Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1996, Side 2
I
grafreiturinn. Á tímum Frakka að veiðum
fyrir Vestfjörðum varð ein helsta hvfld skipa
og áhafna á Haukadalsbót. Nokkrir þeirra
sem ekki náðu ættjörð sinni heilir hlutu leg
í reit þar á Nesjunum. Hann var vígður og
um búið snyrtilega. Merkur minningarreitur
um þá er þar hvíla og horfna atvinnuhætti.
Raunar munaði ekki miklu á sinni tíð að
Frakkar legðu út í stærri framkvæmdir á
þessum slóðum. Árið 1855 föluðust þeir eft-
ir aðstöðu til fiskverkunar á Dýrafírði; stofn-
un nýlendu með þúsundum manna. Napoleon
prins kom og leit á aðstöðu. Beiðnin olli
hvössum deilum þingmanna en var loks hafn-
að á Alþingi og af dönskum stjómvöldum.
Samskipti Frakka og Haukdæla voru mik-
il á tímabili. Heimar gróinna útvegsbænda
í dalnum og sjómanna af norðanverðri
Frakklandsströnd mættust. Kynni urðu
ýmis. Sum náin. Vöruskipti og verslun; fyrir
vettlinga og annað pijónles fengu heima-
menn biskví. Sjómenn þáðu líka nýtt kjöt-
meti og frönsk vín hresstu sálir heimamanna
þótt meira virði værí fyrir þá að fá veiðar-
færi í skiptum. Til varð hugtakið hauka-
dalsfranska, blandmál er dugði til þess að
greiða fyrir samskiptum. Ungum mönnum
í dalnum þótti þetta spennandi tíð, Matthí-
asi Ólafssyni meðal annarra. Við hittum
hann seinna í þessari frásögn.
HaukadalurEr
Herleg Jörð ...
Haukadalurinn gengur líkt og skápur inn
í hálendið. Byggðin kemur í ljós er við kom-
um ögn utar. Húsin standa í þyrpingu við
Haukadalsbótina. Fjara hennar myndár
mjúkan sveig inn í dalsmynnið. Lágur kamb-
ur er upp af fjörunni. Að baki honum að
innanverðu er Seftjörn, vettvangur mikilla
atburða í Gísla sögu. Það segir síðar af
henni.
Og sem við nálgumst brúna yfir Hauka-
dalsá opnast dalurinn ákaflega stílhreinn
og svipfagur. Hallalítill og allur grasi gróinn.
Haukadalur er herleg jörð,
hópur manna þar býr...
segir í gamalli bæjarrímu. Áin liðast eft-
ir miðju dalins í ótal hlykkjum. Þar veiddi
Guðmundur Hagalín silung áður en hann
varð þekktur rithöfundur. Ain fellur til sjáv-
ar um kyrrlátan ós. Haukdælir sögualdar
eiga að hafa brýnt byrðingum sínum þar,
hvfld fegnir eftir volk um viðáttur úthafsins.
Tignarlegt Kolturshornið skákar sér inn
í dalinn að utanverðu. Heiman við það skerst
Lambadalurinn inn í hálendið líkt og leyni-
hólf. Kaldbakur rís fyrir miðjum dal, ijalla
hæstur á Vestfjörðum (998 m). Fjöllin tvö
skapa í raun stórleik dalsins því íjöllin á
hvora hlið hans eru ósköp hlédræg; heita
enda þeim látlausu nöfnum Hæð og Feli.
Skammt utan við brúna á Haukadalsánni
tekur við allhátt holt, Sæbólsholtið. Á því
er tilvalið að stoppa því þaðan má glöggt
sjá til byggðar og sögu þessa dals. Skammt
framan við núverandi brú eru leifar annarr-
ar eldri. Hún er frá ofanverðri síðustu öld;
reist fyrir forgöngu Andrésar skipstjóra
Péturssonar í Höll sem gaf meiri hluta brú-
arefnis. Sennilega fyrsta stórbrúin í hreppn-
um. Sókndjarfur en farsæll hákarlaformað-
ur, Andrés, sem vildi framfarir Haukadals
sem mestar.
Framantil í Sæbólsholtinu er dálítill skóg-
arreitur, settur af félögum í Ungmennafé-
laginu Gísla Súrssyni. Það starfaði í dalnum
um miðbik þessarar aldar. Gísla saga segir
frá skógi í Haukadal; ógreiðfærum, svo þar
gat hann hulist Berki digra og mönnum
hans. En skógur eyddist með öldum. Hins
VIÐ SEFTJÖRN. Fyrir miðju sjást leifar íshússins í Haukadal en til hægri
rís náttúrugerð áhorfendabrekkan þar, sem konur sátu og fylgdust með
ísleikum Haukdæla á dögum Gísla sögu.
vegar sýnir skógræktarreitur ungmennafé-
lagsins að sprettuskilyrðin eru góð. Birkið
hefur sáð sér og breiðir nú úr sér um þann
hluta holtins sem friðaður er og liggur vel
við sólu. Þar vaxa nýir Haukadalsskógar.
