Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1991, Blaðsíða 12
B I L A R
Me
,£?es*en*
//■
Þan
'I£'ði eJc/r,-
fl°ta se,a"n-na en
t/eiij
syndn
synia
var
'^SJcáJify^
Mercedes Benz 300 CE 24 blæjubíll-
inn vaktimikla athygli í Frankfurt.
Margt forvitnilegt í yfír 50
bíla flota frá Mercedes Benz
Mercedes Benz fyrirtækið var með stærsta sýningarbásinn á bílasýningunni í Frankf-
urt; þeim nægði enginn venjulegur bás heldur lögðu eina sýningarhöllina undir flot-
ann. Og veitti ekki af þvi þarna gat að líta ekki færri en 57 gerðir af fólksbiium
og jeppum og nokkra 10 tii 12 manna bílum, eða áhafnabílum eins og þeir eru oft
nefndir. Forráðamenn fyrirtækisins sögðu að mest væri lagt upp úr þessari sýningu
og að hér gæfist besta tækifærið til að sýna allt það nýjasta á heimamarkaði og fá
um leið athygli langt út fyrir hann. Einnig til íslands. Blæjubillinn 300 CE 24, 350
GD Turbó jeppinn og síðan nýjar útgáfur af fólksflutningabilunum MB 100 D og
T1 línunni voru helstu nýjungarnar sem Mercedes Benz kynnti. — Hvað væri líka
sýning sem þessi án þess að frumsýna til dæmis 300 CE blæjubílinn, sagði Werner
Niefer stjórnarformaður fyrirtækisins á blaðamannafundi á sýningunni. — Við höf-
um lofað einum nýjum bíl á ári og nú var komið að blæjubílnum.
Idag er Mercedes Benz annar stærsti
bílaframleiðandi Þýskalands. Þar í
landi starfa alls um 182 þúsund manns
hjá hinum ýmsu verksmiðjum og að
viðbættum starfsmönnum við framleiðslu
og sölu erlendis er heildarfjöldi starfsmanna
235 þúsund. Heildarsalan á síðasta ári nam
60 milljörðum marka og hafði náð 31,7
milljarði fyrstu sex mánuði þessa árs sem
er 7% aukning og hefur aukning verið svip-
uð í sölu fólksbíla og atvinnubíla. Framleidd-
ir voru alls 574 þúsund bílar.
-Samkeppni í bílaiðnaði kemur vel í ljós
á sýningum sem þessum. Þýskir bílar hafa
haldið sínu en ég er viss um að samkeppnin
á eftir að aukast á næstu árum. Mercedes
Benz hefur ekki aðeins verið í forystu fyrir
framleiðslu bíla í hæsta gæðaflokki, við
höfum í raun skapað þennan flokk allt frá
árinu 1951 þegar við buðum bíl sem átti
þá ekki sinn líka, sagði Werner Niefer enn-
fremur. Hann sagði aðspurður að salan í
heild á þessu ári væri eins og áætlanir gerðu
ráð fyrir, einhver heildaraukning, minni á
sumum mörkuðum en meiri á öðrum og
kvaðst hann einnig bjartsýnn varðandi sölu-
horfur á næsta ári.
Mercedes Benz 300 CE 24 blæjubíllinn
er byggður á 124 coupé gerðinni með öllum
eiginleikum og gæðum hans og má segja
að ofan á allt það bætist við þessi mögu-
leiki á að opna bílinn. Forráðamenn fyrir-
tækisins leggja þó áherslu á að þetta sé
ekki bara breyttur bíll með blæju heldur
hafi hann sína sérstöku eiginleika, þetta sé -
sérstakur bíll. Enda eru um 1.000 hlutir
endurhannaðir eða -sérstaklega hannaðir í
blæjubílinn. Bíllinn er styrktur á nokkrum
stöðum og búinn loftpúða fyrir ökumann
og farþega í framsæti. Bíllinn er með sex
strokka þriggja lítra og 220 hestafla vél,
fimm gíra handskiptingu og er sagður hafa
230 km hámarkshraða. Hröðun úr kyrrstöðu
í 100 km hraða tekur 8,5 sekúndur á sjálf-
skiptum en 8,7 á handskiptum bíl. En
hvað með öryggi ef bjllinn veltur? Bíllinn
er búinn öryggisgrind sem leggst sjálfkrafa
yfir farþegarýmið á sekúndubroti (0,3).
