Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1990, Qupperneq 11
FERD4BLÍÐ
lesbókar
Aukin ferðaþjón-
usta á Isafirði
Nýr skemmtiferðabátur og- ný lyfta
í Seljalandsdal
Á Isafirði er búið að stofna hlutafélag, til að reka skenuntibát,
sem þegar hefúr fest kaup á Brimrúnu, bát Eyjaferða í Stykkis-
hólmi. Brimrún tekur 21 farþega og verður tekin í notkun í maí.
I Seljalandsdal verður örugglega hægt að skíða langt fram eftir
sumri, því nógur er snjórinn. Hótel Isaíjörður og Flugleiðir bjóða
helgarferðir til ísaljarðar.
Undanfarin ár hefur mikið ver-
ið spurt um bátsferðir á ísafirði,
bæði í útsýnisferðir og til að í
komast í Jökulfirði og á Horn-
strandir. Brimrún mun halda uppi
daglegum skoðunarferðum um
Djúp eftir hádegi, en á öðrum
tímum er gert ráð fyrir sérferðum
á ýmsa áfangastaði fyrir hópa.
Skoðunarferð um Djúp tekur 2 'l>
til 3 ’A tíma og sú ferð er á dag-
skrá alla virka daga, en á sunnu-
dögum er áætlað að fara í Jökul-
firði. Ferð í Jökulfirði tekur um 5
tíma fram og tilbaka og ferðin á
að tengjast áætlunarbílum og
flugi Flugleiða til og frá
Reykjavík.
A ísafirði er nógur snjór og
mikið við að vera. Aðeins 5 km
eru í Seljalandsdal frá bænum.
Þijár skíðalyftur flytja fólk upp í
brekkur, þar af ein ný, sem sett
var upp í fyrra. Sú lengsta er
1.250 m og annar 650 manns á
klst. Efsta lyftan er aðeins fyrir
hugað skíðafólk og liggur upp í
brekku, sem talin er ein sú bratt-
asta í Evrópu! Troðnar brautir
liggja um skemmtileg göngu-
skíðasvæði. Hótel Ísaíjörður og
skemmtistaðirnir þrír leggjast á
eitt til að dvölin verði sem ánægju-
legust. Um helgar er lifandi tón-
list á hótelinu, hljómsveitir á
skemmtistöðunum og bíó. Og í
veitingasal hótelsins er boðið upp
á úival ljúffengra rétta. Fyrir
börn er leikhorn og barnamat-
seðill.
Flug, gisting í 2 nætur í tvíbýli,
morgunverður og lyftugjöld í 1 'A
dag kostar 9.700 kr. Aukanótt
kostar 2.000 kr., skoðunarferð
með Brimrúnu um Djúpið 1.800
kr. (hressing innifalin) og ferð í
Jökulfirði 1.500 kr. aðra leið.
»
Að vera farþegi með Arnarflugi
Arnarflug er mikið í fréttum. Viðkvæm fjárhagsstaða er í
sviðsljósi og rætt um aukið „hlutafé“ til að leigja flugvélar og
halda þeim á flugi. Ejn leiguvél er tekin af félaginu áður en
leigutími rennur út. Önnur er að koma, en kemur ekki! Sú
þriðja er væntanleg, en seinkar vegna bilunar. Allt er þetta
fréttnæmt, en sjaldan er talað um, hvemig er að vera farþegi
með Arnarflugi eða hvaða orðstír félagið setur á ísland og
íslenska ferðaþjónustu.
Heyrst hefur að þetta margir
farþegar Arnarflugs séu
strandaglópar í Amsterdam,
Hamborg eða Reykjavík og bíði
eftir áætlunarflugi, sem ekki
kemur! Farþegum er síðan komið
eftir millileiðum á áfangastað.
Nýjustu fréttir frá Arnarflugi
voru að það tók farþega næstum
sólarhring að komast til Amst-
erdam frá Keflavík!
Viðmælandi minn kynntist því
nýlega hvemig er að vera með
erlendan ferðamann, sem átti
bókað flug með Arnarflugi til
Hamborgar. Um var að ræða 14
ára pilt, sem er óvanur að ferð-
ast og dálítið hræddur við að
fljúga. Pilturinn var með
„apex“-miða (fasta brottför 5.
apríl) og vildi heldur fljúga beint
til Hamborgar en í gegnum
Kaupmannahöfn. En á umrædd-
um tíma lá áætlunarflug Arnar-
flugs niðri vegna flugvélaskorts!
