Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Page 13
LESBÓK
iiiiii si í m e H ® ® i j] ® ®
20. JANUAR 1990
Útivistarhópur á gönguskíðum
á Breiðamerkurjökli.
Útivistarhópur á Hornströndum. Þátttakendur bera með sér mat,
tjald og fót.
Utivist
- 15ÁRAÍMARS
Félagið
verður með
245 ferðir á
þessu ári
Góðir ferðafélagar, gott skipu-
lag og góður fararstjóri telst
vera skilyrði fyrir góðri ferð,
samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar meðal farþega
ferðafélagsins Utivistar síðast-
liðið sumar. Það kom líka á
daginn að rúmlega 90% far-
þega voru svo ánægðir með
ferð sína, að þeir gáfii henni
einkunnina góð eða mjög góð.
í Reynishverfi, Reynisdrangur í baksýn. Það er oft
freistandi að vaða I sjónum.-en kaldur er hann.
Útivist býður upp á fjölbreyttar
ferðir, nefna má bakpokaferðir,
fjallgöngur, skíðagönguferðir,
hjólreiðaferðir, skautaferðir,
tunglskinsgöngur, skrautsteinale-
it, grasaferðir, kræklingaferðir,
sveppaferðir, berjaferðir og enn
er fjöldinn allur ónefndur. Við
lauslega talningu virðist sem Úti-
vist bjóði upp á rúmlega 30 teg-
undir ferða. Líklegt er að allir
geti fundið ferðir við sitt hæfi.
í öllum ferðum Útivistar er
fararstjóri og leggur félagið
áherslu á að allir fararstjórarnir
hafi til að bera landfræðilega og
sögulega þekkingu á því svæði
sem ætlunin er að fara um. Farar-
stjórar félagsins leggja einnig
metnað sinn í að gera ferðimar
fræðandi og skemmtiiegar fyrir
farþega sína.
Dagsferðir eru stuttar ferðir.
Oft er boðið upp á tvær ferðir á
dag og lagt af stað kl. 10 eða 13.
í helgarferðir er lagt af stað á
föstudagskvöldum kl. 20 og
komið til baka seinni part sunnu-
dags. Sumarleyf isferðir eru aðeins
í júní, júlí og ágúst. Þær stystu
eru fjögurra daga en þær lengstu
tíu daga.
Ferðaáætlun Útivistar fyrir
árið 1990 kom út í byijun mánað-
arins. Félagið býður í ár upp á
245 ferðir. 142 dagsferðir, 79
helgarferðit- og 24 sumarleyfis-
ferðir, auk utanlandsferða, en
undanfarin ár hefur verið boðið
upp á gönguferðir á Grænlandi
og í Noregi. Nýja ferðaáætlunin
eru óvenju glæsileg, bæði að efni
og útliti, enda stendur félagið á
tímamótum. Árið 1990 er afmæl-
isár, því í mars eru 15 ár liðin
frá stofnun Útivistar og verður
haldið upp á það á margvíslegan
hátt.
Raðferðir
Raðferðirnar hafa verið mjög
vinsælar á undanförnum árum.
Nú er helsta raðferðin Þórsmerk-
urgangan. Gengið verður frá
Reykjavík austur í Þórsmörk í 17
áföngum, dagsferðum. Fyrsta
ferðin var 14. janúar og síðasta
ferðin verður 22. september og
verður á komið inn í Þórsmörk.
Leitast verður við að ganga
gamlar þjóðleiðir. Sögurfróðir
menn verða fengnir til leiðalýs-
inga, jafnt heimamenn sem og
aðrir. Farið verður yfir ár á vöðum
og lýkur ferðaröðinni með mikilli
veislu í Básum í Þórsmörk.
Onnur ferðaröð er Esjuhringur-
inn. Gengið verður í áföngum
með hlíðum Esju enda er þar víða
mjög fagurt og margt athygli-
svert, t.d. skrautsteinar. Báðar
þessar ferðaraðir eru við allra
hæfi, en sú þriðja, Fjallahringur-
inn, er fyrir þá sem vilja reyna
aðeins meira á sig. Þá er gengið
á fjöll á höfuðborgarsvæðinu og
í nágrenni þess. Fjórða raðferðin
eru svokallaðar Þjóðháttaferðir,
en það eru ferðir tengdar íslensk-
um þjóðháttum frá fyrri tíð. Þá
koma til sögunnar fróðir menn,
með sérþekkingu sem varpa ljósi
á einstök viðfangsefni, t.d. Bauka
Jón í Leirársveit, útilegumanna-
byggðina í Eldvarpahrauni við
Grindavík, grasnytjar eða Prest-
astíg á Reykjanesi svo nokkur
dæmi séu tekin.
I fyrra reið Útivist á vaðið og
bauð upp á nokkrar hjólreiðaferð-
ir. Þær urðu strax mjög vinsælar
og þykir vel við hæfi að taka
þær inn í ferðaáætlunina. Reið-
hjólaferðir eru bráðskemmtilegur
ferðamáti, ekki síst með tilkomu
fjallahjóla, sem þola meira hnjask
en venjuleg reiðhjól. Boðið verður
upp á fjölmargar dagsferðir á
reiðhjólum undir leiðsögn farar-
stjóra. Vakin er athygli á 5 daga
hjólreiðaferð um slóðir Haukdæla
og um eldbrunnið Reykjanes, auk
nokkurra tveggja daga ferða.
Gönguskíði hafa náð miklum
Sjá næstu síðu.