Bíllinn er fjögurra manna og er rými í aftur-
sætum allgott og farangursrými tekur 300
Nýja gerðin í jeppaflotanum er 350 GD
sem er með 3,5 lítra túrbóvél.
lítra.
Mercedes Benz 350 GD Turbo er flagg-
skip jeppaflotans. Ný dísilvélin er 3,5 lítra,
sex strokka, 136 hestöfl og nú með for-
þjöppu. Með þessari aflmiklu vél segja full-
trúar Mercedes Benz að torfæruakstur og
dráttur á þungum hesta- eða bátakerrum
verði barnaleikur. jt
Opel Astra tekur
við af Kadett
Opel Astra er nýr bíll frá GM í sama flokki og Kadett og á að taka við af honum.
Kadettinn Hefur lengi verið með söluhæstu bílum í Evrópu og hafa um fjórar millj-
ónir bíla verið framleiddar. Við hönnun Astra var lögð áhersla á að ná góðu rými
og að geta boðið röskan og vel búinn bíl. Hann er einnig búinn ýmsum þeim örygg-
isatriðum sem eru að ná útbreiðslu, svo sem sérstaklega styrktum hliðum og hægt
er að fá læsivarða hemla í allar gerðir. Yfirmenn GM í Evrópu segja þennan bíl
því hafa margt að bjóða sem ekki hafi tiðkast í bílum í þessum stærðarflokki held-
ur einungis í bílum af millistærð eða stórum bílum og að verksmiðjurnar hafi lagt
sérstaka rækt við endurskoðun á hráefnisnotkun með tilliti til endurvinnslu.
gengni eins og hægt er að kynnast honum
á gólfi í sýningarsal með því að setjast inn
í hann og skoða hann án þess að hægt sé
að aka. Höfuðrými er ágætt og vel fer um
mann í sætum hvort sem er frammí eða
afturí. Innanrými í Astra er meira en í
Kadett þar sem afturrúðan er höfð 15 cm
aftar og framrúðan 7,5 cm framar og bíllinn
er 2,8 cm hærri en Kadettinn. Þetta gefur
um 5 cm lengra fótarými fyrir aftursætisfar-
þega. Mælaborð er vel uppsett og allt er
það með sama ávala sniðinu eins og bíllinn
er að utan. Þótt mælar séu ekki stórir eru
þeir skýrir og allir rofar í þægilegri seiling-
arfjarlægð.
Farangursrými er 360 lítrar en stækkar
í 1200 lítra sé aftursætisbak lagt niður.
Önnur mál eru: Lengd 4,05 m, (skutbíllinn
4,78 m) breidd 1,68 m, hæð 1,41 m og hjól-
hafið er 2,51 metrar. Bíilinn vegur milli 930
og 1.000 kg eftir hver gerðin er og hann
ber um 500 kg.
Opel Astra er skemmtilega hannaður bíll og þótt fyrirrennari hans, Kadettinn,
hafi náð miklum vinsældum er viðbúið að Astra verði ekki síður vinsæll.
Astra er einnig fáanlegur sem skutbíll.
Mælaborð er vel frá
gengið og sætin fá
góða einkunn.
Opel Astra er skemmtilega hannað-
ur bíll. Ekki er augljóst að harin
er af Opel ættinni því hann er
með sérstöku yfirbragði. Örlítið
niðurbyggður framendi og rísandi afturend-
inn gera hann straumlínulagaðan enda er
bíllinn allur ávalur og er t.d. óvenju mikill
halli á framrúðunni. Stuðarar eru tiltölulega
nettir og luktir að framan og aftan eru
sveigðar út á homin og-fremur fínlegar.
Astra er boðinn þriggja eða fimm hurða,
sem hlaðbakur eða fimm hurða
skutbíll.Vélar eru 1,4, 1,6, 1,8 eða
2,0 lítra, 60, 75, 90, 115 eða 150
hestöfl og dísilvél sem er 1,7
lítra og 82 hestöfl. Handskipting
er fimmgíra eða sjálfskipt.
Hámarkshraðinn er gefinn upp
155 til 217 km og eyðsla f
bæjarakstri sögð 7 til 9 lítrar.
Stækkaður aðinnan
Astra virkar mjög þægilegur bíll í um-
12