Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1990, Blaðsíða 14
Sjómönnum bjóðast hag- stæðar ferðir til Portúgals ORLOFSNEFND sjómanna og ferðaskrifstofan Evrópuferðir hafa nýlega gert með sér sam- komulag, þar sem Evrópuferðir veita sjómönnum og fjölskyldum þeirra 10% afslátt af gistingu í Portúgal og á flugleiðinni London-Portúgal- London. í viðtali við Þórð Sveinbjömsson sagði hann æskilegt að sjómannafélögin nýttu orlofssjóðina til að létta undir með eldri féiagsmönnum, auðvelda þeim að ferðast og hvfla sig. „Við viljum ekki ein- göngu byggja hús á ákveðnum stöðum. Alltaf getur eitthvað komið upp í heiminum og fjárfesting orðið ónýt. Oft reynist betra að vera á leigusamningum. Þá er hægt að færa sig til, ef þurfa þykir.“ Orlofs- nefndin er þess fullviss að þessar ferðir eru hagstæð- ar, einkum á þeim árstíma sem nú fer í hönd. En í samningnum er gert ráð fyrir, að Evrópuferðir bjóði almennar ferðir fyrir einstaklinga og hópa, en líka sérhæfðar ferðir fyrir eftirlauna- og eldri borg- ara. Þórður segist sjálfur hafa ferðast til þeirra staða sem eru í boði og segir að Portúgal henti sjómönnum vel af eftirtöldum ástæðum: 1. Lítil mengun 2. Ekki yfirþyrmandi ferðamannafjöldi. 3. Frábærir fiskrétt- ir, enda eru Portúgalir mikil fiskveiðiþjóð. 4. Mun lægra verðlag en á Spáni. 5. Fóikið er mjög þægilegt og f lestir tala ensku, en þýsku- og frönsku- kunnátta líka algeng. 6. Góðir möguleikar til afþrey- ingar í sjóstangaveiði, sjósporti og fleiru. 7. Gistiað- staða fjölbreytt og til fyrirmyndar. Tiltölulega fáir íslendingar hafa farið til Portúgal, en allir hafa komið til Spánar. Læknisþjónusta verður aukin, ef þátttaka verður meiri.“ Orlofsnefndin hvetur alla sjómenn til að kynna sér vel valkosti og hafa samband við Evrópuferðir. Auðveldar hótel- pantanir í London Hótel í London — allt frá gist- ingu og morgunverði upp i lúx- usgistingu — er hægt að bóka með Visakorts-númeri með því að hringja á skrifstofutíma í Ferða- málaráð Lundúna. Sími: 824-8844. Bókunargjald um 430 kr. leggst við og'10% staðfest- ingargjald. Einnig er hægt senda skriflega pöntun og fá staðfest- ingu á bókun, ef pantað er með 6 vikna fyrirvara hjá: Accommod- ation Department, London Tourist Board, 26 Grosvenor Gardens, Victoria, London SWIA ODU. Líka er hægt að panta frá Heat- hrow-flugvelli, Viktoríu- brautarstöðinni, í Tower of Lon- don og stórverslunum Harrods og Selfridges. A Ahugaverð hótel á Italíu MJÖG áhugaverð hótel eru að byggjast upp á Ítalíu. Hótelkeðja sem nefnir sig „Humania" er með þjónustu sína eingöngu í fallegum, endurnýjuðum herra- görðum, höllum, sveitasetrum og klaustrum, sem standa meðfram stígvélalagaðri strönd Suður- Ítalíu. Humania-hótelin eru farin að veita ítölsku CIGA-hótelunum samkeppni um ánægjulega dvöl. Undir þessu merki er strandhótel- ið, Residence San Michele, nálægt Cetraro, sem sagt er að sé eina góða hótelið í Calabríu. Á snjólaus- um braut- um Alpanna - og troðnum, takmörkuðum Útivist vinsældum hér á landi og er ekki nema eðlilegt að Útivist fylgi tíðarandanum og uppfylli óskir farþega um lengri og skemmri gönguskíðaferðir. Þó svo að félag- ið hafi áður boðið upp á göngusk- íðaferðir á jökla og inn á hálend- ið, þá hefur fjölbreytnin í þessum ferðum aldrei veirð meiri en nú. í vetur er boðið upp á skíðaferðir í nágrenni Reykjavíkur um hveija helgi fram til vors. I skíðaferðun- um eru sameinuð námskeið og leiðbeiningar til þeirra sem skemmra eru á veg komnir í íþrótt- inni, en annars eru ferðirnar miðaðar við alla aldurshópa, rétt eins og almennar gönguferðir á vegum félagsins. Vakin er athygli á tveimur helgarferðum á gönguskíðum. Annars vegar frá Húsafelli til Þingvalla og hins vegar úr Bláfjöllum í Krísuvík. Hvort tveggja eru tjaldferðir. Páskaferðir Útivistar eru eftir- sóttar. Þá eru á dagskrá ferðir í Við Álftavatn. Úti- vistarhópur á gönguleiðinni milli Landmanna- lauga og Þórs- merkur. skíðabrekkum Kannski er kominn tími til að hætta að tala um „skíðafrí" i Ölpunum fyrri hluta vetrar. Þegar litið er á hin takmörkuðu snjóalög og fjöldann sem hópast þangáð, er oft ekki möguleiki á að skíða og ekki heldur æskilegt — bæði hættulegt og fer ekki vel með „nýju skíðin", sem voru keypt fyrir ferðina! Á þessum árstíma er ekki ráð- legt að heimsækja Alpana, ef leit- að er að góðum skíðasnjó til að renna sér frá morgunbirtu fram í rökkur. Margir fara samt og verða að finna sér aðra afþreyingu en skíðaíþróttina. Vissulega erú flestir staðir komnir með tilar brekkur, en þær eru takmarkaðar og svo mikið notaðar að um há- degisbil er iðulega komið niður á grasrót. Þá er að velja sér skíða- staði, þar sem hægt er að komast upp á jökul. En fjöldinn getur verið svo mikill á svæðinu, að þarf ferðir upp á jökul og auðvitað gengur staðarfólk fyrir. Þá er að gera það besta úr fríinu, draga upp gönguskó, ganga á fjall og fá sér góðan hádegisverð á sólríkum útsýnis- svölum í einhverju af hinum Hópur frá Útivist í leit að steingerv- ingum í Öræfa- sveit. Þórsmörk, Þjórsárdal, Öræfin, á Snæfellsnes og víðar. í þessum ferðum eru skíðagönguferðir á Snæfellsjökul og Óræfajökul, göngur á láglendi í fögru um- hverfi o.s.frv. Fleira mætti ’nefna úr Ferðaá- ætlun Útivistar, sem dreift er víða um höfuðborgarsvæðið og liggur á skrifstofu Útivistar í Grófinni 1 í Reykjavík. Ferðaáætlunin er að sjálfsögðu ókeypis.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.