Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1991, Síða 9
g. FERÐ4BLÍÐ HL
LESBOKAR
Eftir að búið er að klífa upp
í kirkju heilagrar Maríu er
þægilegl að geta rennt sér
alla leið niður i Funchal í
körfusleða.
21. SEPTEMBER 1991
Almenningsströndin í Funchal við gamla
tollhúsið.
Gengið eftir strandgötunni í Funchal, með gamla kastalann í forgrunni sem nú er herstöð.
iBili
Ævintýræjjan Madeira
Víða er litríkt uppi í fjöllunum
og góðar gönguleiðir.
ÖRLÍTILL depill á landakorti.
Stórbrotin landsýn úr lofti. Yfir
hinar hrjóstrugu, gróðursnauðu
Desertos, óbyggilegar klettaeyj-
ar, þar sem ekki finnst vatns-
dropi. Síðan fljótandi blóma-
garðurinn, Madeira, með snyrti-
legar húsaraðir í iðjagrænum,
bröttum hliðum og klettaborgir
í sjó fram. Skógarbelti og djúp
árgil með fossandi vatni. Skýja-
hula dansar í sólarblettum með-
fram skörðóttum tindum, en lág-
lendi lítið.
Flugbrautin á Madeira þykir
hættulega stutt. Þotur þurfa að
nota hana alla bæði í lendingu og
flugtaki. En hér er staðviðrasamt
sem betur fer. Flugstöðin er lítil
og minnir á íslenska innanlands-
flugstöð. Samt búa hér jafnmargir
og allir íslendingar. En þetta er
innanlandsflugvöllur í Portúgal og
mest af alþjóðaflugi fer um Lissa-
bon.
Allt síðan á dögum Viktoríu
Bretadrottingar hafa ríkir sóldýrk-
endur komið hingað á veturna.
Loftslagið þykir mjög heilnæmt.
Hallar-orlofshús Breta frá 19. öld
standa í hæðunum ofan við Funch-
al og í ekki stærri bæ er ótrúlega
mikið af eldri lúxushótelum sem
standast fyllilega samanburð við
fræg hótel bæði í New York og
London.
En við stefnum út úr bænum í
nýlegt hótel, Madeira Palacio. Þarf
að taka bíl í allar bæjarferðir?
Nei, hótelið reynist vera með
ókeypis rútuferðir fyrir hótelgesti
allan daginn. Góð sundlaug og
íþróttaaðstaða er við hótelið og
blómagarðurinn dregur til sín.
Síðdegis situr eldra fólk við hann-
yrðir í forsælu trjánna. Sandstrend-
ur eru engar á Madeira, en búið
að byggja sundlaugargarðinn Lido
við brimbijótinn í útjaðri Funchal.
Veitingahús
Ágætis veitingahús eru á hótel-
inu, en nokkuð dýr. Við spyijum
um kjörbúð og er vísað á eina í
hálftíma göngufjarlægð. Næsta
morgun villumst við á aðra hinum
megin við götuna og þar leynist
líka veitingahús með gómsæta fisk-
rétti, næstum helmingi ódýrara en
á hótelinu. Von að þeir vilji ekki
missa hótelgesti þangað.
Við höfnina í Funchal er úrval
veitingahúsa. Nokkur býsna
óvenjuleg. Val er um að snæða