Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1990, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1990, Page 11
ið er ráðstefnumiðstöð á bryggj- unni. ★ Salur fyrir 180 manns. ★ Veitingahús fyrir 120 manns. ★ Níu minni ráðstefnuherbergi fyrir 10-40 manns. ★ Setustofaeðahvíldarherbergi. ★ 700 fm sýningarsvæði. Verðdæmi: kr. 4.185 á mann í tveggja manna gistingu. Ókeypis fyrir börn innan 10 ára. Ókeypis fundarherbergi fyrir 25 manna gistihóp. Upplýsingar hjá: Nyvágar, Lof- oten, boks 42, 8301 Svolvær, Norge. Sími: 088/78 900. Telefax: 088/78 950. O.Sv.B. Lófóten innan hringsins á Noregskortinu. Ferðamannaþorpið á bryggjunni í Lóf'" Litlu sjómannahúsin. B) Þjónustumiðst Stóra-naustið. Gisting í húsbátum minnir á Kashmír í Indlandi eða húsbátafólkið í Tælandi. Og húsbátagisting fyrir ferðamenn tengist yfirleitt hlýju loftslagi. En norður við heimskautsbaug í Lófóten fara Norðmenn ekki troðnar slóðir í ferðaþjónustu. Þar er boðið upp á nýstárlega gistingu í „bryggjuhúsum" eða litlum „sjómannahús- um á dúandi bryggjusporði"! - Við viljum að gestir okkar komist í náin kynni við sjó- mannalíf í nyrstu höfum - segir í kynningu, - og hvað er þá betra en gista í hefðbundnum sjó- mannahúsum. Sjómenn hér um slóðir hafa ailtaf viljað eiga heima sem næst sjónum og gjarnan byggt hús sín, þar sem haf og land mætast. Og við bjóðum slíka sjómannagistingu fyrir ferða- menn. í Nyvágar í Lófóten eru 30 lítil sjómannahús til leigu. Aðstaða er fyrir fatlaða og nóg við að vera (opin dagskrá) fyrir börn og full- orðna - hjólreiðar, ijallgöngur, köfun, sjóferðir með „heim- skauta-gufuskipi" - Lófóten-safn og sjódýrasafn í göngufæri. Dægradvölin gengur að sjálf- sögðu mest út á fisk^éíðar. í þjón- ustumiðstöð er hægt að verka fiskinn og frysta. Eftir veiðiferð býður sturta og gufubað. Sérstakt andrúmsloft ríkir í bryggjuhúsinu. Ölduhljóðið er róandi. Og um- hverfið vel til þess fallið að hrista burtu hversdagsdrunga. Miðnæt- ursólin skín heiðríkar sumarnæt- ur. En hauststormar geta líka barið á bryggjunni. „Stornaustet" eða Stóra-naust- ^ V... Svipmyndir frá Lófóten. Búdapest og Vín undirbúa „EXPO ’95“ Undirbúningur er í fullum gangi bæði í Vín og Búdapest fyrir heimssýninguna „EXPO ’95“. Ný hótel munu rísa í báðum borgum; - ný hraðbraut, ný hraðlest og auknar samgöngur loftpúðaskipa eftir Dóná munu auka tengsl milli borganna. Ennþá eru 5 ár þangað tii, en mikil eftir- vænting ríkir í báðum höfuðborgum. „EXPO 95“ ber yfirskriftina „Biýr til framtíðar" og er ætlað að undirstrika endurfæðingu Mið-Evrópu. Borgarstjórar og yfirmenn skiptast á heimsóknum. Og arkitektar, borg- arverkfræðingar, bankamenn og yfirmenn ferðamála, sem taka þátt í framkvæmdum, skipta hundruðum! Framtíðarhraðlestinni er ætlað að flytja ferðamenn á milli borganna á aðeins 90 mínútum! En þúsundir streyma á milli borganna í hverri viku, síðan landa- mærin voru opnuð. 130 mílur aðskilja Búdapest og Vín, en Dóná tengir höfuðborgirnar og enn fremur sameiginleg saga og menning. Hugmyndin á bak við sameiginlegt átak, kom fyrst upp, þegar Járntjaldið féll - með öllum sínum rafmagnsgirðingum og varðturnum! Eftir pólitískar breytingar í Tékkóslóvakíu, hafa Tékkar sýnt mikinn áhuga á að vera með í „EXPO 95“. Og Bratislava við Dóná - nær Vín en Búdapest - mun taka þátt í undirbún- ingi. Einnig er líklegt að Prag muni verða með. Það verður forvitnilegt að sjá „EXPO 95“! O.SV.B. / LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 12. MAÍ 1990 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.