. Mælaborðið er vel búið og ekki þarf að kvarta yfir að erfitt sé að rata á stjórn- tækin eða ná til þeirra. Útsýni er gott til allra átta en þó síst út um afturgluggann. Höfuðpúðar aftursæta eru að vísu ekki fyrir- ferðarmiklir en eru þó hvimleiðir og truf- landi þegar bakka þarf í þrengslum. Hliðar- speglarnir bjarga hins vegar miklu í svona tilvikum. Almennt má segja að auk þess hversu bíllinn er hljótlátur hefur hann gott viðbragð og er allur hinn þægilegasti í akstri. Carina II er meðalstór bíll en hann hefur að ýmsu leyti eiginleika stærri bíla. Hann er rás- fastur og gefur ökumanni strax þá tilfinn- ingu að hér hafi hann traust og öruggt tæki í höndunum sem gefur honum aukið sjálf- straust í umferðinni. VERÐIÐ Eins og hvað úrvalið snertir hjá Toyota má segja að verðið sé einnig all fjölbreytt þegar Carina II er annars vegar. Carina II 1600 XL kostar rúmar 1.150 þúsund krónur í staðgreiðslu. GLi 2000 gerðin er um 100 þúsund krónum dýrari en vilji menn hlað- bakinn þarf að greiða vel yfir 1.400 þúsund krónur fyrir hann. Nálægt þessu verði liggja ýmsar gerðir af Galant frá Mitsubishi. Óhætt er að segja að menn fá hér nokkuð mikið fyrir sinn snúð. Carina II er vandaður og vel búinn bíll sem gera má miklar kröfur til. jt Toyota Carina II er fáanlegur með skotti eða sem hlaðbakur. Rennileg og snörp Toyota Carina II oyota-umboðið P. Samúlesson er með eitt fjöl- breyttasta úrval íslenskra bílaumboða, þeirra sem hafa umboð fyrir eina tegund bíla. Toyota hefur verið á íslenskum bílamarkaði í meira en tvo áratugi og býður sem kunnugt er fjölda gerða fólksbíla og jeppa í ýmsum verðflokk- um. Toyota Carina II verður kynntur í dag en hann hefur tekið allmiklum breytingum. Bfllinn hefur verið hannaður á ný frá grunni og nýjar 1,6 Iítra eða 2,0 lítra og 16 ventla vélar gefa bílnum nauðsynlega snerpu og gott viðbragð. SverSigÍÆttina Eins og oft áður þegar við lýsum hönnun og útliti nútímabílsins hefur Carina mjúkar og ávalar útlínur og er bíllinn allur hinn renpilegasti á að líta. Það gildir um fram- endann þar sem aðalljós og stefnuljós falla vel að gTÍlli og stuðara, að aftan þar sem hið sama er uppi á teningnum og á hliðum er sama mjúka línan ráðandi. Jafnframt sver Carina sig í Toyota fjölskylduna og á til dæmis ýmislegt sameiginlegt með Corolla. Mælaborð er vel búið og jafnvel þar er hin mjúka lína ráðandi. Auk hins hefðbundna fólksbílsmeð skotti er fáanleg_ Carina Liftback eða hlaðbakur eins og við nefnum þessa gerð stundum. Sú gerð gefur meiri möguleika í flutnings- rými, týmið verður 1,7 m langt þegar aftur- sætið hefur verið lagt niður, en rýmið er annars er ágætt í fólksbílnum. Carina II GL gerðin er 4,44 m löng, 1,69 m breið og 1,37 m há. Bíllinn vegur 1035 kg og er hæð undir lægsta punkt 16 cm. Bensíntankur er 60 lítra. Beinskiptur er bfllinn með fimm gíra kassa eða fjögurra gíra sjálfskiptingu. Sem fyrr segir er Carina II fáanleg með 1,6 eða 2,0 lítra vélum, fjög- Ford Fiesta hefur átt velgengni að fagna víða í Evrópu. Transit hefur þjónað sem sendibíll og minni fólksflutningabíll. Metár hjá Ford í Evrópu Framleiðsla Ford-bíla í Evrópu á síðasta ári slær öll fyrri met og jókst hún frá fyrra ári um 2,5% á fólksbíla og um 12% á sviði sendibíla af minni gerð og millistærð. Alls voru framleiddar 1,6 milljónir fólksbíla og 243 þúsund sendibílar voru framleiddir í verksmiðjum fyrirtækisins í Belgíu, Bret- landi, Vestur-Þýskalandi, Spáni og Portúg- al. Forráðamenn Ford í Evrópu segja að samkeppni við japanska bíla hafi brýnt þá til dáða og með þessari aukningu hafi staða Ford styrkst í þeirri samkeppni. Þeir ótt- ast þó að ekki verði um aukningu að ræða á þessu ári nema að nýjungar sem koma í ljós síðar á árinu laði nýja kaupendur að fyrirtækinu. Besta söluvara hjá Ford í Evrópu var á síðasta ári Fiesta en Escort og Sierra fylgdu fast á eftir. Ford Fiesta hefur verið söluhæsti bíllinn i sínum stærðarflokki í nokkrum Evrópul- öndum og Transit er söluhæsti sendibíllinn í Evrópu þriðja árið í röð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.