Lesbók Morgunblaðsins - 20.04.1991, Síða 11
Pontiac Trans Sport fjölnotabíll
MorgUnblaoio/KGA
Pontiac Trans Sport fjölnota bíll dugar vel í borgarumferð sem á þjóðvegum.
Farangursrými er orðið lítið ef öll sjö sætin eru notuð. Bak þeirra má hins vegar
leggja fram eða kippa einu sæti út til að fá meira rými.
Pontiac Trans Sport SE heitir einn af
þessum bílum sem við höfum kallað
fjölnota eða alhliða ferða-, sendi- eða
fjölskyldubíl en það er Jötunn við
Höfðabakka í Reykjavík sem hefur
umboð fyrir þessa bíla eins og aðra frá
•x General Motors. Við skoðum Trans
Sport í dag en þetta er tæplega fimm
metra langur framdrifinn bíll með
þriggja lítra vél og ríkulegum búnaði
og kostar hann um 2,5 miHjónir króna.
Trans Sport er sem fyrr segir í flokki
þessara íjölnota bíla sem eiga sífellt meiri
vinsældum að fagna víða um lönd, þ.e.
bíla sem við þekkjum aðallega sem sendi-
bíla en eru nú búnir sætum fyrir fimm til
átta manns, með öllum þægindum fólks-
bíla og ýmsum búnaði er gerir þá að hent-
ugum ferðabílum.
Vekur athygli
Pontiac Trans Sport var frumsýndur
hjá Jötni nýverið. Þetta er rennilegur bíll
en sjálfsagt eru skoðanir skiptar um hvort
hann er fallegur. Ég get þó fullyrt að
hann vekur athygli í umferðinni ef það
er atriði fyrir einhvern. Framendinn er
hallandi og langur og mjór og þar leikur
framrúðan eiginlega aðalhlutverkið en um
eiginlegt grill er ekki að ræða. Framrúðan
er þeim eiginleikum gædd að hún endur-
kastar 60% sólarorkunnar sem annars
hefði hitað bílinn óbærilega - nokkuð sem
við höfum sjaldnast áhyggjur af hérlendis.
Hliðargluggar eru einnig stórir og aftur-
endinn hefðbundinn með ljósum á horninu
milli aftur- og hliðarglugga. Stuðarar að
framan og aftan tengjast með breiðu hlið-
arbretti sem setur sterkan svip á bílinn
og getur ýmist verið í sama lit og bíllinn
eða með öðrum lit. Hliðarhurð að aftan
hægra megin er rennihurð og afturhurðin
opnast upp.
Trans Sport hefur sæti fyrir sjö manns.
Allt eru það þægilegir stólar og eins nema
hvað bílstjórasætið hefur fleiri stillingar,
auk hinna hefðbundnu er hægt að breyta
halla á setu og hækka það eða lækka. Það
er iíka búið rafmagnsstillingum sem er
mjög þægilegt. Sætunum má koma þann-
ig fyrir að þrjú séu í miðju og tvö aftast
og síðan má kippa þeim út hvetju fyrir
sig og hafa autt rými þar sem hver og
einn telur hentugast. Séu öll sjö sætin
höfð í bílnum er farangursrými takmarkað
en sé tveimur öftustu sætunum kippt burt
er Trans Sport kjörinn ferðabíll fyrir fímm.
Skemmtileg innrétting
Innrétting er skemmtileg og er þægileg-
ur hliðarstuðningur fyrir alla nema farþeg-
ann í miðjusæti bílsins. Hönnuðum hefur
verið sérlega umhugað um að menn gætu
haft drykki við hendina því nánast í öllum
hornum eru hólf og grindur fyrir glös eða
flösku! Útsýni er gott og allur umgangur
yfirleitt góður en þó eru rennihurðir ekki
eins þægilegar viðfangs og hinar hefð-
bundnu.
Vélin í Trans Sport er sex strokka
þriggja lítra og 120 hestöfl með rafstýrðri
beinni innspýtingu. Af öðrum búnaði má
nefna aflstýri, veltistýri, hraðastillingu,
rafstýrðar rúðuvindur og læsingar og
bíllinn er sjálfskiptur og með útvarpi og
segulbandi. Sem fyrr segir er lengd hans
tæpir fimm metrar eða 4,86 metrar, hæð-
in 1,63 og breiddm 1,86 metrar. Lengd
milli hjóla er 2,74 m. Bíllinn vegur tæp-
lega 1.700 kg og er þyngdardreifingin
nánast jöfn á fram og afturhjólin. Bensínt-
ankur tekur 90 lítra sem er vissulega kost-
ur í ferðabíl. Trans Sport er á 14 þuml-
unga hjólbörðum og mætti alveg hækka
hann nokkuð með stærri hjóíbörðum.