Skógarmenn næstu aldar munu örugglega
geta leitað skjóls í þeim líkt og Gísli forð-
um. Líka haft af þeim nytjar. Viðarvöxtur
í tijágörðum Haukadalsbæjanna boðar það.
Gengið á Gíslahól
Sé horft til suðvesturs af Sæbólsholtinu
sjáum við upp til Gíslahóls. Hann er mikill
um sig og hár. Hóll, bær Gísla Súrssonar,
á að hafa staðið þar. Sæból, bær Þorgríms,
mágs hans, er hins vegar talinn hafa staðið
utar í dalnum, á hægri hönd okkar þar sem
við horfum upp til Hóls. Af sögu má ráða
að vel hafí verið húsað á báðum þessum
bæjum; langhús mikil er sneru eins og
dalurínn. Fjósið í Sæbóli er sagt hafa rúmað
sextíu nautgripi. Uppgröftur Sigurðar
Vigfússonar sumarið 1882 staðfesti það.
Því hefur verið mannmargt í dalnum á
söguöld og þörf mikilla bæjarhúsa.
Framanvert í dalnum stóðu víst kotbýli þar
sem einkum bjuggu seiðkarlar og
fjölkunnugar konur. Höfðu líka áhrif á gang
sögunnar.
Það er rétt að rölta upp á Gíslahól og
setja sig þar í spor bóndans á Hóli er friðlaus
mátti flýja bú sitt og fara huldu höfði um
árabil. Þaðan er óhindruð sýn um dalinn
allan. Óviða sést betur til mannaferða. Á
Gíslahól eru töluverð tóftarbrot, aðallega
þó tvennar tóftir. Sú ytri er aflöng. Snýr
með dalnum. Við teljum okkur standa yfir
rústum bæjar Gísla Súrssonar að Hóli.
Heyrum þyt sögunnar í hávöxnu grasinu . . .
Við höldum aftur niður á Sæbólsholtið.
Getum þá gengið með læknum sem Gísli
fór niður að Sæbóli nóttina sem Þorgrímur
bóndi þar var veginn launvígi. Vonandi
verður ganga okkar án sömu eftirmála.
ÞÁTTUR MATTHÍASAR
ÓLAFSSONAR
Gömlu býlin í Haukadal standa i röð upp
undir hlíðinni í utanverðum dalnum; Höll
fremst, þá Miðbær, greina má næst hvar
Ystibær stóð en yst er þó Húsatún. Á þessum
bæjum hafði sami stofninn búið mann fram
af manni allt fram yfír 1960 að keðjan
rofnaði. Hlekkimir voru þá orðnir tíu.
MATTHÍAS Ólafsson og Marsibil
Ólafsdóttir, kona hans. Matthías
átti sem kennari og kaupmaður
mestan þátt í eflingu Haukadals
um síðustu aldamót. Síðar varð
hann starfsmaður Fiskifélags
íslands og alþingismaður
Vestur-ísfirðinga.
Fyrir miðju dalsmynninu rétt við ytri
enda Seftjarnar standa nokkrar minjar
blómaskeiðs Haukadals á fyrri hluta
þessarar aldar. Erum við þá komin að hlut
Matthíasar Óiafssonar sem áður var
nefndur. Hann var bóndasonur frá Ystabæ
af kyni Haukdæla (f. 1857). Var i hópi fyrstu
nemenda á Möðruvöllum í Hörgárdal.
Gerðist síðan farkennari í heimasveit sinni.
Með góðum stuðningi Haukdæla, ekki síst
Andrésar Péturssonar, réðst hann í
byggingu barnaskóla þar á
sjávarkambinum. Húsið var fullbúið haustið
1885; skóli með heimavist. Nýtt skólahús
var reist árið 1911. Það stendur enn.
Bamaskóli starfaði í Haukadal allt fram á
miðjan sjöunda áratuginn að fólksfæð batt
á enda.
Matthías Ólafsson hóf fljótlega verslun.
Haukadalsbótin var gott skipalægi og
þangað sóttu fiskiskip, innlend og erlend.
Þau þurftu ýmsa þjónustu og dijúgan hluta
hennar veitti verslun Matthíasar. Um tíma
var hann í samstarfi við Gram, danska
kaupmanninn á Þingeyri. Haukadalur hlaut
verslunarréttindi árið 1892. Örnefni minna
á umsvifin og enn má sjá merkisteina gömlu
kaupstaðarlóðarinnar. Umsvifín drógu að
sér þurrabúðarfólk og grasbýli urðu til. Það
fjölgaði í dalnum.
SVEITAÞORP -
SJÁVARÞORP
Félagslíf efldist í Haukadal. Félög vom
stofnuð, svo sem málfundafélag,
framfarafélag og bindindisfélag.
