Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1992, Side 7
Agamennon - 1919. Hervaldið gert hlægilegt.
Maður og kona, 1926. Næstum í hverri mynd útmálar Groz þá úrkynjun, sem
honum finnst blasa við í Weimarlýðveldinu.
Á götu. Vatnslitir og blek, 1926.
Pólitískar æsingar, 1919.
um sem hafa getið honum hvað mestrar
frægðar. Grosz leit á þær sem pólitísk flug-
rit og birti þær í útbreiddum, vinstrisinnuð-
um dagblöðum fremur en í hámenningarleg-
um listtímaritum. sumum þeirra safnaði
hann saman í möppur og fékk Malik-forlag-
ið - sem vinir hans, bræðurnir Wieland
Herzefelde og John Heartfíeld höfðu stofnað
- til að gefa þær út í stórum upplögum
þannig að hvert eintak kostaði sama og
ekkert. Möppurnar báru titla eins og „Guð
er með oss“, „Ecce homo“, „Andlit hinnar
ráðandi stéttar" og „Bakgrunnur". Teikn-
ingarnar í þeim voru sérlega andstyggilegar
en sprenghlægilegar sem varð til þess að
þær voru gerðar upptækar. Grosz þurfti að
mæta þrívegis fyrir rétti, ásakaður um guð-
last og móðgun við yfirvöld.
Austurríski rithöfundurinn Elias Canetti
segir frá því í ævisögu sinni að hann hafi
komið til Berlínar 1928 og heimsótt Grosz.
Grosz var frægur fyrir að verða vitlaus með
víni enn nú var hann hinn ljúfasti, enda
ódrukkinn, og gaf Canetti eintak af Ecce
home sem hann hafði falið fyrir lögregl-
unni. Canetti varð fyrir „kúltúrsjokki" þegar
hann skoðaði möppuna. Ekki vantaði að
myndirnar væru frábærlega góðar, teiknað-
ar með penna eða tússi og sumar málaðar
LESBÓK MORGUN8LAÐSINS 18. JANÚAR 1992 7