Vegna hins óvenjulega framenda má
segja að það taki lengri tíma en ella að
átta sig nákvæmlega á stærðinni en að
öðru leyti er ökumaður fljótur að ná tökum
á Trans Sport. Stýrið er létt og hægt að
halla því eins og best hentar og sjálfskipt-
ingin er sérlega þýð. Vinnslan er allsæmi-
leg og þannig má segja að Trans Sport
sé þokkalega lipur í borgarumferð þótt
vitanlega sé hann óþarflega stór í flesta
venjuiega snúninga hversdagsins.
A malarvegi er hann þýður og stöðugur
á holóttum vegi þótt haldið sé 80 til 90
km ferðahraða. Vegar- og vélarhljóð heyr-
ast ekki mikið en hins vegar taka menn
eftir meira vindgnauði en búast má við á
þessum hraða. Þá er sérlega þægilegt að
Mælaborðið sjálft er í hefðbundnum
stíl en lagið á framendanum gefur
bílnum nokkuð óvenjulegt útlit og Iangt
er að teygja sig fram í rúðuna.
geta gripið til hraðastillingar á þjóðvega-
akstri en það er hins vegar sjaldnast hægt
nema umferð sé lítil.
Rúmgóður ferðabíll
Verð á Pontiac Trans Sport með þessum
búnaði er 2.546.000 kominn á götuna en
iækkar í 2.528.000 sé hann staðgreiddur
og boðin er þriggja ára ábyrgð. Þetta er
Hliðarhurðin er rennihurð og sætunum
má kippa út einu í einu eftir því hversu
mörg menn vilja hafa og þegar bak
þeirra er lagt fram kemur í jjós ágætis
matarborð.
jeppaverð en sem fyrr segir er þessi bill
aðeins framdrifinn. Hann er hins vegar
vel búinn og með góðu rými og hentar
því vel sem rúmgóður og þægilegur
ferðabíll meðan menn eru ekki að sækjast
eftir jeppa. Og þeir sem á annað borð
hafa hug á bíl sem þessum hafa kannski
oftast einnig ráð á öðrum bíl og minni til
hins daglega brúks. JT.
Wagoneer 2000 er byggður fyrir framtíðina og það er erfitt að sjá skyldleikann við núverandi Wagoneer jeppa.
Wagoneer fyrir framtíðina
Chrysler sýndi snemma á árinu í Bandarikjunum hugmynd sína að nýjum Wagone-
er 2000 fyrir framtíðina en eins og kunnugt er hefur hann litið breyst siðustu ár-
in. Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd er sá nýi lítt skyldur hinum gamla en
forráðamenn verksmiðjanna vilja þó ekki lofa því strax að Wagoneer framtíðarinn-
ar líti nákvæmlega svona út. Hann gæti litið svona út segja þeir.
Wagoneer eigendur eru yfirleitt íhaldssam-
ir og við höldum að þrátt fyrir allt höfum
við í senn haldið ákveðnum Wagoneer-ein-
kennum og bætt í hann ýmsum nýjungum
sem Wagoneer eigendum muni vel líka, seg-
ir Thomas C. Gale framkvæmdastjóri hönn-
unardeildar Chrysler fyrirtækisins.
Wagoneer 2000 hefur sex sæti sem hafa
má annað hvort sem tvo þriggja manna
bekki eða þrenn pör af stólum. I miðju hvors
bekks eru lausar sessur sem nota má til að
mynda ný sæti. í miðjum bílnum er síðan
það sem þeir kalla skemmtirými, sennilega
kallað tómstundaherbergi ef það væri í íbúð.
Þarna er að fínna sjónvarp, myndbandstæki
og geislaspilara og er þessi eining færanleg
örlítið milli sætanna eftir því hversu margir
ferðast í bílnum.
Þá er í bílnum sérstakur búnaður til að
tempra hita. Þegar bíllinn hefur staðið lengi
í sólarhita fer kælibúnaður í gang þannig
að innan dyra er þægilegur hiti þegar menn
ætla að setjast inn á ný. Ekki fylgir sög-
unni hversu aflmikil vél er í bílnum annað
en að hún er V-8 byggð úr áli.
Lengd bílsins er 4,95 metrar, breiddin 2
metrar og hæðin 1,68 m. J.T.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. APRlL 1991 11