Lesbók Morgunblaðsins - 20.06.1992, Blaðsíða 4
ímyndin um óspillta
náttúru og sanna
Sögueyjarmenningu
Bláa lónið. Tilbúinn
ferðamannastaður
þar sem hægt var að
nýta sérstök náttúru-
skilyrði.
Eftirlíking af gerviheimi: Disneyveröld
við París, þar sem talið erað 11 milljón-
ir manna komi strax á fyrsta árinu.
ver er munurinn á Dimmuborgum í Mývatns-
sveit og Eden í Hveragerði? Hver er munurinn
á Höfða í Mývatnssveit og Bláa lóninu á Suður-
nesjum? Á Snorra Sturlusyni og Sykurmolun-
um? Gullfossi og diskótekum í Reykjavík?
Ferðalög um
ofurraunveruleika hins
vestræna heims leiða
ýmislegt merkilegt í ljós.
Til dæmis það, að Eden
í Hveragerði, Bláa lónið,
Sykurmolarnir og
reykvísk diskótek eru
raunveruleg fyrirbrigði
íslenzkrar
nútímamenningar á
nákvæmlega sama hátt
og Disneyland,
Disneyveröld, „the real
thing“ kók, McDonalds
og hraðbrautir eru
raunveruleg fyrirbrigði
bandarískrar
nútímamenningar.
Eftir INGÓLF Á.
JÓHANNESSON
Eða ætti ég kannski fremur að spyija
„hvað er líkt“?
Spurningar sem þessar þykja flestar frá-
leitar. Ekki það að það sé svo erfitt að svara
þeim, hvorki spurningunum um hvað sé líkt
eða hvað sé ólíkt, — heldur má gera ráð
fyrir að flestum finnist að það sé verið að
bera saman fyrirbrigði sem sé fráleitt að
bera saman. Að það sé verið að bera saman
ekta hluti og óekta. Að það sé verið að
bera saman hina óspilltu og fögru náttúru
og hinn sanna menningararf við það sem
fólk sækist eftir í venjulegum sunnudags-
biltúr eða hluti tengda alþjóðlegum menn-
ingaráhrifum — og ég undirstrika áhrifum.
En öll svona afneitun fellur um sjálfa sig
ef maður gerir sér grein fyrir að Dimmu-
borgir og Eden höfða jafnt til sunnudags-
ferðalaga, diskótekin þykja ekta af því að
þau eru ólík diskótekamenningu annars
staðar og að Snorri Sturluson var ekki síður
undir alþjóðlegum áhrifum en Sykurmolam-
ir. Hvað varðar diskótekin þá er fjallað um
þau á forvitnilegan hátt í leiðbeiningabók
fyrir ferðalanga um Útnorðurlönd sem ástr-
ölsk kona, Deanna Swaney, skrifar. Hún
getur diskótekanna ekki sjaldnar en þrisvar
í bókinni, fyrst í almennum ráðleggingum
til kvenna sem ferðast um löndin þrjú. Þar
segir, í lauslegri þýðingu minni:
„Konur sem ferðast einar um Island,
Grænland og Færeyjar munu líklega síð-
ur lenda í vandræðum en ef þær væru
að ferðast um heimaland sitt. Kona, ein
síns liðs eða í fylgd með öðru fólki, sem
leggur leið sína í íslenskt diskótek skyldi
búast við að verða vitni að eða taka þátt
í talsvert hömlulausu atferli." (Iceland,
Greenland & the Faroe Islands — a trav-
el survival kit Bls. 28.)
Swaney lætur ekki staðar numið en nefn-
ir digkótek sem „sérstakt númer" (extra
attraction) á lista yfír fímmtán helstu staði
fyrir ferðalanga að heimsækja á íslandi.
Hvað er ekta og hvað er óekta? Eden í Hveragerði með „feikaðri“ Afríkustyttu
og eftirlíkingu af víkingaskipi - og hinsvegar Laufásbærinn og norðlenzk torf-
hleðsla, hvorttveggja safngripir.
4