Leyfi til að framlengja miðanum
var því auðfengið hjá félaginu,
enda hagkvæmara að láta bók-
aðan farþega fljúga með „Arnar-
flugsvéT*. Bandarísk vél með er-
lendri áhöfn var væntanleg til
landsins. Áætluð brottför kl.
14.00, 8. apríl.
Að fljúga áfram á þotu- og tölvuöld!
Kostnaður viðskiptaferðalaga hækkar stöðugt
Árið 1980 óx kostnaður við
viðskiptaferðalög um 94%
miðað við 50,4% aukningu
á vísitölu framfærslukostn-
aðar. Eflirfarandi tafla er
byggð á kostnaði í þriggja
daga hringferð á 20 helstu
flugleiðum í heiminum.
Máltíðir, gisting og bíla-
leiga eru innifalin. Flugfar-
gjöld og verð voru prófúð
fjórum sinnum árlega.
Síðasta súlan sýnir kostnað-
arhækkun 1989 frá 1980.
Upplýsingar frá áætluðum
brottfarardegi 5. apríl voru mjög
óljósar. Vélin var alltaf um það
bil að koma til landsins. Það var
fyrst þegar hringt var í milli-
landaflug Flugleiða, að þær
fréttir fengust að vélin væri loks-
ins lögð af-stað, en hefði bilað
á millilendingarstað í Kanada.
Farþegum var haldið í biðstöðu
laugardaginn 7. apríl og sunnu-
daginn 8. apríl. Það var fyrst
kl. 4.30 á sunnudag, sem til-
kynnt var að vélin væri væntan-
leg til landsins um kvöldið og
flogið yrði kl. 7 næsta morgun,
9. apríl! Fjögurra daga seinkun
á áætlunarfluginu til Hamborg-
ar! Vegna óljósra upplýsinga og
biðstöðu í málinu tókst ekki að
ná í foreldra drengsins.
Síðdegis á sunnudag hringir
móðir drengsins, alveg niður-
brotin, frá Hamborgarflugvelli.
Henni hafði verið tilkynnt að
vélin væri „kabut“, sem hún
skildi fyrst á þann veg að vélin
hefði farist! Siðar var henni sagt
að engar upplýsingar lægju fyr-
ir. Þjóðveijar eiga mjög erfitt
með að skilja hvernig hægt er
að fella niður áætlunarflug og
siðan sé engu að treysta! Sá 14
ára var líka orðinn hræddur og
ýmsar spurningar vöknuðu: „Er
þetta gömul vél? Hafa þeir aldrei
flogið til íslands áður?“ Það var
hrædd móðir sem beið eftir syni
sínum með leiguvélinni á mánu-
dagsmorgun (vélin lagði af stað
frá Keflavík um kl. 8) og dálítið
óttasleginn farþegi, sem flaug
með.
Eitthvað þessu líkt hlýtur að
hafa komið upp áður, vegna tafa
eða niðurfellinga á „áætlunar-
flugi“ þessa félags. Og eftirfar-
andi spurningar hljóta að vakna:
Er nægilegt öryggi í því að vera
samfellt með leiguvélar, sína frá
hvorum aðilanum og ef til vill
með ófullnægjandi skoðunar- og
öryggisvottorð — eða a.m.k.
umdeilanleg, eins og til dæmis
Afríkuvélin? Kannski eru íslend-
ingar búnir að sætta sig við
endalausar tafir hjá félaginu,
fyrst lítið heyrist frá þeim, en
áreiðanlega ekki erlendir ferða-
menn, sem ekki hafa orðið fyrir
sambærilegri reynslu annars
staðar. Hvaða áhrif skyldi þessi
þjónusta flugfélagsins hafa á
íslenska ferðaþjónustu almennt?
Hlýtur hún ekki að draga úr
fjölda ferðamanna til lands og
þeirri þjónustu sem okkur er
lífsnauðsyn? Hvernig væri að
snúa dæminu við, þannig að það
væru KLM eða SAS, sem kæmu
svona fram við íslenska ferða-
menn og biðu okkur slika þjón-
ustu? Ætli viðbrögðin yrðu ekki
höi'ð!
Oddný Sv. Björgvins.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. APRÍL 1990 1 1