Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1990, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1990, Side 9
Wrangler Lipur og vel búinn Jeep Gamli Willys-jeppinn hefur dugað vel á ís- landi og gerir enn og nú býður Jöfur í Kópa- vogi Jeep Wrangler Hardtop sem er beinn arftaki þess gamla sem enn þeysir uin byggðir og óbyggðir landsins. Wrangler er nú vel búinn jeppi með ýmsum nýjungum sem Willys gat ekki státað af en byggir þó að sjálfsögðu á öllu því góða sem Willys er þekktur fyrir. Wrangler kostar líka yfir 1.650 þúsund krónur kominn á götuna og hægt er einnig að fá dýrari útgáfu sem kostar 1.829 þúsund krónur. Útlit Jeep Wrangler Hardtop er vel þekkt og við látum myndirnar nægja til að lýsa því. Menn hafa farið varlega í breytingar á 50 ára ferli og hjá Wrangler eru gömul ein- kenni til staðar. Búnaður -er þessi helstur: 2,5 lítra yfir 100 hestafla, fjögurra strokka vél með beinni innspýtingu, vökvastýri, fimm gíra beinskipting, leðurklætt, velti- stýri, klædd veltigrind og klætt mælaborð með öllum nauðsynlegum mælum. Teppi eru á gólfum og sætin eru smekklega klædd. Fjórhjóladrifið er búið læstu mismuna- drifi og er auðvelt að skipta milli eindrifs og aldrifs og milli háa og lága drifsins. Wrangler er búinn blaðfjöðrum, hlífðar- panna er undir millikassa og bensíntanki sem tekur 76 lítra og hjólbarðar eru 215/75x15, eru vel grófir og mjúkir. Wrangler er 3,876 m langur (að varahjól- inu meðtöldu sem fest er á neðri hluta aftur- hurðar), breiddin er 1,676 m og hæðin 1,753 m. Lengd milli hjóla er 2,373 m. Bíllinn vegur 1425 kg og ber 475 kg. Bensíneyðsl- an er sögð vera 15 lítrar á hundraðið í bæjarakstri en dettur rétt niður fyrir 10 lítra við jafnan 90 km hraða í akstri úti á vegum. Enginn íburður íburður er ekki fyrir hendi í Wrangler en þar er þó allt sem þarf. Bíllinn er sem fyrr byggður fyrir akstur í torfærum og vegleysum en segja má að þægindin komi einkum fram við akstur í borg. Vökvastýrið og þó sérstaklega fimm gíra skemmtilegur gírkassi með mjög skiptingu gera bílinn að leikandi léttum smábíl í bæjarumferðinni. Það er ekkert mál að snúa og leggja og gott útsýni til að athafna sig í þrengslum. Baksýnisspegillinn er þó settur fullneðarlega á framrúðuna og truflar hann útsýnið nokk- uð þegar beygt er til hægri. Framsætin eru allgóð og aftursætið er svo sem ekki merkilegt en sæmilega fer þó um tvo farþega þar. Betra þó að þeir séu Jeep Wrangler með plasthúsi. Mælaborðið er klætt og vel búið mæl- um. Hanskahólf er lítið er stórgeymslu- kassi er milli íramsætanna. Farangursrýmið er ekki mikið nema aftursætið sé lagt fram. Það þarfheldur ekki mörg handtök til að kippa því al- veg úr. Nokkuð þungt er að lyfta framsætinu fram til að komast í aftursætið. Wrangler er búinn blaðfjöðrum og er náttúrlega ekki mjúkur. Hann fer allvel í holur á malarvegum, ekki síst ef honum er ekið'í aldrifi, en hann á það til að skvetta sér aðeins til hliðar. Hann nýtur sín að sjálf- sögðu best utan vega eða á grófum vegum - á því svæði sem hann er gerður til að athafna sig á. Traust og einfalt Trúlegt er að Jeep Wrangler Hardtop haldi áfram að eignast aðdáendur hérlendis. Vissulega er jeppinn dýr en hér kaupa menn án ef traustan bíl sem endist vel og lengi. Allur er hann einfaldur í sniðum og frá- gangi sem ætti að auðvelda viðhald og alla meðferð. Sem fyrr segir kostar hann kr. 1.657 þúsund krónur með þeim búnaði sem fyrr var talinn upp. Dýrari gerðin kostar um 1.830 þúsund og er hann búinn álfelg- um, krómuðu grilli og stuðurum, hátölurum og loftneti, meiri hijóðeinangrun og Laredo röndum á hliðum. jt Varahjólið er fest á afturhurðina og verkfæri eru í vélarhúsi. ekki af stærri gerðinni. Þegar sest er í fram- sætin verður fljótt vart við hvimieiðan galla en það er öryggisbeltið. Mjög þröngt er að ná því upp meðfram hurðinni og þarf helst að gera það áður en lokað er. A sarna hátt hefur það tilhneigingu til að lenda í hurða- falsinu þegar stigið er út úr bílnum og klemmast á milli. Kraftur og vinnsla eru með ágætum. Vélin á að skila bílnum í 145 km hámarks- hraða en hún er sem fyrr segir fjögurra strokka, 2,5 iítra og með beinni innspýt- ingu. Wrangler er ekki mjög snöggur í við- bragðinu en þó þarf ekki að kvarta yfir kraftinum eða vinnslunni þegar hann hefur aðeins náð sér af stað. Hávaði frá vél er nokkur og þarf aðeins að hækka röddina í samræðum í akstri. ' Mórgunblaðið/Bjarni Davíð Davíðsson forstöðumaður bifreiðadeildar Globus. Globus kynnir nýjungar frá Ford Globus hf. við Lágmúla í Reykjavík sem tók á dögunuin við Ford-umboðinu hefur nú afhent fyrsta bílinn sein það afgreiðir og var það Escort sem fór til Vestmanna- eyja. Forráðamenn Globus segja að fyrstu vikurnar verði sala á Escorl og Sierra aðalverkefnin en síðar í sumar er að vænta nýjunga, svo sem Fiesta, nýs Bronco jeppa sem heitir nú Explorer og Aerostar sem er nýr ein- eða tvídrifinn sendibíll eða ferðabíll. Davið Davíðsson er forstöðumaður bif- reiðadeildar Globus segir að nýjungarnar frá Ford komi á íslenskan markað smám saman í sumar og haust. Nýja gerðin af Fiesta hefur slegið sölumet í Evrópu, m.a. gamalt met frá Golf. Útlit er nýtt frá grunni og innrétting og verður Fiesta fáanlegur með sjálfskiptingu og beinskiptingu, 1100 og 1400 vélum, 45 eða 55 hestöfl og 3 eða 5 dyra. Broncoinn er nú nýr frá grunni og heitir nú Explorer. Þar er um að ræða stærri bíl og meiri en þann gamia Bronco. Hann er i flokki lúxusjeppa og mun trúlega kosta á •bilinu 2,4 til 3 milljónir króna. Hann verður með 4,9 lítra, 6 strokka og 155 hestafla vél með beinni innspýtingu. Af öðrum áhersluatriðum frá Ford nefnir Davíð bílana Econoline og Transit en bílar af báðum þessum gerðum eru boðnir í margs konar útfærslum og til margs konar verka, fólksflutninga sem vöruflutninga. jt LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. APRÍL 1990 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.