Handskrifað blað, Kveldúlfur, var gefíð út
um hríð. Síldveiðifélag varð til; síld veidd í
kastnót og seld til beitu. Ekki fækkaði
skipakomum í Haukadal við það.
Kvenfélagið Hugrún var stofnað árið 1906,
það fyrsta á Vestfjörðum. Svo öflugt varð
félagið að það reisti myndarlegt
samkomuhús árið 1936. I því hafa menn
gert sér dagamun fram á síðustu ár.
Samkomuhúsið og barnaskólinn mynduðu
dálitla götumynd við veginn sem liggur í
gengum þorpið.
Þorpin voru tvö við sunnanverðan
Dýrafjörð. Aðeins klukkustundar gangur
var þó á milli þeirra. Sigling til Haukadals
var skemmri en með tilkomu aflavéla í skip
varð sá munur léttvægari. í Haukadal
tilheyrði allt land lögbýlum þar sem
búskapur var stundaður með sjávarútvegi.
Á Þingeyri gekk þorpsmyndunin ekki á land
til búskapar. Af þessu meðal annars dró
Þingeyri lengra stráið í samkeppni þorpanna
tveggja á ofanverðri síðustu öldinni þó
Haukadalur hefði vinninginn fram yfir 1880.
Útgerð með fiskverkun var hins vegar
stunduð frá Haukadal töluvert fram eftir
þessari öld.
Teina SÁ Ég í Túni ...
Seftjörnin áðurnefnda er verð skoðunar.
„Sefíð“ í henni er að mestu kjammikil og
stórvaxin tjarnastör. Var slegin áður. Þótti
gott fóður og var köllíið vatnstaða. Sefíð
komst inn í Gíslasögu: „Drykkja skyldi vera
at hvárratveggja (Sæbóli og Hóli), ok var
strát gólf á Sæbóli af sefínu af Seftjörn,"
segir þar. Orðalagið bendir til að sefíð hafi
verið notað er meira var haft við. Ef til
vill teppalögn þeirrar tíðar.
Innst við Seftjörnina rekumst við á
gamlan húsgrunn. Þar stóð fyrsta íshús
sýslunnar, reist rétt fyrir síðustu aldamót.
A milli mála hjuggu Haukdælir ís af Seftjörn
og drógu hann í hús. Þannig var unnt að
ísa síldina sem veidd var í kastnót. Óvíða
var betri beitu að fá. Enn fleiri skútur áttu
því erindi inná Haukadalsbót. Einn
húsbóndinn í dalnum fékk titilinn íshússtjóri.
Það var Elías Arnbjörnsson í Sæbóli.
Matthías Ólafsson stóð líka á bak við þetta
framtak. En svo fluttí hann suður til
Reykjavíkur með allt sitt árið 1914.
Umsvifin minnkuðu er Fransmenn hættu
að koma á bótina.
Á Seftjörninni ekki langt frá gamla
íshússgrunninum munu hinir fyrstu
Haukdælir hafa verið að leikum þeim sem
sagt er frá í Gísla sögu. Einhvem dag er
þar mannfjöldi í brekkunni að fylgjast með
leikum á ísnum. Hlé verður á þeim og Gísli
Súrsson bjástrar við brotið knatttré. Af
munni hans hrýtur vísan sem betur hefði
verið ókveðin:
Teina sák í túni
tál-gríms vinar fálu...
Þórdís í Sæbóli, systir Gísla, nemur vísuna
og ræður af henni hver valdur muni vera
að launvígi Þorgríms, bónda hennar.
Bóndinn á Hóli hafði kveðið yfír sig grimm
örlög. Á þau minnir æ síðan kaldur ísinn á
Seftjörn, sem máninn yfir Haukadal speglar
sig í vetur hvern.
BreyttirTímar
Við höfum svipast um í Haukadal; með
dálítilli hringsjá af Sæbólsholtinu þótt
fjölmargt sé óskoðað enn. Vígamenn læðast
þar ekki lengur á milli bæja og til franskra
duggara ellegar síldar hefur ekki sést um
árabil. Enn eru þó ljós í gluggum og tún
öll slegin.
Af holtinu sjáum við út á
Sveinseyraroddann, mikla sandeyri sem
gengur fram í fjörðinn skammt utan við
Haukadal. Til tals hefur komið að gera þar
stóran flugvöll; lendingu fyrir byrðinga
nútímans sem skera loftin heimsálfanna á
milli á fáeinum stundum. Ef til vill komast
því aftur á bein samskipti heimamanna við
fransmenn og aðrar framandi þjóðir með
fiskinn sem tilefni; auðlindina sem var, er
og verður undirstaða byggðar á þessum
slóðum. Hver veit nema þá verði Haukadalur
vestfírskt stórveldi í þriðja sinn ...
Höfundur er kennari við Hvanneyrarskóla.
2
i