Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1992, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1992, Blaðsíða 10
Mælifell, þar sem greinarhöfundur var árið 1923, þegar kirkjan var byggð. Sól yfir Seylu egar langur tími líður er það næsta lítið, sem menn muna af því sem gerist frá degi til dags í hinu daglega lífi. Það er rétt eitt og eitt át- vik eða atburður, sem geymist í minni manna, eitthvað sem vekur athygli og hugsað er um JENNA JENSDÓTTIR Leit Ég leita í vösum mínum skúffum mínum hugskoti mínu að nýrri von í stað þeirrar sem lést í gær. Það var alltaf vitað að hún yrði ekki langlíf en í henni fólst skær sói sem vermdi sáiarkirnu mína. í örvæntingu leita ég að nýrri von — því ég veit að hún er til. SNÆFRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR Sorg i. Nótt Sáia mín syrgir þig: sandkorn mér renna greipar í gegnum gagnslaus án tilgangs. Sáia mín syrgir þig: . sói er mér horfin. Litlaust og lífsnautt land fer í eyði. II. Dögun Orð þrotin augun þreytt af ógrátnum tárum. Löm brotin leiðum breytt sjálft lífið í sárum. Fljúga þó fuglar fagnandi norður: Svanir er syngja um sói yfir bárum. III: Sólarupprás Svo grænt er grasið . upp það grær af sömu rót sem lengi lá þar vetrarföl í leynum. Nú syngur sólin visnum sálum harmabót þá stinnir stönglar rísa undan steinum. Höfundur ólst upp í Ölfusi. SVEINN ÓSKAR SIGURÐSSON Tunglmyrkvi meyjarinnar Tunglið leiðir mig ekki það lýsir mér ekki það vísar mér ekki í kjallara sálar í myrkvuðum sal saklausrar konu er leitar að einum eilífum anda og ástkærum manni Höfundur er nemi í Háskóla (slands. Björn bóndi á Seylu var búinn að kaupa sláttuvél 1929 þó lítið væri véltækt nema sléttir bakkar. En sumum gömlum bændum var illa við sláttuvélar, sögu að sláttuvélarljárinn lægi svo Qarri að kjarnmesta grasið yrði eftir við rótina og að kýr mjólkuðu ekki af sláttuvélarheyi. Eftir BJÖRN EGILSSON frá Sveinsstöðum á líðandi stund. Hitt allt hverfur í gleyms- kunnar sjó. Stóra-Seyla er eitt af stórbýlum héraðs- ins. Land jarðarinnar er mikið og gott. Beiti- landið nær yfir þveran Langholtsásinn og engið nær austur að Húseyjarkvíst, flæði- engi sem alltaf sprettur. Fyrir 60 árum voru þeir stærstu bændur í Skagafirði Bjöm hreppstjóri á Seylu, Jó- hann á Löngumýri og Jón alþingismaður á Reynistað. Ég var eitt vor á Seylu og hafði þann starfa að líta eftir ánum um sauðburðinn. En hvaða ár var þetta? Jú, ég man að það var merkisár, 1929, og sléttum 10 ámm áður en Einar J. Gíslason frelsaðist. Ég er ekki frelsaður, en ef það er rétt, sem ég ímynda mér, að ég sé á leiðinni upp, kemur að þvi síðar að ég frelsist. Það liggur ekk- ert á. Mér líður vel undir stjóm Jóns Bald- vins. Stjórnsýsla á vomm dögum er jafnar- stefna. Kratisminn er góður. Bjöm á Seylu hafði metnað og dug til að vera stórbóndi. Hann var ör í lund, fljótur að skipta skapi, en léttlyndur höfðingsmaður á marga lund. Það var gott til hans að leita og gestrisni frábær á Seylu og reyndi mjög á það. Bjöm á Seylu var umbótamaður í búskap sínum. Fyrsta stórvirki hans var það að hann girti allt land jarðarinnar, sem líklega hefur verið 1908. Girðingar vora þá naum- ast til nema kringum tún. Seylugirðingin var umtöluð. Lestamönnum þótti gott að gista á Seylu og hafa hestana vísa, en þeir vildu hlaupa heim ef þeir væm óhindraðir. Þetta vor munu hafa verið um eða yfir 400 fjár á fóðri. Auk 70 stóðhrossa munu hafa verið 12 hestar tamdir, því reitt var á 10 hestum neðan úr enginu.. Þá vom 5 eða 6 kýr mjólkandi og þá var ekki búið að stofna mjólkursamlag á Sauðár- króki, en mikils þurfti búið með, því fólkið var margt. Féð á Seylu var vel framgengið þetta vcr og heyrði ég aldrei um það talað, að Bjöm á Seylu hafi skort hey handa búpeningi sín- um. Hann var hygginn bóndi og vildi til- einka sér nýjungar, sem til hagsbóta vom. Það var góð tíð og ekki komu hret um sauðburð. Lambadauði var einhver eins og gengur og gerist, þar sem margt fé er. Þeg- ar stálpuð lömb lágu dauð allt í einu, var það kennt óhollri mjólk. Hvað sem um það hefur verið, þá voru tvílembingar vandir undir ær sem misstu. Ég vissi það frá fyrri tíð, að oft var mik- ið baks að koma ám í hús, sem vanið var undir. Bjöm á Seylu sagði fyrir um hvemig ætti að fara að því. Það var að binda snæri um annan afturfót og draga svo lambið. Þetta gerði ég og ærin elti sinn dauða lambs- skrokk heim að húsdymm. Móðurtilfínningin virðist ná út yfir dauða. Þetta var fyrirhafnarlaust og ég varð undrandi. Mér hafði ekki dottið í hug að fara svona að og ekki heyrt um það getið. Ein minning frá Seylu ber þó yfir aðrar. Það var þegar sólin kom upp yfir Blönduhlíðar- flöllin síðla nætur. Það var dásamleg sjón. Menn í Austurlöndum fjær, sem stunda dul- ræn fræði, segja að það sé heilög stund þegar sól kemur upp. Hrosshárinu Haldið Til haga Við Björn Bjömsson vorum nær heilan dag að raka af 70 stóðhrossum, sem síðan vom rekin upp á Staðarfjöll. Þetta var vorið 1929. Bjöm var ijóram árum yngri en ég, var þá tvítugur, svo okkur var ekki aldur að meini. Stóðið var allt ótamið og við urðum að taka hvert hross með valdi og sumar merarn- ar vom harðskeyttar. Þetta gekk en tók tíma. Við höfðum þröngt í réttinni og þá var að- staða góð. Þá var hrosshár passað eins og ull. Það var kembt og spunnið að vetrinum og búin til úr því reipi til að binda bagga. Faxhár og taglhár mátti ekki blandast saman. Tagl- hárið var miklu grófara. Það var haft í sila Bjöm á Seylu reiddi á 10-12 hestum heim af enginu. Hey voru látin í heygarð og tyrfð eins og sést á teikningunni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.